Morgunblaðið - 17.12.1991, Qupperneq 62

Morgunblaðið - 17.12.1991, Qupperneq 62
62 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 1991 \imm} VIDEOTÖKUVÉLAR ALSJÁLFVIRKAR HI-FISTEREO 6xZOOM Dagsetningarmöguleikar Ljósnæmi 4 lux VEGUR AÐEINS 0,590 KG Sértilboð kr. 74.95Ö,- stgr. MUNALÁN CB Aíborgunarskilmálar g] VÖNDUÐ VERSLUN -rJLJIMMCO, FÁKAFEN 11 — SfMI 688005 I EScholtes F4805 ELX TV 483 B Helluborð Keramik yfirborð, svartur rammi, fjórar hellur, sjálfvirkur hitastillir og hitaljós. iÉÉ U Funahöfða 19 sími 685680 Ofn Yfir-undirhiti, blástur og grill, fituhreinsun.svart glerútlit, tölvuklukka með tímastilli. Jónatan B. Einars son - Kveðjuorð Fæddur 30. júlí 1940 Dáinn 18. nóvember 1991 Þeir þylja ekki bænir og biðja ekki um grið en böðul sinn helskotnir glíma þeir við. Svo kunna ekki dónar að deyja. (Þorst. Erlingss.) Okkur langar til þess að minnast hér, þótt seinna sé en skyldi, vinar okkar Jónatans Einarssonar, sem var til grafar borinn laugardaginn 25. nóvember sl. Fyrir um það bil hálfu öðru ári kom hann Jónatan í heimsókn til okkar og lýsti því þá glaðbeittur að líklegast væri krabbamein hreint ekki svo galin pest, því nú væri búið að skera innan úr honum allt lauslegt með þeim æskilegu afleið- ingum að nú gæti hann helst ekki látið inn fyrir sínar varir vatn og þess kyns ullabjakk, en hæfni sín til að drekka áfengi hefði aftur á móti stóraukist. Þetta væri allt ann- að og betra líf. Síðan hló hann svo smitandi hlátri að ég taldi víst um að hann myndi lifa alla viðstadda og ríflega það. Þannig var Tani. Á glaðri stundu voru fáir glaðari. Með skelmsku glotti og spé í auga stríddi hann fólki og spann upp fráleitustu sögur sér til skemmtunar. En stríðni hans var af þeirri gerð sem gott var að verða fyrir. Hún var aðeins vottur þess að honum þótti vænt um það fólk sem fyrir henni varð. En þrátt fyrir allt spott og spé var Tani öðrum þræði alvörugefinn og viðkvæmur í lund. Ég minnist margra funda í Alþýðubandalaginu þar sem hann stóð upp og brýndi menn til þeirra átaka sem ein skiptu máli, að auka jöfnuð í þessu þjóðfé- lagi. Og þótt glens og spé væri sjaldan langt undan duldist þó eng- um að þar var talað í fullri alvöru. Fyrir aldarfjórðungi var kalda stríðið líklega ívið kaldara hér á Suðumesjum en víðast hvar annars staðar á landinu og ýmsir vinstri menn töldu hollast að fara með veggjum og hafa ekki hátt um skoð- anir sínar. Það var á þessum ámm sem undirritaður kom fyrst á heim- ili þeirra Sólveigar og Tana. Þar fór enginn með veggjum. Þurfti Al- þýðubandalagið á handtaki að halda var leitað til þeirra og Alþýðubanda- lagið þurfti þá eins og oft endranær á mörgum handtökum að halda. Jónatan var fæddur á ísafirði árið 1940, stundaði sjó sem ungur maður fyrir vestan en vann síðan lengst af á þungavinnuvélum eftir að hann flutti hingað suður. Þau Sólveig og Tani áttu saman 3 dæt- ur, þær Elínu, Guðbjörgu og Þór- laugu auk þess sem þau ólu upp tvo syni Sólveigar, þá Helga Björg- vin og Inga Rúnar. Það var mikið ástríki með Jónat- an og börnum hans öllum og fjölsyldan var samhent um það að gera heimili sitt þannig úr garði að það vakti aðdáun. Sérhver gest- ur var látinn finna að einmitt hann væri alveg sérstakur aufúsugestur enda var þar gestkvæmt með af- brigðum þrátt fyrir mikið annríki alla tíð. Það stóð aldrei á Tana að leggja Sólveigu allt það lið er hann mátti þegar hún af mikilli þrautseigju lagði á sig hjúkrunarnám þrátt fyr- ir stóra fjölskyldu og þau félags- störf af margvíslegasta tagi sem á hana var lagt. Þegar við vorum jafnvel farin að leyfa okkur að vona, eftir að Tani hafði með ótrúlegu harðfengi og einstökum stuðningi Sólveigar náð allgóðri heilsu eftir skelfilegt sjúk- dómsstríð fyrir tæpum þremur árum, sem hann sjálfur lýsti þannig að hann „væri löngu dauður ef það væri ekki fyrir hana Sólveigu“. Þá kom í ljós að sjúkdómurinn hafði ekki sleppt tökum sínum og þrátt fyrir aðdáunarverða baráttu þeirra beggja sigraði loks sá er allt hlýtur að endingu að sigra. Við vottum fjölskyldu Jónatans að lokum okkar innilegustu samúð. Við höfum öll misst góðan dreng en þeir sem þekktu hann best vita hve mikið þau hafa misst. Sigga og Ásgeir. Útför Jónatans Einarssonar fór fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju 23. nóvember sl. að viðstöddu miklu fjölmenni. Það voru blendnar tilfínningar sem komu fram þegar mér bárust þær fréttir að Jónatan væri dáinn. Ég vissi að það var lausn fyrir hann eftir erfiðan sjúkdóm, en að hinu leytinu mikill söknuður, því það er sárt að missa vini sína á miðjum aldri þegar lífíð er oftast orðið auð- veldara, meiri tími til samvista og til að sinna hugðarefnum sínum, en ekki brauðstritið eintómt. Þegar vinur deyr þá hvarflar hugurinn til baka. Þó ekki séu nema 14 ár síðan ég kynntist Jónatan, þegar við Sólveig kona hans urðum skólasystur í Ljósmæðraskóla ís- lands, þá fínnst mér að ég hafi þekkt þau hjón alla ævi, vegna mannkærleika þeirra og einlægni í samskiptum við aðra. Jónatan var sérstakur maður að því leyti að hann var alvarlega hugsandi um þjóðlífíð og hafði ríka réttlætiskennd til að bera, en líka geislandi kátur þegar við átti og sá fyrsti í hópnum sem við kveðjum. Það var alltaf stutt í glens og spaug hjá Guðbimi. Hann sagði ekki ósjaldan að þeir vinirnir væm fágætum kostum búnir allir sem einn og frábærlega heppnir og lík- lega ættu þeir met í því að vera Pálmaolía í stað y smiers eða smjorlíkis Sími/fax 612295. Guðbjöm Þorsteins- son - Minning Það var vorið 1965 að einn bekk- ur nemenda lauk námi úr Sjómann- askólanum. Þessir nemendur vom í engu frábmgðnir öðrum sem slík- ir, nema þetta voru allt þaulvanir skipstjórar í fullu starfi, en þá vant- aði réttu pappírana. Þeir vom kannski líka dálítið eldri en aðrir nemendur skólans, kallaðir öldung- amir. Strax og þeir settust á skóla- bekk sáu þeir að undanþágur dugðu ekki lengur og nokkrir mánuðir í skóla fannst þeim lítið mál og þá væri líka öllum reglum fullnægt. Þessi hópur bast síðan sterkum vináttuböndum sem frægt er orðið, bæði hér heima og elendis. Þetta vom allt fjölskyldumenn og héldu jafnvel úti tveim heimilum. Engin námslán tíðkuðust þá. Þeir stefndu allir að sama takmarkinu og von- inni, að físka eins og þeir gætu, þeirra biðu skip, skipshöfn og sjór- inn fullur af físki. Þegar námi lauk og vinimir héldu hver til síns skips, var ákveðið að hittast reglulega á fimm ára fresti og það var staðið við það. Það var glaður hópur sem fór í Flókalund um Hvítasunnuhelgina 1970 og svo á Akureyri, Ítalíu, Spán, Hellu á Rangárvöllum og síðastliðið sumar á Hallormsstað. Þá var útséð að hópurinn færi að þynnast. Guðbjörn, sá sem ávallt átti fmmkvæðið og vann mest í að félagamir kæmu saman, var þá orðinn fársjúkur. Engum duldist að hverju stefndi, en við vonuðumst öll að hann fengi að vera lengur með okkur. En nú er hann íjarri, Spádómarnir rætast I J f f SÖNGFÉLAGAH /4 EINN & ÁTTA tlNN OCAtta flytja tónlist úr ýmsum áttum. Hér flytja þeir ■ « . . > íslensk lög, sígild erlend lög og lög af It.l j léttara taginu. Einnog fL S é átta fást á hljómplötu, V \ f f f- geisladisk og kassettu. Pöntunarsími: 812003 r ■í\ ekki má gleyma þessum hárfína húmor sem var svo fínn að stundum var ekki hægt að átta sig á hvert stefndi í samtölum við Jónatan og maður beit á agnið sem hann brá fyrir sig, en þegar manni var ljóst hvers kyns var og leit á Jónatan þá glitruðu augun full af kímni og hláturinn braust út. Ekki er hægt að minnast Jónat- ans svo að kona hans Sólveig Þórð- ardóttir komi ekki líka upp í hug- ann, svo samofin voru þau sem hjón. Þau hvöttu og uppörvuðu hvort annað. Er nær með ólíkindum hvað þáu áorkuðu saman á þeim rúmlega 30 árum sem þau áttu saman, ólu upp 5 böm, 2 syni, Helga og Inga Rúnar sem Sólveig átti fyrir en Jónatan reyndist þeim ekki síðri faðir en dætrum þeirra, Elínu, Guð- björgu og Þórlaugu, og bera þau öll vitni um það góða veganesti sem Jónatan og Sólveig veittu þeim í æsku. Öll hafa þau stofnað sín heimili og eignast böm sem Jónatan hafði mikið yndi af og seinast þeg- ar við Jónatan áttum tal saman í síma, þá sagði hann mér frá skím yngsta bamabarnsins sem hann hélt undir skím í Grindavíkurkirkju sl. sumar og minntist hann þá um leið unga prestsins þar, séra Jónu K. Þorvaldsdóttur, en hann heillaði af því hvernig hún boðaði guðs orð, og reyndist þessi sami prestur Jón- atan og fjölskyldu hans vel þegar hann upplifði viðskilnað sinn við líf- ið, sem var erfítt, því margt virtist ógert og er þá vissan um eilíft líf nauðsynleg hveijum manni. Ekki síður sótti Jónatan styrk til konu sinnar, sem hún gaf honum í ríkum mæli. Jónatan og Sólveig áttu glæsilegt heimili í Njarðvíkum sem gott var að koma til, enda oft gestkvæmt, snyrtimennskan sem var Jónatan í blóð borin kom fram á heimili þeirra. Jónatan hafði yndi af músík af hvaða tagi sem var og það var sérstök upplifun að dansa við Jónatan, því hann hafði taktinn eða sveifluna í sér. Þegar góður drengur og vinur fellur frá er svo ótal margs að minn- ast en ég læt staðar numið hér. Blessuð sé minning Jónatans Einarssonar og sendum við Sigfús Sólveigu og ástvinum öllum okkar dýpstu samúðarkveðjur. Svanborg Egilsdóttir enn giftir sömu konunum og þeir áttu þegar þeir voru í Sjómanna- skólanum. Guðbjörn var tryggur vinur og félagi og lét verða af því að rækta vinskapinn með heimsóknum eða símtali. Ég veit að Guðbjörn fór nær því að hveiju stefndi. Hann hringdi einu sinni sem oftar, spurði frétta af okkur og segir svo, hvemig hefurðu það? Bærilega, en þú? Þá segir hann, Stella mín, við erum búin að eiga yndislega daga og auðnast svo margt gott, okkar blómatíð fer að ljúka. Við verðum að sætta okkur við það. Þetta sagði rnér nóg til að íhuga hlutina og að ekkert er sjálf- gefið, hvorki líf, heilsa, gæfa né gleði. Þegár ég kveð nú kæran vin þá eru allar samverustundimar í huga mínum sem ein heild, full af gleði- legum minningum. ’ Elsku Svanhildur og fjölskylda, guð blessi ykkur og minninguna um Guðbjörn Þorsteins. Innilegustu samúðarkveðjur. Stella Birting afmætís- og minningargreina Morgtinblaðið tekur afmæl- is- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit- stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðal- stræti 6, Reykjavík og á skrif- stofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akureyri.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.