Morgunblaðið - 26.11.1991, Page 21

Morgunblaðið - 26.11.1991, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 1991 21 Aukaþing Landssambands slökkviliðsmanna: Stefnt verður að stofnun stéttarfélags á næsta ári DRÖG að lögum uin nýtt stéttarfélag slökkviliðsmanna voru sain- þykkt af öllum þingfulltrúum á aukaþingi Landssmbands slökkviliðs- manna sem haldið var að Flúðum um síðustu helgi. Að sögn Guð- mundar Vignis Óskarssonar, formanns Landssambands slökkviliðs- manna, verða drögin lögð fram til endanlegrar samþykktar á aðal- þingi sem haldið verður næsta vor, en stjórn landssambandsins hef- ur verið veitt heimild til að undirbúa að leysa upp núverandi fagsam- band slökkviliðsmanna og vinna að stofnun stéttarfélags í kjölfarið. Að sögn Guðmundar Vignis þarf tvo þriðju hluta fulltrúa á aðalþingi til að samþykkja lagadrögin endan- lega, og þá jafnframt til þess að leggja niður Landssamband slökkviliðsmanna. Síðan þurfa tveir þriðju hlutar almennra félagsmanna að samþykkja niðurstöðu aðalþings- ins í atkvæðagreiðslu, en stofnfund- ur stéttarfélags yrði svo væntan- lega haldinn í framhaldi af því. Hann sagði að á aðalþinginu yrði tekin ákvörðun um það hvort nýtt félag yrði í Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja, en fram til þessa hefði það ekkert verið rætt. „Auðvitað á eftir að leysa ýmis mál á þessum ferli fram að aðal- þingi. Slökkviliðsmenn eru innan starfsmannafélaganna, og þar þurf- um við að ræða málin þannig að sá viðskilnaður fari fram með sem bestum hætti og í sátt og sam- lyndi, en við höfum enga ástæðu til að ætla annað en að svo verði. Staðan varðandi kaup og kjör er mjög mismunandi hjá slökkviliðs- mönnum, og hvort sem tekið er inið af því sem best lætur eða því sem verst lætur, þá er ljóst að mik- ið vantar upp á að það sé í eðlilegu horfi. Stjórnin er þó ekki með nein loforð um að þetta þýði einhveijar afgerandi breytingar upp á við í kjaramálunum, en við höfum þó trú á að þetta leiði það af sér, og þar kemur til með að reyna á okkur sjálfa hvernig við stöndum að okkar málum,” sagði Guðmundur Vignir. Á aukaþingi Landssambands slökkviliðsmanna var jafnframt rætt um brunamál almennt og einn- ig umhverfismál. Samþykkt var ályktun um að jafnhliða lagafrum- varp um brunamál, sem nú liggur fyrir Alþingi, þyrfti að ganga frá því að í reglum um tekjustofna sveitarfélaga yrði sérstaklega af- markað gjald til brunamála, sem innheimt yrði í gegnum trygginga- iðgjöld á stærri brunaáhættum. Guðmundur Vignir sagði að þeir brunar sem orðið hefðu með nokk- urra mánaða millibili hefðu sýnt fram á margvíslegan vanda sem óleystur væri, bæði varðandi skil- greiningu á valdsviði þeirra aðila sem ættu að hafa eftirlit með hönd- um, og jafnframt þeirra sem um framkvæmd ættu að sjá, þ.e. sveit- arfélaganna eða slökkviliðsstjóra í umboði þeirra. „Veikleikinn liggur mikið í fjár- vöntun, og þá sérstaklega í hinum minni sveitarfélögum, en nú eru miklar kröfur gerðar til þessara aðila bæði í lögum og reglum sem í raun og veru engan veginn er hægt að standa undir. Menii hafa áhyggjur af þessu ástandi, því þrátt fyrir velvilja sveitarstjórna þá eru peningar hreinlega ekki fyrir hendi, þannig að eftir stendur ábyrgðin á þessum áhættusama og erfiða mál- aflokki,” sagði hann. Morgunblaðið/Alfons „Strandaði” a Ólafsbraut Ólafsvík. Sex tonna trilla, Valdimar SH 68, „strandaði” á Ólafsbraut í Ólafsvík síðastliðinn föstudag, þegar eigandinn var að draga trilluna á kerru niður á bensínstöð til að þvo þar af henni sót. Óhappið vildi þannig til að önnur felgan á kerrunni brotnaði og þui'fti að fá gröfu og lyftara frá Ólafsvíkurbæ til aðstoðar. Engar skemmdir urðu á trillunni vegna óhappsins. Alfons. Ursögn úr alþjóðahvalveiðiráðinu: Auðvelt að gera okkur tortryggileg - segir Davíð Oddsson forsætisráðherra TILLAGA nefndar þeirrar sem undanfarið hefur starfað á vegum sjávarútvegsráðuneytisins um að ísland segi sig úr Alþjóðahval- veiðiráðinu verður til kynningar og umfjöllunar á ríkisstjórnar- fundi í dag. Davíð Oddsson forsætisráðherra sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að hann skildi mjög vel niðurstöðu nefndarinn- ar. Samt sem áður þyrftu þessi mál að skoðast vandlega áður en ákvörðun væri tekin, þar sem miklir hagsmunir væru í húfi. „Ég vonast til þess að tillaga herrans,” sagði forsætisráðherra, nefndarinnar verði lögð fyrir ríkis- „Ég skil mjög vel hugmyndina, stjórnarfund á þriðjudag og kynnt því Alþjóðahvalveiðiráðið hefur þar. Menn hljóta að þurfa að hagað sér með þeim hætti að það kynna sér rök þessarar nefndar hefur tapað virðingu og trausti og og hugmyndir sjávarútvegsráð- virðist vera illa starfi sínu vaxið. Auðvitað þurfa menn að hugsa sinn gang vandlega, áður en ákvörðun er tekin, því það eru miklir hagsmunir í húfi. Við vitum að það er auðvelt að gera málstað okkar, þótt góður sé, tortryggileg- an.” „Tillagan er órædd í ríkisstjórn, þannig að ég segi ekkert um hana að sinni,” sagði Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra er hann var spurður álits á þeirri niðurstöðu nefndarinnar að Island eigi að segja sig úr Alþjóðahval- veiðiráðinu. PEACHES Ekki aðeins mæður velja Gerber barnamat Jafnt feður sem mæður vilja veita börnum sínum það besta sem völ er á. Þess vegna velja þau Gerber First Foods ávexti og grænmeti, þegar þau byrja að venja börn sín við fasta fæðu. Þau vita að Gerber barnamaturinn er sá réttifyrir barnið, vegna þess að hann er framleiddur undir ströngu gæðaeftirliti, 100% náttúruafurð, næringarríkur, fíngerður og mjúkur fyrir litla munna. Litlu krukkurnar innihalda líka hæfilega skammta fyrir byrjendur og eru einstaklega þægilegar fyrir mömmu og pabba. Eftir þvísem barnið þroskast býður Gerber upp á barnamat ígóðu úrvali, sem hentar hverju þroskastigi. Gerber barnamatur er mikilvægur hluti af fæðu barnsins fyrstu tvö árin, samhliða vanalegum heimilismat. iriiiiu tiUMiauuij PEACHES PEACHES PEACMES Gerber V W í yfir 50 ár hafa böm verið okkar -Xý hjartans míl. Einkaumboð. iatanak^/// 72% markaðshlutdeild í U.S.A. segir meira en mörg ord... Sigurður Helgason Steinar J. Lúðvíksson Ævimimimgar Sig- urðar Helgasonar FRÓÐIHF. hefur gefið út bókina I sviptivindum - Æviminningar Sigurðar Helgasonar eftir Stein- ar J. Lúðvíksson. Á bókarkápu segir m.a.: „Það má með sanni segja að ævi Sigurð- ar Helgasonar hafi verið sviptisöm. Hann er fæddur og uppalinn í Reykjavík. Ungur fór hann að vinna fyrir sér en í bijósti hins unga manns blundaði þrá eftir menntun og frama. Hann fór til náms í Bandaríkjunum og eftir það hóf hann störf sem forstjóri Órku og Leiðrétting í frétt um Seltjarnarbók sem birt- ist í Morgunblaðinu laugardaginn 23. nóvember, féll niður niðurlag tilkynningarinnar. Bókin er unnin af Prentsmiðjunni Nesi á Seltjarn- arnesi, en Bókbandsstofan Flatey sá um bókband. Valgeir Emilsson hannaði kápu, en mynd framan á kápu er eftir Sigríði Gyðu Sigurðar- dóttur. Útgefandi er Seltjarnarnes- bær ásamt Valhúsaútgáfunni, Hrólfskálpö.r 14, sem sér pm sölu og dréífíngu bokárihnar. síðar einnig Steypustöðvarinnar í Reykjavík. Árið 1953 hófust af- skipti hans af flugmálum þegar hann kom inn í stjórn Loftleiða á frægum byltingarfundi í félaginu. Hann var síðan í fylkingarbijósti allt fram til aðalfundar Flugleiða árið 1991. Um árabil var hann for- stjóri Loftleiða í New York og átti dijúgan þátt í að byggja upp það stórveldi sem Loftleiðir urðu. Eftir sameiningu Loftleiða og Flugfélags Islands árið 1973 varð hann einn þriggja forstjóra félagsins,. síðan eini forstjóri þess á árunum 1974- 1985, en þá varð hann stjórnar- formaður Flugleiða. Það gustaði oft í kringum Sigurð Helgason, bæði á Loftleiðaárunum og þá ekki síður á Flugleiðaárunum, ekki síst þegar hann var að stýra félaginu út úr gífurlegum erfiðleikum sem það lenti í um tíma. Þá vildu margir losna við Sigurð úr forstjórastóln- um. En trúr sannfæringu sinni barðist hann til þrautar og vann sigur. í bókinni segir Sigurður frá mörgu sem gerðist að tjaldabaki. Hann segir frá illskeyttri valdabar- áttu og átökum um stefnur og markmið, bæði hjá Loftleiðum og Fljigleiðum. í sviþtivindum er 387 bláðsíður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.