Morgunblaðið - 26.01.1992, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 26.01.1992, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. JANÚAR 1992 20 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbj'örn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1200 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 110 kr. eintakið. Starfsemi Stasi Sá yfirþyrmandi hryllingur sem alþýða manna í kommúnistaríkjunum sálugu í Austur-Evrópu þurfti að lifa við á degi hveijum er sífellt að koma betur í ljós. Upp- ljóstrar voru á hveiju strái, símar manna hleraðir, póstur lesinn, þeir sem grunaðir voru um and-sósíalískar skoðanir voru einangraðir og þess freistað að gera þá óvirka með ýmsum hætti. Margir voru vistaðir á geð- veikrahælum vegna þess, að viðhorf þeirra fóru ekki sam- an við kennisetningar sósíal- ismans. Hæfileikafólk var útskúfað, andófsmenn og fjölskyldur þeirra voru dæmdir úr leik í samfélag- inu. Hjón njósnuðu hvort um annað, vinir voru sviknir. Þau skemmdarverk sem unn- in voru á „þjóðarsálinni11 í Austur-Evrópu verða seint bætt. Allt hefur þetta raunar lengi legið fyrir þó svo marg- ir hafí neitað að horfast í augu við sannleikann. En nú hefur hulunni verið svipt af starfsemi öryggislögregl- HÉR MÆTTI • einnig minna á þann hug- takarugling sem ég hef heyrt Amór Hannibalsson tala um; lýðræðislegur sósíalismi. Hann telur slíka grein- ingu útí hött þarsem sósíalismi leiði ekki til lýðræðis. Þannig er það jafnfráleitt að tala um lýðræðisleg- an og vísindalegan sósíalisma; hann er hvorugt. En hann er til- fínningamál einsog trúarbrögð. Og ástæðulaust að hafa það í flimting- um. Pólitík stjómast fremur af til- finningum en staðreyndum. Við sjáum þetta hvarvetna íkringum okkur, einnig í velferðarríkjum. EINN HELZTI RITHÖF- • undur rómönsku Amer- íku, Mario Vargas Llosa, nú borg- aralegur stjórnmálamaður í Perú, hefur komizt svo að orði það sé honum í senn sársaukafull og framandi reynsla að nota það tung- utak sem tíðkast í stjómmálabar- áttunni, þvíað galdurinn sé ekki sá að koma á framfæri hugmynd- um, heldur merkjum sem róta upp í tilfinningalífí kjósenda. Svo halda menn stjórnmál styðj- ist við rök og staðreyndir! unnar, Stasi, í Austur- Þýskalandi þangað sem nokkrir leiðtogar íslenskra kommúnista sóttu menntun sína og uppfræðslu. Skjölin sem Þjóðveijar hafa nú feng- ið aðgang að sýna að eftirliti og njósnum Stasi voru engin takmörk sett og hið sama gildir um aðferðir þær sem blóðhundar sósíalismans beittu. Fastir starfsmenn ör- yggislögreglunnar voru um 100.000 og mörg hundruð þúsund manns gerðust njósnarar og svikarar. Ef menn voru tregir til, var þvingunum og hótunum óspart beitt. Margir gengu öryggislögreglunni á hönd til að bjarga eigin skinni og sviku vini sína, samstarfs- menn og ættmenni, aðrir trúðu -því einfaldlega, að and-sósíalískar skoðanir væru ógnun við öryggi ríkis- ins. Enn aðrir áttu samstarf við útsendara Stasi í þeirri trú, að unnt væri að breyta kerfinu innan frá og milda áhrif ógnarstjórnarinnar. Nú um stundir eru margir fyrrum Austur-Þjóðveijar að ÞAÐ BLASIR , við öllum sem sjá vilja að sós- íalismi með mannúð- legri ásýnd er ekki til. Hann er blekking. Það er ekkert mannúðlegt við sósíalismann; öðru nafni marxisma. Engir vita það betur en gamlir kommúnistar í Ungveijalandi, Póllandi og Austur- Þýzkalandi. Og svo auðvitað Dubceck sjálfur sem var upphafs- maður og fómardýr þessa hugtak- aruglings. Það er engin tilviljun lýðræðisöflin í Tékkóslóvakíu kalla sig Borgaralegan vettvang. Það er ekkert lýðræði til nema borgara- legt lýðræði. Slíkt frelsi er ekki ávöxtur annars stjómskipulags. Það sjáum við ekkisízt í Bretlandi og Bandaríkjunum þarsem miklir hugsuðir lögðu gnmdvölll að lýð- ræði. En margvísleg þjóðfélagsfræði eru þó af sósíalisma sprottin og vafalaust eitthvað af þeim með vísindalegu ívafi. Og heimspekin hefur öðlazt víðari vettvang en ella vegna marxismans. En um hann verður þó ekki fjallað í sömu vísind- alegu stellingum og tilaðmynda darwinisma um uppruna tegund- anna og þróun lífs á jörðinni. Um þetta má þó deila, ef menn upplifa martröð, sem í mörg- um tilfellum kann að vera enn hryllilegri en sú sem ein- kenndi allt daglegt líf þeirra áður en Berlínarmúrinn féll. Lengi hefur verið deilt um það, hver tengsl Kommún- istaflokks íslands, Samein- ingarflokks alþýðu-Sósíal- istaflokks og Alþýðubanda- lags eða einstaklinga úr for- ystusveit þessara stjórn- málasamtaka voru við Kommúnistaflokkana í Austur-Evrópu og í Sovét- ríkjunum. Nú þegar byijað er að opna skjöl Stasi í Þýzkalandi og jafnvel KGB í Moskvu skapast möguleikar á að sannreyna hver þessi tengsl voru og ekki ólíklegt, að einhveijar slíkar upplýs- ingar komi fram á næstu árum. Einhveijir kunna að spyija, hvort það skipti máli að fá þær upplýsingar upp á yfirborðið. Svarið er að auð- vitað skiptir það máli. Það skiptir máli að upplýst verði að hve miklu leyti er- lend stjórnmálaöfl höfðu af- skipti af og áhrif á íslenzk innanríkismál. Það skiptir máli, að upplýst verði, hvort starfsemi stjómmálaafla hér var á einn eða annan hátt fjármögnuð af erlendum aðil- um. Það skiptir máli að upp- lýst verði hvort afstaða ein- hverra stjómmálamanna hér mótaðist af viðleitni erlendra ríkja til þess að hafa áhrif á það, sem hér gerðist. Af þessari sögu má margt læra og hún getur verið víti til varnaðar. Þess vegna er sjálfsagt að nota þau tæki- færi, sem nú em að opnast bæði í Þýzkalandi og í Rúss- landi til þess að hið rétta komi fram. Frá sjónarhóli þeirra forystumanna komm- únista og sósíalista hér, sem jafnan hafa neitað því, að um slík tengsl hafí verið að ræða, skiptir væntanlega líka máli, að þeir verði hreinsaðir af slíkum ásökun- um - eða hvað? vilja. En hitt veit ég Marx orti mikið af Ijóðum, sumt nú glatað, en annað birt eða varðveitt með öðrum hætti. Það var skáldið sem talaði mest um ragnarök og tak- markanir mannsins. Það var skáld- ið sem sagði, Við erum apar þessa kaldrifjaða guðs. Og það var skáld- ið sem alltaf var að vitna í þessi orð Mefístótelesar í Faust Goethes, Allt sem er til á það eitt skilið að tortímast(I) Þessi orð ganga svo aftur í kommúnistaávarpinu 1848. Þau eru hápunktur Kapítalsins (Fjármagnsins) sjálfs, segir Paul Johnson. GUÐ MINN, VEITTU • mér meðalmennsku, sagði Mirabeau þegar hann var búinn að fá nóg af öllu tilstandinu kringum byltinguna og keisara- dæmi Napóleons. Stendahl notar þessa setningu sem einkunnarorð fyrir einum kaflanum undir lok Rauðra og svartra. Mér detta þessi orð í hug þegar ég finn mannaþef- inn í fjölmiðlahellinum. En úr hell- ismunnanum horfum við útí lang- þráð takmark. Og þangað horfa Rússar. Og nú er heimsveldið kom- ið heim. M. (meira næsta sunnudag.) HELGI spjall MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. JANÚAR 1992 21 Ekki er ofmælt AÐ segja, að mikil og al- . menn reiði hafi gripið um sig meðal þjóðarinn- ar fyrr í þessari viku, þegar upplýst var, að Sameinaðir verktakar hf. hefðu greitt út 900 milljónir króna til hluthafa sinna. Astæðan fyrir þessum viðbrögðum er ekki sú, að fólk sjái ofsjónum yfir því, að hluthafar í vel reknu fyrirtæki njóti arðs og annarra gæða af starfsemi þess, heldur hin hvern- ig þessir íjármunir eru til orðnir. Hinn gífurlegi hagnaður, sem hefur orðið af rekstri Sameinaðra verktaka hf., Regins hf. og íslenzkra aðalverktaka hf. byggist á einkarétti til framkvæmda á vegum varn- arliðsins á Keflavíkurflugvelli um nær fjörutíu ára skeið. Það er erfitt að færa rök fyrir því, að þessi mikli hagnaður eigi að verulegu leyti að ganga til 100-200 ’ einstaklinga, enda var ekki til þess stofnað í upphafi. I Reykjavíkurbréfi Morgunblaðsins 21. maí 1989, var frjallað um aðdraganda þess að Sameinaðir verktakar hf., Reginn hf., sem var og er dótturfyrirtæki Sambands ísl. samvinnufélaga, og íslenzkir aðalverk- takar hf. komu við sögu framkvæmda á Keflavíkurflugvelli. Þar var rifjað upp, að fyrst eftir komu varnarliðsins árið 1951, var verktakastarfsemi í þess þágu í hönd- um bandarískra verktakafyrirtækja. Sam- einaðir verktakar hófu starfsemi sína á því ári, sem undirverktakar hjá hinum bandarísku fyrirtækjum. Að fyrirtækinu stóðu byggingameistarar, pípulagninga- meistarar og samtök rafvirkjameistara í Reykjavík. Arið 1954, tókust samningar við Banda- ríkjamenn um að íslendingar tækju þessar framkvæmdir að sér og þá var stofnað fyrirtækið íslenzkir aðalverktakar, sem var að helmingi til í eigu Sameinaðra verk- taka, en Reginn hf. átti fjórðung og ís- lenzka ríkið fjórðung. Um þessá framvindu mála sagði svo í fyrrnefndu Reykjavíkur- bréfi Morgunblaðsins: „Það var að ósk íslenzkra stjómvalda, að íslenzkir aðilar hófu þátttöku í varnarl- iðsframkvæmdum eftir 1951. Vildu þau takmarka umsvif bandarískra verktaka í landinu. Þegar þessi ósk var sett fram, taldi vamarliðið að erfitt yrði að eiga við marga íslenzka verktaka, hvern í sínu lagi, og yrði því framkvæmdin auðveldari ef hægt væri að semja við fáa aðila. Fól þáverandi utanríkisráðherra, Bjarni Bene- diktsson Hans G. Andersen, sem nú er sendiherra hjá Sameinuðu þjóðunum í New York, að hafa forgöngu um að samtök þeirra aðila, sem gætu unnið að fram- kvæmdum fyrir varnarliðið yrðu stofnuð. Var í því skyni efnt til fundar formanna iðnfélaga í Reykjavík og fulltrúa bygginga- félaga þar. Lagt var til, að stofnuð yrðu samtök þeirra islenzku aðila, sem gætu tekið að sér framkvæmdir fyrir varnarliðið og þar með yrði tryggt, að aðstaðan yrði sem sterkust til að ná sem mestu af fram- kvæmdum í íslenzkar hendur. Af hálfu stjómvalda var það skilyrði sett fram, að samtökin yrðu opin, þannig að enginn aðili, sem uppfyllti hin almennu skilyrði, yrði útilokaður frá þátttöku. Féllust full- trúar byggingariðnaðarins á þetta sjón- armið og einnig var Iagt úr höfn með því sameiginlega markmiði, að hér væri ekki um venjulegt gróðafyrirtæki að ræða. Þótt eins konar einokunaraðstaða væri sköpuð með því að útiloka samkeppni og undirboð innanlands, mundi misnotkun þessarar aðstöðu einungis leiða til þess, fyrr eða síðar, að verkin yrðu falin bandarískum byggingafélögum, svo sem heimilt yrði að teljast samkvæmt varnarsamningnum. Við það ætti því að miða að verk mætti ekki fara fram úr kqstnaðarverði að viðbættri lágri þóknun. Á þessum grundvelli voru Sameinaðir verktakar stofnaðir.“ LJÓST ER AF þessari frásögn, að þeir sem í upphafi stóðu að ákvörðun- um um stofnun Sameinaðra verk- Hvenær lok- aðist fyrir- tækið? taka til þess að taka við verktakastarfsemi á Keflavíkurflugvelli, stefndu að allt ann- arri þróun mála en orðið hefur. Það er auðvitað grundvallaratriði, að stjórnvöld settu í upphafi það skilyrði, að þetta félag yrði öllum opið sem hlut áttu að máli. I því felst væntanlega, að fyrirtækið átti að vera opið iðnaðarmönnum, byggingafé- lögum og verktakafyrirtækjum. Það er rannsóknarefni út af fyrir sig, hvenær þessum forsendum var breytt og með samþykki hverra. Þegar Geir Hall- grímsson tók við embætti utanríkisráð- herra vorið 1983 hóf hann undirbúning að skýrslugerð til Alþingis um þessa starf- semi alla. Sú skýrsla, sem enn er bezta heimildin um þessi mál, var lögð fram á þingi veturinn 1984. Þar segir m.a.: „Stofnendur Sameinaðra verktaka sf. 1951, voru húsasmíðameistarar, bygg- ingafélög og verktakar í byggingariðnaði, samtals 43 einstaklingar og fyrirtæki ... Sameinaðir verktakar voru skipulagðir með þeim hætti, að sérhver iðngrein, þ.e.a.s. vatnsvirkjar, rafvirkjar, málarar og jámsmiðir störfuðu í sérstökum deild- um, er vom félög út af fyrir sig. Vom þetta opin og fijáls samtök iðnaðar- manna.“ Síðan segir í skýrslu Geirs Hallgríms- sonar til Alþingis:„Árið 1957 verður sú breyting, að Sameinaðir verktakar hætta allri verktöku. Islenzkir aðalverktakar skiptu áfram við deildir Sameinaðra verk- taka og þá sem undirverktakar, en Samein- uðum verktökum var breytt í hlutafélag með eignaraðild hinna ýmsu sérdeilda, en við bættust blikksmíðameistarar. Með þessari eignasamsetningu varð félagið síð- an 50% eignaraðili að íslenzkum aðalverk- tökum.“ í Reykjavíkurbréfi Morgunblaðsins í maí 1989, sagði m.a. um þessa framvindu mála:„Tilgangurinn með stofnun Samein- aðra verktaka var því skýr og hefði fyrir- tækið þróast í samræmi við hann hefði varla myndast sú spenna í kringum starf- semi þess, sem síðar varð. En því miður þróuðust Sameinaðir verktakar ekki á þennan veg. Gagnstætt því, sem að var stefnt í upphafi, að þetta væri opið félag iðnaðarmanna og verktaka, sem nýir aðil- ar gætu gerzt aðilar að og þar með orðið þátttakendur í verklegum framkvæmdum fyrir vamarliðið, hefur þetta félag lokast, þannig að það endurspeglar alls ekki þá starfsemi verktakafyrirtækja og iðnmeist- ara, sem fram fer í landinu í dag. Spyija má, hvort fyrirtækið hafi lokast, þegar því var breytt úr sameignarfélagi í hlutafélag eða hvort það hafi gerzt með stofnun ís- lenzkra aðalverktaka 1954.“ Full ástæða er til að það verði kannað, hvenær þau opnu og frjálsu samtök iðnað- armanna, sem til var stofnað í upphafi, lokuðust og með samþykki hverra, í ljósi þeirra skilyrða, sem sett vom af hálfu stjórnvalda þegar félagsskapurinn var settur á stofn í upphafi. Með samþykki hverra var það gert, og þar með lagður grundvöllur að þeirri ótrúlegu þróun sem síðan hefur orðið. Var það með vitund og vilja stjórnvalda á sínum tíma eða var það gert án vitneskju þeirra? Þetta er lykil- spurning í þeim umræðum sem óhjá- kvæmilega eiga eftir að fara fram um þetta mál á næstu mánuðum. Morgunblaðið hefur margsinnis minnt á þá stað- reynd, að vamarlið- ið kom ekki hingað til íslands til þess Einkaréttur á ofsa- gróða? að við íslendingar gætum hagnast á dvöl þess hér. Forsendurnar fyrir komu þess voru allt aðrar. Annars vegar að tryggja öryggi íslands á viðsjárverðum tímum, þegar Kóreustyijöldin stóð sem hæst og mikil hætta var á að hún mundi breiðast út. Hins vegar var aðstaðan fyrir það hér framlag okkar íslendinga til sameiginlegra varna hins frjálsa heims á dimmustu dög- um kalda stríðsins. Því miður hefur dvöl varnarliðsins orðið til þess að verulegur fjárhagslegur ávinn- REYKJAVÍKURBRÉF Laugardagur 25. janúar ingur hefur orðið til. Og það kom fljótt í ljós, að Bandaríkjamenn voru reiðubúnir til að greiða býsna hátt verð fyrir fram- kvæmdir á Keflavíkurflugvelli. Við og við á undanförnum áratugum hafa komið fram fyrirspumir á fundum bandarískra þing- nefnda um það hvað valdi hinum háa fram- kvæmdakostnaði á íslandi. Það hefur jafn- an verið skýrt á þann veg, að ísland væri harðbýlt land og veður vond og m.a. af þeim sökum væri kostnaður við verklegar framkvæmdir mikill. Spyija má, hvort Bandaríkjamenn hafi litið svo á, að það væri þáttur í að tryggja frið um vem vam- arliðsins hér að horfa fram hjá þeim háa framkvæmdakostnaði, sem athugasemdir vom nokkrum sinnum gerðar við. Alla vega fer ekki á milli mála, að mikill hagn- aður varð af starfsemi íslenzkra aðalverk- taka og þar með af starfsemi helztu eig- enda þess, Sameinaðra verktaka hf. og Regins hf. Þótt að öðra hafi verið stefnt í upphafi, þróuðust mál á þann veg, að þessum fyrirtækjum hafði verið afhentur, endurgjaldslaust, einkaréttur á ofsagróða, sem myndast hefur á undanförnum ára- tugum og þjóðsögur hafa skapast um. Vamarliðið kom ekki hingað til íslands til þess, að við íslendingar gætum grætt á því, en það kom heldur ekki hingað til þess, að 150-200 einstaklingar og fyrir- tæki gætu hagnast á því með þeim hætti, sem orðið hefur. Úr því slíkur hagnaður myndaðist á annað borð af vem þess hér er auðvitað augljóst, að sá hagnaður átti að renna í sameiginlegan sjóð þjóðarinnar allrar. Það hefur ekki orðið og samkvæmt fréttum Morgunblaðsins í dag, Iaugardag, em enn eftir í sjóðum Sameinaðra verk- taka 2,2 milljarðar, eftir að fyrirtækið hefur borgað út til hluthafa sinna tæpar 1600 milljónir á nokkmm ámm! Þegar saga þessa máls er skoðuð hlýtur forráðamönnum Sameinaðra verktaka hf., hluthöfum þess fyrirtækis og þeim stjóm- málamönnum sem ábyrgðina bera, að vera ljóst að þjóðin situr ekki þegjandi hjá. Hér eru alvarlegri mál á ferðinni en svo, að menn geti yppt öxlum og sagt sem svo, að við þessu sé ekkert að gera. En jafn- framt er ljóst, að mál þetta hefur ekki komið upp á yfirborðið að ráði fyrr en nú, m.a. vegna þeirra hygginda forystumanna Sameinaðra verktaka hf. á liðnum ámm og áratugum, að láta þessa fjármuni ekki sjást, borga þá ekki út til hluthafa og gefa til kynna að ætlunin væri að þeir mættu nýtast sem bezt í þágu þjóðarinnar allrar. EF NÚVERANDI ríkisstjórn telur, að hún getið setið að- stjórnvalda gerðarlaus í þessu máli er það mis- skilningur. Það sem hér hefur gerzt á síð- ustu tæpum fjörutíu ámm, hefur gerzt á ábyrgð þeirra þriggja stjórnmálaflokka, Sjálfstæðisflokks, Alþýðuflokks og Fram- sóknarflokks, sem stóðu að komu vamarl- iðsins á sínum tíma og hafa stjómað mál- efnum þess af íslands hálfu. Friðrik Sophusson, fjármálaráðherra, sagði í samtali við Morgunblaðið í vik- unni, að til greina kæmi að fjármálaráðu- neytið vísaði til dómstóla þeim úrskurði ríkisskattanefndar, sem er grandvöllur að útborgun umræddra 900 milljóna króna. Hvað sem öðra líður er ekki bara sjálfsagt heldur óhjákvæmilegt, að úrskurður dóm- stóla fáist um málið, þannig að ekki fari á milli mála hver réttarstaðan er. í annan stað mega menn ekki gleyma því, að enn standa yfir framkvæmdir á Keflavíkurflugvelli á vegum íslenzkra að- alverktaka, sem ríkið á nú meirihluta í, en Sameinaðir verktakar 32% og Reginn hf. afganginn. Hagnaður af þessum fram- kvæmdum er því enn að verða til. Hvað ætlar Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkis- ráðherra, að gera nú þegar til þess að koma í veg fyrir, að hann renni áfram skattfijáls að hluta til í vasa þeirra, sem hér eiga hlut að-máli? í þriðja lagi er ljóst, að gmndvöllur að skattfijálsri útborgun þessara peninga er Viðbrögð úrskurður um rétt til útgáfu jöfnunarhluta- bréfa. Sameinaðir verktakar hf. nýttu sér ekki þann rétt um langt árabil. Er ekki ástæða til að setja í lög ákvæði um, að slíkur réttur falli niður eftir 2-3 ár, hafi hann ekki verið notaður? í fjórða lagi má spyija í ljósi sögunnar og þeirra forsendna, sem i upphafi vora lagðar til grandvallar stofnunar Samei- naðra verktaka, hvort ekki sé tilefni til viðræðna á milli forráðamanna fyrirtækis- ins og íslenzkra stjórnvalda um samkomu- lag um meðferð þeirra fjármuna, sem enn standa eftir í fyrirtækinu. í fimmta lagi er ástæða til að vekja athygli á, að umtalsverður hluti þeirra fjár- muna, sem myndast hafa í fyrirtækinu á síðasta áratug era fjármagnstekjur, sem verða til á tímum verðtryggingar og hárra raunvaxta. Það er því ekki að ástæðu- lausu, að rætt er um nauðsyn skattlagning- ar ijármagnstekna og er þá auðvitað fyrst og fremst átt við skattlagningu slíkra tekna fyrir ofan ákveðið mark, en ekki vaxtatekna almennra sparifjáreigenda. Loks má ekki gleyma því, að hér eiga fleiri hlut að máli en Sameinaðir verktakar hf. Þær breytingar, sem urðu á verktökum á Keflavíkurflugvelli árið 1954, áttu m.a. rætur að rekja til þess, að Sambandi ísl. samvinnufélaga var í mun að verða aðili að þessari starfsemi. Auk þess, sem Reg- inn hf. var í áratugi og þar til fyrir tæpum þremur árum, fjórðungs hluthafí í íslenzk- um aðalverktökum, hefur fyrirtækið verið einn stærsti hluthafi í Sameinuðum verk- tökum. Hjá Sambandi ísl. samvinnufélaga hafa því myndast miklar eignir vegna þess- arar einokunaraðstöðu á Keflavíkurflug- velli, ekki síður en hjá Sameinuðum verk- tökum. Það eru hvorki siðferðilegar forsendur, né venjulegar viðskiptaforsendur fyrir þeim hagnaði sem hér hefur myndast. Það gæti því verið hyggilegt fyrir forsvarsmenn Sameinaðra verktaka hf. og Regins hf. að hugleiða stöðu þessa máls nú út frá öðram sjónarmiðum en hinum lagalegu eingöngu. „ Það eru hvorki siðferðilegar for- sendur né venju- legar viðskipta- forsendur fyrir þeim hagnaði, sem hér hefur myndast. Það gæti því verið hyggilegt fyrir forsvarsmenn Sameinaðra verk- taka hf. og Regins hf. að hugleiða stöðu þessa máls nú út frá öðrum sjónarmiðum en hinum lagalegu eingöngu.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.