Morgunblaðið - 23.02.1992, Blaðsíða 16
16 B
MORGUNBLAÐIÐ FASTEIGNIR SUNNUDAGUR 23. FEBRÚAR 1992
Það er hægl að stjórna
kostnaði íið ábúðar-
byggingar aldraðra
— scgir Steindór Guómundsson rerlcfræóingur
Steindór Guðmundsson á verkfræðistofu sinni að Skipholti 50.
kj AUSTURSTRÖND 3,170 SELTJARNARNES
Opið ídag kl. 13-15
2ja herb.
Austurströnd: Mjög fal-
leg 64 fm íb. á 2. hæð í lyftuhúsi. Stór-
ar svalir. Gott útsýni. Upphitað bílskýli.
Áhv. byggsjóður 3,3 millj. Verð 5,9 millj.
Tjarnarból: Falleg og rúmg.
62ja fm íb. á 3. hæð. Suðursv. Bílskrétt-
ur. Laus strax.
Miklabraut: Góð 59 fm íb.
á 3. hæð ásamt tveimur herb. í risi.
Verð 5,4 millj.
Kaplaskjólsvegur:
Ágæt 2ja herb. íb. á 3. hæð. Suðursv.
Gott útsýni. Snyrtil. sameign og hús í
góðu ástandi. Ekkert áhv. Verð 5,4 millj.
Engihjalli: Góð 65 fm íb. á
1. hæð. Suðursv. Verð 5,2 millj.
3ja herb.
Hæðargarður: Snotur
3ja-4ra herb. íb. á 2. hæð sem er 2
herb. og saml. stofur. Sérinng. Verð
6,3 millj.
Framnesvegur: Gott
steinhús, kj., og hæð 90 fm alls. Mikið
endurn. Sér bílast. Áhv. 2,4 millj. bygg-
ingarsj. Verð 6,5 millj.
Laugarnes: Góð 3ja herb.
77 fm íb. á 1. hæð. Skiptist m.a. í gott
hol, 2 herb. og stofu. Stórt eldhús.
Suðursv. Verð 6,3 millj.
Fálkagata: Falleg 82 fm 3ja-
4ra herb. íb. á 3. hæð. Mögul. á 3
svefnh. Stór stofa. Nýtt parket. Suðursv.
Miðbraut: Falleg 84 fm íb.
á 2. hæð í nýl. húsi. Suðursv. Góður
bílsk. Verð 8,5 millj.
4ra—6 herb.
Breiðvangur - Hf.:
Glæsil. 110 fm íb. á efstu hæð. Ný eld-
húsinnr. 4 svefnherb. Þvhús í íb. Suð-
ursv.
í Þingholtunum:
Vönduð og mikið endurn. 130 fm íb. á
2. og 3. hæð í góöu steinh. Sérinng.
Suðursv.
Tjarnarból: Sérl. glæsil.
115 fm íb. á 1. hæð. Skiptist m.a. í 3
góð svefnherb., sjónvhol, stofu og
borðst. Parket á allri [b. Ný eldhínnr.
Eign í toppstandi. Áhv. byggsj. 2,2 míllj.
Austurströnd: Falleg
102 fm endaíb. á 3. hæð. 3 svefnherb.
og stór stofa. Stórar svalir. Gott út-
sýni. Upphitað bílskýli. Skipti mögul. á
stærri eign. Áhv. byggsj. 1,9 millj. Verð
8,5 millj.
Tjarnarból: Mjög falleg 134
fm íb. á efstu hæð. Skiptist m.a. í 4
rúmg. svefnherb., borðst. og stofu.
Parket á allri íb. Suðursv. Fráb. útsýni.
Húsið nýtekið í gegn og góð sameign.
Verð 9,0 míllj.
Eiðistorg: Stórglæsil. ca 90
fm íb. á 1. hæð. Skiptist m.a. í stofu og
2 svefnherb. Glæsil. innr. Sérgarður.
Svalir m. útsýni yfir sjóinn. íb. fylgir góð
ca 36 fm einstklíb. í kj. ásamt upphit-
uðu bílskýli. Laus strax. Verð 10,9 millj.
Stærri eignir
Fossvogur: Vorum að fá í
einkasölu gott 202 fm endaraðh. (á
pöllum) innst í botnlanga fyrir neöan
götu. Sauna í kj. og bílsk.
Sævargarðar: Fallegt
206 fm raöhús á tveimur hæöum meö
innb. bílsk. Stór sólstofa og gott út-
sýni. Bein sala eða mögul. skipti á 3ja
herb. m. bílsk. Áhv. húsbréf 6,6 millj.
Verð 14,5 millj.
Selbraut: Giæsii. iso fm
raðh. á tveimur hæðum auk 43 fm-tvöf.
bílsk. 4 svefnherb. Stórar stofur með
stórum suðursv. Vandaðar innr. Heitur
pottur í garöi.
Grundargerði: Fallegt
einbhús á einni hæð ásamt rishæð.
Skiptist m.a. í stofur og 4 svefnherb.
Stækkunarmögul. Góður 45 fm bílsk.
Fráb. staðsetn.
Seltjnes - skipti:
Gott 140 fm einbhús ásamt bílsk. í
skiptum f. minni eign. Hagst. verð.
Fomastfönd: 226 fm
einbhús á einni hæö m tvöf. bílsk. Skipt-
ist m.a. í 4 svefnherb., sjónvarpsherb.,
stofur og sólstofu. Allar innr. og gólf-
efni eru sérl. vönduö. Stór verönd m.
nuddpotti og fl.
RUNÓLFUR GUNNLAUGSSON, rekstrarhagfr.
KRISTJÁN V. KRISTJÁNSSON, viðskiptafr.
EINN helzti vaxtabroddurinn í
nýbyggingnm hér á landi nú eru
íbúðir aldraðra. Þær hafa þotið
upp hundruðum saman á undan-
förnum árum. Astæðurnar eru
margar. Þörf var á nýju hús-
næði, sem smíðað var sérstak-
lega með þarfir aldraðra fyrir
augum. Margt fólk á líka erfitt
með, þegar aldurinn færist yfir
það, að þrífa og halda við íbúðum
sínum, að ekki sé talað um stór
einbýlishús. Þar við bætist ein-
semdin, ekki hvað sizt ef makinn
er fallinn frá og börnin farin að
heiman fyrir löngu. Skoðanir eru
hins vegar skiptar um verð og
gæði þess húsnæðis, sem byggt
hefur verið fyrir aldraða, enda
er það vissulega mismunandi.
ví er jafnvel haldið fram, að
óprúttnir byggingaraðilar hafi
haft gamla fólkið að féþúfu, vegna
þess að margt af þessu fólki sé
orðið þreytt á veraldarvafstri og
hafi því ekki sama
verðskyn og þeir,
sem yngri eru.
Aðrir halda hinu
gagnstæða fram
og segja, að í for-
ystu fyrir bygg-
ingarsamtök aldr-
aðra hafi yfirleitt
valizt mjög reyndir
og aðgætnir menn, sem gætt hafi
þess, að peningarnir nýttust eins
vei og frekast voru tök á, enda
hafi árangurinn orðið eftir því.
í þeim ijölbýlishúsum, sem
Reykjavíkurborg hefur byggt og
selt síðan íbúðirnar í til aldraðra,
er borgin áfram eigandi þjónustu-
rýmisins og verð þess var því ekki
tekið inn í verð íbúðanna í upphafi.
Annars staðar er þjónusturýmið í
sameign íbúðareigendanna eins og
öll önnur sameign hússins og þá
verið tekið inn í íbúðarverðið. Mjög
mikill munur er á stærð þjónustu-
rýmisins og búnaði þess, allt eftir
því hvaða aðstaða er þar. Sumsstað-
ar eru mötuneyti, aðstaða fyrir heil-
sugæzlu, böð, verzlanir, líkamsrækt
og fleira. Ef allt þetta er hluti af
sameigninni, hefur það að sjálf-
sögðu áhrif á íbúðarverðið, sem
verður þeim mun hærra, eftir því
sem þjónusturýmið er stærra og
búnaður þar vandaðri.
Aldraðir ekki hlunnfarnir
— Ég er ekki þeirrar skoðunar,
að byggingaraðilar hafi haft gamla
fólkið að féþúfu við íbúðarkaup og
þekki þess ekki dæmi, að aldraðir
hafi verið hlunnfarnir af þem sök-
um, sagði Steindór Guðmundsson
verkfræðingur í viðtali við Morgun-
blaðið, en hann er einn af höfundum
skýrslu um verðlagningu á húsnæði
fyrir aldraða, sem samin var fyrir
nokkrum árum að tilhlutan
Reykjavíkurborgar. Síðan hefur
Steindór unnið m. a. unnið að ýms-
um byggingum aldraðra, þeirra á
meðal hina nýja fjölbýlishúsi, sem
byggt var að frumkvæði sjálfseign-
arstofnunarinnar Réttarholts í Bú-
staðahverfi í Reykjavík. —
Kostnaður við smíði húsnæðis fyrir
aldraða fer eins og ávallt eftir því,
hve vandað húsnæðið á að vera,
heldur Steindór áfram. — Þar skipta
máli þættir eins og innréttingar og
gólfefni og hve sameignin er stór.
Miklar kröfur um frágang eru
gjarnan vanmetnar, þegar rætt er
um verð. Oft á í hlut fólk, sem
hefur verið vel stætt og það vill
hafa rúmt í kringum sig, vandaðar
innréttingar og breiða ganga í sam-
eign o. s. frv., þegar það flytzt á
nýjan stað.
Steindór er fæddur 1947 og alinn
upp í Vesturbænum í Reykjavík.
Hann varð tæknifræðingur frá
Tækniskóla íslands 1971, en hélt
síðan til Edinborgar í Skotlandi, þar
sem hann lagði stund á verkfræði
og lauk þaðan prófi í þeirri grein
1974. Hann hefur víðtæka reynslu
á sviði mannvirkjagerðar og hefur
unnið bæði hjá stórum verktakafyr-
irtækjum hér heima og erlendis og
er annar aðaleigandinn að Verk-
fræðistofu Stanleys Pálssonar h.f.,
en sú verkfræðistofa sérhæfir sig
eingöngu í áætlanagerð, verksamn-
ingum og byggingareftirliti.
— Verðmæti hluta, hvort sem
um er að ræða fasteign eða aðra
vöru, er ekki neitt annað en það
verð, sem fólk er reiðubúið til að
greiða fyrir hana, — segir Steindór.
— Þegar þrengist um og minna er
af peningum í umferð, verður erfið-
ara að selja eignir, sem þýðir þá
verðlækkun og þá verður lika að
byggja eða kaupa ódýrara, ef jafn-
vægi á að vera í hlutunum áfram.
Því verður að skoða nákvæmlega,
hvað hver fermetri á að kosta og
hvað þessir fermetrar eiga að vera
margir, ef áætlanagerðin á að vera
í samræmi við greiðslugetu viðkom-
andi. Oft er hægt að gera hlutina
ódýrari en margan grunar og verð-
ur að leggja áherzlu á að eytt sé
einhveijum fjármunum og orku í
undirbúning í stað þess að reyna
að bjarga hlutnum, þegar það er
orðið of seint.
Fermetrakostnaðurinn oft,
miskilinn
Steindór telur, að oft sé fyrir
hendi hjá fólki mikill misskilningur
varðandi byggingarkostnað, sem
gjarnan eigi svo rót sína að rekja
til ranghugmynda á fermetrafjölda
íbúða í fjölbýlishúsum og segir: —
Sá fermetrafjöidi, sem skráður er
í fasteignaskrá, eru svokallaðir sér-
eignarfermetrar, en þeir miðast við
útvegg og þaðan inn í miðjan vegg
á næstu íbúð eða sameign. Síðan
bætist sameignin við og hún skipt-
ist eftir fjölda íbúðanna en ekki í
hlutfalli við stærð þeirra. Minnstu
íbúðirnar eiga því jafnmikið í sam-
eigninni og þær stærstu. Sameignin
er oft á bilinu 20-50% af hverri
íbúð og hlutfallið verður þeim mun
hærra, eftir því sem íbúðirnar eru
minni. Þess vegna kosta minni íbúð-
irnar ávallt hlutfallslega meira en
þær stærri.
Steindór tekur síðan dæmi um
íbúð í nýlegu húsnæði fyrir aldraða,
sem er 51 fermetri samkv. fast-
eignaskrá, en hlutdeild hennar í
sameigninni er 23,5 fermetrar.
íbúðin er þá raunverulega um 75
fermetrar. íbúðin kostar 5,1 millj.
kr. og meðalfermetraverð í öllu
húsinu er 68.000 kr. Þegar ferme-
trafjölda samkvæmt fasteignaskrá
er deilt upp í söluverðið, verður
útkoman önnur. Miðað við 5,1 millj.
kr. íbúðarverð en 51 metra flatar-
mál er verðið um 100.000 kr. á
hvern fermetra.
Stærsta íbúðin i sama fjölbýlis-
húsi er 104 fermetrar samkvæmt
fasteignaskrá en með sameign 128
fermetrar. Verð á hvern fermetra
þar samkvæmt fasteignaskrá er
mun lægra en í fyrra dæminu eða
um 84.000 kr. þar sem hlutfall sam-
eignar af íbúðinni allri er mun
minna. Samt eru þetta íbúðir, sem
eru með mjög óverulegu þjónustu-
rými.
Þessi útreikningur er samkvæmt
sérstökum íslenzkum staðli, ÍST 50,
sem er í samræmi við það sem
tíðkast um fjölbýlishús annars stað-
ar í heiminum. — Hér er ekki verið
að láta einn borga meira en annan,
segir Steindór. — Allir þurfa úti-
hurð, stiga og stigagang til þess
að komast að íbúðinni sinni, hvort
sem hún er lítil eða stór. Stiginn
þjónar öllum með sama hætti. Ef
enginn stigi væri, kæmist enginn
inn í íbúðina sína.
ÞVERAS - EINBYLI
Fullgert m. bílskúr. Samt. ca 150 fm. Góð lán.
Sala eða skipti á 3ja-4ra herb. íbúð.
Upplýsingar í símum 20318 og 671924.
Húsbyggjendur - verktakar
Að gefnu tilefni er bent á ákvæði reglugerðar
nr. 269/1978 um brunavarnir og brunamál
þar sem segir í gr. 7.4.1:
„Loftræstistokkar skulu vera úr
óbrennanlegu efni og einangrun þeirra skal
vera óbrennanleg.“
Samkvæmt þessu er með öllu
óheimilt að nota plast við loftræstilagnir.
Einnig skal tekið fram að umræddar
lagnir eru úttektaskyldar af viðkomandi
byggingayfirvöldum.
Byggingarfulltrúar Bessastaöahrepps, Garðabæjar,
Hafnaríjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar,
Reykjavíkur og Seltjarnarnesbæjar.
Brunamálastofnun ríkisins
Slökkviliðsstjórar Hafnarfjarðar og Reykjavíkur
Félag blikksmiðjueigenda