Morgunblaðið - 26.01.1992, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 26.01.1992, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 26. JANÚAR 1992 I Guðmundur Gilsson i organisti - Minning Fæddur 22. júlí 1926 Dáinn 6. janúar 1992 Hinn 13. janúar sl. var borinn til grafar Guðmundur Gilsson organisti og kórstjóri við Kópavogskirkju og starfsmaður tónlistardeildar Ríkisút- varpsins. Að eigin ósk fór útför hans fram í kyrrþey og lýsir það að nokkru hógværð þessa mæta listamanns. Fyrir rúmum þremur árum veikt- ist Guðmundur hastarlega en þrátt fyrir stranga og endurtekna lyfja- meðferð hélt hann áfram sínum ann- asömu störfum með yfirvegun hug- ans og hlífði sér í engu, lék á hljóð- færið í kirkjuni og æfði kórinn allt til loka liðins árs. Guðmundur var sonur Guðjóns Sigurðssonar vélstjóra og konu hans, Guðnýjar Gilsdóttur, og bjó fjöl- skyldan á Freyjugötu í næsta ná- grenni við Hallgrímskirkju en þeirri kirkju vann Guðný af óvenjulegri trúmennsku og dugnaði meðan kraftar leyfðu, en þau hjón eru nú bæði látin. Guðný var sterkur per- sónuleiki og rækti trú sína vel. Hún var Dýrfírðingur að ættemi og átti bróður þar vestra sem hún unni vel og var góðum tónlistarhæfileikum gæddur. Hann lést ungur að árum skömmu áður en Guðný fæddi yngri son sinn og kaus hún því að láta hann bera nafn bróður síns og var hann skírður fullu nafni Guðmundur Gilsson. Það var því að vonum að móðirin bæri mikinn metnað fyrir son sinn er varðaði allt tónlistarupp- eldi og tónlistamám. Guðmundur lauk námi við Versl- unarskólann í Reykjavík, en lífsstarf hans helgaðist tónlistinni. Hann lauk prófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík með orgelleik sem aðal- grein undir handleiðslu dr. Páls •, Isólfssonar og fleiri meistara. Eftir það lá ieiðin til Þýskalands og nam hann við Tónlistarháskólann í Ham- borg á áranum 1952-1955, þar sem aðalkennari hans var þekktur, blind- ur orgelleikari, Martin Gúnther För- steman. Eftir heimkomuna hófst starfsfer- iil Guðmundar á Selfossi sem braut- ryðjandi við stofnun tónlistarskóla á staðnum og fyrsti skólastjóri hans, en á vegum skólans var tónlistar- kennslu komið á víða um héraðið og jafnframt var hann ráðinn organ- isti Selfosskirkju. Guðmundur réðst til Kópavogs- kirkju árið 1972 og stjórnáði hann tónlistarflutningi þar á vegum tveggja safnaða í tæpa tvo áratugi. Lengst af þeim tíma var ég undirrit- aður sóknarprestur við kirkjuna og tókst með okkur góð vinátta. Ég var ekki ókunnugur Guðmundi þegar við mættumst á starfsvettvangi, því vegna nábýlis á bernskuáranum urð- um við um tíma góðir leikfélagar. Það var því mikil eftirvænting að fá að kynnast Guðmundi að nýju sem lærðum og þroskuðum tónlistar- manni og þar varð ég ekki fyrir vonbrigðum. Samverastundirnar með honum einum vora mér ómetan- legur skóli, ekki aðeins að fá að heyra hann fylla kirkjuna fögru há- tignarfullu tónaflóði heldur einnig að hlusta á hann útskýra fyrir mér hljóðfærin og hinar margbreytilegu tegundir kirkjutónverka og raunar allar tegundir tónlistar, því Guð- mundur var einstakur fræðasjór í sögu andlegrar tónlistar og þróun kirkjuSöngs. Þá snart mig einnig djúpt að fínna og sjá hve mikla lotn- ingu Guðmundur bar fyrir helgidóm- inum og hve hann bjó yfir næmri og einlægri trú. Slíkt kom ekki síst fram í verkum hans svo ósérhlífinn sem hann var og frábitinn því að einblína á gjaldskrána þegar hann var boðaður til leiks. Við hlið slíks manns var sælt að vinna prestsverk- in og fá notið smekkvísi hans sem kallaði fram svo mikla helgi. Sárt var að sjá heilsu þessa góða drengs hnigna svo ört á góðum aldri en jafnframt var ómetanlega lær- dómsríkt að fylgjast með æðraleysi hans eftir að séð var orðið að hveiju stefndi. Við hlið Guðmundar stóð trygg og góð eiginkona hans, Halldóra R. Hansen, sem hjúkraði honum af mikilli natni á heimili þeirra allt til hinsta dags. Henni og börnum þeirra flyt ég innilegar samúðarkveðjur þegar ég þakka vini mínum ágæta samfylgd og bið honum blessunar í endurnýjunarheimi Guðs. Arni Pálsson. Fregnin um andlát Guðmundar Gilssonar kom ekki á óvart. Hann hafði barist við erfiðan sjúkdóm, drengilegri og æðralausri baráttu unz yfir lauk, en hann féll með sæmd. Við dánarfregn setur mann hljóð- an og upp hrannast minningarnar um samferðamanninn og vininn, sem nú er allur. Guðmundur Gilsson var vel menntaður og virtur tónlistarmaður. Hann nam orgelleik hjá dr. Páli ísólfssyni hér heima og hélt síðan utan til framhaldsnáms i Hamborg, þar sem hann naut handleiðslu pró- fessors Förstemanns. Þegar heim kom réðst hann fljót- lega til starfa í Árnesþingi, þar sem hann var organisti og tónlistarkenn- ari. Eftir að hann flutti til Reykjavík- ur hóf hann störf við tónlistardeild Ríkisútvarpsins og sem kirkjuorgan- isti, fyrst í Garðabæ, síðan í Kópa- vogskirkju, en því starfi gegndi hann til dauðadags. Guðmundur var lengi virkur félagi í Félagi íslenskra organleikara og sat um hríð í stjórn félagsins. Hann var ötull talsmaður fyrir bættri menntun organistastéttarinnar og vildi jafnan veg hennar sem mestan. Ég kynntist Guðmundi á námsár- unum og hafði verið kunnugur hon- um lengi er ég haustið 1985 gerðist aðstoðarmaður hans um tveggja ára skeið í Kópavogskirkju. Þau ár era ljúf í endurminningunni og fannst mér ég margt af okkar samstarfi læra. Þá staðfestist það sem ég löng- um hafði gert mér í hugarlund, að Guðmundur hafði mikinn dreng- skaparmann að geyma. Haustið sem sjúkdómurinn greindist hjá honum, fórum við þrír orgelleikarar saman akandi upp á Akranes til þess að skoða nýtt orgel Akraneskirkju. Guðmundur lék á als oddi á leiðinni og lék eins og engill á nýja orgelið. Á heimleiðinni urðu miklar umræður um þetta nýja hljóð- færi, kosti þess og galla. Þar talaði Guðmundur af mikilli þekkingu. Hann hafði þann góða hæfileika að setja mál sitt fram á eftirtektarverð- an hátt og vissulega voram við hinir margs vísari er ferðinni lauk. Útför Guðmundar var gerð í kyrr- þey að ósk hans. Guðmundur var ekki þeirrar gerðar að vilja hafa til- stand í kringum sjálfan sig og því kom sú ákvörðun kunnugum síst á óvart. Fyrir hönd Félags íslenskra org- anleikara sendi ég eftirlifandi ástvin- um hans dýpstu samúðarkveðjur og mun jafnan minnast hans er ég heyri góðs manns getið. Kjartan Sigurjónsson. Kveðja frá kór Kópavogskirkju Að morgni síðasta dags jóla kvaddi Guðmundur Gilsson organ- isti þennan heim. Ekki kom andlát hans okkur sem með honum störf- uðu á óvart, því svo lengi vorum við búin að fylgjast með hetjulegri baráttu hans við erfiðan sjúkdóm. í tæp 20 ár hafði hann verið organ- isti og söngstjóri við Kópavogs- kirkju. Það er því orðinn allstór hópur fólks, sem með honum hefur starfað í kórnum öll þessi ár. Menn hafa komið og farið, því ýmsum reynist erfið til Iengdar sú binding, sem óhjákvæmilega fylgir þessu starfí. Þó eru nokkrir, sem með honum hafa unnið allan þennan tíma. Ekki er víst að allir geri sé grein fyrir hvílík vinna er að baki því að vera organisti í kirkju sem þjónar tveimur prestaköllum. Að spiia tvær messur hvern sunnudag mesta hluta ársins og stórhátíðir og aðrar athafnir að auki. Þar við bætjgt stöðugar æfingar til að við- halda eigin leikhæfni, söngstjórn og þjálfun kórs, sem Guðmundur innti af hendi af mikilli alúð og samvisku- semi. Hann var líka mjög vel mennt- aður organisti og vissi vel hvaða tónlist var við hæfi að flytja í kirkj- unni hveiju sinni. En Guðmundur var ekki aðeins söngstjóri okkar og þjálfari, heldur einnig vinur og félagi. Þær era orðnar margar at- hafnimar í Kópavogskirkju, sem Guðmundur Gilsson hefur farið smekkvísum höndum um nótnaborð orgelsins og hátíðlegt var að koma að kirkjunni á helgum dögum þegar hann var sestur við hljóðfærið og ljúf tónlistin fyllti kirkjuna. Miklu hafði hann að miðla okkur og fús- lega var sú fræðsla látin í té. Hans verður sárt saknað af kórfélögum. Við vitum einnig að honum þótti vænt um starf sitt sem kirkjuorgan- isti og bar mikla virðingu fyrir því. Trúr var hann því starfi til hinstu stundar. í hugann koma því löngu töluð orð: „Gott, þú góði og trúi þjónn, yfir litlu varstu trúr, yfir mikið mun ég setja þig. Gakk inn í fögnuð herra þíns.“ Blessuð sé minning Guðmundar Gilssonar. Öllum aðstandendum vottum við dýpstu samúð. Kór Kópavogskirkju. ATVINNUHÚSNÆÐI Skrifstofuhúsnæði til leigu Langholtsvegur 115 Til leigu er 120 fm sér skrifstofuhæð. Upplýsingar í síma 33500 milli kl. 13.00 og 15.00 virka daga. Bæjarleiðir hf. Til leigu í Hamraborg Til leigu er jarðhæð hússins Hamraborg 1-3, Kópavogi. Húsnæðið er samtals um 460 fm og leigist í heilu lagi eða sem smærri einingar. Nánari upplýsingar veita Stefán Helgason, vs. 41430 - hs. 40191 og Margrét Pálsdótt- ir, hs. 610666 - vs. 680888. Verslunarhúsnæði Óskum eftir að taka á leigu 150-180 fm verslunarhúsnæði (jarðhæð), helst með inn- keyrsludyrum. Æskileg staðsetning í austur- hluta borgarinnar. Svar óskast sent auglýsingadeild Mbl. merkt: „A -7463“. R »7 KENNSLA Vélritunarkennsla Vélritunarskólinn, sími 28040. Postulínsmálun Ný námskeið eru að hefjast. Kenni nýjar og gamlar aðferðir. Upplýsingar í síma 46436. Jónína Magnúsdóttir (Ninný). FÉLAGSLÍF I.O.O.F. 3 = 1731277 = NK M.T.W. Þb. □ MÍMIR 599201277 - 1 FRL. □ GIMLI 599227017 = 1. HELGAFELL 59921277IVA/ 2FRL Skipholti 50b, 2. hæð. Samkoma í dag kl. 11.00. Sunnudagaskóli á sama tíma. Allir innilega velkomnir. H ÚTIVIST Hallveigarstfg 1, sími 14606 Dagsferðir sunnud. 26. jan. Kl. 10.30: Kirkjugangan 2. áfangi, Lágafellskirkja. Kl. 13.00: Kirkjugangan, styttri ferð. Um næstu helgi: Dagsferð sunnud. 2. febrúar: Kl. 13.00 Kálfatjörn - Hólmabúöir. Útivist Hjálpræðis- herinn Kirkjustræfi 2 HjátpræiMsherinn Sunnudagaekóli kL 14. Samltoma M. 20. Imma og Óskar 9tjórna. Mánudagur kl. 16: HeimHasambandiö. Miðvikudagur kl. 20.30: Hjálparflokkur að Víkurbakka 12. Fimmtudagur kl. 20.30: Kvöldvaka. Föstudagur kl. 20: Unglingaklúbbur. fíwnhjálp Almenn samkoma í Þríbúöum í dag kl. 16.00. Mikill almennur söngur. Samhjálparkórinn tekur lagiö. Vitnisburðir. Barnagæsla. Ræðumenn verða Þórir Har- aldsson og Brynjólfur Ólason. Kaffi að lokinnj samkomu. Allir velkomnir. Samhjálp. Auðbrekka 2 . Kópavogur Sunnudagur: Samkoma í dag kl. 16.30. Þriðjudagur: Biblíulestur kl. 20.30. Laugardagur: Unglingasamkoma kl. 20.30. fSLENSKI ALPAKLÚBBURINN Nýfræðslumynd um ofkælingu verður sýnd á Hótel Loftleiðum 29/1 kl. 20.30. Jóhann Axelsson, prófessor í lífeðlisfræði, ræðir við gesti eftir sýningu. Allir vel- komnir meðan húsrými leyfir. Aðgangseyrir. FERÐAFELAG ÍSIANDS ÖLDUGÖTU 3 S. 11798 19533 Vætta- og þorrablóts- ferð Ferðafélagsins helgina 1.-2. febrúar Einstakt tækifæri til að kynnast vættaslóðum í Mýrdal og undir Eyjafjöllum með Arna Björns- Syni og Þórði Tðmassynt í Skógum. Þorrablót Ferðafélags- ins i leugardagskvöldinu. Slík fer6 var farin í fyrsta sinn (fyrra og þótti takast frábsertega vel. Farið á nýjar slóðir. Góð gisting í félagsheimilinu í Skógum. Brottför laugardag kl. 8. Pantið strax. Farmiðar og upplýsingar á skrifstofunni Öldugötu 3, símar: 19533 og 11798. Ferðafélag islands, félag fyrir allal KFUK KFUM Almenn samkoma I kvöld kl. 20.30 í kristniboðssalnum, Háa- leitisbraut 58. Kveðjusamkoma fyrir Ijristniboðana Kari og Jó- hannes Ólafsson sem eru á förum til Eþíópíu. Allir velkomnir. SAMBAND ISLENZKRA KRISTNIBOÐSFÉLAGA Hvítasunnukirkjan Ftiadelfía Brauðsbrotning kl. 11. Ræðumaöur Einar J. Gíslason. Sunnudagaskóli kl. 11. Almenn samkoma kl. 16.30. Ræðumaður Hafltði Kristinsson. Barnagæsla. Allir hjartanlega velkomnir. VEÚUMIM* ' Kristið samiélag SmiAjuvegi 5, Kóp. Kl. 11.00: Safnaöarsamvera, barnakirkja. Kl. 20.30: Kvöld- samkoma, lofgjörð, predikun orðsins, fyrirbænir. Kaffiveiting- ar. „Ég fyrirgef þeim allar mis- gjörðir þeirra". Verið velkomin. Hörgshlíð 12 Boðun fagnaðarerindisins. Almenn samkoma I kvöld kl. 20.00. FERÐAFELAG # ÍSLANDS ÖLDUGÖTU 3 S: 11798 19533 Allir í ferð með Ferðafélaginu! Sunnudagsferð 26. jan. kl. 11. Kjalarnesgangan 2. áfangi: Úlfarsfell - Reykjaborg - Suð- urreykir. Auðveld og skemmti- leg ganga í Mosfellssveitinni. Annar áfangi af sex í vetrarrað- göngu frá Reykjavík upp á Kjalar- ne9. i fyrsta áfanga voru þátttak- endur 51. Byrjið með nú. Það er hægt að steppa því áð ganga á fellin, ef vilt. Verð 1300,- kr., frftt f. börn m. futtorðnum. Brott- för frá Umferðarmiðstööinni, austanmagin. (Stansað við Mörkina 6, nýbyggingu Ferðafé- lagsins). Heimkoma um kl. 15. Ný og fjölbreytt ferðaáætlun (1992) er komin út. Munið vætta- og þorrablótsferðlna að Skógum um næstu helgi. Gerist félagar. Ferðafélag Islands.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.