Morgunblaðið - 26.11.1991, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 26.11.1991, Qupperneq 38
38 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 1991 Minning: Þorvarður Júlíusson bóndi - Söndum Fæddur 3. júlí 1913 Dáinn 20. nóvember 1991 „Friður sé og veri með þér um tíma og eilífð! Blessaður!” Svona heilsaði minn ágæti gamli nágranni Þorvarður á Söndum mér undan- tekningalítið núna seinni árin og mér þótti ákaflega vænt um þessa kveðju. Þorvarður var búinn að vera næsti nágranni okkar frá 1944 en þá fiutti hann að Söndum ásamt eiginkonu sinni, Kristínu Jónsdótt- ur. Þetta eru orðnar býsna langar samvistir sem gott er að minnast því þar ber fáa skugga á. Þorvarð- ur var einstaklega góður nágranni og alltaf tilbúinn að greiða úr öllum þeim málum sem hann hafði mögu- leika á og oft miklu meira. Þorvarður hafði yfirleitt ákveðn- ar skoðanir á hveiju því máli sem fyrir bar og var aldeilis óhræddur við að láta þær í ljós. Vitnaði hann þá gjarnan, máli sínu til stuðnings, í fomsögur og ljóðmæli sem honum lá hvoru tveggja laust á tungu enda vel lesinn í þeim efnum og minnug- ur ágætlega og var oftast stórgam- an að hlýða á mál hans hvort sem maður var honum sammála eða ekki. Við höfum átt langa samleið og margs er að minnast, margt er að þakka, guði sé lof fyrir liðna tíð. Ég sé hann í mínu hugskoti standa á Sandhlaðinu með hæglátu höfðingsfasi og varp'a til mín kveðj- unni fögru sem er hér í upphafsorð- um. Þannig ætla ég að muna hann. Alfaðir ræður, öldurnar qúka. Eilífðin breiðir út faðminn sinn mjúka. Hafí hann kæra þökk fyrir sam- fylgdina. Björn Einarsson, Bessastöðum. Mig langar í örfáum orðum að minnast tengdaföður míns Þorvarð- ar Júlíussonar bónda á Söndum í Miðfirði. Hann fæddist í Hítarnesi í Kol- beinsstaðahreppi elsta barn hjón- anna Kristínar Stefánsdóttur, Ein- varðssonar bónda í Hítarnesi og Júlíusar Jónssonar bónda í Hítar- nesi, ættaður frá Einifelli í Staf- holtstungum. Þorvarður ólst upp í foreldrahúsum í stórum systkina- hópi. Yngri systkini hans voru: Lov- ísa_ búsett í Hafnarfírði, Stefán bjó á Ólafsvöllum og víðar (látinn), Jón (f. 1917 lifði 4 vikur), Jón búsettur í Borgarnesi, Halldóra í Reykjavík, Valtýr bóndi í Hítameskoti, Laufey í Reykjavík, Unnur býr í Reykjavík, Aðalsteinn (lést af slysförum ungur maður), Páll bóndi í Hítamesi (lát- inn). Þann 7. febrúar 1937 gekk hann að eiga eftirlifandi konu sína Sig- rúnu Kristínu Jónsdóttur frá Skinn- astöðum í Torfalækjarhreppi, Bjarnasonar frá Björgum á Skaga og Sólrúnar Einarsdóttur, bónda í Stekkadal Sigfreðssonar og k.h. Elínar Ólafsdóttur. Þorvarður og Kristín hófu búskap á Akri í Torfalækjarhreppi hjá Jóni bónda og alþingismanni Pálmasyni. Þaðan lá leiðin að Skinnastöðum þar sem þau bjuggu um skeið í fé- lagi við fóstra Kristínar. Vorið 1944 tóku þau á leigu jörð- ina Sanda í Miðfírði af góðkunn- ingja sínum, Hjálmtý Péturssyni sem hafði þá nýlega keypt hana. Tveimur árum síðar keyptu þau síð- an jörðina. Þau ræktuðu tún og juku bústofninn ár frá ári og á blómaskeiði bændastéttarinnar, þegar allir máttu framleiða sem þeir gátu, þá var Sandabúið um skeið með stærstu fjárbúum á ís- landi. En það var allt löngu fyrir tíma kvóta og niðurskurðar. Þau hjón eignuðust fímm börn sem eru: Sólrún gift Berki Bene- diktssyni frá Barkarstöðum, búa þau í Núpsdalstungu og eiga tvö börn. Valgerður gift Sigfúsi Jóns- syni frá Litla-Hvammi, nú búsett á Laugarbakka og eiga þau fjögur börn. Halldóra gift Þórði Jónssyni rafvirkjameistara, búsett í Hafnar- fírði og eiga þau tvö börn. Stefán Egill búsettur í Reykjavík og á hann fjögur börn, sambýliskona hans er Guðrún Jóhannsdóttir. Kristján Einar prestur í Hjallasókn í Kópavogi, kvæntur Guðrúnu Láru Magnúsdóttur og eiga þau þijú börn. Það var mannmargt heimilið á Söndum fyrr á árum og mörg börn önnur ólust þar upp. Þorvarður var víðlesinn maður og vel heima á mörgum sviðum. Hann kunni ógrynnin öll af Ijóðum og kvæðum, kom vel fyrir sig orði, og honum var lagið að segja mikið í fáum orðum, enda skortir þann mann aldrei orð sem les íslendinga- sögurnar og Biblíuna mikið. Hann lagði oft orð í belg í þjóðmálaum- ræðuna í rituðu máli og fylgdist vel með öllu sem var að gerast í þjóðlíf- inu. Prestastéttin var honum ætíð hugleikin og vart var til sá prestur í landinu sem hann ekki vissi ein- hver deili á, og marga þeirra þekkti hann vel. Hann var baráttumaður í hveiju sem var, þar sem málefni eða mann- eskjur áttu undir högg að sækja. Hann var stórhuga, einarður, og ákveðinn í skoðunum og lét þær ætíð óhikað í ljós og stóð við sitt. Sjálfsagt var hann umdeildur mað- ur, en þannig verður það ætíð með þá sem hika ekki við að láta sitt álit í ljós og öðruvísi hefði hann ekki viljað hafa það. Ákveðinn, en aldrei ósveigjanlegur, því hann þekkti líka allt mannlegt og fann til. Hann var oft harðorður í garð ráðamanna, því svo mjög rann honum til rifja hvernig komið var fyrir bændastétt- inni í þessu landi. Nú síðast var honum afar hugleikið að beijast fyrir rétti sjávaijarðabænda sem eiga undir högg að sækja. Þorvarður var einn af þessum allt of fáu sérstæðu kvistum sem aldrei munu falla í gleymsku. Að honum gengnum mun mörgum sem hann þekktu, fínnast sem síðasti víkingurinn sé fallinn. Síðustu eitt til tvö árin var hann farinn að þreytast nokkuð og mátti við litlu, en það kallaði hann að „gömlu fötin væru orðin slitin”. Þó fannst honum verst þegar sjónin fór að angra hann en það reyndist erf- itt að fá bót á því. En Þorvarður var heppinn, því hann átti góða konu sem hlúði að honum eins og ungbarni þegar þreytan sótti á. Þetta er lítið ágrip sögu stórhuga bónda, fræðimanns og mikils per- sónuleika. Hann reyndist mér fram- úrskarandi hlýr og góður tengda- faðir og ég mun sakna samtala okkar, því hann var þvílíkur hafsjór af fróðleik á öllum sviðum. Ég er lífínu þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast honum og bið algóðan guð að blessa minningu hans í hjört- um okkar allra. Eftirlifandi konu hans, börnum og öðrum aðstandendum, vil ég votta mína innilegustu samúð. Örugga hvfld nú eignast ég hef. Engan um meiri gæði ég kref. Sál mín er frelsuð, fyrir mig galt. Frelsarinn Jesús, hann er mér allt. (Bj. Eyj.) Guðrún Jóhannsdóttir „Bognar aldrei, brotnar í bylnum stóra seinast.” Mér komu í hug þessi orð Klettafjallaskáldsins þeg- ar ég fékk andlátsfregn bóndans á Söndum. Það er varla nokkur vafí á að Þorvarður á Söndum var einhver litríkasti maður sem starfað hefur í bændastétt á síðari árum. Skoðan- ir hans á mönnum og málefnum voru jafnan ákveðnar og hann skorti hvorki þrek né djörfung til að halda því fram, sem hann taldi rétt, hvort sem viðmælendur Voru kunningjar hans í sveitinni eða menn úr efstu þrepum þjóðfélags- stigans. Þorvarður kvaddi sér stundum hljóðs í útvarpi. Hann flutti nokkur erindi í flokknum „Um daginn og veginn”. Og las þá gjarnan ráða- mönnum þjóðarinnar pistilinn og var ekki myrkur í máli. Ég hef orð- ið þess var að þessi erindi Þorvarð- ar eru mörgum minnisstæð, og er þó nokkuð langt síðan þau voru flutt. Þorvarður birti líka greinar í Morgunblaðinu, oftast um landbún- aðarmál, og kvað þá jafnan fast að orði. Þotvarður var mikill unnandi sveitanna og íslenskrar bænda- menningar. Því sveið honum sárt þær ógöngur, sem landbúnaðurinn hefur komist í á síðari árum. Það var hans bjargföst skoðun að ekki hefði þurft að fara svo, sem raun er á orðin, hefðu forystumenn stétt- arinnar og ráðamenn þjóðarinnar brugðist rétt við vandanum í tíma. Fyrir rúmum áratug var stofnað í Vestur-Húnavatnssýslu félag, sem hefur það markmið að veija alda- gamlan veiðirétt landeigenda fyrir landi jarðanna. En nokkrum árum áður höfðu verið sett lög sem tak- mörkuðu mjög þennan rétt. Þor- varður var mikill hvatamaður að stofnun félagsins og mjög virkur félagsmaður. Hann gat með engu móti þolað að þessi gömlu réttindi væru tekin bótalaust af jörðunum og var alltaf tilbúinn að leggja fram tíma og vinnu til styrktar þessu málefni. Ég vil fyrir hönd félagsins þakka Þorvarði fyrir hans mikla hlut í þessari baráttu og veit að ég mæli þar fyrir munn allra félags- manna. Ég sem þessar línur rita kynntist Þorvarði fyrst fyrir næstum fjörutíu árum. Þá dvöldum við hjónin tvo vetur við skólann á Laugarbakka í Miðfirði. Við höfðum þá ekki yfír bíl að ráða og áttum því erfítt með aðdrætti. Þetta vissi Þorvarður og kom þá oft óbeðinn til að bjóða okkur far til Hvammstanga, eða annast fyrir okkur einhver erindi. Það var eins og honum væri nautn í að veita þennan greiða og hafði lag á að láta líta svo út að hans væri þægðin. > Þorvarður á Söndum var ekkl innfæddur Húnvetningur. Hann kom ungur maður sunnan yfír heiði. Og þarna norður í Húnavatnssýsl- unni fann hann konuefnið sitt, Kristínu Jónsdóttur, mikla táp- og myndarkonu. Þau keyptu stórbýlið Sanda í Miðfírði og hafa búið þar rausnarbúi næstum fímmtíu ár. Þau eignuðust fímm börn, sem öll lifa föður sinn. Þau eru: Sólrún, hús- freyja í Núpdalstungu í Miðfirði, Valgerður, húsfreyja á Laugar- bakka í Miðfírði, Halldóra, hús- freyja í Hafnarfírði, Stefán, búsett- ur í Reykjavík, og Kristján Einar, prestur í Kópavogi. Þorvarður Júlíusson var enginn meðalmaður. Hann var stór í snið- um bæði í sjón og raun. Ég held honum sé best lýst með orðum skáldsins Arnar Arnarsonar í kvæð- inu um Stjána bláa: „Hörð er lund- in, hraust er mundin, hjartað gott, sem undir slær”. Að leiðarlokum þakka ég Þor- varði samstarf og vináttu á liðnum árum og óska honum allra heilla í nýjum heimkynnum. Kristínu og börnum þeirra sendi ég samúðarkveðjur. Ólafur Þórhallsson Okkur systkinunum langar að minnast hans afa á Söndum í fáum orðum. Þess manns sem var hafsjór af fróðleik og hreinn meistari í meðhöndlun íslensks máls, > bæði kjarnyrtur og með litríkt málfar, enda var hann vel heima í íslending- asögunum og minnti okkur óspart á að þar væri viskubrunnur íslensku þjóðarinnar. Eitt hið fyrsta sem skýtur upp í hugann eru einmitt þær stundir sem við áttum saman við eldhúsborðið á Söndum, þar sem hann sat í lopapeysunni sinni með t Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, BERGÞÓR K. M. ALBERTSSON bifreiðastjóri, Norðurvangi 31, Hafnarfirði, lést í St. Jósepsspítala í Hafnarfiröi laugardaginn 23. nóvember. María Jakobsdóttir, Jóhann G. Bergþórsson, Arnbjörg G. Björgvinsdóttir, Kristján G. Bergþórsson, Sóley Örnólfsdóttir, Bergþóra M. Bergþórsdóttir, Björn Sveinsson, Steindóra Bergþórsdóttir, Sæmundur Stefánsson og barnabörn. t Hjartkær eiginkona mín, móðir og tengdamóðir, ÞÓREY HANNESDÓTTIR, Suðurgötu 90, Akranesi, andaðist að morgni 23. nóvember. Árni Breiðfjörð Gíslason, Eðvarð L. Árnason, Sæunn Árnadóttir, Gísli B. Árnason, barnabörn og tengdabörn. t ÓSKAR LÍNDAL ARNFINNSSON andaðist í Landspítalanum laugardaginn 23. nóvember. Jarðarförin auglýst síðar. Inga Jenný Þorsteinsdóttir, Sigríður Sæunn Óskarsdóttir, Kjartan Már ívarsson, Þórdís Óskarsdóttir, Ake Kámpe, Jakobína Óskarsdóttir, Friðþjófur D. Friðþjófsson, Örn Óskarsson, Hilde Stranel, Auður Óskarsdóttir, Guðmundur Einarsson, barnabörn og barnabarnabörn. kaffibolla og molasykur og ræddi um innansveitarmálin, landsmálin og heimsmálin afdráttarlaust. Hann hafði fastmótaðar skoðanir á flest- öllum þeim málum sem rædd voru og miðlaði þeim óspart til viðmæ- lenda sinna, en hann var einnig til- búinn að kynna sér ný málefni ef svo bar við. Viðmótið var oft nokkuð hijúft eins og skeggrótin, en bak við það leyndist maringæska og næmni sem kom best í ljós þegar skepnurnar hans áttu í hlut. Hann kom fram við þær eins og móðir við börnin sín, talaði blíðlega til þeirra og dekr- aði óspart við þær, iaumaði sífellt að þeim góðgæti, strauk þeim og klappaði. Ekki nutu þó allar þær dýrategundir sem hann umgekkst þessa viðmóts, en þær þurftu þá að hafa gert eitthvað á hans hlut eða vera óheppilegar fyrir það jafn- vægi sem hann vildi hafa í um- hverfí sínu. Afí var bóndi af lífi og sál þótt hugur hans leitaði víðar. Hann var sérlega meðvitaður um náttúruna í kringum sig, hegðun hennar og eiginleika, spáði í veður, sjávarföll og tungl og bar um- hyggju fýrir landinu. Sem dæmi þá fór hann alltaf sömu slóðina á Land- Rovemum sínum niður á sand og keyrði þá grófan malarkamb í stað þess að líða áfram um mjúkan sandinn en þannig sporaði hann ekki sandinn að óþörfu. Minningin um afa á Söndum lifír. Sigrún Kristín og Björn Helgi. „Alfaðir ræður”. Þessi orð við- hafði afi minn oft og þau koma upp í hugann nú er ég kveð hann í hinsta sinn. Afí minn fæddist 1913. Hann var af þeirri kynslóð sem man tímana tvenna hér á landi, jafnt kreppur sem góðæri. Kynslóð sem breytti þessu landi úr landi örbirgðar í land tækifæra og allsnægtar. Kynslóð með veðurbarin andlit og vinnulún- ar hendur. Afí var elstur af stómm systkina- hópi og þurfti því snemma að læra að taka til hendinni og aðstoða við að afla matar í mikilli fátækt. Skóli lífsins var því hans helsta skóla- ganga og prófin oft erfíð. Ég held að flestir sem þekktu afa geti verið sammála um að hann hafí verið umdeildur maður. í kring- um hann var aldrei lognmolla enda kærði afí sig ekki um það. Hann hafði ákveðnar skoðanir á flestum hlutum og fór ekki dult með þær hvort sem þær voru viðmælanda í hag eða ekki. Hann sagði mönnum til syndanna ef honum þótti þeir eiga það skilið og skipti þá ekki máli á hvaða vettvangi það var. Þeir vissu því strax skoðun hans á viðfangsefninu og held ég að flestir hafí kunnað að meta þessa hrein- skilni hans. Erfítt var einnig að kveða hann í kútinn því ávallt virt- ist hann eiga svar í pokahorninu, enda sagði hann að þeim yrði aldr- ei orðs vant sem læsi íslendingasög- umar en þær höfðu verið hans helsta lestrarefni í æsku. Hann var einnig mikill húmoristi og hafði gaman af skemmtilegum sögum. Þó yfirborðið hafí oft verið hijúft þá bjó undir því mikil tilfinninga- vera. Henni kynntist ég vel. Minnis- stæð eru atvik eins og þegar lítill hnokki kom til afa síns með skeifu á munni vegna hörku heimsins. Afínn strauk með sinni vinnulúnu en jafnframt mjúku og hlýju hendi yfír vanga hans, brosti þannig að andlitið ljómaði af væntumþykju og hann sagði „Elsku vinurinn minn”. Þá dróst hið drungalega ský frá sólu og veröldin varð björt á ný. Fljótlega við upphaf búskapar síns keyptu foreldrar mínir helming jarðarinnar Sanda, af afa og ömmu. Því ólst ég upp við það að hafa afa og ömmu ávallt innan seilingar að nokkrum árum undanskildum er þau fluttu til Hafnarfjarðar. Einnig var ég mikið hjá þeim sem ungling- ur eftir að foreldrar mínir fluttu að Laugarbakka. Þessar stundir eru mér kærar og dýrmætar því gegn- um margar þrautirnar leiðbeindu þau mér og lýstu upp leiðina til fullorðins ára. Prestskapur var ávallt ofarlega í huga afa. Elstu minningar mínar ei-u frá því hann sat með mig á

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.