Morgunblaðið - 26.11.1991, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVBMBER 1991
47
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Rúnar Jónsson og Jón Ragnarsson kynntust keppnisakstri á malbiki þegar þeir óku í belgískri rall-
keppni. Þeir féllu þó fljótlega úr keppni vegna bilunar.
Rallakstur:
Feðgarnir lánlausir í Belgíu
FEÐGARNIR Rúnar Jónsson og
Jón Ragnarsson riðu ekki feitum
hesti frá viðureign við belgíska
rallökumenn á heimaslóðum
þeirra í Huy í Belgíu fyrir
skömmu. Þeir óku 170 hestafla
óbreyttum Mazda fjórhjóladrifs-
bíl en urðu að hætta keppni eftir
aðeins fimm sérleiðir af 36. Þetta
var fyrsta keppni þeirra saman á
erlendri grund.
„Koma tímar, koma ráð. Við
fengum þarna smá reynslu sem
nýtist vonandi síðar. Keppnin
sýndi okkur að Rúnar á góðan
möguleika á að sýna lit innan um
toppkarlana, þó þetta gengi eigin-
lega á afturfótunum frá byijun,”
sagði Jón Ragnarsson í samtali við
Morgunblaðið. „Fyrst fékk ég slæma
flensu og við gátum ekki skoðað
leiðirnar mjög vel. Þegar við vorum
PHILANIPPON-91, Tokyo:
Tvenn toppverð-
laun til Islands
ALÞJÓÐLEGA frímerkjasýningin „PHILANIPPON-91” var haldin í
Tokyo í Japan 16-24. nóvember. Þátttakendur í þessari sýningu af
íslands hálfu voru þeir Hálfdán Helgason og Páll H. Ásgeirsson.
Fékk Hálfdán gullverðlaun fyrir safn sitt en Páll fékk gyllt silfur
fyrir safn sitt.
Hálfdán Hlegason tæknifræðing-
ur, formaður Landssambands ís-
lenskra frímerkjasafnara, sýndi á
þessari sýningu safn sitt af íslensk-
um póstbréfsefnum sem hann hefur
þróað á löngum tíma og fékk hann
gullverðlaun fyrir þetta safn. Er
þetta Iró ekki í fyrsta sinn er safn
þetta hlýtur slík verðlaun á alþjóð-
legum frímerkjasýningum enda tal-
ið vera eitt með bestu slíkum söfn-
um í heimj.
Páll H. Ásgeirsson flugumferðar-
stjóri sýndi einnig á þessari sýningu
safn sitt af íslenskri flugpóstssögu
frá 1928-1945. I safni þessu er að
finna póst frá hinum ýmsu flugum
um ísland og til og frá landinu. Þar
er bæði um að ræða könnunarflug
og svo einnig hin ýmsu áætlunar-
flug sem flogin hafa verið í áranna
rás.
Fyrir safn sitt hlaut Páll „fair
mail” eða gyllt silfur að verðlaunum
sem er í hæsta verðlaunaflokki
slíkra safna.
Sýningin í Japan var ein með
þeim þeim stærri sem haldnar hafa
verið á þessu sviði.
IfflNN ÞIN
■ ■
FJOLSKYLOA?
Heildarvinningsupphæðin þessa viku:
224.045.316 kr.
23. nóvember 1991
Röðin : 1X1-112-X12-X2X2
13 réttir: 15 raðir á 8.021.970 - kr.
12 réttir: 418 raöir á 57.780 - kr.
11 réttir: 6.925 raðir á 3.690 - kr.
10 réttir: 58.951 raðir á 910 - kr.
Þaö voru þrír heppnirtipparar hérlendis semfengu 13 rétta um
helgina. Tveir keyptu tölvuval og einn keypti opinn seöil. Þeir
fá frá 8,344 millj. til 8,535 millj. í vinning. A íslandi var tippað
fyrir 11,8 milljónir en vinningarnir uröu 28,7 milljónir hérlendis.
fyrtr þlg og þina fjölskyldu!
svo komnir á stað át vélin kerti, en
við ókum keppnisbíl sem hafði verið
stopp í tvö ár, en var yfirfarinn fyr-
ir keppnina. Síðan sprakk aftur-
dempari og loks fór gírkassinn eftir
fímmtu sérleið, þannig að þetta var
stutt gaman, en malbiksleiðirnar
áttu vel við Rúnar,” sagði Jón.
„Með bilaða dempara dinglaði bíll-
inn um allan veg og við vorum rétt
að byija að komast í akstursstuð,
þegar hann bilaði,” sagði Rúnar,
„við förum aftur einhverntímann og
þá á alvöru keppnisbíl með nöga
orku, en við vorum á rúmlega helm-
ingi kraftminni bíl en þeir bestu.
Árið hefur gengið brösuglega hjá
okkur, ekkert gengið upp, en von-
andi verður næsta ár betra.” sagði
Rúnar. Keppnin sem Rúnar og Jón
kepptu í var liður í Evrópumeistara-
mótinu og Belginn Patrick Snijers á
Ford Sierra Cosworth sigraði eftir
mikla keppni við landa sinn Marc
Duez á Toyota Celica GT4.
UR DAGBÓK
LÖGREGLUNNAR í REYKJAVÍK:
22. - 25. nóv. 1991
- Tveir ökumenn og einn gang-
andi vegfarandi slösuðust í um-
ferðinni um helgina. Samkvæmt
tölulegum upplýsingum lögregl-
unnar hafa þá nær 300 manns
slasast í umferðinni í Reykjavík
það sem af er þessu ári. Sam-
kvæmt sömu upplýsingum slösuð-
ust 245 manns í umferðinni allt
árið í fyrra. Það er því full ástæða
til þess að hvetja fólk akandi og
gangandi til þess að sýna aðgát
og miða ferð sína við aðstæður á
hverjum tíma.
- Rólegt var í miðborginni um
helgina. Helst var að sjá að ölvað
fullorðið fólk safnaðist þar norp-
andi saman við söluopin. Lögregl-
an þurfti einungis að hafa af-
skipti af nokkrum ölvuðum
„ungpíum” fyrri hluta föstudags-
kvölds, en þær voru færðar í
unglingaathvarfið og síðan sóttar
þangað af foreldrum sínum.
- Ekki var tilkynnt um „sýni-
fíkla” um helgina, en nokkuð
hefur borið á þeim undanfarna
daga. Fíklar þessir eru undan-
tekningalaust karlmenn, sem
virðast hafa þörf fyrir að afhjúpa
sig fyrir ungum stúlkum. Hér er
sennilega um sömu tvo einstakl-
ingana að ræða í öllum tilvikun-
um. Þeir virðast vera hættulaus-
ir. En sjálfsagt er fyrir fólk að
tilkynna til lögreglu þau atvik,
sem upp koma.
- Lögreglan þurfti að hafa
afskipti af tvítugum ölvuðum
manni nálægt miðborginni
snemma á sunnudagsmorgun þar
sem hann sveiflaði í kringum sig
grenijólatré með rót. Manninum
fannst afskiptasemi lögreglu-
mannanna með eindæmum, ekk-
ert væri lengúr leyfilegt á þessu
skeri. Jólatréð var í eigu borgar-
innar og hafði verið slitið upp
með rót úr beði þar ekki langt
frá. Það hafði eyðilagst í meðför-
um mannsins. Ástæða þótti að
flytja hann fyrir dómara, sem
taldi eðlilegt að maðurinn greiddi
andvirði trésins og auk þess á
annan tug þúsunda í sekt.
- 26 ára ölvaður karlmaður
var handtekinn á reiðhjóli í aust-
urborginni aðfaranótt sunnudags.
Hjólinu hafði hann stolið skömmu
áður við hús í Gerðunum. Maður-
inn á lögheimili á Akureyri, en
sjálfur virtist hann ekki gera sér
grein fyrir á hvaða leið hann var
þegar hann var stöðvaður á hjól-
inu.
- Aðfaranótt sunnudags
mældu lögreglumenn BMW fólks-
bifreið á 95 km hraða á Vestur-
landsvegi. Ökumaðurinn neitaðij
að stöðva og ók út úr borginni.'
Lögreglumennimir veittu bifreið-
inni eftirför, en þegar sýnt var
að ökumaðurinn jók hraðann upp
í um 170 km/klst. Létu lögreglu-
mennirnir af frekari eftirför.
Skömmu síðar var tilkynnt um
að bifreið hafði verið ekið út af
veginum við Kjósarskarðsveg.
Ökumaður og farþegi í bifreiðinni
reyndust hafa slasast minnihátt-
ar, en bifreiðin var mikið
skemmd.
Ál
Magnús L. Sveinsson
Gylfi Arnbjömsson
FELAGSFUNDUR
Þýðir hækkun lægstu
launa verðbólgu?
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur heldur fræðslufund
um kjaramál að Hótel Loftleiðum þriðjudaginn 26. nóv.
n.k. kl. 20.30.
Þar verður m.a. leitað svara við eftirfarandi atriðum:
* Hver hefur launaþróunin verið hér miðað við önnur
lönd?
* Hvert stefnir í þróun launabils milli kynjanna?
* Hvernig virka umsamin laun á verðbólgu?
* Eru lægstu launin það eina sem veldur verðbólgu?
* Valda launahækkanir, sem vinnuveitendur ákveða
einhliða, ekki verðbólgu?
* Valda launagreiðslur í yfirvinnu ekki verðbólgu?
* Veldur Ijármagn, sem varið er í óarðbæra fjárfestingu
ekki verðbólgu?
Ræðumenn verða:
Magnús L. Sveinsson, formaður V.R.
Gylfi Arnbjörnsson, hagfræðingur
Kjararannsóknarnefndar
Þórólfur Matthíasson, lektor
Ásmundur Stefánsson, forseti A.S.Í.
Fundarstjóri: Sigurlaug Sveinbjörnsdóttir,
stjórnarmaður í V.R.
Félagsfólk er hvatt til að mæta
Sigurlaug Sveinbjörnsd. á f U n d Í n n.
Þórólfur Matfhiasson
Ásmundur Stefánsson
Verið virk í V.R.
VERZLUNARMANNAFÉLAG REYKJAVÍKUR