Morgunblaðið - 17.12.1991, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 17.12.1991, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 1991 Strengjasveit ungra tónlistiirmanna Sveinn Strengjasveit á tónleik- um í Seltj arnarneskirkj u íslandsdeild Evrópusambands strengjakennara, ásamt Tónlist- arskólanum í Reykjavík, stendur fyrir tónleikum í Seltjarnarnes- kirkju í kvöld, þriðjudag 17. desember, og hefjast þeir kl. 20.30. Á efnisskránni eru þættir úr St. Paul’s strengjasvítu eftir breska tónskáldið Gustav Holst, Oktett fyrir fjórar fiðlur, tvær lágfiðlur og tvö eelló, eftir Mendelssohn og Árstíðirnar eftir Antonio Vivaldi, en 250 ár eru frá andláti hans. Flytjendur eru strengjasveit ungra tónlistamema, en einleikar- ar í Árstíðunum eftir Vivaldi verða fiðluleikararnir Sigrún Eðvalds- dóttir, Auður Hafsteinsdóttir, Alm- ita Vamos og Guðný Guðmunds- dóttir. Aðrir flytjendur eru Helga Þórarinsdóttir á lágfiðlu, Bryndís Halla Gylfadóttir celló, Gunnar Kvaran celló, Elín Guðmundsdóttir sembal og Jón Stefánsson orgel. Stjórnandi er Roland Vamos, en hann leikur einnig á lágfiðlu á tón- leikunum. Tónleikar þessir eru lokaatriðið á námskeiði fyrir strengjanemend- ur sem Íslandsdeild Evrópusam- bands strengjakennara og Tónlist- arskólinn í Reykjavík gangast fyr- ir, dagana 13.-17. desember. Leið- beinendur námskeiðsins eru hjónin Almita og Roland Vámos, en þau eru þekktir kennarar í heimalandi sínu Bandaríkjunum og hafa náð miklum árangri í kennslu. Nem- endur þeirra hafa m.a. náð langt í alþjóðle'gum tónlistarkeppnum. Nokkrir íslenskir fiðluleikarar hafa stundað nám hjá þeim hjónum og má þar nefna Sigrúnu Eðvalds- dóttur og Auði Hafsteinsdóttur, sem báðar stunduðu nám hjá Vam- os hjónum um árabil. Þeta er í annað sinn sem Vamos hjónin koma hingað til lands til námskeiða- og tónleikahalds. Strengjakennslu á íslandi er það mikill fengur að fá svo hæfa leið- beinendur í heimsókn, enda hefur þátttaka í námskeiðum þeirra ver- ið mjög góð. Eins og áður sagði hefjast tón- leikarnir kl. 20.30 í kvöld í Sel- tjamarneskirkju. Miðasala við inn- ganginn og opnar kl. 19.20. (Fréttatilkynning) Vinnumálaskrifstofan: 1,5% atvinnuleysi á landinu í nóvember ATVINNULEYSI á landinu í nóv- ember vár hlutfallslega mest á Suðurnesjum eða 4,3% af áætluð- um mannafla. Var atvinnuleysi meðal kvenna áberandi mest á Suðurnesjum samaborið við aðra landshluta, 7,9% eða 235 konur á móti 92 körlum. Alls voru skráðir tæplega 44 þús. atvinnu- Sigríður Ásdís Sriævarr, sendiherra íslensk kona 1 • •• • kjorm Rotaryfélagi NÝLEGA kaus Djurgárden Rotaryklúbbur í Stokkhólmi Sigríði Ásdisi Snævarr, sendi- herra, félaga í klúbbnum. Sigríður mun vera fyrsta ís- lenska konan sem verður Rol- aryfélagi. Konur eru félagar í Rotaryklúbbum hvarvetna á Norðurlöndum nema hér á landi. leysisdagar á landinu öllu í nóv- ember sem skiptust svo til jafnt á milli kynja, sem þýðir að 2.012 manns hafi verið á atvinnuleysis- skrá í mánuðinum, skv. yfirliti vinnumálaskrifstofu félagsmála- ráðuneytisins. Þetta jafngildir því að 2.000 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í nóvember sem svarar til 1,5% af áætluðum mann- afla. Minnst atvinnuleysi var á höf- uðborgarsvæðinu eða 0,8% sama- borið við 2,7% á landsbyggðinr.i. Skráðum atvinnuleysisdögum hefur fjölgað um 9.000 frá októb- er. Var um aukingu að ræða á öllum skráningarsvæðum nema Suður- nesjum þar sem ástandið var nán- ast óbreytt frá október. Saman- burður við sama tíma f fyrra leiðir í Ijós að atvinnuleysið hefur vaxið um 0,2%. Atyinnuleýsi héiur áuk.ist í ölliim landshlutum riéiþá á höfuðbörgar- svæðinu ög á yésturiáriði sárriari- borið við nóvember á síðasta ári. Á Austurlandi voru um 200 manns á atvinnuleýsisskrá í mánuðinum að méðaitáli, séril svárar tii 3,3% af máririáfia. Á Nörðuríandi vestra var atvínnuleysið 2,9% og 2,8% á Norð- urlandi eystra. á Vestíjorðum var meðalijöldi atvinnulausra i mánuð- inum 53 (1,0%), 205 á Suðurlandi (2,2%) og er skiptingin nánast jöfn á milíi kynja í landhlutanum. At- vinnuleysi sem hlutfall af mannafla var áberandi mest meðal kvenna á Suðurnesjum 235 (7,9%), á Austur- landi 122 (5,2%), á Suðurlandi 105 (3,0%), Norðurlandi eysti'a 150 (3,0%) og á Vesturlandi 86 (3,0%). alls var 221 kona atvinnuiaus á höfuðborgarsvæðinu f mánuðinum en það er 0,7% af mannafla. Á yfirliti vinnumálaskrifstofunn- ar kemur fram að þá ellefu mán- uði, sem liðnir eru af árinu, hafa samtals verið skráðir 429 þúsund atvinnuleysisdagar á landinu öllu. Á sama tíma í fyrra höfðu verið skráðir 539 þús. dagar. Að mati vinnumálaskrifstofunnar bendir því ekkeit til að yfirstandandi ár verði lakara hvað atvinnustig á landinu öllu snertir en s.l. tvö ár, þó gera megi ráð fyrir auknu atvinnuleysi f desember, jafnvel umfram venju. Bók með ljósmyndum Ragnars Axelssonar HAGALL hefur gefið út bókina Reykjavík, ,sem er bók með ljósmyndum eftir Ragnar Axelsson ljósmynd- ara á Morgunblaðinu. í bókinni eru um 120 ljós- myndir, sem flestar voru tekn- ar á þessu ári, en einstaka eldri myndir eru og í bókinni. Myndefnið er, eins og nafn bókarinnar vísar til, höfuð- borgin. Matthías Johannessen skáld og ritstjóri skrifar formála að bókinni og Einar Falur Ing- ólfsson skrifar um ljósmyndar- ann Ragnar Axelsson. Bókin er 120 blaðsíður. Ragnar Axelsson íslenskur heimilismat- ur í hávegum hafður í nýrri matreiðslubók „MATURINN hennar mömmu," heitir bók með 164 uppskriftum sem nýlega kom út. Bókin er frá- brugðin matreiðslubókum sem gefnar hafa verið út á undanförn- um árum að því leyti að í henni er hefðbundin íslensk matorgerð í hávegum höfð. Að sögn Áslaug- ar Ragnars sem ritstýrir bókinni var enga slíka myndskreytta mat- reiðslubók að finna á markaðnum áður en „Maturinn hennar mömmu“ kom út. „Það eru til ýmsar íslenskar mat- reiðslubækur frá mismunandi tímum sem eru mjög góðar. Það kom hins vegar í Ijós þegar að var gáð að engin þeirra var myndskreytt en myndirnar eru nauðsynlegar til að átta sig á pví hvernig réttirnir líta út,“ sagði Áslaug í samtali við Morg- unblaðið. Uppskriftirnar í bókinni eru úr ýmsum áttum og voru allar yfírfærð- ar af húsmæðrakennara áður en bókin kom út. Áslaug segir allar uppskriftirnar upprunalegar en þær hafi margar verið aðlagaðar lítillega breyttum neysluvenjum og hollustu- háttum með því að draga úr fitu- magni. „Nútímafólk borðar ekki fitu í sama mæli og gert var áður, bæði vegna þess að aukin þekking á nær- ingarfræði hefur leitt í Ijós að það er varasamt að borða mikla fitu-. Þar að auki höfum við ekki þau not fyr- ir fituna sem fólk hafði áður þegar fæðið var mjög fábrotið og allur aðbúnaður slærriur. Fólk hímdi þá í köldum húsum og þurfti á fitunni að halda þó ekki væri nema til að Áslaug Ragnars ritstýrir bókinni „Maturinn hennar mömmu.“ halda á sér hita. Ég dreg þess vegna úr fitunni í flestum uppskriftunum. Að öðru leyti hefur þeim ekki verið breytt í grundvallaratriðum," sagði Áslaug. Hún segist leggja mikið upp úr því í uppskriftunum að hráefnið nýt- ist vel. „Þegar ég fékk hugmyndina að bókinni fannst mér óhugsandi fyrir mig að ráðast í þetta, þar sem ég er hvorki húsmæðrakennari né mat- reiðslumeistari. Þegar ég fór að íhuga þetta betur þá fannst mér það einmitt geta veriþ ástæðan fyrir því að gera þetta. Ég er bara rétt og slétt húsmóðir og hef reynsluna af því að halda heimili og þar sem þetta er bók handa almenningi en ekki þeim sem hafa þetta sem sérsvið, tel ég það nýtast vel,“ sagði Áslaug að lokum. Vík á Kjalarnesi hefur nú verið formlega iekiri í notkun. Þar gétá 3Ö riiáíini ýeriiö í iiiriöférð Hvérjri smm. Meðferðarheimilið Vík tekið í notkun HIÐ nýja meðferðarheimili SÁÁ, Vík á Kjalarnesi, var formlega tekið í notkun um helgina. Á Vík sem tekur við af Sogni í Ölf- usi geto 30 manns verið í meðferð í einu. Meðal gesto er Vík var formlega tekið í notkun var Sighvatur Björgvinsson heilbrigðis- ráðherra. Hann sagði m.a. að íslendingar væru í fremstu röð þeirra þjóða sem glíma við áfengisvandann en góður árangur af meðferð mætti hinsvegar ekki verða til að menn slökuðu á í aðgæslu sinni. Auk heilbrigðisráðherra flutti Sigfús Johnsen formaður Freep- ort klúbbsins ávarp. Hann sagði að nú væru 15 ár liðin frá því íslendingar fóru að leita sér lækn- inga við aikóhólisma á Freeport. Upp úr þeim ferðum var SÁÁ stofnað og óhætt að segja að þeir draumar sem frumkvöðlar sam- takanna áttu sér hafi nú ræst. Vík stendur á 14 hektara landi úr jörðinni Saltvík en SÁÁ keypti landið af Reykjavtkurborg. Bygg- ing hússins, allt meðtalið, kostaði tæpar 90 milljónir króna og nú stendur yfir fjáröflun SÁÁ vegna byggingarinnar, m.a. með sölu miða í byggingarhappdrætti SÁÁ.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.