Morgunblaðið - 17.12.1991, Page 10
10
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 1991
LogÍræómgur i
ÞorhilOur Sandhtplt \ *.;y
iSolúmenn ' . »
.G/sfc Sigurb/örnssþn 'j ;
. Sigurbjom Þorbergsson
Atvinnuhúsnæði
SMIÐJUVEGUR
Ný 513 fm efri hæð með sérinng.
og góðu útsýni. Hæðin er.tilb. u.
trév. og máln. Sérhiti. Hentar vel
sem samkomusalur eða skrifst.
Einbýii og séreignir
HJALLABREKKA - KÓP.
Glæsilegt 2ja ibúða hús með bílskúr
og mjög fallegum garði. Góð 2ja herb.
ibúð 60 fm á 1. hæð ásamt inngangi í
aðalíbúð sem er 212'fm á þremur pöll-
um. Stofa, fjölskylduherb., bókaherb., 5
svefnherb., eldhús, 2 baðherb., tóm-
stundaherb., búr, þvottahús og góðar
geymslur. Inngangur > báðar íbúðirnar
úr fallegum 2ja hæða gróðurskála.
MELGERÐI - KÓP.
Mjög gott tæpl. 300 fm 2ja íbúða hús
á tveimur hæðum. Efri hæð m/4 svefn-
herb., góðúm stofum og stóru auka-
herb. á neðri haéð en þar er líka sér
2ja herb. íbúð og stór innb. bílskúr.
Saunabað og garðstofa m/nuddpotti.
Glæsilegt útsýni og góður garður. Verð
18,0 miljj.
SPÍTALASTÍGUR
213 fm verslunar-, iðnaðar- og
skrifstofuhúsn. og 4ra herb. íbúð
til sölu í sama húsi. Selst í einu
lagi eða aðskilið. Húsið er timb-
urhús til afhendingar strax.
AKURGERÐI - PARH.
Steypt parh. kj., hæð og ris 128,6 fm
nettó. 3-4 svefnherb., 2 stofur. Mjög
góður garður í suður. Verð 11 mjllj.
RAUÐALÆKUR - 6 HB.
Glæsileg íb. 131,4 frn á 3. og efstu
hæö. 4 svefnherb., 2 stofur. Suöursv.
Fallegt útsýni. Verð 10,5 millj.
SNORRABRAUT - HÆÐ
4ra herb. efri hæð í steinhhúsi. 21 fm
bílsk. fylgir. Ákv. sala. Verð 7,5 millj.
4ra-6 herb.
GAUKSHÓLAR - 5-6 HB.
Stórglæsileg 5-6 herb. endaíb. 123,8
fm á 5. hæð. Fráb. útsýni. Þrennar sval-
ír. Sérþvhús og -búr. íb. fylgir 27 fm
bílsk. Verð 8,5 millj.
KLEPPSVEGUR - 4RA
Mjög falleg 4ra herb. íb. á 3. hæð í fjölb-
húsi. Suðursv. 12 fm aukaherb. í risi.
Áhv. byggsjóðslán 3,3 millj.
2ja og 3ja herb.
LAUGATEIGUR - 3JA
Falleg íb. í kj. 81,6 fm. íb. er m/sér-
inng. Nýyfirfarin og laus nú.þegar. Verð
6,2 millj.
VINDÁS - 2JA
Mjög falleg 2ja herb. (b. 58,8 fm á 2.
hæð. Getur losnað fljótl. Verð 5,1 millj.
VÍÐIMELUR - 2JA
, Góð íb. í kj. 44,1 fm. Mikið endurn. ný
eldhúsinnr., parket. Ný endurn. raflagn-
ir og ný tafla. Verð 4,1 millj.
LYNGMÓAR - 2JA
í Garðabæ gullfalleg 2ja herb. íb. á 1.
hæð 56,2 fm. Parket og flísar á gólfum.
Góð lán fylgja, 2 millj. Verö 5,7 millj.
VINDÁS
Góð einstaklingsíb. á 3. hæð með fal-
legum innr. Flísar og parket. Laus strax.
Vérð 3,8 millj.
VITASTÍG 13
26020-26065
Gunnar Gunnarsson,
lögg. fasteignasali, hs. 77410.
Stakf&ll
Faswgnasaia Suðurlandsbraut 6
687633 <f
011 RH 01 07fl '-ARUS Þ' VALD|MARSS°N FRAMKVÆMDASTJÓRI
m I Ivv klwlv KRISTIIMNSIGURJÓIMSSON,HRL.lóggilturfasteignasali
Til sölu eru að koma m.a. eigna:
Glæsileg sérhæð - frábært útsýni
4ra herb. efri hæð rétt v/höfnina í Hafnarfirði 113 fm. 2 stórar stofur,
2 svefnherb., rúmg. skáli. Nýtt eldhús, nýtt bað. Nýtt sérþvhús v/eld-
hús. Geymsluris fylgir.
Glæsilegt endaraðhús
í syðstu röð í Fellahv. steinhús 158,3 fm. Allt eins og nýtt. Kj. u. hús-
inu. Bílsk. 21,6fm, sérbyggður. Lóð m/glæsil. blómagarði. Teikn. á skrifst.
Fellsmúli - Álftamýri
3ja og 4ra herb. góðar íb. Vinsaml. leitið nánari uppl.
Góð íbúð - laus strax
2ja-3ja herb. íb. v/Hraunbæ á neðri hæð. Nýtt bað. Sérinng. Ágæt
sameign nýsprunguþétt og mál. utanhúss. Laus strax.
Góð íbúð á góðu verði
2ja herb. ib. á rishæð v/Miklubraut. Stórir kvistir á stofu og svefn-
herb. Gott ibherb. í kj. m/snyrtingu. Ágæt sameign.
Miðsvæðis í borginni - skiptamöguleiki
Góð íb. 90-100 fm óskast til kaups á 1. eða 2. hæð eða í lyftuh. Skipti
mögul. á úrvals sérhæð miðsvæðis í borginnj.
Helst í vesturbænum í Hafnarfirði
einbhús ekki stórt óskast til kaups. Fjárst. kaupandi.
Reisulegt steinhús í Langholtshverfi
tvær íb. 3ja herb. á 1. hæð og 2. hæð. Ennfremur góður geymslukj.
og geymsluris. Stór bílsk. (45 fm nú verstæði). Tilboö óskast.
• • •
Fjöldi fjársterkra kaupenda.
Margs konar eignaskipti.
2ja, 3ja og 4ra herb. íb.
óskast í vesturbænum.
ALMENNA
FASTEIGNASAUN
LAUGAVEG118 SÍMAR 21150 - 21370
HINIR TÓLF
Myndlist
Bragi Ásgeirsson
í Sverrissal Hafnarborgar sýna
um þessar mundir tólf myndlistar-
menn sem allir lifa og starfa í
Hafnarfirði og stendur sýningin
til 22. desember.
Ekki er það þó svo, að hér séu
állir þeir mættir til leiks, sem
hafa aðsetur í firðinum og vantar
hér nokkra góðkunna og þjóð-
kunna einstaklinga og sýnir það
hve myndlistarmönnum hefur
íjölgað á svæðinu undangengin
ár, því ekki er ýkja langt síðan
telja mátti þá á fingrum sér og
jafnvel annarrar handar.
Þá hefur breiddin aukist til
muna og ber sýningin þess svo
sannarlega vitni, en áberandi er
að listiðnaðarfólkinu hefur ijölgað
meir en hreinum myndiistarmönn-
um. í öllu falli hefur maður það
fekar á tilfinningunni eftir að
hafa skoðað verkin, að maður
hafi verið á listiðnaðarsýningu en
myndlistarsýningu og mega hlut-
aðeigendur skilja það eins og hver
vill. En listrýnirinn skilgreinir það
þannig, að hin svipmeiri átök við
form og efni, sem eru einkenn-
andi fyrir myndlistarverk og sem
skera sig úr, séu ekki það sem
helst einkennir obbann af verkun-
um, heldur eins konar málamiðlun
er byggir tilveru sín á óaðfinnan-
legu handverki.
Hér kunna í og með að birtast
áhrif frá þróuninni innan hinna
ýmsu listaskóla, er útskrifa lista-
menn með prófgráður rétt eins
og iðnskólar. En auðvitað eru til
undantekningar og ein þeirra
blasir við er inn er komið,_ sem
er „Helgiskrín" eftir Sverri Ólafs-
son. Hér kviknar á perunni hjá
skoðandanum því að um áleitið
verk er að ræða, sem hefur yfir
sér kíminn undirtón ásamt því að
formræn uppbyggingin, sem er
einfaldlega skápur úr járni, með
notalegu innihaldi, höfðar til hans,
án þess þó að vera fullkominn í
tæknilegu tilliti. Hins vegar krefst
hitt verk listamannsins „Auður
stóll“ mun meiri nákvæmni og
tækni i útfærslu en fram kemur,
þótt sjálf hugmyndin, sem er dálít-
ið skondin sé meira en fullgild.
Verk Gests Þorgrímssonar
vekja einnig strax athygli og þá
einkum „Geislabrot", sem er unn-
ið í marmara og býr yfir einföldum
formrænum krafti, en er kannski
einum of fágað í útfærslu.
Dúk- og tréristur Aðalheiðar
Skarphéðisndóttur eru samvisku-
samlega útfærðar og hér þótti
mér „Kossinn“ sýnu hrifmest. En
Aðalheiður mætti að ósekju ráð-
ast.af meiri krafti á viðfangsefni
sín og nýta sér betur hina fjöl-
þættu tækni sem aðferðin býður
upp á. Hér vil ég að fram komi,
að þegar ég ér að vísa til átaka
við efniviðinn á ég ekki endilega
við sprengikraft í útfærslu heldur
allt eins djúpa undiröldu yfirveg-
aðra vinnubragða þar sem reynir
firnamikið á gerandann.
Akrylmyndir Rúnu hafa yfir sér
vissan þokka og þá einkum
„Kyrrð“, en hún er meira í essinu
sínu í verkum sínum á kaffistof-
unni og þá einkum því verki er
ber heitið „Blátt rökkur", sem er
ákaflega stemmingarríkt og vel
útfært í bláum formrænum stíg-
andi.
Það eiga sér stað ýmsar athygl-
isverðar breytingar í verkum Jónu
Guðvarðardóttur, sem hún útfærir
í steinleir. Formin eru ávöl og
þekkileg og litirnir djúpir og
samrædmir.
Formin í verkum Sigríðar Ág-
ústsdóttur, sem hún utfærir í jarð-
leir og virka eins og samblandsk-
úlptúrs og notagildis eru áberandi
einföld og heildstæð og uppruna-
legur liturinn nýtur sín vel, eink-
um komust þessar eigindir á líf-
rænan hátt til skila í verkinu
„Form 11“.
Skírskotunin er í lagi í þorsk-
hausum Sigríðar Erlu en útfærsl-
an er ekki áhrifamikil og tæknin
virðist í besta lagi hjá Elínu Guð-
mundsdóttur en eitthvað sýnist
mér skorta á formrænan kraft í
verk hennar.
Loks ber að geta þurrkrítar-
mynda Janos Probsters, sem eru
heiðarlega unnar og það vekur
athygli mína hve næmt auga hann
hefur fyrir hinni formrænu fegurð
í hinu gamla. Það eru nefnilega
dapurlegar framfarir, sem byggj-
ast einvörðungu á stöðluðum hug-
myndum þar sem lífræn sköpun
hefur orðið eftir - týnst.
Og það mætti um leið minna á
að það sem var athyglisvert og
fullgilt í list og listiðnaði fyrir 20
árum og þá sem algjör nýjung,
virkar oftar en ekki full staðlað
er svo er komið.
Barnabækur
List og hönnun
Bragi Ásgeirsson
í aðalsölum Hafnarborgar
stendur fram til 22. desember
yfir sýning á barnabókum, ásamt
myndum barna og unglinga, svo
og nokkurra þeirra er hafa mynd-
list einstakar bækur.
Þetta er mikil sýning og eins
gott að skoða hana vel og gaum-
gæfilega ef gagn á að vera að,
því að framboðið er mikið.
Ekki kom ég á staðinn til þess
sérstaklega að geta þessarar sýn-
ingar, enda umfjöllun um bækur
ekki mitt fag nema hvað mynd-
lýsingar og útlitshönmjp viðkem-
ur. En ég var forvitinn og skoð-
aði hana samt og reyndi að átta
mig á hlutunum í öllu kraðakinu,
því satt að segja er meira verzlun-
at'- og markaðsbragur á
sýningarsalnum en góðu hófi
gegnir.
Æskilegt hefði verið að lögð
hefði verið mun meiri áhersla á
hnitmiðaða sýningu og úttekt á
myndlýsingum bóka með meira
magni af frumteikningum til
samanburðar. Sýningar sem slík-
ar eru nefniiega fágætar og það
er einmitt trú mín að ávinningur-
inn af þeim geti orðið það drjúgur
að bókaútgefendur hafi hreint
ekki efni á því að vanrækja þann
þátt kynningarferlisins.
Satt að segja finnst mér eftir
skoðun sýningarinnar að miklu
meira mætti vera um það að
teiknarar og myndlistarmenn
fengju verðug verkefni við mynd-
lýsingar bamabóka, því að þegar
á heildiná er litið þá er hér um
mjög útjaskaðan og alþjóðlegan
staðal á slíkri útgáfu að ræða.
Það er ekki nóg að bækur séu
fallegar, litríkar og myndlýsingin
snotur, ef annars er um blóðlitla
fjöldaframleiðslu að ræða,. því
bækurnar lenda í höndum mikil-
vægustu kynslóðarinnar, sem
hefur allt lífið fyrir stafni.
Það eru áratugir síðan ég benti
á þá viðhorfsþróun í útlandinu,
að það þyrfti hæfustu og sann-
menntuðustu kennarana til að
kenna yngstu kynslóðinni. í ljósi
slíkrar þróunar ættu hinir eldri
að vera færir um að béita í rík-
ari mæli eigin frumkvæði og hug-
kvæmni, sem væri borin uppi af
ótakmörkuðum fróðleiksþorsta.
Mér er það í ljósu minni hve
fallegai' og litríkar barnabækur
urðu leiðigjarnar er frá leið, en
aðrar, sem svipmiklar myndlýs-
ingar og frjótt hugarflug prýddu ■
ásamt þróttmiklu lesmáli voru
hins vegar dýrmæt eign, sem allt-
af var ánægjulegt að handfjatla.
Það er ekki mikið af myndlýs-
ingum til sýnis, en á endavegg
eru þó nokkrar og af þeim skera
einkum verk Ragnheiðar Gests-
dóttur og Gunnars Karlssonar sig
úr. Myndir Ragnheiðar fyrir
mjúkar og skynrænar línuteikn-
ingar og einstaklega milda og
blæbrigðaríka liti og eru þær
gerðar við kver sem hún hefur
sjálf sett saman er nefnist
„Fyrstu skrefin“ í útgáfu Máls
og menningar, en Gunnars fyrir
sérstæðan og áhrifaríkan raun-
sæisstíl í bókinni „Platafmælið"
eftir Illuga Jökulsson í útgáfu
Iðunnap.
Án nokkurs vafa mætti finna
ýmsar fleiri frambærilegar mynd-
lýsingar, en þetta var það sem
ég tók strax sérstaklega eftir, en
í heildina er þetta eins og fyrr
segir full staðlað og einhæft.
■ IÐUNN hefur gefið út fimm
nýjar bækur um systurnar Snuðru
og Tuðru eftir Iðunni Steinsdótt-
ur rithöfund. Það er listamaðurinn
Gunnar Karlsson sem mynd-
skreytir. Bækurnar heita: Snuðra
og Tuðra verða vinir, Snuðra og
Tuðra í búðarferð, Snuðra og
Tuðra fara í strætó, Snuðra og
Tuðra í miðbænum og Snuðra
og Tuðra missa af matnum. í
kynningu útgefanda segir: „Syst-
umar fjörugu, Snuðra og Tuðra,
voru einu sinni litlar og Ijúfar, en
síðan hefur margt breyst. Þær taka
upp á alls konar prakkarastrikum
og stundum eru þær ósköp óþæg-
ar. Mamma þeírra segir að þær
muni læra af reynslunni — en pabba
finnst stundum að það gangi ekki
alveg nógu vel. Öll börn þekkja
Iðunn Steinsdóttir
Snuðru og Tuðru úr sjónvarpinu og
skemmta sér konunglega yfir ævin-
týrum þeirra og uppátækjum.“
Gunnar Karlsson
Bækurnar eru prentaðar í Prentbæ
hf.