Morgunblaðið - 20.03.1992, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MARZ 1992
Lífeyrissjóður Dagsbrúnar og Framsóknar;
Tapaði 35 millj. vegna
lánveitingar til KRON
Veðið var selt á nauðungaruppboði
LÍFEYRISSJÓÐUR Dagsbrúnar og Framsóknar tapar um 35 millj-
ónum kr. vegna lánveitingar til KRON sem stjórn sjóðsins sam-
þykkti árið 1989. Lánið var tryggt með veði í fasteigninni Þöngla-
bakka 1 á 14. veðrétti en hún var slegin Landsbankanum á
nauðungaruppboði í janúar sl. fyrir 315 millj. kr. Halldór G. Björns-
son, stjórnarformaður sjóðsins, segir að sjóðurinn verði að af-
skrifa alla þessa upphæð sem sé áfall, þar sem lífeyrissjóðurinn
hafi aldrei áður orðið fyrir tapi. Hins vegar hafi reglum sjóðsins
um útlán verið fylgt enda hafi brunabótamat fasteignarinnar ver-
ið 828 millj. kr
Halldór benti á að Samvinnulíf-
eyrissjóðurinn hefði átt veð vegna
120 millj. kr. láns fyrir aftan veð
Dagsbrúnar og Framsóknar. „Ég
held að Sambandið sé ábyrgt fyrir
því, þannig að ef við hefðum þurft
að tryggja okkar veð hefðum við
þurft að bjóða upp í topp á móti
Landsbankanum, sem hefði ekki
náð nokkurri átt. Mér skilst að
Sambandið standi á bak við það,“
sagði Halldór.
Að hans sögn voru áhvílandi lán
undir 40% af brunabótamatsverði
fasteignarinnar þegar lífeyrissjóð-
urinn keypti skuldabréfið af KRON
en það var þá að nafnverði rúm-
lega 20 millj. kr.
Að sögn Halldórs var haldinn
fundur vegna þessa máls í stjórn
lífeyrissjóðsins á þriðjudag og aftur
í gær en að engar ákvarðanir hefðu
verið teknar. „Við höfum haldið
fast við að vera fyrir innan 50%
af brunabótamati og þegar við tök-
um veð út á landi er farið niður í
25% til frekari tryggingar," sagði
Halldór. Hann sagði aðspurður að
ekkert hefði verið um það rætt
hvort stjórnin segði af sér í kjölfar
þessa máls. „Ég sé ekki að pening-
arnir skili sér til baka við það,“
sagði hann.
Halldór sagði að þrátt fyrir þetta
tap væri staða lífeyrissjóðsins sterk
og eigið fé hans um 7 milljarðar kr.
VEÐUR
/ DAG kl. 12.00
Helmild: Veðurstofa ísiands
(Byggt á vedurspá ki. 16.15 í gær)
W VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hitl veður Akureyri Z skýjað Reykjavík 1 léttskýjað
Bergen vantar
Helsinki vantar
Kaupmannahöfn vantar
Narssarssuaq +8 alskýjað
Nuuk •f7 léttskýjað
Ósló vantar
Stokkhólmur vantar
Þórshöfn vantar
Algarve 19 heiðskírt
Amsterdam 10 skýjað
Barcelona 17 mistur
Berlín vantar
Chieago 4-1 skýjað
Feneyjar 14 þokumóða
Frankfurt vantar
Glasgow 9 rigning
Hamborg vantar
London 13 skýjað
LosAngeles 11 heiðskfrt
Lúxemborg 10 skýjað
Madríd 20 léttskýjað
Malaga 16 þokumóða
Mallorca vantar
Montreal +11 skýjað
New York vantar
Orlando 20 skýjað
París 14 hálfskýjað
Madeira 18 skýjað
Róm 14 heiðskirt
Vin vantar
Washington vantar
Winnipeg +7 skýjað
Morgunblaðið/Sverrir
Skaut mink í miðri Reykjavík
LEOPOLD Jóhannesson,. sem margir muna sem veitingamann á
Hreðavatni, nú starfsmaður Olíufélagsins á Gelgjutanga, skaut
mink þar á svæðinu á sjötta tímanum í gærdag. „Það má segja
að ég hafi skotið mink í miðri Reykjavík,“ sagði Leopold í gær.
Hann sagðist hafa verið á heimleið um sexleytið þegar minkurinn
læddist inn í tunnuskúr niðri við sjó. „Ég dreif mig heim og sótti
byssuna. Ég klifraði upp á tunnur og sá minkinn í einu horninu
og vann hann í tveimur skotum,“ sagði Leopold í gær.
Hugsanleg sala á Verðbréfasjóðnum hf.:
Viðræður við fulltrúa
Skandia í næstu viku
Á STJÓRNARFUNDI í Fjárfestingarfélagi íslands hf. í gær var
ákveðið að ganga til viðræðna við norræna tryggingafélagið Skan-
dia um hugsanleg kaup þess á Verðbréfasjóðnum hf., sem er í eigu
Fjárfestingarfélags Islands hf.
Guðmundur H. Garðarsson,
stjórnarformaður Ijárfestingarfé-
lagsins, sagði að von væri á mönn-
um frá Scandia Nord um miðja
næstu viku til viðræðna. Hann
kvaðst eiga von á því að þeir myndu
skýra nánar frá áhuga sínum á
kaupunum en átti síður von á því
að lagt yrði fram tilboð.
„Auðvitað er hægt að verðleggja
sjóðinn, en við erum ekki að selja
hann,“ sagði Guðmundur. Hann
sagði að ekki væri ástæða til að
verðleggja það sem ekki væri í sölu.
I byijun marsmánaðar kom hing-
að til lands Leif Passmark, fram-
kvæmdastjóri Skandia Link og
varamaður í stjórn Skandia, og fóru
þá fram óformlegar þreifingar um
þetta mál. Nú hefur Skandia gefíð
til kynna að það hafi frekari áhuga
á að ræða um þessi kaup, að sögn
Guðmundar. Hann sagði að þetta
væri harður markaður og mikil
samkeppni framundan, sérstaklega
verði samningur um evrópska efna-
hagssvæðið samþykktur. „Við, eins
Utigöngu-
fé finnst
Borg í Miklaholtshreppi.
NÝLEGA fundust tveir lamb-
hrútar sem gengið hafa úti í
vetur. Lömbin fundust í
Hraunsfirði í Helgafellsleið
og eru þau furðu vel á sig
komin þrátt fyrir storma og
hrakviðri sem oft hafa verið
hér í vetur.
Lömbin eru frá Hjarðarfelli
og Fáksstöðum. Lömbin hand-
sömuðu Þorsteinn á Kóngs-
bakka og Hreinn á Bergsvíks-
eyri.
- Páll.
SIGRÚN Eðvaldsdóttir fiðlu-
leikari er komin í úrslit í alþjóð-
legri samkeppni fiðluleikara í
Wellington á Nýja-Sjálandi. Auk
Sigrúnar koma fram þrír aðrir
fiðluleikarar úrslitakvöldið að-
faranótt nk. laugardag.
40 fiðluleikarar voru valdir í
keppnina af mun stærri hóp um-
sækjenda. Sigrún mun leika fiðlu-
konsert eftir Mendelssohn með
sinfóníuhljómsveit Wellington-
borgar úrslitakvöldið. Þetta er
fjórða alþjóðlega keppnin sem Sig-
rún kemst alla leið í úrslit. Hún
hafnaði í þriðja sæti í Sibelius-
fiðlukeppninni í fyrra í Finnlandi
og í öðru sæti í Leopold Mozart
keppninni í Þýskalandi. Hún hafn-
Æðarvarpið
leigt áfram
Sigrún Eðvaldsdóttir í úr-
slit alþjóðlegrar keppni
►
i
og aðrir, þurfum að gera okkur ^
gréin fyrir því,“ sagði Guðmundur.
aði einnig í verðlaunasæti í Carl
Nielsen-keppninni í Danmörku.
-------» ♦ »-------
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
að framlengja leigusamning við
Guðvarð Sigurðsson um nýtingu
hiunninda af æðavarpi í Þerney.
í bréfi Hjörleifs Kvaran, fram-
kvæmdastjóra lögfræði- og stjórn-
sýsludeildar, kemur fram að Guð-
varður hafi hlúð að æðavarpi í eynni
undanfarin ár með góðum árangri.
Hann hafi haft leyfi til að nýta þau
hlunnindi sem æðavarpinu fylgja
samkvæmt sérstökum samningi.