Morgunblaðið - 26.11.1991, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 1991
37
Haukur Guðmunds-
son - Minning
Fæddur 20. apríl 1921
Dáinn 16. nóvember 1991
Knörrinn hikar, veltir súðavöngum,
votan réttir háls af öldulaugum;
blístrar pípuvörum, lotulöngum,
ljósum bregður, deplar stíruaugum;
blakar voð að rá, sem ermi að armi,
andar djúpt um háfa, lyftir barmi,
spymir hæli hart í lagargöngum.
(Einar Ben.)
Félagi minn og fyrrverandi mág-
ur, Haukur Guðmundsson frá Gerð-
um í Garði, lést á Dvalarheimilinu
Hrafnistu, Reykjavík, 16. nóvember
sl. Mig langar að minnast hans
nokkrum orðum.
Haukur Guðmundsson fæddist í
Gerðum í Garði 20. apríl 1921.
Foreldrar hans voru Guðmundur
Þórðarson frá Hálsi í Kjós, útgerð-
armaður og oddviti í Garði, og kona
hans Ingibjörg Jónsdóttir frá Kára-
neskoti í Kjósarsýslu. Systkini
Hauks voru Þórður, f. 1905, Finn-
bogi, f. 1906, Guðrún, f. 1909, Jón,
f. 1911, Kristín, f. 1915 og Hjör-
dís, f. 1925. Á lífi eru Hjördís og
Guðrún.
Bernskuheimili Hauks var mann-
margt og mikið umleikis hjá föður
Hauks, þar sem hann var í forystu-
sveit í atvinnu- og félagsmálum. í
þessu umhverfi hefur bernska
Hauks liðið við leik og störf og
snemma kynntist hann sjómennsku
og verslunarrekstri. Hann lauk
prófi frá Verslunarskóla íslands
1940 og farmannaprófi frá Stýri-
mannaskóla íslands 1950.
Leiðir okkar Hauks lágu saman
þegar hann kvæntist systur minni
Halldóru Gunnarsdóttur þann 5.
febrúar 1955. Þau stofnuðu heimili
á Laugarnesvegi 13, Reykjavík.
Árið 1957 keyptu þau sér hæð í
Nökkvavogi 31 og bjuggu þar alla
sína búskapartíð eða þar til þau
slitu samvistir árið 1967.
Börn Hauks og Halldóru eru:
Gunnar, fæddur 1955, rafiðnfræð-
ingur, Kópavogi. Kvæntur Guðrúnu
Ingimarsdóttur gjaldkera; Ingi-
björg, fædd 1957, hjúkrunarfræð-
ingur, Garðabæ. Gift Þorsteini
Gunnarssyni framreiðslumanni.
Þeirra börn eru Halldóra og Hauk-
ur; Birgir Kristbjörn, fæddur 1962,
matreiðslumaður, Siglufirði.
Kvæntur Sóleyju Erlendsdóttur
framleiðslumanni. Þeirra börn eru
Guðlaugur og Gunnar. Einnig átti
Haukur Ingólf, f. 1952, með Mar-
gréti Kristjánsdóttur.
Á þessum árum var Haukur
stýrimaður hjá Jöklum hf. Eins og
fyrr segir var hann með verslunar-
skóla- og farmannapróf. Þetta var
góð blanda og undirstaða fyrir þá
sem stunda farmennsku og sigla
um heimsins höf. Enda nýtti Hauk-
ur sér þessa menntun sína. Hann
rak verslun í Kópvogi samhliða far-
mennskunni með félaga sínum Ólafi
Eiríkssyni. Einnig rak hann heild-
verslun um nokkurt skeið.
Haukur var frjór og hugmynda-
ríkur á viðskiptasviðinu og velti
fyrir sér ýmsum hugmyndum í sam-
bandi við nýtingu sjávarafla og
samskipti við önnur lönd.
Haukur átti fallegt heimili og
Ijölskyldu, hann hafði örugga stöðu
sem stýrimaður á skipum félagsins.
Hann var selskapsmaður og afskap-
lega veitull og góður heim að sækja.
Hann undi hag sínum allvel.
En þá banka örlagadísirnar upp
á. Sumarið 1960 fór Haukur sína
jómfrúarferð sem skipstjóri á ms.
Drangjökli. Hann tók með sér konu
sína og 4 ára son. Á Pentlandsfirði
við Orkneyjar er eitt erfiðasta sigl-
ingasvæði sjófarenda, straumar eru
þar þungir og óreglulegir og allra
veðra von. Þar sökk Drangjökull
29. júní. Öll áhöfnin bjargaðist.
Kona skipstjórans, Halldóra, þreif
íslenska fánann í besdikkinu og
vafði son þeirra inn í þjóðfánann
og þannig fór drengurinn um borð
í gúmmíbjörgunarbátinn. Skipstjóri
fór síðastur frá borði og varð að
synda frá sökkvandi skipi sínu. Með
því hélt Haukur Guðmundsson
grundvallarreglu skipstjórnar-
manna. Hann lét ekki óttann yfirb-
Bamdaskólinn á Hvanneyrí
Innritun á vorönn er hafin
Athygli er vakin á því, að unnt er að hefja nám í
Bændaskólanum á Hvanneyri um áramót.
Fyrsta önn helst 6. janúar.
Stúdentar, sem tara styttri leið, geta halið nám í janúar, apríl eða júní.
Kennsla á 5. önn hefst 6. janúar, búfræðinoar hafið samband.
Námið skiptist í fjórar annir, þar af ein verkleg á
viðurkenndu býli. Á síðustu önn er kennt á tveim-
ur sviðum: Búfjárræktarsviði og rekstrarsviði.
í undirbúningi er þriðja sviðið: Landnýtingarsvið.
Dæmi um valgreinar, kenndar veturinn 1991-
1992: Hrossarækt, ullariðn, skógrækt, vinnuvélar,
búsmíði, sláturhúsastörf, ferðaþjónusta o.fl.
Við veitum upplýsingar í síma 93-70000.
Umsóknarfrestur er til 10. desember 1991.
Bændaskólinn á Hvanneyri
311 Borgarnesi.
uga sig og fór síðastur frá borði
eins og skylda hans bauð honum.
Að venju fjallaði siglingadómur
um þennan skipskaða og varð all-
nokkur málarekstur út af honum.
Dómurinn hreinsaði Hauk af öllum
ávirðingum og þeim var vísað á
bug. Hann hvarf frá skipafélaginu
Jöklum hf. og hóf störf hjá öðrum
útgerðum. Þessi atburðir mörkuðu
sínar rúnir á líf Hauks og fjölskyldu
hans. Það fór ekki á milli mála, að
hann hafði orðið fyrir áfalli en hann
var óbugaður.
Það var ekki þeirra stíll Garð-
veija, ættmanna Hauks, að gefast
upp. Fræg er sagan af Guðmundi
Þórðarsyni föður Hauks. Skipið
hans Haffari var talið af og allir
hættir að leita og tryggingafélagið
vildi ekki kosta meiru til. En Guð-
mundur gafst ekki upp heldur hélt
leit áfram á eigin ábyrgð. Skipið
fannst síðar langt suður í hafi með
bilaða vél. Var áhöfnin heil á húfi
en lerkuð mjög.
Haukur var sjálfstæðismaður
þeirrar gerðarinnar sem unna frels-
inu til að bjarga sér sjálfur. Hann
vildi verða eigin húsbóndi. Á árun-
um 1963-1964 voru þeir Guðfinnur
Þorbjörnsson, Birgir Þorvaldsson
og Agnar Hallvarðsson o.fl. að
breyta síðutogaranum ísborginni í
flutningaskip. Haukur slóst í félags-
skap með þeim og tók við skip-
stjórn á ísborginni.
Eg var háseti nokkur misseri á
ísborginni með Hauki. Þetta var
góður tími, það var góður byr og
nú spyrnti Isborgin hæli liart í lag-
argöngum. Útgerðin tók að sér að
flytja það sem bauðst og víða var
farið, Norðurlönd, Austur- og
Vestur-Evrópa, Bretland, írland og
niður í Miðjarðarhaf. Áhöfnin var
samhent og Haukur naut virðingar
hennar. Hann var reglusamur og
traustur skipstjóri og það sem okk-
ur fannst þó mest um vert var að
við áttum hann að sem félaga. Það
var engin stéttaskipting um borð í
ísborginni. Við átum allir saman í ■-
messanum og þannig held ég að
Haukur hafi viljað hafa það.
Haukur hafði víða farið á sjó-
mannsferli sínum. í erlendum hafn-
arborgum hvatti hann okkur yngri
mennina til þess að fara í land og
skemmta okkur og kynnast menn-
ingu annarra þjóða. Kvað það
ástæðulaust að híma við bryggjur
og veiða marhnúta og kímdi um
leið. Skipsfélagarnir voru marg-
breytilegrar gerðar. Þarna voru
hugsjónaríkir sósíalistar með eld-
móð í brjósti, útsjónarsamir kapítal-
istar á leiðinni að verða ríkir, fjall-
harðir sjálfstæðismenn sem
skömmuðu kommana og eldri menn
sem vildu siða þá yngri og leiðbeina
þeim í lífsins ólgusjó. Það var
stemmning í þessu margbreytilega
lítrófi mannlífsins og hún átti vel
við Hauk.
Árið 1965 hætti Haukur á sjón-
um og fór í land. Þá hóf hann störf
hjá Skipaútgerð ríkisins og starfaði
þar til 1982 sem fulltrúi. Þar kom
sér vel fyrirhyggja hans í námsvali
á yngri árum. Eftir það bjó hann í
íbúð sinni í Stóragerðinu ásamt með
börnum sínum Ingibjörgu og Birgi
þar til hann flutti á Hrafnistu í
Reykjavík.
Með Hauki Guðmundssyni er
genginn góður drengur og duglegur
sjómaður sem oft þurfti að sigla
úfinn sjó. Um leið og ég sendi börn-
um hans, systrum og öðrum að-
standendum samúðarkveðjur, kveð
ég þennan félaga minn með ljóðlín-
um úr kvæðinu Hrafnistumenn eft-
ir Örn Arnarson.
Guð blessi minningu Hauks Guð-
mundssonar.
Hvort sem fleytan er smá
eða seglprúð að sjá
og hvort súðin er tré eða stál
hvorst sem knýr hana ár
eða reiði og rár
eða rammaukin vél yfír ál
hvert eitt fljótandi skip
ber þó farmannsins svip.
Hann er feijunnar andi og hafskipsins sál.
Þorsteinn H. Gunnarsson
SPAÐUI ÞETTA
SPIL
Pyramis er spilið sem unnið hefur til verðlauna bæði
fyrir skemmtilega hönnun og hversu auðvelt er að spila
það. Spilið er fyrir þátttakendur frá 5 ára aldri og vex
spilið með spilaranum eftir því sem hann verður færari.
€
GUÐJÓN GUÐMUNDSSON
HEILDVERSLUN, SÍMI 65 30 75