Morgunblaðið - 23.02.1992, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ
FASTEIGNÍR
SUNNUDAGUR 23. FEBRUAR 1992
B 17
Nýtt fjölbýlishús fyrir aldraða í Bústaðahverfi, sem byggt var á vegum sjálfseignarstofnunarinnar
Réttarholt.
Að vísu gilda ákveðnar reglur
um rishæðir, eignarhluta í bíla-
geymslum og um kjallara, sem eru
niðurgrafnir, þannig að hlutdeild
þeirra er með öðrum hætti. Þessi
frávik skipta þó engu máli fyrir
allar íbúðir í hefðbundnum fjölbýlis-
húsum.
Ef einhver íbúðareigandinn vildi
hins vegar fá gosbrunn í anddyrið,
svo að tekið sé svolítið ýkt dæmi
og eigendur hinna íbúðanna sam-
þykktu það, þá yrði hann að borga
fyrir brunninn sjálfur, af því að
brunnurinn væri þá hans einkaeign,
þó að brunnurinn stæði í sameign-
inni. Hann einn vildi fá brunninn
og hinir eigendurnir leyfðu það ein-
ungis, að honum yrði komið upp.
Meta þarf eignastöðu og
greiðslugetu
Að sögn Steindórs kom það oft
fyrir áður, að eldri borgarar færu
út í að byggja án þess að hafa í
rauninni fengið nokkurt mat á því,
hver raunveruleg eignastaða þeirra
var og þá um leið greiðslugeta.
Þetta skapaði vandamál í nokkrum
tilvikum, þar sem fólk komst að
því, að það hafði ofmetið eignir
sínar og lenti því í fjárhagserfiðleik-
um út af nýju íbúðinni. — Oft er
gamla eignin orðin lúin og þarfnast
endumýjunar, segir Steindór. — í
staðinn er aftur á móti verið að
flytja inn í glænýtt húsnæði, sem
ætti að vera tiltölulega viðhaldslítið
miðað við eign, sem kannski er orð-
in 30-40 ára gömul.
En þetta hefur breytzt mikið til
batnaðar að mati Steindórs. — Við
hér áttum mikinn þátt í að útbúa
fyrir sjálfseignarstofnunina Réttar-
holt fjármögnunaráætlun í samráði
við Landsbanka íslands, sem marg-
ir aðrir hafa nýtt sér síðan, bæði
bankar og byggingaraðilar, segir
hann. — Þetta var gert með þeim
hætti, að metin var greiðslugeta
hvers og eins, sem vildi eignast íbúð
í fyrirhugaðri byggingu. Aðal
ávinningurinn fólst í því, að fólk
þurfti ekki að selja ofan af sér strax
né hafa neinar áhyggur yfírleitt út
af fjármögnuninni, en gat beðið
með að selja sínar eignir í um ár,
á meðan verið var að byggja og
síðan flutt inn.
Landsbankinn byijaði að fjár-
magna byggingaframkvæmdirnar
strax og fólkið var komið með raun-
hæft mat ,á eignastöðu sinni. Þetta
þýddi jafnframt, að það fóru engir
út í þessar byggingaframkvæmdir
nema þeir, sem réðu við þær. —
Þetta er nauðsynlegt, því að þegar
fólk er farið að eldast, vill það sízt
af öllu þurfa að hafa áhyggjur af
peningamálum, segir Steindór. —
Með þessu geta verktakarnir líka
haldið áfram framkvæmdum við-
stöðulaust og skilað byggingunum
tilbúnum þannig, að unnt sé að
flytja inn í þær fullbúnar.
Þá er það mjög mikilvægt að
ákveða fyrirfram, hvað hver íbúð á
að kosta. Síðan er ýmist hægt að
miða hönnun við þetta verð eða
efna til alútboðs á húsinu. — Ef
gera á einhveijar breytingar varð-
andi sameign, þakhýsi, mötuneyti
eða hafa hárgreiðslustofu, líkams-
rækt eða annað, þarf að reikna það
út fyrirfram, hvaða áhrif það hefur
á íbúðarverðið, svo að unnt sé að
taka afstöðu til þess fyrirfram en
ekki eftir á, þegar það er orðið of
seint og of dýrt. Það á ekki að
hanna fyrst og hugsa síðan um
peningana, segir Steindór. — Það
er útlokað að vita fyrirfram, hvað
eitt mannvirki kostar, ef ekki er
gerður samningur á föstu verði við
þann, sem byggir.
Samt er það ljóst, að íbúðir fyrir
aldraða eru misjafnlega dýrar. En
Steindór segir margar ástæður fyr-
ir verðmuninum. Stærð sameignar-
innar ráði þar miklu, eins og rakið
var hér áðan. Þá skipti lóðarverðið
einnig máli. Það sé engin launung,
að borgað er hærra verð fyrir suma
staði en aðra. — Ef fólk er reiðu-
búið til þess að borga uppsett verð
þrátt fyrir það, fæ ég ekki séð, að
verðið sé of hátt, segir Steindór. —
Fólk getur vissulega keypt á ein-
hveijum öðrum stað á lægra verði,
en er það þá á stað, sem það vill
vera á?
Aðrir þættir hafa einnig áhrif á
íbúðarverðið eins og gólfefni, inn-
réttingar, tæki og búnaður í eld-
húsi og baðherbergi og frágangur
á byggingunni að utan, á þaki, lóð
og bflastæðum. — Fólk þarf að
kynna sér alla þessa hluti fyrirfram
og ganga úr skugga um, hvað fæst
fyrir peningana og hvað það sættir
sig við. Þá fæst miklu betri tilfinn-
ing fyrir því, hvort verið sé að kaupa
dýrt eða ódýrt. Það er ekki nóg að
hafa teikningar, sem líta vel út. Því
miður hefur verið vanrækt að
standa að hlutunum með þessum
hætti, en það á ekki bara við um
íbúðir fyrir aldraða heldur einnig
um allar aðrar íbúðir og mann-
virkjagerð. Nýlegar íbúðir, sem við
hér höfum séð um, kostuðu í verð-
lagi í janúar sl. 68.805 kr. hver
fermetri og er þá miðað við alla
fermetra.
Byggt verði nálægt
þjónustumiðstöðvum
Steindór telur mjög mikilvægt,
að íbúðir fyrir aldraða verði byggð-
ar nálægt þjónustumiðstöðum,
læknastofum og elliheimilum. — Þá
þarf sameignin ekki að vera nándar
nærri eins mikil og samnýtingin á
þessum stofnunum leiðir líka til
spamaðar, segir hann.— Slíkt er
mjög rökrétt og ekki nema eðlilegt,
að skipulagsyfirvöld og sveitar-
stjórnir hafi forgang um slíkt fyrir-
komulag.
Steindór var spurður að því,
hvaða háttur væri hafður á mann-
virkjagerð erlendis, þar sem hann
þekkti til. — Þegar ég starfaði í
Dánmörku, var óheimilt að hefja
framkvæmdir við opinberar bygg-
ingar þar fyrr en hönnun var að
öllu Iokið og fjármögnun tryggð að
fullu fyrir fullbúið verk. Sömuleiðis
voru breytingar á verktíma óheimil-
ar, nema æmar ástæður væru fyrir
hendi. Fyrir bragðið höfðu hönnuðir
og bygginganefndir hæfilegan tíma
til þess að vinna verkið og öll hönn-
unarvinna var til fyrirmyndar. Það
lá fyrir, hvar allir hlutir ættu að
vera og það var lítið sem ekkert
um aukareikninga. Löggjafinn
hafði því tryggt, að staðið yrði að
framkvæmdum á faglegan hátt.
Vissulega eru til byggingar hér, þar
sem þannig er staðið að verki. Samt
gerist það stundum, að hönnun á
sér stað samfara byggingafram-
kvæmdum og augljóst má vera, að
slíkt gerir alla áætlanagerð mjög
erfiða.
Sú spurning vaknar, hvort svo
mikill skortur hafí ekki verið orðinn
á húsnæði fyrir aldraða, að nánast
var um neyðarástand að ræða? Því
hafi margir neyðzt til þess að taka
við þessu húsnæði, hvað sem það
kostaði.
— Eg hef ekki orðið var við
slíkt, segir Steindór. —Aldur þess
fólks, sem flytzt í húsnæði af þessu
tagi, hefur verið að lækka og er
nú jafnvel orðinn undir sextugu.
Mjög margt af þessu fólki er í fullu
fjöri, er t. d. enn í fullri vinnu. En
það vill skipta og gjarnan fara í
minna húsnæði. Eg þekki því ekki
til neins neyðarástands í þessu.tiliti
og ekki að níðzt hafi verið á eldri
borgurum í þessu efni. Þó að það
sé hagur byggingaraðilanna að
spara, þá heyrir það til undantekn-
inga, að þeir gangi svo langt að
láta hagnaðarvonina bitna á verk-
inu. Þegar verið er að spara, er það
kannski ekki bara gert í hagnaðar-
skyni. Það getur líka verið gert til
þess að tapa minna.
Smitaðir af verðbólgunni
— Mikil óþolinmæði er aftur á
móti þjóðareinkenni hér, sem stafar
af því, að við íslendingar höfum
verið sýktir af áhrifum þeirrar
miklu verðbólgu, sem var hér um
langt skeið, segir Steindór Guð-
mundsson. — Hún hefur náð að
spilla verðmætaskyni og ráðdeild.
Allir reyndu að eyða peningunum
á eins lágu verðlagi og hægt var,
af því að allt átti eftir að verða
miklu dýrara síðar, jafnvel í næsta
mánuði. Það hefur komið fyrir, að
byggingaraðilar hafi hringt í mig
sama dag og þeir fengu úthlutað
lóð og óskað efír því, að strax yrði
hafizt handa við að grafa, án þess
að það væri svo mikið sem byrjað
að teikna húsið. Ég hef líka tekið
eftir því hjá yngri kynslóðinni, að
hún heldur að svona eigi þetta að
vera. Hún þekkir ekki af eigin raun
það ástand, þar sem peningar rýrna
ekki. Þar sem peningamir halda
verðgildi sínu, þarf ekki að flýta
sér jafn mikið við fjárfestingar, því
að dæmið hefur nú snúizt við. í
stað verðbólgu og hagnaðar áður
koma vaxtagjöld.
Þetta þjóðfélag verður aldrei heil-
brigt nema að það verði stað-
greiðsluþjóðfélag, þar sem viðskipti
eiga sér stað með reiðufé. Við verð-
um að hætta því að fresta vandan-
um eilíft, hvort sem það er gert
með kreditkortum eða skammtíma-
lánum og staðgreiða í staðinn.
Markmiðið ætti að vera þjóðfélag,
sem hefur stolt og efni á því að
staðgreiða.
Símatími í dag 13-15
Einbýlis- og raðhús
Leirutangi Mos.
Glæsil. 115 fm efri hæð í parh. Parket.
Vandaðar innr. Glæsil. garður. Áhv.
l. 200 þús. veðdeild. Verð 9,2 millj.
Sæviðarsund
Fallegt 176 fm einbhús á einni hæð
ásamt 32ja fm bílsk. og 40 fm garð-
stofu. Vel skipulagt og vel viðhaldið hús
m. a. 4-5 herb., arinn, 2 stofur. Góður
garöur. Verð 17,0 millj.
Arnartangi
Fallegt timburhús 100 fm ásamt 30 fm
bílsk. 3 svefnherb. Parket. Gufubað.
Áhv. 5 millj. húsbréf. Verð 9,8 millj.
Skólatröð - Kóp.
Rúmgott 180 fm endaraðhús með 5
svefnherb. og mögul. á sérib. i kj. ásamt
42 fm bilskúr. Góð staðsetn. fyrir barna-
fólk stutt frá skóla. V. 12,5 m.
Vesturbær
Glæsil., nýl. raðh. á Bráðræðisholti,
123ja fm ásamt 20 fm suðursv. 3 svefn-
herb. Parket á öllu húsinu. Alno-eldhús-
innr. Áhv. 5,0 millj. veðd. V. 11,5 m.
Lindarflöt - Gbæ
Fallegt 150 fm einbhús ásamt tvöf.
bílsk. Mikið endurn. eign. Áhv. iangtlán
6.5 millj. þar af veðd. 3,5 millj. Verð
14,2 millj.
Hverfisgata - Hfj.
Vorum að fá í sölu 100 fm parhús, stein-
hús, á 3 hæðum. Mikið endurn. eign.
Áhv. veðdeild 2,5 millj.
Fannafold
Glæsil. 170 fm einbhús m. bilsk. Park-
et. Húsið m. fallegri múrsteinsklæðn.
utan. Verð 14,9 millj. Mögul. að taka
minni eign uppí.
Birkigrund - Kóp.
Fallegt einbhús á 2 hæðum m. innb.
bílskúr, 260 fm mögul. á séríb. á neðri
hæð. Skipti mögul. á minni eign. Verð
16.5 millj.
I smíðum
Baughús
Glæsilegt parhús á tveimur hæðum
með innb. 35 fm bílsk. Samtals 187 fm.
Húsið er í dag fokh., fullfrág. að utan.
Mögul. að taka minni eign uppí kaup-
verð. Aðeins annað húsið eftir. Verð
8,4 millj.
Stakkhamrar
Vel skipulagt 140 fm einbhús ásamt
27 fm bílsk. Skilast tilb. u. trév. eða
fokhelt.
Leiðhamrar
Glæsil. 200 fm einbhús með innb. 35
fm bílsk. Til afh. nú þegar fullfrág. að
utan, fokh. að innan. Glæsil. útsýni.
Byggaðili: Múrtækni sf. Verð 9,5 millj.
Klukkurimi - ódýrt
Fallegt 171 fm parhús með innb. bílsk.
Til afh. nú þegar fokh. Verð aðeins 6,8
millj. eða fullfrág. aö utan 7,9 millj.
Áhv. 3 millj. Mögul. að taka minni eign
uppí kaupverð. Byggaðili: Húsbyrgi hf.
Rauðagerði
Glæsjl. parh. á tveimur hæðum, um 160
fm ásámt 24 fm bílsk. Húsið stendur á
fallegum útsýnisstað og afh. fullfrág.
utan, tilb. u. trév. innan. Verð 11,9 millj.
Fífurimi - sérhæðir
Nú er hafin sala á nœsta húsi við Fífu-
rima sem Ágúst og Magnús hf. byggja.
( boði eru 2ja og 4ra herb. sérhæðir í
fjórbhúsi. Sérinng., -hiti og -þvhús.
Selst tilb. u. trév. eða fullb. án gólfefna.
Sérhæðir
Kariagata
Hæð og ris í þríb. ásamt bílsk. Rúmg.
stofa og eldhús, 3 svefnherb. og bað í
risi. Áhv. m.a. 6,0 mHlj. húsbr. Verð
8.5 millj.
Mávahli'ð
Falleg efri hæð í tvib. ásamt rúmg.
íbherb. I kj. með sérsnyrtingu. Samtais
um 160 fm. Efri hæð skiptist í 2 stof-
ur, sólst., 2 rúmg. svefnherb. o.fl. Laus
fljótl. Verð 9,8 millj.
Norðurmýri
-Rúmg. 3ja herb. 90 fm efri sérhæð í
þríbhúsi. Eignin er mikið endum. m.a.
nýtt parket, nýtt gler, nýtt rafm. Sér-
inng. Sérhiti. Verð 7,8 millj.
Laugarneshverfi
Glæsil. 110 fm serhæð á 1. hæð í þríbh.
ásamt 30 fm bilsk. Nýtt parket. End-
urn. bað. Nýtt gler. Áhv. langtímalán
3.5 millj. Verð 9,5 millj.
Veghús
Ný 5-6 herb. íb. á tveimur hæðum, hæð
og ris, samtals um 160 fm. 4-5 svefn-
herb. Áhv. 5,5 millj. húsbréf. V. 11,7 m.
4-5 herb. íbúðir
Boðagrandi
Falleg 4ra herb. endaíb. á 3. hæð (efstu)
með glæsil. útsýni. Tvennar svalir.
Stæði í bílskýli. 3 rúmg. svefnherb.
Verð 8,7 millj.
Frostafold
Glæsil. 4ra herb.endaíb. 100 fm. á 3.
hæð í lyftuhúsi. Flisar á gólfum. Sér
þvottah. í ib. fallegt útsýni. Stórar suð-
ursv. Áhv. 5 millj. byggingasj. til 40
ára með 4,9% vöxtum. Verð 10,5 millj.
Reynimelur
Falleg 4ra herb. endaíb. á 3. hæð í
blokk. Óvenju björt ib. Gluggar á þrjá
vegu. Fallegt útsýni. Verð 8,2 millj.
Holtsgata
Björt 4ra herb. 100 fm íb. á 4. hæð.
Fallegt útsýni. Nýtt gler. 3 svefnherb.
Verð 7,2 millj.
Hvassaleiti - bflsk.
Falleg 4ra herb. ib. á 4. hæð. 3 svefn-
herb., góð stofa. Bílsk. Fallegt útsýni.
Verð 8,3 millj.
Álagrandi
Glæsil. risíb. á 4. hæð í nýju húsi með
tvennum svölum. Til afh,. nú þegar.
Sporhamrar
Rúmg. 4ra-5 herb. íb. á 2. hæð i litlu
fjölbhúsi, 125 fm. 3 rúmg. svefnherb.
Sérþvottaherb. Stór stofa m. suðursv.
Smiðjustígur
Falleg 4ra herb. ib. á 2. hæð í steinh.
3 svefnherb. Parket. Allar innr. nýl.
Verð 7,2 millj.
3ja herb. íbúðir
Sólvallagata
Glæsil. 90 fm íb. á 3. hæð. Öll endurn.
Parket. Flisal. baðherb. Ný eldhúsinnr.
og gler. Eign í sérfl. Laus nú þegar.
Verð 7,2 millj.
Tunguvegur - Hf. - laus
Góð 3ja herb. ib. á efri hæð í tvíb. 2
ágæt svefnherb. Parket. Sérinng. Laus
nú þegar.
Flókagata
Falleg 3ja herb. sérhæð á 2. hæð í þríb.
íb. er mikið endurn. m.a. parket, nýtt
gler og eldhús. Geymsluris yfir allri íb.
Verð 8,3 millj.
Lynghagi - laus
Falleg 3ja herb. 85 fm íb. í kj. í fjórb. 2
rúmg. svefnh., stofa, endurn. eldh. Sér-
inng. Áhv. veðd. 2,2 millj. Laus strax.
Verð 6,2 millj.
Framnesvegur
Glæsil. 3ja-4ra herb. risíb. Öll endurn.
m/furuklæðn. í loftum og parketi á
gólfi. Verð 7,6 millj.
Hraunbær - laus
Góð 3ja herb. íb. á 2. hæð m. sérinng.
af svölum. 2 svefnherb. m/skápum.
Ágæt stofa. Fallegt, furukl. bað. Laus
nú þegar.
Ránargata
Falleg 3ja herb. íb. á 1. hæð í timbur-
húsi. Nýl. eldhús. Ný gólfefni. Sérinng.
Áhv. 3 millj., þar af 2,3 millj. veðd.
Verð 5,1 millj.
Njálsgata 3ja-4ra
á 1. hæð. 2 svefnherb. é hæðinni ósamt
17 fm herb. í kj. Áhv. veðd. 3,5 millj.
Verð 6,4 millj.
Hverfisgata
3ja herb. íb. í kj. 72 fm. 2 rúmg. svefnh.
Góður bakgarður. Verð aðeins 4 millj.
Stóragerði
Björt 3ja herb. íb. í kj. 2 ógæt svefn-
herb. Rúmg. eldh. Góður suðurgaröur.
íb. er ósamþ. Hagst. verð.
2ja herb íbúðir
Stelkshólar
Falleg 2ja herb. fb. 58 tm nettó á 3.
hæð í litlu fjölbhúsi. Rúmg. svefnherb.
með parketi og skápum. Tengt fyrir
þwél á baöi. Stofa með vestursv. Verð
6,5 millj.
Nýlendugata
2ja herb. (b. í kj. 30 fm ósamþ. Laus
strax. Verð 3,0 miilj.
Laugarneshverfi
Rúmg. 2ja herb. 70 fm íb. ó 2. hæð.
Stór stofa. Rúmg. herb. Flísal. bað.
FaHegt útsýni. Verð 5,4 millj.
Arvionunusnæði
Eldshöfði
Nýtt iðnaðarhúsn. 120 fm að grunnfl.
lósamt 60 fm millilofti. Mikil lofthæð og
5 m hóar innkdyr.+lentugt f. vinnuvél-
ar, langferðabifr., steypubfla o.fl.
Hverfisgata
Til sölu í nýju húsi yið Hverfisgötu 300
fm skrifst.- eða iðnaðarhæð og 450 fm
verslhæð. Til afh. nú þegar.
SKÓLAVÖRÐUSTlG 38A,
VIÐAR FRIÐRIKSSON,
Kjf#TlL- LÖGG. FASTEIGNASALI,
iSziST HEIMASÍMI 27072.