Morgunblaðið - 17.12.1991, Side 46

Morgunblaðið - 17.12.1991, Side 46
46 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 1991 Frumvarp um breytíngar á lögum um tekju- og eignarskatt: Enginn getur skorast undan að leggja nokkuð að mörkum - segir Friðrik Sophusson fjármálaráðherra FRIÐRIK Sophusson fjármálaráðherra mælti fyrir frumvarpi um breytingu á lögum um tekju- og eignarskatt síðastliðinn laugardag og var umræðu um frumvarpið fram haldið í gær. Frumvarpið snert- ir ýmis efni en það er eitt af svonefndum tekju- eða fylgifrumvörp- um með fjárlagafrumvarpi næsta árs. Fjármálaráðherrann kallar éftir stuðningi til að reisa við þjóðarhag. „Þar getur enginn skorast undan. Allir verða að leggja nokkuð að mörkum, og allra helst þeir sem betur mega.“ Fjármálaráðherra gerði grein fyrir helstu efnisatriðum frum- varpsins. Þar er gert ráð fyrir því að draga nokkuð úr afsláttarliðum skattakerfisins og endurgreiðslum til tekjuhærri skattgreiðenda í þeim tilgangi að auka með því skil í ríkis- sjóð af beinum sköttum. Einnig eru fólgnar í frumvarpinu ýmsar breyt- ingar á ákvæðum um skattlagningu lögaðila og einstaklinga. Fjármálaráðherra benti á að tekjuskattur einstaklinga á íslandi ^einkennist öðru fremur af einföld- um álagningarreglum, fáum und- anþágum frá skattskyldu, þegar frá væru taldar eignatekjur, og tiltölu- lega háum endurgreiðsluliðum. Á árinu 1990 voru nálægt 22% af álögðum tekjuskatti endurgreidd með ýmsum hætti. Sértækir afslátt- arliðir og bótagreiðslur vbru alls um 8,2 milljarðar. Þar af voru barnabótaliðir stærstir eða samtals 4,4 milljarðar. Bæturtengdar öflun húsnæðis voru um 2,4 milljarðar. Sjómannaafsláttur var um 1,4 millj- arðar. 700 milljónir Ráðherra dró ekki dul á að með frumvarpinu væri ætlað að draga nokkuð úr þessum endurgreiðslu- liðum. Yrði það samþykkt myndu þeir lækka um tæplega 700 millj- ónir króna, þá myndi um 20% af áiögðum tekjusköttum verða varið til endurgreiðslna og bóta. Frumvarpið gerir ráð fyrir þeirri breytingu á barnabótakerfínu að auka hinn tekjutengda hluta þess. Breytingarnar leiða til þess að barnabætur muni í heild lækka um 1.150 milljónir en barnabótaauki hækka um rúmlega 630 milljónir, þannig að útgjöld vegna þessara liða munu lækka um liðlega 500 milljónir króna. Áhrif þessara breytinga verða í stórum dráttum þau að þeir foreldrar sem hingað til hafa fengið barnabótaauka munu fá svipaðar eða hærri bætur, en þeir sem hafa verið ofan þeirra marka munu fá bætur sínar skertar frá því sem nú er. Ráðherra sagði að þetta þýddi m.a. að bótaliðir ein- stæðra foreldra í heild myndu ekki skerðast, jafnvel hækka lítið eitt. I Sjómannaafsláttur Þessu næst vék íjármálaráðherra að þrengingu reglna um sjómanna- sfsláttinn, en gert er ráð fyrir að takmarka rétt til hans með því að miða eingöngu við þá daga, sem sjósókn er stunduð. Samkvæmt frumvarpinu myndi veittur sjó- mannaaflsláttur lækka um 180 til 200 milljónir frá því sem hann var við álagningu á þessu ári. Ráðherra sagði að laun vegna sjómennsku hefðu verið samkvæmt skattafram- tölum síðasta árs tæpir 18 milljarð- ar. Lækkun sjómannaafsláttarins væri rúmlega 1% heildarlaunanna. Og frá meðalsjómannakaupi væri skerðingin um 0,6%. Það væri, svo dæmi væri tekið, hlutfallslega minni breyting en lækkun barnabótanna hjá þeim sem fyrir þeirri skerðingu yrðu. Það kom fram í ræðu fjár- málaráðherra að þessi skerðing sjó- mannaafsláttarins hefði vakið einna mesta athygli. Hann taldi viðbrögð- in í nokkru ósamræmi við efnið og væntanleg áhrif þessara breytinga. „í reynd er það svo að áhrif þeirra á hag þeirra sem þau snerta, það er sjómenn og útgerð, eru ekki meiri, nema síður sé en þau áhrif sem fjölmargir aðrir verða fyrir af öðrum ákvæðum frumvarpsins og ýmsum þeim ráðstöfunum sem stjórnvöld verða nú að grípa til í þeim tilgangi að reisa við þjóðar- hag. Þar getur enginn skorast und- an. Allir verða að leggja nokkuð að mörkum, og allra helst þeir sem betur mega.“ Framsögumaður gerði einnig í sinni ræðu nokkra grein fyrir breyt- ingum á ákvæðum um skattalega nýtingu á rekstrarlegu tapi og varð- andi frádrátt útborgaðs arðs frá tekjum lögaðila, skattlagningu söluhagnaðar, skattlagningu sam- vinnuhlutafélaga og starfshætti rík- isskattanefndar. Þingsköp eða undirmál Fjármálaráðherra lagði að end- ingu til að málinu yrði vísað til 2. umræðu og efnahags- og viðskipta- nefndar en vísaði til 23. greinar þingskapa, 2. málsgreinar. „Áður en 1. umræða fer fram um stjómar- frumvörp eða fyrri umræða um til- lögur frá ríkisstjórninni getur for- seti heimilað, ef ósk berst um það frá niu þingmönnum, að nefnd at- hugi mál í því skyni að afla frekari Jón sagði að hins vegar skuld- bindu aðildarríkin sig til að gera ekki upp á milli landa í orkuvið- skiptum. Það skipti til dæmis miklu máli fyrir Norðmenn, sem væru með olíuvinnslu á landgrunni sínu svo og hin nýfijálsu ríki í Austur- Evrópu. Þannig skuldbindu Norð- menn sig til að gera ekki upp á milli olíufélaga eftir því hvaðan þau kæmu. „Tilgangur þessa sáttmála er ekki síst sá að tengja ríki Austur- Evrópu við viðskiptakerfi Vestur- landa á þessu mikilVæga sviði,“ sagði Jón. Hann tók það fram að hann hefði haft náið samstarf við hin Norður- löndin í þessu máli og einmitt beitt sér fyrir samráði um þennan full- veldisfyrirvara í samningnum. Mál- ið hefði verið mjög vel kynnt fyrir Alþingi og nefndum þess, iðnaðar- nefnd og utanríkisnefnd. I umræð- um í iðnaðarnefnd með þátttöku embættismanna iðnaðarráðuneytis- ins hefðu ekki komið fram athuga- semdir um að við gerðumst aðilar upplýsinga um það eða skýringa á efni þess. Slíkt er og heimilt að gera að lokinni framsöguræðu um málið. Forseti ákveður hve lengi athugun nefndarinnar má standa.“ Fjármálaráðherrann fór fram á það, fyrir hönd þingmanna Sjálfstæðis- flokksins og þeirra þingmanna sem sæti ættu í ríkisstjórninni, áð frum- varpinu yrði vísað, ásamt öðrum tekjuöflunarfrumvörpum sem lægju fyrir, til meðhöndlunar í nefnd, en þessi beiðni fæli ekki í sér að málið skyldi afgreiðast með nokkrum hætti úr nefndinni. Fjármálaráð- herrann fór þess á leit að nefndin athugaði frumvarpið strax á næsta mánudegi. Salome Þorkelsdóttir forseti Al- þingis taldi það athugunarefni hvort þessi túlkun fjármálaráðherrans stæðist og mátti glögglega heyra úr þingsal að Olafur Ragnar Gríms- son (Ab-Rn) taldi svo ekki vera; „undirmál". Þingforseti gerði fund- arhlé og að því afloknu tilkynnti hún að ekki yrði að þessu sinni tek- in afstaða til tilmæla fjármálaráð- herra en ósk hans um athugun yrði komið á framfæri við formann efna- hags- og viðskiptanefndar. Um- ræðu var síðan frestað. Sátt stétta I gær var málið aftur tekið til umræðu. Halldór Ásgrímsson sagði að frumvarpið legði byrðar á tekjuhærri barnafjölskyldur fremur en tekjulægri en þótti það næsta sérkennilegur framgangsmáti að ganga framhjá tekjuhærri einstakl- ingum úr því að það þurfti að vera að þessari stefnuyfirlýsingu. „Ég tel aðild okkar mjög jákvæða af tveimur ástæðum. Annars vegar þátttaka okkar í því starfi sem nú fer fram um allan heim meðal lýð- fijálsra ríkja og felst í að tengja hinar nýfijálsu þjóðir við viðskipta- kerfi Vesturlanda og greiða þeim fyrstu sporin á braut markaðasbú- skapar, en einnig vegna þess að það er hagsmunamál okkar sjálfra að eiga greiðan aðgang að orkumark- aði Evrópu í framtíðinni þegar við hugsanlega flytjum þangað raforku beint. Það er því mjög mikilvægt að við getum átt aðgang að því starfí sem framundan er við að móta þessar viðskiptareglur með lögformlegum hætti," sagði Jón. Ottast um forræði yfir orkulindum Að beiðni stjórnarandstöðunnar var evrópskur orkusáttmáli ræddur utan dagskrár í gær, en þingmenn stjórnarandstöðu óttuðust að for- ræði Islendinga yfír sínum orkulind- að íþyngja iandsmönnum. Ræðu- maður sagði að með þessu frum- varpi væri ein stétt tekin útúr og íþyngt sérstaklega. Það hefði verið sátt um þennan skattaafslátt milli stétta. Sjómannsstarfið væri hættu- legt og unnið fjarri fjölskyldu og heimili. Halldór ræddi einnig í nokkru máli hina tæknilegri hluta frumvarpsins, s.s. um nýtingu á rekstrarlegu tapi og um starfshætti ríkisskattanefndar og fleira. Hann varaði við því að fara offari í þgss- um efnum þótt finna mætti dæmi sem orkuðu tvímælis, ekki mætti ganga svo langt að nauðsynleg hagræðing og endurskipulagning yrði torvelduð. Steingrímur J. Sigfússon (Ab- Ne) fann almennt að verklagi ríkis- stjórnarinnar, illa grunduðu og fljótfærnislegu bæði utan þings og innan. Steingrímur var í sjálfu sér reiðubúinn til að skoða tekjuteng- ingu barnabóta en hér væri um skerðingu að ræða sem myndi leiða til greiðsluerfiðleika fjölda fólks. Og við ríkjandi aðstæður taldi hann skerðingu sjómannaafsláttarins fráleita og gæti engum sem migið hefði í saltan sjó dottið slík fjar- stæða í hug. Hann taldi að skerðing sú sem sjómenn yrðu fyrir yrði mun meiri en þær 180-200 milljónir sem fjármálaráðherra teldi fram. Sam- tök sjómanna mætu þetta mun hærra, a.m.k. 500 milljónir króna. Þrengt að barnafólki Kristín Ástgeirsdóttir (SK-Rv) sagði nú vera til umræðu allnokkur frumvörp sem endurspegluðu áform og efnahagsstefnu ríkisstjórnarinn- ar. Og í heild væri stefnan stórfelld um væri ekki fulltryggt. Fyrsti ræðumaður stjórnarand- stöðu, Steingrímur Hermannsson (F-Rn), sagði þarna vera ákvæði sem gætu reynst hættuleg ef þau yrðu samþykkt án fyrirvara. Gert væri ráð fyrir fijálsum aðgangi að orkulindum þótt tekið væri fram að að fullveldi ríkja héldist óskert. Einnig væru þarna ákvæði um jafn- ræðisreglu; að ekki mætti mismuna aðilum. Steingrímur taldi skilgrein- ingar í drögum að sáttmálanum á fullveldi vera ófullnægjandi. Það yrði að hafa skýra fyrirvara, m.a. í ræðu sem iðnaðarráðherra hygðist halda. .Hann vildi að iðnaðarráð- herra greindi frá því hvernig málum væri hér nú háttað og ríkisstjórnin túlkaði forræði íslendinga yfir or- kulindum þannig að þeim væri heimilt að halda einkarétti- opin- berra aðila til virkjunar á orkulind- um landsins. Það kom fram í máli Davíðs Oddssonar forsætisráðherra að hann væri í sjálfu sér sáttur við túlkun Steingríms Hermannssonar á okkar stöðU. Forsætisráðherra lagði áherslu á að hér væri ekki um að ræða bindandi samning held- ur pólitíska stefnuyfirlýsingu og ekkert sem iðnaðarráðherra hefði sagt eða gert hefði veikt okkar stöðu. Iðnaðarráðherra hefði lagt höfuðáherslu á að hvert land hefði forræði yfír nýtingu sinna orkulinda árás á alþýðufólk í landinu. Kristín taldi skerðingu sjómannaafsláttar- ins vera einhliða breytingu á kjör- um, sambærilega við umdeilda lagasetningu á kjarasamninga við Bandalag háskólamanna í þjónustu ríkisins, BHMR. Kristín gagnrýndi ekki síður og jafnvel frekar skerð- ingu á barnabót.um, þótt tekjuteng- ing væri ekki fráleit væri einkenn- andi að allar viðmiðunarreglur væru neðan við öll velsæmismörk. Friðrik Sophussyni fjármála- ráðherra þótti ansi langt seilst með því að telja takmörkun á sjómanna- afslætti vera sambærilega við lögin gegn BHMR. Hér væri eingöngu miðað að því að menn nytu ekki skattaafsláttar í landi. Jóhann Ársælsson (Ab-Vl) taldi ekki óeðlilegt að þrengja ákvæði um skattaafslátt með yfirfærslu á rekstrartapi. Jóhann taldi tekju- tengingu barnabóta koma vel til greina en hér væri verið að þyngja álögur á barnafólk. Hann gagn- rýndi harðlega greinargerð með frumvarpinu. Jóhann taldi að þar væri íað að afnámi sjómannaafslátt- arins. Sjómannaafslátturinn væri með vissum hætti viðurkenning þjóðarinnar á sjómannsstarfinu. Jóhannes Geir Sigurgeirsson (F-Ne) var ánægður með að í frum- varpinu væri ákvæði um samvinnu- hlutabréf en taldi að efnahags- og viðskiptanefnd hefði þurft meira tóm til að athuga þessi ákvæði bet- ur. Jóhannes Geir ræddi almennt rekstrarumhverfi íslensks atvinnu- lífs og íslenskan hlutabréfamarkað og hugsanleg og ógnvægileg áhrif ef hlutabréfum af ríkisbönkum yrði veitt út á markaðinn. Jóhannes Geir sagði í lok ræðu sinnar að ef einhver stétt ætti að njóta for- réttinda í skattalegu tilliti, væri það sjómannastéttin. Laust eftir kl. 19 varð Jóhannes Geir að gera hlé á ræðu sinni því Salome Þorkelsdóttir vakti athygli á því að nú yrði fundarhlé í einn og hálfan tíma sem sumir þingmenn yrðu að nýta til nefndarfunda en öðrum gæfist kostur málsverðar. og gæti ákveðið með hvaða hætti orkulindir þess yrðu nýttar. Forsæt- isráðherra túlkaði hina svonefndu jafnræðisreglu á þann veg að ríkj- um yrði ekki heimilt að gera upp á milli einstakra landa sem ættu að- ild að samningnum. Það þýddi hins vegar ekki að ríkin gætu ekki gert upp á milli sjálfs sín annars vegar og einhvers af þeim löndum sem undirrituðu samninginn hins vegar. Stjórnarandstæðingar fögnuðu þessari túlkun forsætisráðherra en lögðu áherslu á að tryggilega yrði að binda um hnútana og halda öllum fyrirvörum skilvíslega fram. Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráð- herra taldi að í þessu máli væri kannski verið að búa til ágreining um mál sem enginn ágreiningur væri um. Jón Sigurðsson sagði að stefnu- yfirlýsingin væri ekki lögformlega skuldbindandi en hún væri pólitísk skuldbinding. Það væri ekkert við því að segja að stjórnarandstaðan væri andsnúin stefnu stjórnarinnar, en honum fyndist koma úr hörðustu átt gagnrýni Steingríms Hermanns- sonar sem sjálfur hefði tekið þátt í Ieiðtogafundi ráðstefnu um öryggi og samvinnu í Evrópu RÖSE í nóvember í fyrra, en þar hefði ein- mitt ve.rið lögð áhersla á að undirbú- in yrði evrópskur orkusáttmáli þar sem settar yrðu meginreglur um orkusamstarf Evrópuríkjanna. Utandagskrárumræða vegna væntanlegs orkusáttmála: Yfirráð okkar yfir orkulind- unum eru mjög vel tryggð - segir Jón Sigurðsson, iðnaðarráðherra, um stefnuyfirlýsingu í orkumálum „Yfirráð okkar yfir orkulindunum eru mjög vel tryggð í texta þessarar stefnuyfirlýsingar orkuráðherra aðildarríkja hins væntan- lega orkusáttmála. Hann er beinlínis gerður á þeim grundvelli að fullveldi og yfirráð aðildarríkjanna yfir orkulindunum sé tryggt og hvert ríki ráði skipulagi síns orkubúskapar,“ sagði Jón Sigurðsson, iðnaðarráðherra, aðspurður um gagnrýni á orkusáttmálann, en stefnuyfirlýsing varðandi hann verður undirrituð í dag. Jón Sigurðs- son er staddur erlendis af þeim sökum, en utandagskrárumræða um sáttmálann fór fram á Alþingi í gær.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.