Morgunblaðið - 20.03.1992, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 20.03.1992, Blaðsíða 1
72 SIÐUR B/C/D STOFNAÐ 1913 67. tbl. 80. árg. FOSTUDAGUR 20. MARZ 1992 Prentsmiðja Morgunblaðsins Nýfundnaland; Mótmæla rányrkju EB-flotans St. John’s á Nýfundnalandi. Frá Hiiii Gíslasyni, blaðamanni Morgunblaðsins. SAMTOK sjómanna og fiskverka- fólks og samtök fiskverkenda á Nýfundnalandi og Labrador kynntu í gær sameiginlega ákvörðun sína þess efnis að fara með sex togara út á fiskimiðin á Miklabanka þar sem skip frá Evr- ópubandalaginu stunda umtals- verða rányrkju. Með þessu ætla þau að vekja athygli á stöðu mála en allar þorskveiðar frá Ný- fundnalandi og Labrador liggja nú niðri vegna slæms ástands þorskstofnsins. John Crosby, sjávarútvegsráð- herra Kanada, lýsti því jafnframt yfir að aðgerðir þeirra nytu stuðn- ings hans svo fremi ekki yrði um ólöglegt athæfi eða ofbeldi að ræða. „Sjómenn okkar hafa allan rétt til að ná athygli heimsins hvað varðar þá staðreynd að verið er að eyði- leggja auðlindir okkar. Þeir hafa all- an rétt til að mótmæla þeirri ógnun sem rányrkja erlendra fiskiskipa er við lífsafkomu þeirra," sagði Crosby. Togaramir leggja af stað sunnu- daginn 29. mars og verða fjóra til fímm daga við þessi mótmæli sín. tijií f* I flC bl I láLCW WORLD APPLAUDS FW LANDSLIDE CF cfash mw iioff is Íikalif Reuter. Vinirnir Moaby Moleby og Matthew Rosen, sem báðir eru niiklir áhugamenn um krikkett og ganga I sama skóla, halda fagnandi á dagblaði með frétt um kosningaúrslitin. Kosningaúrslitum í S-Afríku fagnað: De Klerk vill sam- komulag við blökku- menn fyrir lok 1993 Jóhannesarborg, Lissabon. Reuter. F.W. DE Klerk, forseti Suður-Afríku, sagði í viðtali við CWN-sjón- varpsstöðina í gær að hann hygðist gera allt sein í sínu valdi stæði til að ná fljótlega samkomulagi við meirihluta blökkumanna um fram- tíða stjórnskipan landsins. „Mér liggur á að ná niðurstöðu eins fljótt og auðið er,“ sagði forsetinn og bætti við að hann kysi að samkomu- lag mýndi nást fyrir árslok 1993. Hann sagðist líka búast við að niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar myndi sýna fram á það í eitt skipti fyrir öll að hinn hvíti minnihluti Suður-Afríku vildi koma á lýðræði í stað aðskilnaðar kynþátta. Stjórnvöld fjölmargra ríkja um allan heim lýstu í gær yfir ánægju sinni með úrslitin og mörg ríki boð- uðu aukin samskipti við Suður-Afr- íku og afnám þeirra viðskiptaþving- ana sem enn væru í gildi. Evrópubandalagið fagnaði úrslit- um atkvæðagreiðslunnar og sagði í yfirlýsingu frá bandalaginu að þetta myndi verða til að haldið yrði staðfastlega áfram á þeirri braut lýðræðisþróunar sem byijað var að feta fyrir tveimur árum. Embættis- menn í portúgalska utanríkisráðu- neytinu sögðu að Portúgalar, sem nú fara með forystuna innan EB, hefðu lagt til að öllum viðskipta- þvingunum, sem enn væru í gildi yrði aflétt. Einnig vilja Portúgalir Utanríkisráðherra Armeníu um Nagorno-Karabak: Stuðningur Tyrkja við Azera gæti þýtt allsherjarstyrjöld Jerevan, Moskvu. Reuter, The Washington Post. RAFFI Hovannisian, utanríkisráðherra Armeníu, sagði í gær að allsherjarstríð gæti blossað upp milli Armeníu og Azerbajdzhans ef tyrknesk stjórnvöld veittu Azerum hernaðarstuðning vegna bar- daganna í héraðinu Nagorno-Karabak. Suleyman Demirel, forsætis- ráðherra Tyrklands, sagði að stjórn landsins sætti æ meiri þrýst- ingi af hálfu almennings um að koma Azerum, trúbræðrum Tyrkja, til aðstoðar í bardögunum gegn Armenum, sem eru kristnir. Aðstoð- arutanríkisráðherra Irans, Mahmoud Vaezi, sagði að náðst hefði samkomulag um sjö daga vopnahlé frá og með deginum í dag. 100.000 manna hersveitir hans verði fluttar þaðan. Slíkt sagði hann raska hernaðaijafnvæginu á svæðinu því taka yrði tillit til fjöl- mennra hersveita Atlantshafs- bandalagsins í Tyrklandi. að bandalagið sendi sendinefnd þriggja utanríkisráðherra til Suður- Afríku í því skyni að lýsa yfir stuðn- ingi við umbótastefnu de Klerks. Verða þessar tillögur væntanlega ræddar á fundi háttsettra embætt- ismanna utanríkisráðuneyta aðild- arríkjanna í Lissabon 1. og 2. apríl, sem undirbýr fund utanríkisráð- herra EB-ríkjanna þann 6. apríl. Viðskipti við Suður-Afríku með ákveðnar vörur, s.s. vopn og olíu, eru enn ekki leyfð af hálfu EB og á það sama við um samvinnu á sviði kjarnorkumála. Bretar og Þjóðveijar sögðust í gær vera reiðu- búnir að aflétta banninu við við- skipti með olíu en önnur ríki hafa ekki gert grein fyrir afstöðu sinni. Uffe Ellemann Jensen, utanríkis- ráðherrra Danmerkur, skýrði í gær frá því að hann hygðist halda í opinbera heimsókn til Suður-Afríku í apríl en Danir hafa þegar ákveðið að fella úr gildi viðskiptabann á Suður-Afríku. Cyril Ramaphosa, framkvæmda- stjóri Afriska þjóðarráðsins (ANC), gagnrýndi í gær þau ríki sem hafa boðað afnám viðskiptaþvingana og sagði þau láta tilfinningar í kjölfar kosningaúrslitanna ráða þeirri ákvörðun sinni. ANC vill ekki að viðskiptaþvingunum verði að fullu aflétt fyrr en stjórn svertingja hefur tekið við völdum í landinu. Cyrus Vance, sérlegur sendi- maður Sameinuðu þjóðanna, kom í heimsókn til Jerevan, höfuðborg- ar Armeníu, og áréttaði í stuttri yfirlýsingu að tilgangur ferðarinn- ar væri ekki að stilla til friðar heldur eingöngu sá að kanna stöðu mála. Ráðgert er að hann fari til Nagorno-Karabak í dag. Hovannisian kvaðst vona að ferð Vance til Kákasuslandanna yrði til þess að samkomulag næðist um friðaráætlun og að Sameinuðu þjóðirnar hefðu aukin afskipti af deilunni. Einungis alþjóðlegar frið- argæslusveitir gætu komið í veg fyrir áframhaldandi bardaga Arm- ena og Azera um héraðið. Azersk- ir embættismenn hafa á hinn bóg- inn sagt að ekki komi til greina að Sameinuðu þjóðirnar skerist i leikinn. Hovannisian fór hörðum orðum um Tyrki og sagði þá hafa þjálfað hermenn fyrir azerska herinn, ögr- að Armenum með heræfingum við landamæri Tyrklands og Armeníu og hindrað flutninga á þúsundum tonna af matvælum frá Bandaríkj- unum til Kákasuslandsins. „Við höfum verið undir stjórn heims- veldis í 70 ár og höfum engan áhuga á öðru slíku,“ sagði hann. Stjórnvöld í Armeníu hafa lýst yfir efnahagslegu neyðarástandi í landinu vegna þess að Azerar hafa hindrað flutninga á matvælum og ýmsum nauðsynlegum varningi, svo sem olíu, til landsins. Meðal annars verður gripið til þess ráðs að stöðva orkudreifingu í tólf tíma á sólarhring, sex tíma í senn. Mahmoud Vaezi kvaðst vera vongóður um að vopnahléið, sem samið var um í gær, yrði virt. Fyrri vopnahlé Azera og Armena í Karabak hafa verið mjög skamm- vinn. Valeríj Patríkejev, yfirmaður samveldishersins í Kákasuslöndun- um, hefur lagst gegn því að Bandarísku forsetakosningarnar: Tsongas hættir barátt- unni vegna fiárskorts Boston. Reuter. PAUL Tsongas, öldungardeildarþingmaður frá Massachusetts, skýrði í gær frá því að hann hygðist ekki taka lengur þátt í barátt- unni um útnefninguna sem forsetaefni Demókrataflokksins fyrir bandarísku forsetakosningarnar. „Það er óhagganleg staðreynd að það þarf mikla fjármuni til að taka þátt í forkosningunum og í gærkvöldi varð ljóst að við höfum ekki næga peninga til að taka þátt í fjölmiðlaslagnum í New York,“ sagði Tsongas á blaðamannafundi í gær. Tsongas hefur oft verið hrósað fyrir stefnufestu sína og seiglu en hann var hins vegar einnig talinn skorta algjörlega persónutöfra. Hann kom á óvart með því að vinna fyrstu forkosningarnar í New Hampshire en hefur síðan átt erfítt uppdráttar og unnið fáa sigra. Næstu mikilvægu forkosningar verða haldnar í New York 7. apríl og var ljóst að þar varð Tsongas að vinna sigur ef hann ætti að eiga einhveija möguleika áfram. Tsong- as sagði á fundinum að hann hefði „frestað" áframhaldandi baráttu sinni. Þegar hann var spurður hvers vegna hann notaði ekki ákveðnara orðalag sagði hann það vera til að þeir kjörmenn hans sem hefðu hug á að sækja þing Demókrataflokks- ins og hafa þar áhrif gætu gert það. Framboð hans væri formlega enn í gildi. Ekkert er nú talið geta staðið í vegi fyrir því að Bill Clinton, ríkis- stjóri í Arkansas, verði forsetaefni Demókrataflokksins og muni keppa við George Bush forseta í nóvember. Jerry Brown, fyrrum ríkisstjóri í Kaliforníu, sem einnig Reuter. Paul Tsongas kemur af fundi með starfsfólki kosningabar- áttu sinnar þar sein hann til- kynnti um ákvörðun sína. sækist eftir útnefningu Demó- krataflokksins, er ekki talinn geta ógnað Clinton á nokkurn hátt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.