Morgunblaðið - 17.12.1991, Blaðsíða 80

Morgunblaðið - 17.12.1991, Blaðsíða 80
 SYKURLAUi MORGUNBLADID, ADALSTRÆTl 6, 101 REYKJA VÍK SÍMl 691100, FAX 691181, PÓSTHÓLF 1666 / AKUREYRI: 11 A FS’A RSTRÆTI 86 ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 1991 VERÐ I LAUSASOLU 110 KR. Samið um hagræðingu og bónuskerfi: Mjólkurverk- fallinu aflýst Verkfall hjá skipafélögiim hófst á miðnætti DAGSBRÚNARMENN sem starfa hjá Mjólkursamsölunni í Reykja- vík aflýstu í gær verkfalli, sem hefjast átti í vikulokin, er samkomu- lag tókst milli þeirra og yfirmanna fyrirtækisins um sérkjarasamn- ing. Samið er um hagræðingu, sem lækka á framleiðslukostnað, og koma á afkastahvetjandi launakerfi eða svokölluðu bónuskerfi. Síðustu daga sátu tveir trún- aðarmenn Dagsbrúnar á fundum með forstjóra og fjármálastjóra Mjólkursamsölunnar og reyndu til þrautar að ná samkomulagi. Full- trúar stjórnar Dagsbrúnar og Vinnuveitendasambandsins hafa ekki setið þessa samningafundi, en samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins voru þeir þó haldnir í fullu samráði við báða aðila. Samning- urinn var undirritaður um fjögur- leytið í gær af trúnaðarmönnum Dagsbrúnar í umboði félagsins, stjórnendum MS og Þórarni V. Þðrarinssyni, framkvæmdastjóra VSÍ. Á fundi starfsmanna Dags- brúnar hjá MS var samningurinn svo samþykktur með yfírgnæfandi meirihluta, um 60 atkvæðum gegn átta. „Þetta er samningur, sem við hefðum viljað gera fyrir löngu,“ sagði Þórarinn V. Þórarinsson í samtali við Morgunblaðið. „Hann er af sama toga og samningurinn, sem gerður var á Akureyri, og miðar að því að ná niður fram- leiðslukostnaði á mjólkurafurðum og deila út milli starfsmanna fyrir- tækisins og neytenda ávinningnum af skipulegri hagræðingu í rekstri." Þórarinn sagði að samn- ingurinn væri í samræmi við þá „gallhörðu" stefnu VSÍ að semja ekki þannig að það hefði hækkun á launakostnaði í för með sér. „Það ríkti mikill trúnaður á milli okkar og stjórnenda fyrirtækis- ins,“ sagði Ólafur Ólafsson, trún- aðarmaður Dagsbrúnar hjá MS. „Þetta sýnir bara að menn geta leyst málin ef vilji er fyrir hendi og menn fá að vera í friði til þess.“ Verkfalli benzínafgreiðslu- og hlaðmanna á Reykjavíkurflugvelli lauk í gær án þess að til deilna um verkfallsbrot kæmi. Guðmund- ur J. Guðmundsson, formaður Dagsbrúnar, sagði að reyndar hefðu litlu flugfélögin ekki staðið við það samkomulag, sem gert var við Dagsbrún, í einu og öllu, en það hefðu verið fremur smávægi- leg frávik. Á miðnætti hófst verkfall Dags- brúnarmanna sem vinna við losun og lestun og í pakkhúsum skipafé- laganna. Skipafélögin reyndu að koma sem mestu af vörum til við- skiptavina í gær til þess að kaup- menn yrðu ekki uppiskroppa í miðri jólavertíð. Morgunblaðið/Ámi Sæberg Ottablandin aðdáun Jólasveinar gengu um gættir í Árbæjarsafni um helgina með há- reysti og hrekkjum. Þeir gáfu sig líka að börnunum, sem mætt voru með foreldrum sínum til að heilsa upp á karlana og var ekki laust við að aðdáun sumra á þessum ófrýnilegu körlum væri blandin örlitl- um ótta. Flest var smáfólkið þó hæstánægt með heimsóknina, en um 600 manns komu í safnið og hittu bræðurna af fjöllunum. Verðið ájólasteikinni: 84% verðmun- ur á úrbein- uðu hangikjöti SAMKVÆMT niðurstöðum verð- könnunar Verðlagsstofnupar í 35 matvöruverslunum á höfuð- borgarsvæðinu er 84% verðmun- ur á hæsta og lægsta verði á úrbeinuðu hangikjöti úr fram- parti, og 62% verðmunur er á hæsta og lægsta verði á ham- borgarhrygg með beini. Mestur verðmunur reyndist vera á kjúkl- ingum, eða 89%, en verðmunur á öðru fuglakjöti var frá 24-32%. Verðlagsstofnun kannaði nýlega verð á flestum þeim kjötvörum sem gera má ráð fyrir að verði á borðum landsmanna um jól og áramót, og í ljós kom að verð á samskonar kjöti er mjög mishátt eftir verslun- um. Meðalverð á því kjöti sem könn- unin náði til hefur að jafnaði hækk- að um 1,2% frá því fyrir síðustu jól, að undanteknu verði á kjúkling- um og ijúpum. Meðalverð á ijúpum hefur hækkað um 45-49% frá því í fyrra, en meðalverð á kjúklingum hefur hins vegar lækkað um 25% á sama tíma. Meðalverð á hamborg- arhrygg og kalkúni hefur einnig lækkað, en meðalverð á hangikjöti er nær óbreytt frá síðastliðnu ári. Sjá nánar á bls. 79. Háskóli íslands kvartar undan niðurskurði ríkisframlags; Engir nýnemar teknir inn að óbreyttri fjárveitingu Háskólinn verður að taka á sig byrðar eins og aðrir, segir fjármálaráðherra HÁSKÖLARAÐ sendi í gær frá sér ályktun, þar sem segir að verði fjárveiting til Háskóla Is- lands á fjárlögum ekki hækkuð, muni engir nýnemar verða teknir inn í skólann á næsta hausti, þrátt fyrir áform um skólagjöld og ýtr- asta niðurskurð kennslu og þjón- ustu. Jafnframt kæmi til varanleg lokun námsbrauta og afnám margs konar þjónustu. Friðrik Sophusson fjármálaráðherra seg- ir að Háskólinn verði að taka á sig byrðar eins og allir þjóðfélags- þegnar. „Háskólanum er vel ljóst að nú eru samdráttartímar í þjóðfélaginu og bæði einstaklingar og stofnanir verða að taka á sig auknar byrðar," segir í ályktun háskólaráðs. „Þetta (Geta keppt á kvóta- og fjármagnsmarkaði — segir Valur Valsson bankastjóri Islandsbanka um samein- ingu Fiskiðjunnar og Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum FORRÁÐAMENN Fiskiðjunnar og Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyj- um hyggjast meðal annars ná fram aukinni hagræðingu í rckstri, eft- ir að sameiningu fyrirtækjanna tveggja er lokið, með því að selja fast- eignir, úrelda fiskibáta og sérhæfa og samhæfa fiskvinnsluna meira en nú er. Valur Valsson, bankastjóri Islandsbanka, segist gera ráð fyrir að bankinn og aðrar lánastofnanir sem hlut eiga að máli vilji gera sitt til að greiða fyrir því að sameiningunni Ijúki farsællega. Guðmundur Karlsson, fram- kvæmdastjóri Fiskiðjunnar, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að sameiningin legðist vel í starfsfólk fyrirtækjanna. „Við hljótum að vera sáttir við þessa niðurstöðu. Þetta er -þið sem við viljum gera, miðað við þá stöðu sem er í dag,“ sagði Guð- mundur. Valur Valsson, bankastjóri Is- landsbanka, sagðist i gær vera ánægður með þessa niðurstöðu hjá Fiskiðjunni og Vinnslustöðinni. Hann sagði að þessi sameining skapaði möguleika til þess að hagræða í rekstri, lækka tilkostnað og styrkja fjárhagsstöðuna. „Hið nýja fyrirtæki á því að geta keppt á kvótamarkaði og fjármagnsmarkaði við önnur stór sjávarútvegsfyrirtæki í landinu," sagði Valui'. Valur sagði að frá upphafi hefði það verið ljóst að heimamenn þyrftu sjálfir að finna bestu lausnina, „því hver er sinnar gæfu smiður. Islands- banki gat ekki og ætlaði ekki að segja mönnum fyrir verkum, en við höfum alla tíð verið reiðubúnir að styðja sameiningu eftir því sem við getum“. Hann sagði að nú hefði það gerst að forráðamenn Vinnslustöðv- arinnar og Fiskiðjunnar hefðu komið sér saman um ákveðna hagræðingu og því fögnuðu menn í íslandsbanka og myndu aðstoða þá eftir föngum. Sjá ennfremur á miðopnu. hefur Háskólinn hins vegar gert umfram aðra á undanförnum árum. Frá árinu 1988 hefur nemendum fjölgað um 935 (21,8%) og náms- brautum og þjónustuverkefnum íjölgað, án þess að fjárveitingar hafi hækkað að raungildi." Háskólaráð lýsir sig reiðubúið að vinna að frekari hagræðingu, en segir að hafa verði í huga að gæði kennslunnar verði sambærileg við það sem gerist erlendis. Ráðið segir að niðurskurður myndi hafa í för með sér að yngstu og efnilegustu kennurum skólans yrði sagt upp og að HÍ yrði undirmálsskóli. Friðrik Sophusson fjármálaráð- herra sagði í samtali við Morgun- blaðið að samkvæmt fjárlagafrum- varpinu væri ráð fyrir því gert að rekstrarútgjöld Háskólans hækkuðu um 178 milljónir, en jafnframt að hann gæti aflað sértekna að upphæð 109 milljónir með innritunar- og efn- isgjöldum, sem Háskólaráð hefði lagaheimild til að innheimta. Inn- 40%líkurá hvítumjólum Um 40% líkur eru á því að um jólin verði jörð alhvít miðað við reynslu síðustu 42 ára. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Islands hefur verið al- hvít jörð sautján jól síðan 1949 eða í 42 ár. Á sama tímabili hefur átján sinnum verið ílekkótt jörð og tólf sinnum alauð jörð á jólunum. heimta mætti gjöldin á báðum miss- erum á næsta ári. „Þetta þýðir að hækkun milli ára er 5% til Háskól- ans og ég get ekki séð annað en að það sé eðlilegt, nema um sé að ræða verulega fjölgun nemenda. Það verð- ur þá að taka sérstakt tillit til þess,“ sagði hann. Fjármálaráðherra minnti á að Háskólinn hefði öðrum skólum frem- ur heimild til að ákveða innritunar- gjöld og að auki til að ákveða um- fang reksturins. „Ég leyfi mér að vona að forráðamenn Háskólans skilji að þegar við erfiðleika er að etja, og verið er að dreifa byrðum á landsmenn, þá verða þeir auðvitað að taka þátt í að leysa þann vanda með öðrum þjóðfélagsþegnum," sagði Friðrik Sophusson. Sjá einnig á miðopnu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.