Morgunblaðið - 20.03.1992, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MARZ 1992
Stúlkurnar 15 hafa verið á æfingum undanfarnar vikur, m.a. hjá Katrínu Hafsteinsdóttur í World
Class-líkamsræktarstöðinni.
Fegurðardrottning Reykjavíkur:
15 stúlkur keppa til úrslita
Fegurðardrottning' Reykjavíkur verður valin á Hótel íslandi
fimmtudaginn 26. marz n.k. Að þessu sinni keppa 15 stúlkur til
úrslita og hafa aldrei verið fleiri. í fyrsta skipti taka stúlkur á
öllu höfuðborgarsvæðinu þátt í keppninni.
Úrslitakvöldið hefst með borð-
haldi klukkan 20. Síðan verður
boðið upp á tízkusýningu, dans-
atriði og sönghópurinn The Platt-
ers syngur nokkur lög. Stúlkurnar
koma fram á sundbolum og síð-
kjólum. Fimm manna dómnefnd
velur fegurðardrottninguna og
verður valið kynnt á miðnætti.
Stúlkurnar 15 sem keppa til
úrslita eru: Erla Dögg Ingjalds-
dóttir, 18 ára, Fjóla Hermannsd-
ótitr, 22 ára, Heiðrún Anna
Björnsdóttir, 18 ára, Jóhanna
Dögg Stefánsdóttir, 18 ára, Lauf-
ey Brá Jónsdóttir, 19 ára, Linda
Karen Kettler, 19 ára, María Rún,
19 ára, Ragnheiður Erla Hjalta-
dóttir, 19 ára, Ragnhildur Sif
Reynisdóttir, 22 ára, Rakel Anna
Guðnadóttir, 18 ára, Selma Gúst-
afsdóttir, 18 ára, Sif Bjork Hilm-
arsdóttir, 19 ára, Sigurlaug Sverr-
isdóttir, 18 ára, Þórunn Geirsdótt-
ir, 19 ára, og Þórunn Lárusdóttir,
19 ára.
Söfnunardagur sam-
takanna Barnaheilla
Kristinn Sigmundsson
Kristinn
og Jónas
Brúðarmyndin eftir Guðmund
Steinsson sett upp í New York
í dag, föstudag, er söfnunardagur Barnaheilla á Bylgjunni og Stöð
2 með aðstoð Gulu línunnar. Tilgangurinn er að koma á stofn með-
ferðarheimili fyrir vegalaus börn sem ekki eiga fjölskyldu sem er
fær um að veita þeim trausta forsjá og góð uppeldisskilyrði. Talið
er að hér séu milli 20-30 börn sem þannig er ástatt um.
Samtökin Barnaheill voru stofn-
uð á degi Sameinuðu þjóðanna 24.
október 1989, um leið og Barnasátt-
máli Sameinuðu þjóðanna var lagð-
ur fram. íslendingar voru meðflytj-
endur að sáttmálanum sem ekki er
enn búið að staðfesta á Alþingi.
„Það er mjög brýnt að sáttmálinn
verði löggiltur á Alþingi, áður en
við förum að samþykkja ný barna-
lög og frumvarp um vernd barna
og unglinga," segir Arthur Mort-
ens, forstöðumaður kennsludeiidar
Fræðsluskrifstofu Reykjavíkur.
„Það er ýmislegt í Barnasáttmálan-
um sem við þurfum að taka tillit til.“
Arthur segir, að Norðmenn og
Svíar séu komnir á fullt með að
láta„Umboðsmann b;-rna“ fylgja
eftir framkvæmd sáttmálans í sín-
um löndum. „Það er mjög brýnt að
koma slíku embætti á hér,“ segir
Arthur, „að fá mann sem hefði það
verkefni, að sjá um að framkvæmd
laga um máiefni barna séu í lagi.
í þessum málaflokki skortir mjög
ákveðna stefnu. Barnamálin eru
undir 4 ráðuneytum: Mennta-,
dóms-, heilbrigðis- og félagsmála-
ráðuneyti sem funda aldrei saman
um þessi mál. Einnig skortir sam-
ræmingu milli skólayfirvalda, heil-
brigðis- og félagsmálayfirvalda.
Það geta verið upp í 7-8 aðilar að
vinna með sama barn og enginn
veit af öðrum. Vinnubrögð eru því
mjög ómarkviss."
Og Arthur heldur áfram: „A
sama tíma eru að vaxa hér upp
einstaklingar sem eru ófærir um
að fara eftir þeim samskiptareglum
sem ríkja meðal fólks og gætu því
orðið sjálfum sér og öðrum til tjóns.
Nokkur þessara barna, í brýnni
þörf á meðferð, eru á biðlista eftir
leguplássi á Barna- og unglinga-
geðdeild Landspítalans sem nú á
að loka í 3 mánuði yfir sumart-
ímann í spamaðarskini.
Fagfólk er lengi búið að vita af
þessum vanda, en trúnaðarskylda
er farin að hamla allri umræðu um
þessi mál. Fagfólk þarf að fara að
velta því fyrir sér hvort ekki sé sið-
ferðisleg skylda þeirra að opna á
umræðu um þessi viðkvæmu mál
þannig að þjóðin vakni ekki upp við'
vondan draum þegar allt er að fara
úr böndunum. Það er skylda þjóðfé-
lags allnægta og velferðar að gefa
öllum bömum sínum kost á upp-
eldi, umhyggju og hlýju,“ sagði
Arthur.
*
í Operunni
KRISTINN Sigmundsson
syngur á ljóöatónleikum
Gerðubergs, sem að þessu
sinni eru haldnir í samvinnu
við Tónlistarfélagið í Reykja-
vík. M þeim sökum verða
tónleikarnir í Islensku óper-
unni föstudaginn 20. mars
kl. 20.30.
Með Kristni leikur Jónas Ing-
imundarson og munu þeir
félagar flytja söngva eftir Beet-
hoven, Schumann, Fauré, Dup-
arc og Ravel.
Kristinn Sigmundsson hefur
ekki sungið hér heima síðan í
maílok á síðastliðnu ári er hann
ásamt Jónasi stóð fyrir tónleik-
um í Þjóðleikhúsinu. Uppselt
var á þá tónleika og komust
færri að en vildu.
Sýningarréttur á tveimur öðrum leikritum eftir Guðmund hefur verið seldur í Bandaríkjunum
LEIKRITIÐ Brúðarmyndin eftir Guðmund Steinsson verður frum-
sýnt í Kampo Cultural centre, í Greenage Village í New York í
dag. Uppfærsla verksins hefur átt sér sex ára aðdraganda en árið
1986 var það valið til kynningar í Bandarikjunum. Verkið var þá
kynnt af íslenskum leikurum og þýtt samhliða á ensku. Níu banda-
rískir leikarar taka þátt í sýningunni og leikstjóri þess er Rebecca
Kreinen. Guðmundur Steinsson segir að æfingar á leikritinu hafi
gengið vel og lofi góðu um framhaldið. Sýningarréttur á tveimur
öðrum leikritum eftir Guðmund hefur verið seldur í Bandaríkjun-
um.
Eugene O’Neill stofnunin í Wat-
erford í Connecticut valdi verkið
árið 1986 sem annað tveggja er-
lendra verka til kynningar en
stofnunin velur innlend og erlend
verk til kynningar í Bandaríkjun-
um á hveiju ári. Hitt verkið sem
varð fyrir valinu var rússneskt.
Að sögn Guðmundar Steinsson-
ar tekur leikhúsið í Kampo Cultur-
al centre 100 manns í sæti. Hann
er nú staddur í New York þar sem
hann hefur tekið þátt í undirbún-
ingi fyrir sýningar leikritsins und-
anfarnar vikur. Hann segist vera
mjög ánægður með æfíngarnar á
leikritinu og segir að þær lofi góðu.
Brúðarmyndin fjallar um fjöl-
skyldu og leikstjóra sem kemur inn
á heimili hennar til að gera mynd
fyrir sjónvarp. Vera hans á heimil-
inu reynist örlagarík fyrir fjöl-
skylduna. „Myndavélin er mikill
áhrifavaldur og það er undirstrikað
Guðmundur Steinsson.
mjög vel í sýningunum í New York
með því að láta stóra kvikmynda-
vél vera á sviðinu. Á öllum æfing-
um hefur kvikmyndatökumaður
frá sjónvarpinu auk þess stjórnað
og sett viðkomandi leikara inn í
kvikmyndagerð. Þá sést allt sem
tekið er upp á fimm skjám í saln-
um,“ segir Guðmundur.
Amerískur leikari af íslenskum
uppruna, William Atli Kendall,
þýddi verkið fyrir uppfærsluna.
„Leikritið hefur því á sér amerísk-
an blæ, orðavalið er amerískt og
það er látið gerast í Pennsylvaníu
í dag,“ segir Guðmundur.
Hann segir að staðið hafi verið
vel að uppfærslunni. „Mér finnst
skilningurinn á verkinu mjög góður
og réttur. Áhuginn á æfingunum
hefur verið mikill og samstaðan
góð,“ segir Guðmundur.
Umboðsmaður Guðmundar hef-
ur selt sýningarrétt á tveimur öðr-
um leikritum eftir hann í Banda-
ríkjunum.
HagstiElt ytrð ií Storno Jarsímum
\feióermiðaðvið
gengi 27. jan. 1992.
Vegna mikillar sölu á síðasta ári náðum viö mjög
hagstæðum samningum við framleiðendur og getum
nú boðið Storno farsíma á hreint ótrúlega lágu verði.
Storno bílasími kr. 79-580 stgr. með vsk.
Storno burðarsími kr. 84.280 stgr. með vsk.
Burðarsíma fylgir 4 Ah rafhlaða.
PÓSTUR OG SÍMI
Söludeildir í Ármúla 27, Kirkjustraeti, Kringlunni
og á póst- og símstöðvum um land allt