Morgunblaðið - 20.03.1992, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 20.03.1992, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MARi 1992 5 Fundað eftir 7 mánaða hlé Framtíð Safna- hússins í óvissu Hugmyndir um skrifstofur forseta eða forsætisráðherra eða veislusali FORNLEIFANEFND mun í dag halda sinn fyrsta fund frá því sl. haust en fundir hafa ekki verið haldnir í nefndinni í vetur þar sem ekki þótti liggja ljóst fyrir hvernig hún ætti að vera skipuð. Að sögn Sveinbjarnar Rafnsson- ar, formanns hennar, hefur þetta ekki komið að sök varðandi um- sóknir um leyfi til fornleifarann- sókna þar sem rannsóknirnar fari yfirleitt fram á sumrin. Eftir að þjóðminjalögum var breytt í mars 1991 þótti það álita- efni hvernig nefndin ætti að vera skipuð og var í kjölfarið óskað eftir úrskurði menntamálaráðuneytins. Sá úrskurður kom í síðustu viku en hann kvað á um að með laga- breytingunni hefði einvörungu verið skipt um starfsheiti á stöðu deildar- stjóra fornleifadeildar sem nefndist nú fornminjavörður en það var álitaefni í upphafi hvert starfssvið hans væri og hvort hann ætti rétt til setu í fornleifanefnd. Guðmundur Ólafsson sem áður gegndi stöðu deildarstjóra fornleifadeildar er nú fornminjavörður. ÓLAFUR G. Einarsson mennta- málaráðherra segir, að meðal þeirra hugmynda sem fram hafa komið um nýtingu Safnahússins við Hverfisgötu, sé að þar verði skrifstofa forseta íslands, eða móttökusalir á vegum ríkisins og skrifstofa forsætisráðuneytis eða að Árnastofnun verði flutt þang- að. Rætt er um að skipa nefnd er fjalli um þessar hugmyndir og aðrar sem fram hafa komið um nýtingu hússins. Ólafur sagði, að á undanförnum árum hafi mikið verið fjallað um hvað yrði um Safnahúsið án þess að ákvörðun hafi verið tekin um hvað yrði um húsið. „Sú hugmynd sem kom frá nefnd sem dómsmálaráð- herra skipaði er úr sögunni," sagði Ólafur. „Athuga verður málið sér- staklega, ráðstöfun hússins er eitt og annað hvenær núverandi starf- semi flytur úr húsinu. Framkvæmd- eða Félagaþjónustan greibir fyrir fjármálum félagasamtaka. Þá veistu hvaö þaö fer mikill tími í innheimtu félagsgjalda, aö halda félagatalinu réttu, vita hverjir hafa gert skil, senda rukkanir á réttum tíma, taka viö greiöslum og koma þeim í banka. Til aö þú hafir meiri tíma til aö sinna eiginlegum félagsstörfum höfum viö þróaö Félagaþjónustu íslandsbanka. Félagaþjónustan felst mebal annars í eftirfarandi þáttum: • Círóseölar fyrir félagsgjöldum eru skrifaöir út og sendir greiöendum á réttum tíma. Um leiö er félaginu send skrá yfir útskrifaöa gíróseöla. • Hœgt er aö velja árlega og allt niöur í mánaöarlega innheimtu. • Reikningsyfirlit meö nöfnum greiöenda eru skrifuö út í byrjun hvers mánaöar. • Dráttarvextir eru reiknaöir, sé þess óskaö. • Gjöld geta hoekkaö samkvœmt vísitölu, sé þess óskaö. Aö auki er boöin margþœtt viöbótarþjónusta. Notfœröu þér Félagaþjónustu íslandsbanka fyrir þitt félag og notaöu tímann til ab sinna sjálfum félagsstörfunum. Ert þú í forsvari fyrir félag, fámennt fjölmennt, formlegt eða óformlegt? um við Þjóðarbókhlöðu á að ljúka árið 1994 og er ekkert sem bendir til annars en að svo verði. Þá verður Þjóðskjalasafnið að fá viðunandi að- stöðu í gamla Mjóikurfélagshúsinu, þar sem hluti safnsins er í Safnahús- inu. Innan ríkisstjórnarinnar hefur verið rætt um að setja niður nefnd til að íjalla um þetta einu sinni enn og safna saman þeim gögnum sem til eru.“ Safnahúsið við Hverfisgötu. Sagði hann, að upp hafi komið hugmyndir um að forsetaembættið fengi húsið, að það yrði móttökuhús fyrir ríkisstjórnina og skrifstofa for- sætisráðuneytisins, og að Árnastofn- un fengi húsið, þar sem það tengdist sögu og menningu þjóðarinnar en engin ákvörðun hefur enn verið tek- in. í frétt blaðsins í gær um safnahús- ið féll niður að kostnaður við breyt- ingar á húsinu fyrir starfsemi Hæsta- réttar hefði verið áætlaður 100 millj- ónir króna. Forseta- kosningai' 27. júní FORSÆTISRÁÐUNEYTIÐ hefur sent út til birtingar aug- lýsingu um framboð og kjör forseta íslands og segir þar að kjörið skuli fara fram Iaug- ardaginn 27. júní 1992. Fram- boðum skal skilað i hendur dómsmálaráðuneytis ásamt samþykki forsetaefnis, nægi- legri tölu meðmælenda og vottorðum yfirkjörstjórna um að þeir séu á kjörskrá, eigi síðar en fimm vikum fyrir kjördag. í tilkynningu forsætisráðu- neytisins segir ennfremur að for- setaefni skuli hafa meðmæli minnst 1.500 kosningabærra manna, en mest 3.000, er skipt- ist þannig eftir kjördæmum: úr Sunnlendingafjórðungi minnst 1.120 meðmælendur, en mest 2.235, úr Vestfirðingafjórðungi, minnst 95 meðmælendur en mest 195, úr Norðlendingafjórð- ungi minnst 200 og mest 405 og úr Austfirðingafjórðungi minnst 85 meðmælendur en mest 165. Fornleifanefnd: Hassplönt- urræktaðar í Arbænum Fíkniefnalögreglan lagði í fyrradag hald á 13 kannabis- plöntur sem verið var að rækta í húsi í Árbæjarhverfi. Upp komst um málið þegar almenna lögreglan var kölluð á staðinn. Lögreglumenn veittu þá plöntunum athygli. Sú hæsta þeirra var u.þ.b. 1 metri á hæð. Lögreglan tók plönturnar í sína vörslu en húsráðandinn var víðs fjarri þegar þetta bar að og var hann ófundinn í gær.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.