Morgunblaðið - 26.11.1991, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 1991
35
Afmæliskveðja:
Ingibjörg Sveins-
dóttir — 80 ára
Hún Ingibjörg Sveinsdóttir átti
áttræðisafmæli 25. nóvember. Mér
er ánægja að fá að óska henni til
hamingju. Við höfum ekki þekkst
lengi, en ég hafði heyrt þessarar
konu getið og óskaði þess að fá
tækifæri til að kynnast henni. Mér
varð að ósk minni og fyrir það er
ég þakklát.
Hér áður fyrr gætti áhrifa móð-
urinnar og eiginkonunnar mest
heima fyrir, uppeldi barnanna og
velferð heimilisins bar hún fyrir
bijósti. Áhrifin voru hljóðlát, en
traust og víðtæk um leið. Slík lýsing
hygg ég að eigi vel við um vinkonu
mína, Ingibjörgu Sveinsdóttur. Eins
og margur einstaklingurinn af
hennar kynslóð, ólst hún upp við
hörð kjör, en af elju, dugnaði og
þrautseigju braust hún til mennta
og tók ung verslunarpróf. Slíkt var
fátítt í þá daga. Ekki voru styrkir
og námslánin fyrir hendi þá.
En þrátt fyrir að hún ynni við
verslunarstörf fyrstu árin að námi
loknu og eftir andlát manns síns
varð starfssvið Ingibjargar aðallega
innan veggja heimilisins.
Hún eignaðist góðan mann, Þor-
grím Magnússon, og fjóra drengi.
Einn þeirra misstu þau í frum-
bernsku og ekkja hefur Ingibjörg
verið í mörg ár. En þótt kraftarnir
séu farnir að dvína og heilsan að
bila njóta synirnir og ástvinirnir enn
umhyggju og alúðar þessarar góðu
konu. Gott er hana heim að sækja
og gestrisin er hún með afbrigðum.
Ingibjörg er trúkona mikil og fáa
þekki ég sem' hafa heimiiisaltari
sem Ingibjörg. Kvölds og morgna
Franskir kvikmyndadagar
Hmir saklausu
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Hinir saklausu („Les Innoc-
ents”). Sýnd í Háskólabíói.
Leikstjóri: André Téchine. Að-
alhlutverk: Sandrine Bonnaire,
Simon de la Broisse, Abdel
Kechiche.
Það sýnir hve mikil landkynn-
ing felst í bíómyndum að undanf-
arið hafa þær fylgt með í kynn-
ingu á löndum eins og Danmörku
og Bretlandi í Reykjavík. Nu eru
sýndar fímm franskar myndir í
Háskólabíói í tilefni franskra daga
í Perlunni og Óðinsvéum.
Reyndar var frönsk kvik-
myndavika í Regnboganum í byij-
un ársins en áhugamenn um
franskar myndir ættu að vera við-
bótinni fegnir. Ein af myndunum
nú er Hinir saklausu eftir André
Téchine. Það er vei leikin og sorg-
leg dæmisaga úr Frakklandi nú-
tímans sem gerist í litlu þorpi á
ótilgreindum stað í suðurhluta
landsins. Lengi vel er ekki víst
hvert myndin stefnir en brátt
kemur í Ijós að undir sléttu yfir-
borði leynast gömul sár, kynþátta-
hatur og ódæðisverk sem hafa
hörmulegar afleiðingar í för með
sér.
Hin gullfallega Sandrine Bonn-
aire leikur unga konu, Jeanne,
sem kemur að norðan í brúðkaup
systur sinnar og til að fínna
daufdumban bróður sinn. Sá er
gjarn á að stijúka að heiman en
í leit að honum kynnist Jeanne
tveimur gjörólíkum mönnum, er
hafa áhrif á líf hennar; hinum
veikbyggða Stephane og araban-
um Said. Hún elskar þá báða en
átökin á milli þeirra eiga eftir að
enda með ósköpum.
Tengslin á milli persónanna eru
öll mjög afdrífarík en táknræn
um leið. Stephane er öfgasinnaður
hægri maður, kynþáttahatari sem
Said sá fremja hryðjuverk á inn-
fluttum aröbum. Hann hefndi
þeirra með því að slasa Stephane
alvarlega en í ljós kemur að faðir
Stephane, sem þekkir ekki forsög-
una, er ástfanginn af Said. Inní
þessar kringumstæður kemur Je-
anne og hinn daufdumbi bróðir
hennar, sakleysingjarnir í miðju
hinna stríðandi afla.
Reyndar eru allir fórnarlömb í
því kynþáttavandamáli sem
myndin lýsir. Sagan vindur hægt
ofan af sér en hún setur upp and-
stæðurnar á forvitnilegan hátt í
úttekt sinni á að því er virðist
ósamrýmanlegum heimum er
kalla yfir sig tortímingu.
Segðu honum
að ég elski hann
- („Dites-Lui que je l’aime”)
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Sýnd í Háskólabíói. Leiksljóri
Claude Miller. Gérard Depardi-
eu, Miou-Miou, Claud Piéplu.
Frakkland.
Fransmenn eru sem óðast að
ná fótfestu í íslenskum kvik-
myndahúsum með sífjölgandi
kvikmyndadögum, kvikmyndavik-
um og nýjast af nálinni er sýning
fimm mynda undir samnefnaran-
um „Frönsk bíóveisla”. Og í kjölf-
ar þessarar viðleitni hefur frum-
sýningum á nýjum, frönskum
myndum fjölgað talsvert á al-
mennum sýningum. Þetta er hið
besta mál í alla staði þó raunin
sé sú að árlega fari framhjá okk-
ur fjöldinn allur af bestu myndum
Frakka, sem eru stórtækir kvik-
myndagerðarmenn. Hvar er t.d.
snilldarverkið Jean de Florette og
framhald þess, sem var jafnvel
enn betra þó svo að Depardieu
vantaði sárlega, Manon lindarinn-
ar? Hvernig væri að taka þessar
myndir til sýninga, kvikmynda-
húsaeigendur, þó ekki væri nema
í virðingarskyni við minningu
stórleikarans Yves Montand. Ut-
gáfa á myndbandi væri einnig vel
þegin. Einhvern tímann fréttist
af þessum myndum á leið í Regn-
bogann, síðan ekki sö.guna meir.
Segðu honum að ég elski hann
er ákaflega raunaleg mynd um
ástarþríhyrning. Depardieu er ein-
hleypur skrifstofumaður úti á
landsbyggðinni sem hefur á sér
gott orð í hvívetna. En í rauninni
lifir hann í blekkingarheimi. Hann
er hugsjúkur maður vegna þrál-
átrar ástar sinnar til æskukær-
ustunnar sem er nú gift kona og
vill ekkert með hann hafa. Miou-
Miou leikur samstarfsmann hans
á skrifstofunni sem gerir hosur
sínar grænar fyrir honum árang-
urslítið.
Þessi ástarþríhyrningur snýst
upp í harmleik og er borinn uppi
af haldgóðum leik Depardieus sem
túlkar af miklum sannfæringar-
krafti hægfara geðbilun bókarans
sem að lokum missir öll tök á til-
verunni. Miou-Miou er geysigóð
leikkona og fögur - minnir dulítið
á blöndu af Jeanne Moreau og
Bardot - og yfir höfuð er Segðu
honum að ég elski hann velkomin
þó farin sé að reskjast. Depardieu
er næstum örugg trygging fyrir
góðri skemmtun.
1 1 Sma ouglysmgar
FERDAFÉLAG ® ÍSLANDS
| FÉLAGSLÍF | uð - setustofa og eldhús með áhöldum. Boðið verður uppá gönguferðir meðan dagur end- ist, kvöldvöku, jólaglögg og pip- arkökur. Lífgið upp á skamm-
□ EDDA 599126117 = 1
□ FJÖLNIR 599111267 - 2 Frl. ÖLDUGÖTU 3 S: 11798 19533 Félagsvist Miðvikudaginn 27. nóv. stundvíslega kl. 20.00 verður Ferðafélagið með félags- vist í Borgartúni 6 (Rúgbrauðs- degið með þátttöku í skemmti- legri helgarferð með Ferðafélag-
I.O.O.F. Rb. 1 = 14111268 - E.T.II. Kk. inu. Góð færð - ieiðin greið. Opið hús og gönguferð um Elliðaárdalinn
HELGAFELL 599111267 VI 2 Laugardaginn 30. nóv. býður Ferðafélagið upp á stutta gönguferð um Elliðaárdalinn og lagt verður upp í gönguna frá
gerðinni). Þennan mánaðardag 1927 var Feröafélagið stofnað. Spilað á Ferðafélagsspilin. Veit-
V AD-KFUK Fundur I kvöld kl. 20.30 á Holta- vegi. Biblíulestur 1: Séra Sigurð- ur Pálsson. Kaffi eftir fund. Allar konur velkomnar. ingar í hléi. Aðgangur kr. 500.- Missið ekki af mannfagnaði sem veitir ánægju. Aðventuferð til Þórsmerkur Næstu helgi verður aðventunnar minnst í Þórsmörk. Brottför er laugardaginn 30. nóvember kl. 08.00. Það fer vel um alla í Skag- fjörðsskála/Laugardal - þar er lokinni er þátttakendum boðið í opið hús kl. 15.00-16.00 i Mörk- inni 6 og þá gefst gestum gott tækifæri til þess ða kynnast þessu væntanlega félagsheimili F.l. Ferðafélag Islands.
kemur hún hljóð fram fyrir almætt-
ið, og Guð kærleikans bregst ekki .
sínum börnum. Hann, sem gaf hið
góða á liðinni tíð, mun einnig varð-
veita og blessa á ófcrnu ævikvöldi.
Þakka þér, Ingibjörg, fyrir góð
kynni og til hamingju með afmælið.
Lilja Sigurðardóttir
Ingibjörg Sveinsdóttir, Drápu-
hlíð 46 í Reykjavík, varð áttræð í
gær, 25. nóv. Hún er kona hógvær
og lítt gefin fyrir að trana sér fram.
Samt veit ég að mín kæra mág-
kona misvirðir ekki þótt ég gerist
svo djörf að skrifa um hana fáeinar
línur á þessum tímamótum. Þetta
verður hvorki ævisaga né ættar-
tala, enda slíkt algjör óþarfi. Sjálf
vitnar hún best um sitt líf með
verkum sínum. Hún er ein af því
fólki sem vill vera en ekki sýnast.
Ingibjörg er af þeirri kynslóð
sem ólst upp við þá lífsskoðun að
heiðarleiki, samviskusemi og hjálp-
semi væru mikiivægir eiginleikar í
fari manna. Allir skyldu gera sitt
besta til þess að láta gott af sér
leiða, ekki hugsa alltaf fyrst og
fremst um sjálfa sig heldur aðra.
Þessa eiginleika hefur Ingibjörg
öðlast í ríkum mæli. Hégómi og
sýndarmennska er henni víðs fjarri.
Hún kemur til dyranna eins og hún
er klædd.
Raunar er næsta ótrúlegt að
Ingibjörg sé orðin áttræð. Þótt árin
marki eðlilega sín spor er alltaf
eins og geisli út frá henni. Ennþá
er fjör og glettni í augunum. Ennþá
á hún svo mikið að gefa öðrum.
Hún býr yfir einhveijum innri eldi
eða orku sem ekki er svo auðvelt
að lýsa. Þegar setið er í stofunni
hennar í Drápuhlíðinni yfir kaffi-
bolla og spjallað um alla heima og
geima, því hún getur talað um alla
skapaða hluti, hvort sem um er að
ræða pólitík, trúmál eða búskap,
þá streymir þessi kraftur til þeirra
■ MINNISBÓK Bókrúnar 1992,
6. árgangur, almanak í dagbókar-
formi, er komin út. í bókinni eru
efnisatriði við hvern dag er snerta
konur og viðfangsefni þeirra fyrr
og nú og við upphaf hvers mánað-
ar er heilsíðuljósmynd. Fimm kon-
ur rita pistla. Þær eru: Sr. Ragn-
heiður Erla Bjarnarsdóttir, Ag-
ústa Gunnasdóttir, myndhöggv-
ari, Guðrún Elva Ólafsdóttir,
formaður Kennarafélags Reykja-
víkur, Helga Sigurjónsdóttir,
sem kringum hana sitja. Menn fara
glaðari og ríkari af hennar fundi.
Stundum skammast maður sín fyr-
ir eigin aumingjaskap þegar hún
segir á sinn hressilega máta: „Já,
það þýðir ekkert annað en taka
hlutunum eins og þeir eru.”
Það er gaman að ræða við Ingi-
björgu. Og viðmælandinn finnur
að í hennar augum er hann ein-
hvers virði og það er ekki bara af
kurteisi eða skyldurækni að honum
er veitt viðtal. Hún hefur líka svo
brennandi áhuga á hlutunum, oft
ákveðnar skoðanir og liggur ekkert
á þeim. Andleg mál eru henni mjög
hugleikin og les hún allt sem hún
kemst í á þeim sviðum. Þar er hún
mjög ftjálslynd í skoðunum og
leggur áherslu á það besta sem hún
finnur hveiju sinni. Og trúin, þessi
sterka óbilandi trú á „guð í alheims
geimi”, ef til vill er það ekki síst
hún sem veitir Ingibjörgu þessa
innri orku. Því að hún er mjög trú-
uð kona. Hún þarf enga milliliði,
engar kreddur, engar sérstakar
stefnur, heldur lifandi bein tengsl
við almættið. Ég hef séð eftir hana
á blaði bæn sem hver prestur gæti
verið stoltur af að hafa samið.
Því miður hefur Ingibjörg afar
lítið gert af því að skrifa niður
hugleiðingar sínar og margvíslegan
fróðleik sem hún býr yfir. Hún er
nefnilega vel ritfær eins og hún á
raunar kyn til. Skáldskapur er mjög
ríkjandi í ætt hennar. En hún hefur
ort betri ljóð en margur sem kallar
sig skáld, ljóð með sínu eigin lífi
og verkum.
Það er lífsljóðið hennar Ingi-
bjargar sem streymir til samferða-
mannanna bæði í björtustu gleði
og dýpstu sorg. Þess vegna erum
við, sem höfum fengið að kynnast
henni, ríkari eftir.
Guð gefi Ingibjörgu og fjölskyldu
hennar góða og bjarta daga.
Sigríður I. Þorgeirsdóttir
kennari og námsráðgjafi, og Pá-
lina Skarphéðisdóttir, bóndi í
Skagafirði, sem lýsir starfi sínu
sem forðagæslumaður. Kynnt er
starfsemi_ Stígamóta, sagt frá
Zonta á íslandi en nú er hálf öld
síðan þessi alþjóðasamtök námu
hér land. Ljóð-stafir eru eftir
Steinunni Eyjólfsdóttur. For-
maður útgáfufélagsins Bókrúnar,
Björg Einarsdóttir, fylgir Minn-
isbókinni úr hlaði en ritstjóri henn-
ar er Valgerður Krisljónsdóttir.
íslenski hlutabréfasjóðurinn hf.
Stjórn íslenska hlutabréfasjóösins hf.
boöar til hluthafafundar í félaginu
27. nóvember 1991 og verður fundurinn
haldinn aö Suðurlandsbraut 24,
5. hæö, Reykjavík, kl. 16:00.
Fyrir fundinn verður lögö tillaga stjórnar
um breytingu á 6. gr. samþykkta félagsins.
Efni tillögunnar er aö stjórninni veröi heimilað
aö hækka hlutafé félagsins í einu lagi,
eöa í áföngum, í allt aö kr. 500.000.000,-.
o LANDSBRÉF H.F.
£ Landsbankinn stendur með okkur
í Sudurlandsbraut 24, 108 Reykjavík, sími 91-679200, fax 91-6Ý8598.
< Löggilt verdbréfafyrirtæki. Adili ad Verðbréfaþingi íslands.