Morgunblaðið - 26.11.1991, Síða 28
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPnÆVINNULÍF ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 1991
. 28
LAUNAKERFI
Námskeið þetta er ætlað öllum þeim, sem annast launaútreikn-
ing. Námskeiðið hentar jafnt byrjendum sem lengra komnum.
TÍMI: 27. nóvember og 18. desember.
FJÁRHAGSBÓKHALD
Námskeið þetta er ætlað byrjendum. Kennd verða undirstöðu-
atriði tölvubókhalds, merking skjala, færsla, afstemmingar og
útskriftir.
TÍMI: 11. desember.
FJÁRHAGS-, VIÐSKIPTAMANNA-,
SÖLU- OG BIRGÐABÓKHALD
Námskeið þetta er ætlað þeim, sem hafa undirstöðuþekkingu
í bókhaldi. Farið verður í notkun einstakra kerfa og áhersla
lögð á að kenna þátttakendum skipulögð vinnubrögð. Kjörið
til að fá yfirsýn yfir hin fjölþættu STÓLPA kerfi.
TÍMI: 4. desember.
NÝTT - BYRJENDANÁMSKEIÐ - NÝTT
Hentar fyrir alla þá, sem eru að byrja vinnu við tölvur, og eins
þá, er óska að læra meira um tölvurnar sjálfar. Farið er í undir-
stöðuatriði tölvuvinnslu, MS-DOS og kennd dagleg umgengni
við tölvur. Áhersla er lögð á að kynna hinn mismunandi hug-
búnað sem völ er á, s.s. ritvinnslur og töflureikna. Notkun
Windows kennd.
TÍMI: 28. nóvember og 10. desember.
Hvert námskeið tekur einn dag og stendur frá kl. 9.00-17.00.
Hjá okkur er einnig stöðug kennsla á öll þau tölvukerfi, sem
þörf er á i nútíma atvinnurekstri, s.s. fyrir tilboðsgerð, verk-
bókhald, framleiðslukerfi, bifreiðakerfi og innfiutningskerfi.
KERFISÞRÚUN HF.
Skeifunni 17, 108 Reykjavík
Símar: 68 80 55 - 68 74 66
Iðnaður
Iðnlánasjóður er stærsta
lánastofnun iðnaðarins
IÐNLÁNASJÓÐUR er stærsta lánastofnun iðnaðarins. Um síðustu
áramót námu útlán til iðnaðar rúmum 30 milljörðum króna og
þar af var hlutdeild Iðnlánasjóðs tæpir 10 milljarðar króna eða
33%. Utlán Landsbanka Islands námu tæpum 6 milljörðum króna.
Á meðfylgjandi mynd, sem unnin er eftir upplýsingnm úr Iðnlána-
sjóðstíðindum, má sjá skiptingu útlána til iðnaðar milli lánastofn-
ana. Verðbréfamarkaður er þar undanskilinn.
Með breytingum sem gerðar
voru á lögum um Iðnlánasjóð árið
1984 var honum falið að taka við
starfsemi Iðnrekstrarsjóðs. Þá var
stofnað til Vöruþróunar- og mark-
aðsdeildar sem hóf reglulega starf-
semi árið eftir. Tekjustofn deildar-
innar er hlutur í iðnlánasjóðs-
gjaldi, en hlutverk hennar er m.a.
að stuðla að vöruþróun og aukinni
samkeppnishæfni iðnaðarins
ásamt því að örva nýsköpun og
auka útflutning iðnaðarvara.
Undanfarið hefur verið unnið
að heildaryfirliti um ráðstöfun
fjármagns hjá Vöruþróunar- og
markaðsdeildinni. Athugunin
stendur fyrir árin 1985 til 1990
og var lánsupphæðin á þeim tíma
420,1 milljónir króna. Á samatíma
voru veittir styrkir fyrir 241,6
milljónir. Af einstökum iðngrein-
um fór mest til járn- og málmiðn-
aðar eða tæpar 102 milljónir sem
gera 15,4%. Til rafiðnaðar var
veitt 81,5 milljón eða 12,4% og
Aðrir fjárfestingarsjóðir
Iðnþróunarsjóður 1.314 kr. (4%)
3.081 kr. (10%)________________________
7iiáfimSlrmjir3jS!S
fataiðnaðar 80,6 milljónum eða
12,2%.
Þjónusta
Nýgerð af öryggissímum
Neyðarhnappur kemur notanda í talsamband við Vara
NÝLEGA hóf öryggisþjónustan Vari innflutning á nýrri gerð alhliða
öryggissíma frá Tunstall Telecom í Bretlandi. Síminn fæst í tveimur
útgáfum og fylgir báðum gerðum neyðarhnappur sem notendur
geta borið á sér. Með því að þrýsta á hnappinn kemst notandinn í
talsamband við öryggismiðstöð Vara.
Símann er bæði hægt að fá sem
sjálfstætt símtæki, sem jafnframt
nýtist sem hefðbundinn sími og sem
tæki sem tengt er við síma á heimil-
inu. Neyðarhnappinn má nota til
að svara símanum úr /jarlægð, til
dæmis úr sæti sínu. Á tækjunum
eru beinvalstakkar fyrir mikið not-
uð símanúmer. Einnig eru á þeim
styrkstillir fyrir heyrnardaufá og
útbúnaður fyrir þá sem nota heyrn-
artæki. Hægt er að stilla símann á
svokallaða ferilsvakt, en þá lætur
hann vita ef notandinn hefur ekki
fótavist í ákveðinn tíma. Innbyggð
rafhlaða knýr tækið ef húsastraum-
ur bregst, jafnframt gefur tækið frá
sér aðvörunarmerki ef síma- eða
rafmagnslína rofnar.
í fréttatilkynningu frá Vara seg-
ir að öryggissíminn sé sannkallað
undratæki sem eigi allsstaðar
heima þar sem fólk vill búa við
öryggi, heilsu sinnar vegna eða
vegna hættu á innbrotum eða eldi.
Hundruð þúsunda þessara tækja
séu í notkun um alla Evrópu og
hafi margsannað gildi sitt. Öryggis-
síminn er viðurkenndur af Pósti og
síma og Brunamálastofnun ríkisins.
PAPPÍRSLAUS VIÐSKIPTI
NÚTÍMA VERKLAG í VIÐSKIPTUM
IMámskeiðið mun kynna
pappírslaus viðskipti og hvernig
þau munu hafa áhrif á starfsemi
fyrirtækja með tilliti til hag-
kvæmni, öryggis og lagalegra
atriða. Farið verður_ í nokkur
dæmi um notkunarmöguleika og
skýrt frá þeirri reynslu, sem komin er á pappírs-
laus viðskipti á íslandi. Einnig er farið yfir hvern-
ig skal hefjast handa og hvað þarf til.
Uppbygging námskeiðsins:
1. hluti: Hugtökin EDI, SMT, Edifact.
Skilgreining á því hvað teljast pappírslaus við-
skipti og hvað ekki. Lagaleg atriði. Öryggismál.
Helstu aðilar hér innanlands. Sýning mynd-
bands.
2. hluti: Dæmi um notkunarmöguleika, sparn-
að, kostnað og fleira. Hérlendis og erlendis.
Tollur, banki, inn/útflytjandi. Skjalagerð vegna
sjávarvöruútflutnings. Hvenær á SMT ekki við.
3. hluti: Staðan hér á landi. Hvernig á að byrja?
Hverjir geta hjálpað? Hvað þarf til? Hvað
þarf að varast? Sýning myndbands.
Námskeiðið er ætlað stjórnendum í fyrirtækjum
og stofnunum, sem fara með fjármál, markaðs-
mál, innflutning og útflutning.
Leiðbeinendur:
Ágúst Valgeirsson, flugmálastjórn.
Guðmundur Hannesson, IBM.
Óskar B. Hauksson, Iðntæknistofnun.
Þorvarður Kári Ólafsson, Iðntæknistofnun.
Tími:
2. desember kl. 9.00 til 17.00 í Ánanaustum 15.
Stjómunarfélag Islands
Ánanaustum 15, sími 621066.
Nýjii NORSTAR
símakerýið kemur þér strax
Northern Telecom hefur hannað einfalt og þægilegt stafrænt
símakerfi sem nýtir kosti nútíma tölvutækni til hins ýtrasta.
Símakerfið er sniðið fyrir fyrirtæki með allt að 6 bæjarlínur
og 16 innanhússlínur. Sannkallað framtíðar símakerfi á
hagstæðu verði.
_ I ■ ih Am northom
norslar rVvfe,ccom
í samband
framtíðina
PÓSTUR OG SÍMI
Söludeildir ( Kirkjustræti, Kringlunni, Ármúla 27
og póst- og símstöðvar um land allt