Morgunblaðið - 26.11.1991, Síða 22

Morgunblaðið - 26.11.1991, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 1991 Bretland: Búist við að Major láti brátt til skarar skríða gegn Thatcher Lundúnum. Reuter. ÞVÍ er spáð í breskum fjölmiðl- um að John Major forsætisráð- herra hljóti nú að láta til skarar skríða gegn forvera sínum í emb- ætti Margaret Thatcher. Undan- farna daga hefur Thatcher varað mjög eindregið við því að Bretar fallist á áform um frekari sam- runa Evrópubandalagsríkja. Andstæðingar hennar í íhalds- flokknum saka hana um að ætla að spilla fyrir Major áður en hann heldur til leiðtogafundar EB í Maastricht í Hollandi 9.-10. desember næstkomandi. Lengst Svíþjóð: Spá stjóm- arslitum fyrir 1994 Stokkhólmi. Frá fréttaritara Morgun- blaðsins, Erik Liden. RÚMUR helmingur Svía, 58%, telur, að stjórn borgaraflokk- anna fjögurra endist ekki út kjör- tímabilið eða til ársins 1994. Finnst flestum líklegast, að Mið- flokkurinn verði til að sprengja hana. Þótt ekki séu liðnir nema 50 dagar frá því stjórnin tók við hefur Miðflokkurinn átt í deilum við hina flokkana þijá um ýmis mikilvæg mál. Má af þeim nefna skattamálin en hann var sömu skoðunar og jafn- aðarmenn og vildi aðeins lækka skatta hinna lægstlaunuðu. Stóð í stappi um þetta í nokkurn tíma en nú hafa miðflokksmenn loksins fall- ist á stjórnarstefnuna. í skoðana- könnun um þessi mál kom einnig fram, að 55% telja stjórnina verða að reiða sig á stuðning eða hlut- leysi Nýs lýðræðis til að halda velli. Nýtt lýðræði, sem er eins konar óánægjuflokkur og andsnúinn inn- flytjendum, bauð fyrst fram í kosn- ingunum í september og fékk um- talsvert fylgi. gekk Thatcher á föstudag í sjón- varpsviðtali er hún sagði að það væri „hrokafullt og rangt” af Major að hafna þjóðaratkvæða- greiðslu um þátttöku Breta í frekari samruna Evrópubanda- lagsins. Breska pundið féll tölu- vert í gær og hefur ekki verið lægra gagnvart þýska markinu í hálft annað ár. Margir félagar í íhaldsflokknum tjáðu sig í breskum blöðum á þann veg að Major yrði nú þegar að fara út í stríð fyrir opnum tjöldum gegn Thatcher því ella væri hætta á að hún ylli algerri upplausn í flokknum fyrir þingkosningar sem verða í síð- astadagi í júlí á næsta ári. Dagblað- ið Indepehdent hefur eftir ónafn- greindum „ráðherra í góðri stöðu” að Major hafi komist að þeirri niður- stöðu að vilji hún beijast þá renni hann ekki af hólmi heldur sé stað- ráðinn í að leggja hana að velli. Financial Times hefur á hinn bóginn eftir heimildarmönnum sínum að Major ætli að bíða átekta þangað til eftir leiðtogafundinn í Ma- astricht. Haldi Thatcher uppteknum hætti verði hún tekin í gegn eftir fundinn. The Times segir að jafnvel dyggustu stuðningsmönnum Thatc- her finnist að hún hafi gengið of langt. Haft er eftir fyrrverandi ráð- herra að Major verði að taka málið föstum tökum til þess að drepa á dreif umræðu um að Thatcher haldi , enn um stjórnartaumana. Sjálf virð- ist hún halda að svo sé, því í viðtal- inu við /TA/-sjónvarpið á föstudag kallaði hún Major „forsætisráðherr- ann minn”. Hugh Dykes formaður Evrópu- hreyfingarinnar, samtaka innan íhaldsflokksins sem beijast fyrir aukinni Evrópusamvinnu, sagði um helgina að Thatcher væri sennilega „endanlega gengin af göflunum”. Sir Marcus Fox, varaformaður 1922-nefndarinnar innan flokksins, og dyggur stuðningsmaður Thatc- her á meðan hún var leiðtogi flokks- ins, spurði: „Hvað meinar frúin eig- inlega?” Og ennfremur: „Það er ógnarhrokafullt af henni að lýsa John Major á þennan hátt.” Terry Dicks, þingmaður íhaldsflokksins, sagði að það væru líkur á því að Thatcher biðu sömu örlög og Edw- ards Heaths, foi'vera hennar, en hann hefur þótt bitur og vinafár eftir að hann lét af embætti. Thatcher í Kúveit Reuter Fjögurra daga heimsókn Margaret Thatcher fyrnim forsætisráðherra Bretlands lýkur í dag. Hún hefur fengið afburðagóðar viðtökur og henni verið þakkað innilega fyrir stuðning við málstað þjóðarinnar eftir innrás íraka í ágúst 1990. Hér sést Thatcher ásamt Ali Shamlan menntamálaráðherra (t.h.) og Sheib Abdulla Sheib, rektor Kúveithá- skóla, er hún tók við heiðursdoktorsnafnbót í heimspeki. Stríðið í Júgóslavíu: Talið að 5000 hafi týnt lífi í umsátrinu um Vukovar Belgrad. The Daily Telegraph. TALIÐ er að allt að 5.000 manns hafi látið lífið í bardögunum um króatísku borgina Vukovar sem stóðu yfir í þrjá mánuði. Þetta kem- ur fram í bráðabirgðaniðurstöðum sem júgóslavneski herinn birti um helgina. Byggt er á könnunum á þeim fólksfjölda sem reyndist vera í borginni, sjúkrahússkýrslum og frásögnum fanga og svo virðist sem tveir þriðju hlutar mannfallsins hafi verið í röðum óbreyttra borg- ara, jafnt Serba sem Króata. Tölurnar eru mun hærri en áður hafði verið áætlað og endurspegla grimmdina og miskunnarleysið sem einkenndi umsátur sambandshers- ins, einkum harðar og stanslausar árásir flugvéla og stórskotaliðs á illa búnar sveitir Króata á svæðum þar sem óbreyttir borgarar bjuggu. Kosningar í Belgíu: Græningjar og þjóðernis- sinnar unnu kosningasigra Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. FLOKKUR græningja í Vallóníu vann töluvert á í kosningunum í Belgíu á sunnudag, sömu sögu er að segja um flæmska þjóðern- issinna í Flandri. Allir rótgrónu flokkarnir töpuðu fylgi í kosning- unum og tveir nýir þingflokkar bættust við. Alls voru rúmlega fjöru- tíu listar í framboði en fyrir kosningar áttu ellefu flokkar fulltrúa á þingi. Athygli vekur að í frönskumæ- landi hluta Belgíu, Vallóníu, vinna græningjar umtalsverðan kosning- asigur en þingflokkur þeirra fer úr þremur þingmönnum í tíu. Hins vegar unnu öfgasinnar töluvert á í flæmskumælandi hluta iandsins, Flandri, þar sem flæmski þjóðern- issinna flokkurinn, Viaams Blok, vann tíu þingsæti. Flokkur fjárglæframannsins Van Rossem, sem viil draga úr áhrifum stjórn- málamanna í Belgíu og bauð fram í fyrsta sinn, fékk þijá menn kjörna þrátt fyrir að formaðurinn hefði verið tukthúsaður skömmu fyrir kosningar, en hann er ákærður fyrir fjárplógsstarfssemi. Yfir höf- uð eru úrslit kosninganna, eins og þau liggja fyrir, gamalgrónum stjórnmálaflokkum í Belgíu mikið áhyggjuefni og þá sérstaklega ávinningur flokka sem boða inn- flytjendahatur og þjóðrembu. Af málflutningi talsmanna þeirra ■i"v"r "t-t" flokka sem róa á mið kynþáttahat- urs er ljóst að hann beinist fyrst og fremst gegn Afríkumönnum og innflytjendum frá Mið- og Austur- Evrópu. Endanleg úrslit kosning- anna munu að öllum líkindum iiggja fyrir i dag en kosningaþátt- taka var í kringum 93% sem er hálfu prósentustigi minna en í kosningunum árið 1987. Þátttaka í kosningum í Belgíu er skylda og kjörstaðir voru einungis opnir í fimm klukkustundir, frá klukkan átta á sunnudagsmorgun til eitt eftir hádegi. Auðir seðlar og ógild- ir voru Iitlu fleiri en í slðustu kosn- ingum þrátt fyrir spár um hið gagnstæða. Búist er við því að Baldvin konungur fari þess á leit við bráðabirgðastjórn Wilfreds Martens að hún sitji þar til ný stjórn hefur verið mynduð. Konungur mun samkvæmt venju skipa reyndan stjórnmálamann til að kanna stjórnarmyndunarmögu- ——....—...................... leika og fela síðan einhveijum leið- toga stóru flokkanna stjórnar- myndun á grundvelli þeirrar könn- unar. Líklegast er talið að Martens verði falin stjórnarmyndun en flokkur hans er enn stærsti flokk- urinn á þingi. Eftir kosningar 1987 tók-stjórnarmyndun 100 daga. Úrslit kosninganna voru sem hér segir: Úrslit kosninganna 1987 í svig- um. CVP, flokkur Martens, flæm- skumælandi kristilegir demó- kratar: (43) 38 þings. PVV, flæm- skumælandi fijálsiyndir (25) 26 þings. VU, flæmskir þjóðernissinn- ar (16) 10 þings. SP, flæmskir sósíalistar (32) 28 þings. Vlaams Blok, flokkur öfgafyllri þjóðernis- sinna en VU (2) 12 þings. AG- ALEV, flæmskir græningjar (6) 7 þings. ROSSEM (6) 3 þings. PS, frönskumælandi sósíalistar (40) 35 þings. PSC, frönskumælandi kristilegir sósíalistar (19) 19 þings. PRL, frönskumælandi fijálslyndir (23) 20 þings. ECOLO, frönsku- mælandi græningjar (3) 10 þings. FDF, berst fyrir hagsmunum frönskumælandi Brusselbúa (3) 3 þings. NF-FN, öfgaflokkur til hægri (3) 1 þings, Talið er að 90% af miðborginni hafi verið jöfnuð við jörðu. Vísbendingar um mikið mannfall eru meðal ann- ars ijöldi líka sem lá við aðalgöturn- ar eftir að sambandsherinn, sem stjórnað er af serbneskum liðsfor- ingjum, hafði tekið borgina. Tvær grafir fundust við knattspyrnuleik- vang Vukovar og þar voru um 200 lík sem grafin höfðu verið í óbrotn- um viðarkistum. Ekki er vitað hvort um Serba eða Króata var að ræða. Sambandsherinn segir að 60% af 50.000 íbúum Vukovar hafi yfirgef- ið hana áður en bardagar hófust. Meðal þeirra voru margir Serbar sem flúðu yfir Dóná til Serbíu. Sagt er að í síðustu viku hafí herinn fjar- lægt 10.000 - 12.000 manns, aðal- lega konur, börn og aldraða, úr kjöll- urum þar sem þau hafði leitað skjóls. Fólkið var flutt á brott frá borginni. Á sunnudag sagði starfs- maður á borgarsjúkrahúsinu, þar sem haldið var áfram að liðsinna fólki í kjallara byggingarinnar allan þann tíma sem átökin stóðu yfir, að yfir 700 manns hefðu dáið þar og sár 2.000 að auki hefðu hlotið meðhöndlun. Starfsmenn urðu að skera upp án þess að nota deyfilyf og við skelfilegar aðstæður, þeir gáfu sjálfir blóð og urðu að oft að skilja lík eftir í húsagörðum og á götum vegna bardaganna. Mörg lík- in eru svo rotin að ekki er lengur hægt að bera kennsl á fólkið. Stríðsaðilar hafa sakað hvor ann- an um fólskuverk í Vukovar, einkum síðustu vikurnar er bardagar fóru harðnandi. Engar traustar sannanir hafa fundist fyrir ijöldamorðum þrátt fyrir ásakanir í þá veru á hend- ur Króötum. Herlögregla, undir stjórn Serba, hefur handtekið króa- tískan lækni, sem stjórnaði. bráða- þjónustudeild, vegna „gruns um að særðir Serbar og Króatar hafi ekki fengið jafn góða meðhöndlun og vegna þess fjölda líka sem fundist hefur á sjúkrahússlóðinni”. Læknir- inn, dr. Vesna Bosanac, var dáð af samstarfsmönnum sínum í umsátr- inu fyrir dugnað. Fjölmiðlar í Serb- íu, sem eru undir stjórn ríkisvalds- ins, hafa sakað hana um að „drepa Serba” til að rýma fyrir króatískum sjúklingum á sjúkrahúsinu. Miðausturlönd: Washington verður næsti fundarstaður Jerúsalem, Beirut, llelsinki. Reuter. Daily Telegraph. STJÓRNVÖLD í Jórdaníu og Líbanon og PLO, Frelsissamtök Palest- ínumanna, hafa þegið boð Bandaríkjastjórnar um frekari viðræður um frið í Miðausturlöndum í Washinglon 4. desember næstkomandi. Sýrlendingar og ísraelar hafa ekki svarað boðinu ennþá. Jórdanir samþykktu Washington í Bandaríkjunum, fékk tækifæri til sem fundarstað á föstudag og Líb- anir í gær. Svo var einnig með PLO en samtökin- vildu þó bíða með form- lega tilkynningu þar að lútandi þar til ljóst yrði, að fulltrúar þeirra fengju vegabréfsáritun til Bandaríkjanna. Israelskir ráðamenn eru hins vegar æfareiðir yfir því, að fundarboðið var sent út á föstudag áður en Yitzhak Shamir, sem var í opinberri heimsókn að ræða um fundarstaðinn við George Bush forseta. ísraelar líta heldur ekki svo á, að Bandaríkja- stjórn sé hlutlaUs í málinu, heldur dragi hún taum arabaríkjanna. Shamir gaf þó í skyn á sunnudag, að líklega samþykkti ísraelsstjórn Washington sem fundarstað í fyrstu atrennu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.