Morgunblaðið - 26.11.1991, Qupperneq 48
Morgunblaðið/KGA
Nemendur Sjómannaskólans og Vélskólans fjölmenntu á þingpalla í gær og fylgdust með umræðum um þyrlukaupamálið.
Sjópróf vegna strands Eldhamars GK hefjast í dag:
Frumvarp um kaup á nýrri
björgunarþyrlu lagt fram
Viðræður um samstarf við varnarliðið hefjast á morgun
ASI og VSI:
Leitað eftir
. viðræðum við
bankana um
lækkun vaxta
FORYSTUMENN í Alþýðusam-
bandi Islands og Vinnuveitenda-
sambandi Islands héldu í gær
sameiginlegan fund um vaxta-
málin í tengslum við viðræður
um nýjan kjarasamning, þar
sem ákveðið var að leita eftir
viðræðum við viðskiptabanka
og sparisjóði um vaxtalækkanir.
Óskað er eftir fundi á morgun
og í framhaldi af því verður
farið til viðræðna við Seðla-
bankann og fjármálaráðuneyt-
ið. Örn Friðriksson, varaforseti
ASI, segir að farið verði fram
á lækkun nafnvaxta þegar i stað
og í framhaldi af því um mögu-
leika á lækkun raunvaxta og
um samhengi verðtryggðra lána
og nafnvaxta.
Þórarinn V. Þórarinsson,. fram-
kvæmdastjóri VSÍ, segir. að for-
ystumenn samtakanna ætli að
byija á að ræða við bankana en
þeir séu sammála um að veruleg
og varanleg vaxtalækkun náist
ekki nema samtímis verði tekið á
fleiri þáttum. „Verðlagsþróun og
horfur í fjármálum ríkis og sveitar-
félaga og eftirspurn hins opinbera
á lánamarkaði verður ráðandi um
vaxtastigið,” sagði hann.
Örn sagði að aðilarnir, sem
mynda svokallaðan vaxtahóp í
tengslum við kjarasamningana,
væru sammála um að vextirnir
væru alltof háir en spurningin
snerist um hvort pólitískur vilji
væri til staðar um að ná þeim nið-
ur. Á fundinum í gær var ijallað
.um möguleika á skammtíma-
aðgerðum til að ná vöxtunum niður
og um leiðir til varanlegrar vaxta-
lækkunar til Íengri tíma litið og
með hliðsjón af fjármálum ríkis og
sveitarfélaga, að sögn Arnar.
Sjá einnig viðtöl við forsætis-
og viðskiptaráðherra á bls. 2.
KAUP á björgunarþyrlu voru
rædd utan dagskrár á Alþingi í
gær. Var umræðan í framhaldi
af strandi Eldhamars GK 13 við
Grindavík sl. föstudagskvöld, þar
sem fimm ungir sjómenn fórust.
Átta þingmenn úr öllum flokkum
lögðu fram frumvarp til laga á
Alþingi í gær þess efnis að ríkis-
stjórnin skuli á árinu 1992 gera
samning um kaup á björgunar-
þyrlu fyrir Landhelgisgæsluna.
Sjópróf vegna strands Eldham-
ars hefjast hjá bæjarfógetanum
í Keflavík kl. 10 f.h. i dag og
verða þau lokuð.
Þorsteinn Pálsson dómsmálaráð-
herra átti í gærmorgun viðræður
við Charles E. Cobb, sendiherra
Bandaríkjanna á íslandi, um sam-
starf íslenskra aðila við varnarliðið
á Keflavíkurflugvelli um björgunar-
þjónustu. Viðræður ráðuneytis-
stjóra utanríkisráðuneytis og dóms-
málaráðuneytis við bandarísk
stjórnvöld undir stjórn bandaríska
sendiherrans hefjast á morgun.
Þorsteinn sagði að þessar viðræð-
ur gætu haft áhrif á vai á þyrlum.
Hann iagði áherslu á að álit þyrlu-
kaupanefndar um samstarf við
varnarliðið leysti íslensk stjórnvöld
ekki undan því að kaupa þyrlu. „Ég
tel fullkomlega ábyrgðarlaust að
hafna tillögu þyrlukaupanefndar
um samstarf við varnarliðið í ljósi
þess að þarna er möguleiki á því
að björgunarþjónustan geti orðið
öflugari og samhæfðari,” sagði
Þorsteinn. „Ég mun ítreka á næsta
ríkisstjórnarfundi tillögu þess efnis
að í fjárlögum næsta árs verði heim-
ild til að ganga frá þyrlukaupum.”
Þorsteinn hyggst einnig í kjölfar
slyssins taka til athugunar sam-
skiptareglur björgunaraðila hér á
landi.
Gunnar Bergsteinssonar, for-
stjóri Landhelgisgæslunnar, sagði
að heildar rekstrarkostnaður lægi
ekki fyrir ef ný þyrla yrði keypt
og því hefði hann lagt til að áður
yrði gerð heildarskoðun á flug-
rekstri gæslunnar. Hann sagði að
fjárveitingar til Landhelgisgæsl-
unnar yrði að endurskoða ef reka
ætti tvær þyrlur.
„Það hefur komið fram að verði
þyrla keypt yrði önnur þeirra stað-
sett úti á landi á álagstímum, á
veturna, á Austurlandi eða Norður-
landi. Til þess að reksturinn yrði
sem hagkvæmastur og nýttist sem
best landfólki er eðlilegt að það liggi
fyrir vilji til þess kostnaðarauka
sem það hefur í för með sér,” sagði
Gunnar.
Sjá nánar á miðopnu og þing-
síðu á bls. 31.
Innkaupaferðir til útlanda aldrei fleiri en núna:
Nóvember stefnir í að vera einn
af mestu ferðamánuðum ársins
Fríhöfnin hefur selt fyrir 190 millj-
ónir það sem af er mánuðinum
UTLIT er fyrir að nóvember verði einn mesti ferðamánuður
ársins hjá íslendingum. Ef fer sem horfir fara um 30% fleiri
íslendingar til útlanda í þessum mánuði en sama mánuði í
fyrra. Fyrstu 25 daga nóvember var salan hjá Fríhöfninni á
Keflavíkurflugvelli rúmar 190 milljónir króna og er það 40%
aukning frá nóvember í fyrra. Þeir aðilar sem Morgunblaðið
ræddi við í gær segja að þessa aukningu megi fyrst, og fremst,
rekja til innkaupaferða til útlanda, fyrst og fremst til
Bretlandseyja.
I gær höfðu 11,356 íslendingar
farið til útlanda í þessum mánuði.
Allan nóvember í fyrra fóru 10,706
Islendingar til útlanda. Gera má
ráð fyrir því að rúmlega 2000 ís-
lendingar fari tii útlanda fram til
1. desember og heildarfjöldi ferða-
manna verði nálægt 13,500 í mán-
uðinum.
Hjá Fríhöfninni á Keflavíkur-
flugvelli fengust þær upplýsingar
í gær að fyrstu 25 daga nóvember
hefði fyrirtækið selt vörur fyrir 3,3
milljónir dala eða rúmlega 190
milljónir íslenzkra króna. Er þetta
40% veltuaukning miðað við sama
tíma í fyrra. Verður nóvember
næst söluhæsti mánuður ársins hjá
fyriitækinu. Aðeins ágúst er söiu-
hærri, 230 milljónir. Starfsmaður
Fríhafnarinnar sagði að þótt fólk
væri að koma úr innkaupaferðum
verzlaði það mjög mikið hjá Frí-
höfninni við heimkomuna, eins og
þessar sölutölur bæru með sér.
Gottskálk Óiafsson yfirtollvörð-
ur á Keflavíkurflugvelli sagði eng-
ar sérstakar ráðstafanir hefðu ver-
ið gerðar vegna hinnar miklu
aukningar á innkaupaferðum til
útlanda. Þar hefðu farið fram
reglubundnar skoðanir og eftirlit
á farangri en vegna mikils fjölda
ferðamanna hefur nokkrum sinn-
um þurft að kalla út aukamenn.
„Ég hef ekki sundurliðaðar tölur
um live háir tollar og aðflutnings-
gjöld hafa verið greidd á undan-
förnum vikum, en frá áramótum
losar þetta rúmlega 40 milljónir
króna. Hér er átt við gjöld sem
farþegar borga á staðnum. Þetta
er hærri upphæð en á sama tíma
í fyrra en mér sýnist hún vera í
samræmi við aukningu á ferða-
mannafjöldanum,” sagði Gott-
skálk.
Tollar og aðflutningsgjöld eru
mismunandi eftir vöruflokkum eða
frá því að vera aðeins virðisauka-
skatturinn upp í 89%. Sem dæmi
má nefna að af myndavélum
keyptum í Fríhöfninni er aðeins
borgaður vsk. Af gallabuxum
keyptum í Bretlandi eru borguð
33% í tolla og aðflutningsgjöld og
af hljómflutningstækjum, mynd-
bandstækjum og sjónvörpum eru
borguð 80-89% í tolla og aðflutn-
ingsgjöld.