Morgunblaðið - 20.03.1992, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 20.03.1992, Blaðsíða 25
24 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MARZ 1992 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulitrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1200 kr. á mánuðí innanlands. í lausasölu 110 kr. eintakið. Einangrun og útskúfun hafnað í Suður-Afríku Yfirgnæfandi meirihluti hvítra Suður-Afríkubúa lýsti yfir t stuðningi við umbótastefnu F.W. de Klerks forseta í þjóðarat- kvæðagreiðslu sem fram fór á | þriðjudag. Dómur kjósenda er ótvíræður, Suður-Afríkubúar vilja að kynþáttaaðskilnaðarstefnunni illræmdu, sem kallaði einangrun og útskúfun yfir landsmenn, verði varpað á öskuhauga sögunnar. Þessi niðurstaða markar þáttaskil í sögu landsins og ef fram fer sem horfir verður blökkumönnum tryggður kosningaréttur með stjórnarskrárbreytingu síðar á þessu ári. Það er fagnaðarefni að afturhaldsöflin skuli hafa beðið ósigur fyrir boðberum lýðræðis og mannréttinda en vitanlega fer því fjarri að pólitískum átökum sé lokíð í Suður-Afríku. r" Þvert á það sem margir frétta- skýrendur töldu reyndist stuðn- ingur hvítra við umbætur þær sem F. W. de Klerk hefur innleitt og boðað vera. yfirgnæfandi. Tæp 70% þeirra sem þátt tóku greiddu atkvæði með stefnu forsetans en talið hafði verið að mjótt yrði á mununum. Kosningaþátttaka var óvenju mikil, rúmlega 85%, og er það til marks um að kjósendur í Suður-Afríku hafi gert sér ljósa alvöru málsins. Flestir gátu ekki hugsað sér að hverfa á ný til þeirra dimmu daga er Suður-Afr- íkubúar voru einangraðir á al- þjóðavettvangi og beittir þvingun- um af ýmsum toga vegna kyn- þáttastefnu hvíta minnihlutans. Niðurlægingin, sem fylgdi útskúf- un og einangrun, setti mark sitt á þjóðlífið; kosningaþátttakan og yfírburðasigur de Klerks ber því glögglega vitni. Forseti Suður- Afríku hefur fengið umboð til að halda áfram viðræðum við fulltrúa blökkumanna um nýja stjórnar- skrá landsins. Ef að líkum lætur mun þessi þróun leiða til þess að hvítir glati pólitískum völdum í landinu. Kjósendur í Suður-Afríku stóðu frammi fyrir erfíðri ákvörðun því við blasir að umbótastefna forset- ans skerðir völd þeirra og skapar óvissu um framtíðina. Segja má að valkostirnir hafí verið „hættu- ástand" annars vegar og „harm- leikur“ hins vegar. Á endanum ákvað mikill meirihluti kjósenda að atkvæðinu væri best varið með því að koma í veg fyrir þann harm- leik sem hefði verið óhjákvæmi- legur hefðu fylgismenn kynþátta- aðskilnaðar og einangrunar- hyggju borið sigur úr býtum. Von- in varð óttanum yfírsterkari. Vitanlega felur þessi sögulega þjóðaratkvæðagreiðsla ekki í sér að pólitískum átökum sé lokið í Suður-Afríku. Hundruð þúsunda hvítra greiddu atkvæði gegn breytingum þeim sem de Klerk hyggst innleiða. Þegar tekist er á um slík grundvallaratriði má heita eðlilegt að mikill tilfinningahiti einkenni málflutning manna. Hitt er að sönnu rétt að öfgastefna hvers konar nær að þrífast og dafna við skilyrði lík þeim er ríkja í Suður-Afríku. Hörðustu and- stæðingar forsetans hafa hótað því að láta vopnin tala. Því miður er full ástæða til að taka mark á hótunum sem þessum. F. W. de Klerk sýndi einstætt pólitískt hugrekki er hann ákvað að efna til þjóðaratkvæðagreiðsl- unnar. Niðurstaðan sýnir að stöðumat hans var rétt, hvítir voru tilbúnir til að taka ábyrga afstöðu í máli er varðar alla fram- tíð þeirra. Það sýnir að de Klerk er ekki einungis hugrakkur stjórn- málamaður, hann hefur einnig til að bera innsæi og hyggindi. Mjög mun reyna á þessa hæfileika F.W. de Klerks á næstunni, jafnt í við- ræðum við leiðtoga blökkumanna um framtíð landsins sem og í sam- skiptum forsetans við andstæð- inga umbótastefnunnar sem kunna að fyllast örvæntingu. Markmið forsetans verður að tryggja hagsmuni hvíta minni- hlutans í landinu þegar við blasir að blökkumenn taki við stjórn- inni. Jafnframt mun de Klerk leggja ríka áherslu á að markaðs- hagkerfi verði viðhaldið í Suður- Afríku. Á þeim vettvangi verður ekki betur séð en breyting hafi orðið á stefnu Afríska þjóðarráðs- ins (ANC) sem virðist á mörgum mikilvægum sviðum hafa hvikað frá þeim sósíalísku hugmyndum sem stefna samtakanna var grundvölluð á hér á árum áður. Kynþáttastefnan á með réttu heima á öskuhaugum sögunnar ásamt sósíalismanum og annarri þeirri hugmypdafræði mannhat- urs og -fyrirlitningar sem hafnað hefur verið. Hvítir í Suður-Afríku hafa í senn sýnt aðdáunarvert hugrekki og yfirvegun og þjóðar- atkvæðagreiðslan verður lengi í minnum höfð. Mikilvægt er nú að heimsbyggðin og þá ekki síst lýð- ræðisríkin í vestri sýni de Klerk stuðning sinn í verki. Refsiaðgerð- um þeim sem eftir standa og beitt var vegna kynþáttastefnunnar ber að aflétta auk þess sem Suður- Afrí'ka þarf sárlega á margvís- legri aðstoð að halda á þessum umbrotatímum í sögu landsins. Lýðræðisríkjunum ber að leggja sitt af mörkum til að tryggja að umskipti þau sem í vændum eru í Suður-Afríku fari fram með frið- sömum hætti í samræmi við yfir- lýstan vilja mikils meirihluta hvítra manna sem í landinu búa. Morgunblaðið/KGA Hluthafar í Flugleiðum á aðalfundinum í gær. Aðalfundur Flugleiða hf. haldinn í gær: Flugleiðir verða að leita vaxtar- möguleika á erlendum mörkuðum — sagði Hörður Sigurgestsson, stjórnarformaður EF evrópskt efnahagssvæði verður að veruleika munu reglur Evrópubandalagsins um flugmál ná til íslands og þar með mun sérleyfi Flugleiða til flugs til og frá íslandi væntanlega falla niður áður en langt um líður. Nái hið evrópska efnahagssvæði ekki fram að gangá telja Flugleiðir brýnt að ísland nái samskon- ar samningi um flugmál við Evrópubandalagið og Noregur og Svíþjóð hafa náð. Sá samningur felur í sér að flugmálalöggjöf EB nær til þessara landa. Framkvæmdastjórn EB hefur heimilað að gengið verði til samninga um flugmál við ísland, Finnland, Austurríki og Sviss. Flugleiðir livelja eindregið til að íslensk stjórnvöld gangi til slíkrar samningagerðar. Þetta kom fram í ræðu Harðar Sigurgestssonar, aðalfundi félagsins í gær. I ræðu sinni sagði Hörður að við Flugleiðum blasti aukin samkeppni innlendra og erlendra flugfélaga og, væri félagið reiðubúið að mæta þess- ari samkeppni. Hann lagði jafnframt áherslu á að félagið yrði að leita sér olnbogarýmis og vaxtarmöguleika á erlendum mörkuðum þar sem ástand í efnahagsmálum og spár um fram- vindu á næstu misserum gæfu ekki miklar vonir um vöxt á heimamark- aði. Sem dæmi um hvar Flugleiðir gætu keppt á opnum Evrópumarkaði nefndi Hörður að nýjar samkeppnis- reglur. myndu opna félaginu leið í flugi frá Keflavík til Glasgow til að taka þar nýja farþega og frakt og flytja áfram til dæmis til Berlínar. „Flugleiðir geta leitað nýrra markaða beggja vegna Atlandshafs- ins. Ef evrópska efnahagssvæðið verður að veruleika eða evrópsku flugmálareglurnar taka gildi með öðrum hætti, þá opnast möguleikar til flugs með farþega og fragt á milli landa í Evrópu utan íslands- markaðarins. Mestar líkur á að slíkt takist er á smærri jaðarmörkuðum annarra flugfélaga og væntanlega í markaðssamstarfi við flugfélög og önnur fyrirtæki í ferðaþjónustu. Félagið hefur þegar hafið könnun á möguleikum á þessum vettvangi," sagði Hörður. Árið 1991 var velta Flugleiða 12.715 milljónir króna og jókst að raungildi um 2% á milli ára. Hagn- aður ársins var 150 milljónir eða um 1,5% af tekjum. Eigið fé í árslok var 4.408 milljónir og eiginfjárhlutfall 21%. „Það má segja að við þær kring- umstæður sem ríktu í alþjóðaflug- rekstri og við áframhaldandi stöðnun í íslensku efnahagslífi á árinu 1991 hafi Flugleiðir háð árangursríka varnarbaráttu. Þegar horft er til lengri tíma er fjárhagsleg afkoma sljórnarformanns Flugleiða á ársins 1991 ekki viðunandi. Á þessu ári náðust ekki þau fjárhagslegu markmið sem félagið hafði sett sér. Það má hins vegar segja að við þær kringumstæður sem ríktu hafi náðst viðunandi árangur sem er betri en ýmis flugfélög í nágrannalöndum okkar geta státað af.“ I máli Sigurðar Helgasonar, for- stjóra Flugleiða kom fram farþega- tekjur af Evrópuflugi hefðu verið 36% af heildartekjum félagsins. Far- þegum fækkaði nokkuð á þessum markaði frá árinu áður eða úr 324 þúsund í 318 þúsund en gert hafði verið ráð fyrir aukningu. Þá versn- aði sætanýting úr 62% í 58% milli ára. Varðandi Norður-Atlandshafs- flugið sagðkSigurður að nokkurt tap væri enn á rekstri þeirra leiða en afkoman hefði batnað verulega. Far- þegar voru samtals tæplega 166 þúsund og fjölgaði um 9% frá árinu 1990. Þá var sætanýting 75% og batnaði hún um 2 prósentustig. Fram kom í máli Harðar Sigur- gestssonar að hlutur Lúxemborgar í Norður-Atlandshafsfluginu hefði minnkað verulega en vægi annarra áfangastaða í Evrópu vaxið að sama skapi. Vægi Lúxemborgar væri nú innan við 40% en hefði verið meira en 70% á fyrri hluta síðasta áratug- ar. Markaðsverð flugvéla hærra en bókfært verð Sigurður Helgason vék í ræðu sinni að verðgildi flugvéla Flugleiða í ljósi lækkunar á verði flugvéla á heimsmarkaði. Hann sagði að eftir gjaldþrot flugfélaga að undanförnu hefðu eldri vélar flætt inn á markað- inn og væru nú seldar eða leigðar á mjög lágu verði. Þetta hefði valdið nokkru verðfalli á nýjum flugvélum þar sem til skemmri tíma væri hag- Hörður Sigurgestsson stjórnar- formaður Flugleiða flytur skýrslu stjórnar á aðalfundinum í gær. kvæmt að leigja gamlar flugvélar. Hins vegar myndu þessar vélar hverfa af sjónarsviðinu á næstu tveimur árum vegna hávaðatak- markana á flestum stærstu flugvöll- um heims og hækkunar rekstrar- kostnaðar mest vegna krafna um aukið viðhald. „Hins vegar er rétt að geta þess að verð á flugvélum sömu gerðar og Flugleiðir eiga hefur ekki lækkað mikið og markaðsverð er enn mun hærra en bókfært verð vélanna." Fram kom hjá Sigurði að vátryggingarverð sjö millilandaflug- véla félagsins er 20,4 milljarðar en bókfært verð er um 14,9 milljarðar. Raunverulegt markaðsverð væri nær vátryggingarverði. Á sl. ári samþykkti stjórn Flug- leiða að hefjast handa um byggingú viðhaldsstöðvar flugvéla á Keflavík- urflugvelli. Er gert ráð fyrir að þessi nýja aðstaða verði tilbúin í árslok 1992. Fram kom hjá Herði að þegar nýja stöðin væri tilbúin myndi allt viðhald flytjast til Keflavíkurflug- vallar að línuviðhaldi innanlands- flugvélanna undanskyldu. „Þessi nýja viðhaldsstöð skapar möguleika til að leita verkefna erlendis og er félagið byijað að leita fyrir sér á þeim vettvangi. Með verkefnum fyr- ir erlenda aðila má bæta arðsemi þessarar fíárfestingar og skapa nýj- an útflutning." Tap af innanlandsflugi 144 milljónir Varðandi innanlandsflugfélagsins benti Hörður á að afkoma þess hefði verið með öllu óviðunandi undanfarin ár. „Á árinu 1991 var tap af innan- landsfluginu að upphæð 144 milljón- ir króna sem er um 12% af veltu þess. Nokkur atriði skipta mestu þegar skýringa er leitað á þessu tapi. Fyrst ber að nefna stöðnun í efna- hagslífi innanlands hin síðustu ár. Gífurlegar endurbætur á vegakerfi landsins hafa leitt til vaxandi sam- keppni bílaumferðar við innanlands- flugið og ríkisstyrkir til feijusiglinga hafa einnig haft neikvæð áhrif. Hár rekstrarkostnaður gamalla flugvéla skiptir einnig verulegu máli. Þá ber einnig að nefna að sam- gönguyfirvöld hafa ákveðið að koma á samkeppni á stærstu flugleiðum innanlands. Þessi samkeppni verður aukin um næstu áramót þegar Flug- leiðir missa sérleyfi sitt til flugs til Akureyrar, ísafjarðar og Egilsstaða og takmörkuð samkeppni verður heimiluð á flugleiðum þangað. Nú þegar er takmörkuð samkeppni á flugleiðunum til Vestmannaeyja og Húsavíkur." Hörður greindi frá því að félagið hefði þegar hafið undirbúning að stefnumótun innanlandsflugs sem yrði kynnt síðar á þessu ári. „Leiða má líkur að því að dregið verði úr flugi stórra véla á borð við Fokker- 50 til smæstu staðanna en hugað að því að fá í staðinn minni vélar. Sennilega yrði það gert með sam- starfi við minni flugfélög sem hafa sérhæft sig í rekstri minni flugvéla. Það er óhjákvæmilegt fyrir Flug- leiðir að líta á rekstur innanlands- flugsins sem hveija aðra starfsemi sem skila verður hagnaði. Það er því eitt þýðingarmesta verkefni félags- ins nú, að snúa þessu tapi í hagnað." Á aðalfundinum var samþykkt að greiddur yrði 10% arður og gefin yrðu út jöfnunarhlutabréf sem nem- ur 10% hækkun á hlutafé í árslok. í aðalstjórn voru kjörnir til tveggja ára þeir Indriði Pálsson, Ólafur John- son, Grétar Kristjánsson og Halldór Þór Halldórsson. Þá voru kjörnir í varastjórn þeir Jóhann J. Ólafsson, Björn Theódórsson og Jón Ingvars- i son. 1 MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 20. MARZ 1992 25 Erlend eignaraðild í íslenskum sjávarútvegi: Lögin eru óframkvæmanleg og því þarf að breyta þeim - sagði Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðheira á morgunverðarfundi Yerzlunarráðsins LÖGIN um fjárfestingu erlendra eignaraðila í íslenskum sjávarútvegi eru að mati Þorsteins Pálssonar sjávarútvegsráðherra óframkvæmanleg og því telur hann að þurfi að breyta þeim. Hann segir að óhjákvæmilegt geti reynst að opna fyrir óbeina erlenda eignaraðild að sjávarútveginum, til þess að gera lögin framkvæmanleg og „atvinnugreinina hliðsettari öðrum greinum". Þetta kom fram í máli .ráðherrans á morgunverðar- fundi Verzlunarráðs íslands í gærmorgun, þar sem liann, ásamt Gesti Jónssyni, hrl., Friðrik Jóhannssyni, framkvæmdastjóra Fjárfestinga- félagsins, og Kristni Björnssyni, forstjórá Skeljungs hf., hafði framsögu um þetta álitamál. Þorsteinn sagði að sjávarútvegs- ráðuneytinu hefði borist upplýsingar frá viðskiptaráðuneytinu um sjö til- vik, þar sem um beina eða óbeina eignaraðild útlendinga í sjávarút- vegsfyrirtækjum hér á landi væri að ræða. Þessar upplýsinga væru nú til meðferðar og umsagnar hjá ríkislög- manni og afstaða sjávarútvegs- ráðuneytisins í þessu álitamáli lægi ekki fyrir, fyrr en ríkislögmaður hefði komist að niðurstöðu hvernig túlka beri löggjöf um erlenda fíár- festmgu sem sett var síðastliðið vor. „Ég hallast sjálfur að því, að ýmis lagaleg rök styðji það að eignar- aðild útlendinga að íslenskum út- gerðarfyrirtækjum sé með öllu óheinril, og þar á meðal óbein eignar- aðild. Mér finnst flest mæla með því við túlkun á gildandi lögum að þessi sé niðurstaðan," sagði sjávarútvegs- ráðherra, „en hér ítreka ég enn og aftur að ráðuneytið hefur ekki tekið afstöðu til þessa álitaefnis." Á að svipta útgerðarfyrirtæki veiðiheimildum? Þorsteinn sagði að menn hlytu þá að spyija, ef þetta væri rétt túlkun laganna, hvernig menn ættu að bregðast við að óbreyttum lögum. Hægt væri að hugsa sér að beina þeim tilmælum til þeirra erlendu aðila sem ættu beina eða óbeina eign- araðild að íslenskum sjávarútvegs- fyrirtækjum að þeir losuðu þá eigna- raðild. „Hin leiðin er sú að svipta þau fyrirtæki sem þannig er ástatt um heimildum til veiða í fiskveiði- landhelginni," sagði Þorsteinn og bætti við að hann teldi eðlilegast að túlka lagaákvæðin eins og þau nú eru orðuð á þann veg að erlendum aðilum væri í sjálfu sér ekki óheim- ilt að eignast hlut í útgerðarfélögum, en félögum sem þannig væri ástatt um væri á hinn bóginn óheimilt að stunda veiðar í íslenskri landhelgi. „Því væri það sennilega nærtækasti kosturinn að við yrðum að ganga þannig til verks, að óbreyttum lög- um, að svipta viðkomandi fyrirtæki veiðiheimildum," sagði Þorsteinn Pálsson. Ráðherra sagði að hver maður sæi í hendi sér að býsna snúið væri að ætla að ganga þann veg til leiks, þegar staðfest dæmi kæmu fram um óbeina erlenda eignaraðild að mörg- um stærstu sjávarútvegsfyrirtækjum landsins, að sjávarútvegsráðuneytið gengi þá fram og svipti þau umsvifa- laust veiðiheimildum. „Eg er þeirrar skoðunar að hér sé uppi sú lagalega óvissa og sú staða að mjög örðugt sé uin framkvæmd, þannig að vel geti farið. Ég held þess vegna að allar líkur bendi til þess að óhjá- kvæmilegt sé að gera breytingar á þeirri löggjöf sem við búum nú við,“ sagði ráðherra. Við endurskoðun laganna sagðist ráðherra telja að enn væri í fullu gildi, þrátt fyrir breyttar aðstæður í alþjóðlegum samskiptum, það meginsjónarmið að varðveita yrði íslensk yfirráð yfir fískveiðilögsög- unni. „Við getum ekki hleypt útlend- ingum óheft inn í hana, með óheftri beinni eignaraðild,“ sagði Þorsteinn. Þetta þyrftu menn að hafa í huga við endurskoðun laganna, þótt óhjá- kvæmilegt gæti reynst að opna fyrir óbeina erlenda eignaraðild að sjávar- útveginum, til þess að gera lögin framkvæmanleg og „atvinnugreinina hliðsettari öðrum greinum". Ráðherra verður að framfylgja lögunum Gestur Jónsson gerði grein fyrir álitsgerð sem hann vann að beiðni Skeljungs hf. um hvaða áhrif breyt- ingar á lögum um fjárfestingar er- lendra aðila í íslenskum atvinnu- rekstri hefðu á stöðu hlutafélags eins og Skeljungs, gagnvart hlutafélög- um sem hafa leyfi til fiskveiða í ís- lenskri fiskveiðilögsögu. Þegar hefur verið gerð ítarleg grein íyrir þessari álitsgerð Gests hér í blaðinu, en niðurstaða hans er sú að eftir að lögunum var breytt í marsmánuði í fyrra, sé öll erlend eignaraðild, bein eða óbein, í íslenskum útgerðarfyrir- tækjum óheimil og varði veiðileyfis- sviptingu viðkomandi útgerðarfyrir- tækis. Gestur sagði að ráðherra ætti ekki annars kost en fara að lögum, og því væri ekki um annað að ræða en breyta viðkomandi lögum, ef nú- gildandi lög væru talin óframkvæm- anleg. Eru atkvæðislaus hlutabréf lausnin? Friðrik Jóhannsson, framkvæmda- stjóri Fjárfestingafélagsins, kvaðst telja að hægt væri að heimila erlenda fjárfestingu í sjávarútvegsfyrirtækj- um með takmörkunum. Segja mætti að það væri ákveðið réttlætismál fyrir sjávarútvegsfyrirtæki að þau væru ekki sett skör lægra en annar atvinnurekstur í landinu, hvað að- gang að fjármagni varðaði. Atvinnu- greinin væri skuldsett og þyrfti á auknu eigin fé að halda. Friðrik spurði hvort veita ætti heimild til erlendra aðila að fjárfesta í sjáarút- vegsfyrirtækjum hér upp að vissu marki. Hann nefndi lög á Norður- löndum þar sem kveðið væri á um að útlendingar gætu ekki eignast nema ákveðinn hámarkshluta í fyrir- tækjum. Almenna reglan í Noregi væri sú að útlendingar gætu ekki eignast nema 20% í hlutafé fyrir- tækja. Algengt væri síðan að hlutafé- lög takmörkuðu enn frekar erlenda eignaraðild í samþykktum sínum. Því væru reglurnar á Norðurlöndum sambærilegar við það sem tíðkast hér. „Annar möguleiki sem hér kem- ur til greina, er að gefa út hluta- bréf, án atkvæðisréttar,“ sagði Frið- rik. Hann sagði að þótt slíkt form hefði verið á undanhaldi á síðustu árum, væri það nokkuð algengt á Norðurlöndum. Slíkt form væri nokkð algengt í Noregi, þar sem hlut- afélög væru skráð á verðbréfaþingi væru skráð með tvo og jafnvel þijá flokka hlutabréfa. Einn flokkurinn væri hlutabréf án atkvæðisréttar, og í honum mættu erlendir fjárfestar eiga ótakmarkað magn bréfa. Þó væru settar skorður við því hversu hátt hlutfall af heildarhlutafé slík atkvæðislaus bréf mættu vera og í Noregi væri hámark slíkrar hluta- bréfaeignar 33%. „Kosturinn við atkvæðislaus bréf er augljóslega sá að eigandinn öðlast ekki áhrif á stjórn fyrirtækisins og hefði því ekki áhrif á stjórnun og meðferð afla í tilfelli sjávarútvegs- fyrirtækjanna," sagði Friðrik. Vondur viðsnúningur Kristinn Björnsson forstjóri Skeljungs hf. kvaðst telja eðlilegt að velta því fyrir sér hvort það væri ekki ofmat að ætla að erlendir aðilar myndu hafa áhuga á að fjárfesta hér í þeim mæli sem margir teldu. „Því liefur verið haldið fram að þrátt fyr- ir allt væru áhrif útlendinga nú þeg- ar mjög mikil í þessum greinum (veiðum og vinnslu - innskot blaða- manns) vegna gífurlegra skulda ís- lendinga við aðrar þjóðir. Fjárfest- ingar Islendinga í sjávarútvegi eru líklega að meirihluta til-fjármagnað- ar með erlendú lánsfé. Reynslan og reglurnar eru nefnilega þannig að litlar skorður eru reistar við því að fá heimildir fyrir erlend lán, en mikl- ar við því að fá erlenda aðila til sam- starfs. Þetta hlýtur að orka tvímæl- is, svo ekki sé fastar að orði kveð- ið,“ sagði Kristinn. Kristinn sagði að afstaða stjórn- málamanna í þessum efnum kæmi engum sem til þekkti á óvart. Grund- völlur þeirrar afstöðu hefði verið sú viðleitni að tryggja yfirráð íslendinga yfir fiskimiðunum þannig að þau nýttust þjóðinni sem best. Hann sagði að í sínum huga og margra annarra blundaði sú spurning hvort þetta væri raunhæf afstaða þegar til lengri tíma væri litið. „Skiptir það ekki mestu máli að lögsagan yfir fiskimiðunum sé íslensk og að okkar sé forræðið yfir fiskimiðunum?“ spurði Kristinn. Síðar sagði Kristinn: „Það er skoð-*- un mín að það sé ekki óeðlilegt að vel stæð fyrirtæki í hvaða atvinnu- grein sem er ijárfesti í öðrum áhuga- verðum fyrirtækjum. Olíufyrirtæki eru hér síst undanskilin, enda hefur sú verið raunin, þó í tiltölulega litlum mæli sé. Ég get þó tekið undir þau sjónarmið sem heyrst hafa að við- snúningur hafi orðið mikill á þessu sviði. Hér á árum áður voru útgerðar- menn og sjávarútvegsfyrirtæki ein- hveijir stærstu hluthafar í þjónustu- fyrirtækjum á íslandi, þar á meðal í olíu- og tryggingafélögum. Nú er þetta að snúast við og töluvert er um það að t.d. olíufélög gerist hlut- hafar í sjávarútvegsfyrirtækjum, Mér finnst þetta vondur viðsnúning- ur.“ Kristinn sagði það vondan við- snúning þegar eignarhald færðist frá sjávarútvegi til notendaþjónustu, „yfir í það að þjónustuaðilar eignast viðskiptavini sína. Þetta segi ég vegna þess að með því er valdahlut- föllunum snúið við, ef svo má að orði komast. I stað þess að viðskipta- aðili gangi á milli þjónustufyrirtækja og velji sér viðskipti þar sem þau eru best og hagkvæmust, þá gerist alveg þveröfugt: viðskiptaaðilinn verður bundinn í báða skó, hugsan- lega með öll sín viðskipti til langrar framtíðar hjá þjónustufyrirtæki, í einhveijum tilvikum olíufélagi, vegna þess að olíufélagið er orðinn stór hluthafi. Nú þegar hillir undir frelsi í viðskiptum með olíu og frelsi hefur náðst í flestum öðrum greinum við- skiptalífs, þykir mér sem allt of mörg fyrirtæki í sjávarútvegi geri sér ekki grein fyrir hvaða afleiðingar hlutafjáreign þjónustufyrirtækja getur haft, séu þau ekki því sjálf- stæðari,“ sagði Kristinn. Kristinn sagði að þau fyrirtæki í sjávarútvegi þar sem um óbeina er- lenda eignaraðild væri að ræða vii-t:— ust ekki gera sér grillur út af þeim lögum sem hefðu verið til umræðu, eignaraðildinni tengd. „Kannski er það í þeirri vissu, hvaðan sem hún nú er komin, að lögunum verði breytt á næstunni, eða þá vegna þess að menn þykjast hafa það fyrir satt að viðurlögum verði ekki beitt.“ Landsbankinn: Hreinn hagnaður var 53,5 milljónir í fyrra 1.000 milljónir lagðar á afskriftarreikning útlána HAGNAÐUR Landsbankans á síðasta ári nam 198 milljónum króna af reglulegri starfsemi eftir að 1.000 milljónir króna voru lagðar á afskriftarreikning útlána. Eftir skatta nam hagnaðurinn 53,5 milljón- um króna. Bankinn telur þetta viðunandi afkomu að teknu tilliti til mikilla erfiðleika í íslensku atvinnulífi á árinu. Heildarinnlán Landsbankans þriðja árið í röð. námu 62 milljörðum króna í árslok 1991 og jukust um 14,8% frá fyrra ári. Útlán jukust um 7,1% en að meðtöldum endurlánuðum erlend- um lánum jukust útlán um 5,3%. Heildareignir bankans voru 102,1 milljarður króna í árslok og jukust um 7,4% frá árslokum 1990. Eigið fé bankans var 6.469 milljónir króna og hafði aukist um 515 millj- ónir í árslok og eiginfjárhlutfall var 7,1% miðað við 6,8% í byrjun árs- ins. Heildarvaxtamunur var 3,9% Þegar Brynjólfur Helgason að- stoðarbankastjóri Landsbankans var spurður hvort þetta væri ekki betri niðurstaða en búist hefði verið við, sagði hann að áætlanir hefðu gert ráð fyrir að reksturinn yrði í kringum núllið, og ef tillit væri tek- ið til eigin fjár bankans væru 53 milljónir ekki mikill hagnaður. Hins vegar væri vel viðunandi að geta lagt eitthvað til hliðar miðað við aðstæður. Einnig væri ljóst að áfram yrðu háar fjárhæðir lagðar á afskriftareikning útlána, einnig á þessu ári. Landsbankinn hefur nú haft hæstu útlánsvexti í bankakerfinu um skeið. Þegar Brynjólfur var spurður hvort bankinn myndi end- urskoða það miðað við þessa rekstr- arniðurstöðu, svaraði hann að vext- ir hefðu verið lækkaðir nokkrum sinnum á fyrstu mánuðum þessa árs, sem þýddi að vaxtamunur væri nú minni en á síðasta hluta síðasta „Vextirnir verða áfrarn undir smásjá á næstunni en ákvarðanir byggjast á því hvaða forsendur verða til frambúðar," sagði Brynj- ólfur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.