Morgunblaðið - 20.03.1992, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MARZ 1992
Póstur og sími:
Ljósleiðarasamband
til Egilsstaða opnað
STAFRÆNT ljósleiðarasamband til Egilsstaða var opnað í gær og
við það fjölgar símalínum til Egilsstaða um 19 og um 11 til Reyðar-
fjarðar og verða þá 75 línur á ijósleiðara og 50 línur á örbylgju frá
Egilsstöðum og 30 á ljósleiðara og 10 á örbylgju frá Reyðarfirði til
Reykjavíkur. Að sögn Ólafs Tómassonar, pósts- og símamálastjóra,
er þessi fjölgun símalina aðallega vegna ljósleiðarasambandsins, en
örbylgja verður notuð áfram vegna öryggis og fer Ijósleiðarasam-
bandið frá Egilsstöðum í gegnum Akureyri til Reyýavíkur ásamt
örbylgju auk þess sem örbylgja verður í gegnum Höfn til Reykjavíkur.
Ólafur segir að með Ijósleiðara-
sambandinu aukist gæði mikið og
fyrir þá sem t.d. séu með gagna-
sendingar eða tölvuviðskipti sé
þetta mjög mikil breyting. Hann
segir að talsambandið sé suðlaust
og að það sé eins og að tala innan-
bæjar með komu ljósleiðarasam-
bandsins.
Póstur og sími hefur unnið að
því undanfarin ár að leggja ljósleið-
arasamband frá Reykjavík norður
og síðan austur. „Það eina sem nú
vantar upp á að slíkt samband sé
alla leið frá Reykjavík á Austfirði
er að enn er stafrænt radíósamband
frá Reykjavík til Akraness, en hins
vegar verður sæsími lagður yfir
Hvalfjörðinn í sumar. Einnig verður
ljósleiðari lagður á Vestfirðina í
ár,“ segir Ólafur.
Ennfremur segir hann að næst
verði hringnum suður um lokað, en
ljósleiðarasamband er nú þegar
komið frá Reykjavík til Hafnar í
Hornafirði og því megi búast við
að á næsta ári verði slíkt samband
komið á hringinn í kring um landið.
„Á leiðinni eru margir fírðir, sem
verður að brúa, og til þess þarf
sæstrengi, sem verða lagðir nú í
ár. Ljósleiðarasambandið hefur gíf-
urlega mikla flutningsgetu og stór-
eykur öryggi alls langlínukerfisins
í landinu," segir Ólafur.
Hann segir á þessu ári verði staf-
rænar stöðvar teknar í notkun á
Eskifirði, Vopnarfirði og í Borgar-
firði eystri og að á þeim stöðum á
Austfirðum, sem eftir séu, verði
stöðvar teknar í notkun á næsta
ári. Hann segir að stafrænu stöðv-
arnar séu afkastameiri og geti af-
greitt fleiri samtöl samtímis auk
þess sem gæðin séu mun meiri.
Hann bætir því við að með þessari
þróun séu mun minni líkur á að
heilu sveitimar verði símasam-
bandslausar.
Utflutningur Færeyinga á karfaflökum:
Ber ekki saman við upp-
lýsingar í Þýskalandi
- segir framkvæmdastjóri Aflamiðiunar
SKÝRINGUM Færeyinga á því magni af karfaflökum sem þeir segjast
hafa sent á Þýskalandsmarkað til sölu í þessari viku ber ekki saman
við upplýsingar Aflamiðlunar í Þýskalandi. Vilhjálmur Vilhjálmsson
hjá Aflamiðlun segir að hann hafi haft samband við Færeysku Fiskisöl-
una og þar fengið þær upplýsingar að þeir hafi sent 50 tonn af flökum
til Þýskalands en aðrir aðilar í Færeyjum sent 15 tonn. Eins og fram
kom í Morgunblaðinu í gærdag er talið að magn karfaflaka frá Þýska-
landi hafi verið 150 tonn en þeir sögðust ætla að senda 50 tonn. Upp-
lýsingar frá dönskum umboðsmanni virðast styðja upplýsingar Afla-
miðlunar.
Aðalstræti 6 og 8.
Tímamót hjá Trygg-
ingamiðstöðinni hf.
Tryggingamiðstöðin hf. sem er 35 ára um þessar mundir hefur
nú flutt afgreiðslu sína á jarðhæð Aðalstrætis 8 og á hluta jarð-
hæðar Aðalstrætis 6. Framvegis verða söludeild, gjaldkerar og
afgreiðsla korthafatjóna á jarðhæð Aðalstrætis 8.
Á jarðhæð Aðalstrætis 6 verður
afgreiðsla ökutækja- og slysa-
tjóna. Yfirstjórn Tryggingamið-
stöðvarinnar hf. verður ásamt at-
vinnurekstrartryggingum, farm-
og skipatryggingum og bókhaldi
áfram á 6. hæð Aðalstrætis 6.
Skrifstofa Tryggingamiðstöðvar-
innar hf. er opin daglega frá kl.
8.30-16.30.
Friðriks Þórs beðið með
eftirvæntingu í Rouen
Rouen. Frá Elínu Pálmadóttur blaðamanni Morgunbladsins.
EFTIR fyrstu 5 dagana höfðu 9.000 manns þegar sótt kvikmyndasýning-
ar á 5. Norrænu kvikmyndahátiðinni í Rouen sem var opnuð við hátið-
lega athöfn miðvikudag í síðustu viku og allan sunnudaginn voru sýn-
ingar hátíðarinnar fyrir fullum húsum i 6 bíóum. Áhuginn hefur verið
ótrúlega mikill á íslensku myndunum bæði nýjum og gömlum. Börn
náttúrunnar var sýnd hér fyrsta kvöldið og auðheyrt er að Friðriks
Þórs Friðrikssonar er beðið hér með eftirvæntingu af kvikmyndafólki
og að orðstír hans hefur hækkað mjög við útnefninguna til Oskarsins.
Auk Barna náttúrunnar er Ryð eftir Lárus Ýmis Óskarsson önnur ís-
lenska keppnismyndin í hópi 10 úrvalsmynda en Hvíti víkingurinn eft-
ir Hrafn Gunnlaugsson er önnur norska myndin í keppninni. 7 verð-
laun verða veitt við hátíðlega athöfn á laugardag.
Morgunblaðið hafði samband við
eina af dönsku umboðsskrifstofunum
sem boðið hafa karfaflök til sölu á
Iágu verði í Þýskalandi þessa viku.
Heitir hún Ghris Fisk og er staðsett
í Hanstholm. Hjá forráðamönnum
hennar kom fram að öllum dönskum
umboðsaðilum hefði verið boðið mik-
ið magn af karfaflökum frá Færeyj-
um á mjög hagstæðu verði. Töldu
þeir magnið ekki undir 100 tonnum
í þessari viku. Chris Fisk fékk aðeins
lítinn hluta af þessu magni til endur-
m sölu í Þýskalandi en bauð flökin
þar á 5.40 mörk kílóið eða sem svar-
ar 65 krónum fyrir kíló af heilum
karfa. Aðspurðir um þetta lága verði
sögðu forráðmenn Chris Fisk að hið
SIGRÍÐUR Ingvarsdóttir, fulltrúi
Sotheby’s á íslandi, segir að það
hafi ekki komið sér á óvart að
málverk þeirra Jóns Stefánssonar
og Jóhannesar Kjarvals, sem boð-
in voru upp hjá Sotheby’s í fyrra-
dag, hafi ekki selst þar sem is-
lensk myndlist sé óþekkt erlendis.
Byggingar-
vísitalan hef-
ur hækkað um
3,3% á árinu
VÍSITALA byggingarkostnaðar
hefur hækkað um 0,1% frá miðj-
um febrúar fram í miðjan mars
og er 187,2 stig samkvæmt út-
reikningum Hagstofunnar. Þessi
vísitala gildir fyrir aprílmánuð.
Byggingarvísitalan hefur hækk-
að um 3,3% síðustu 12 mánuði.
Síðustu þijá mánuði hefur vísitalan
lækkað um 0,1%, en það samsvarar
0,4% lækkun á heilu ári.
hagstæða verð sem þeim bauðst hafi
gert þeim kleyft að bjóða þetta verð
en einnig verði að hafi í huga að um
frekar smá flök var að ræða, eða
80-100 grömm að stærð.
Vilhjálmur Vilhjálmsson segir að
það sé erfitt fyrir þá að meta hver
sé sannleikurinn í þessu máli en sam-
komulag það sem gert var um upp-
lýsingaskipti er á milli Aflamiðlunar
og Færeysku Fiskisölunnar sem er
Iangstærsti útflytjandi á karfa frá
Færeyjum. „Við gerum okkur vonir
um að hér eftir faí við réttar upplýs-
ingar um karfaútfluting þeirra enda
er ég sannfærður um að það sé báð-
um aðilum til góðs,“ segir Vilhjálmur.
Hún bendir á að einungis helming-
ur listaverkanna á uppboðinu hafi
selst.
Sigríður segir að sömu lögmál gildi
á listaverkamarkaðnum erlendis og
á öðrum mörkuðum, til dæmis á
hlutabréfamarkaðnum. Fólk kaupi
yflrleitt ekki verk sem það þekki
ekki og íslensk myndlist sé óþekkt
erlendis.
„Jón Stefánsson og Jóhannes
Kjarval voru einu listamennimir sem
kynna þurfti sérstaklega á uppboðinu
og það segir sína sögu,“ segir Sigríð-
ur og bætir við að það sé auk þess
mjög algengt að verk seljist ekki á
fyrsta uppboði. Slíkt hafi gerst með
norræna myndlist þegar verið var
að kynna hana á síðasta áratug.
Hún segist ekki mæla með því að
málverkin verði sett aftur á uppboð
í bili. Helst segir hún að líða þurfí
að minnsta kosti tvö til þijú ár frá
þvf að verk sem ekki hefur selst á
uppboði sé boðið upp aftur.
Sigríður segir að það geti tekið
langan tíma að kynna íslenska mynd-
list erlendis en innan skamms verði
sýning á vegum Sotheby’s á íslensk-
um verkum sem sé liður í að stuðla
að þessari kynningu.
Kvikmyndamenn, svo sem Bengt
Forslund framkvæmdastjóri Nordisk
fílm fond, segja að kvikmyndahátiðin
í Rouen sé mikilvæg fyrir norrænar
kvikmyndir, því þetta sé önnur af 2
sem einbeiti sér að Norðurlöndum,
sem vilji drukkna á stóru hátíðum
og hún opni norrænum myndum
franska markaðinn og fleiri. Þessi
kvikmyndahátíð er miklu viðameiri
og stærri en ég átti von á og verður
æ stærri. Auk keppnismyndanna 10
sem margar eru stórgóðar eru sýnd-
ar Norðurlandamyndir í ýmsum
grúppum. Einu Eistrarsaltslandi er
boðið í þetta sinn, Lettland, og þykir
blaðinu Herald Tribune mestur feng-
ur í að með þeim komu hinar sígildu
myndir Sergeis Eisensteins sem var
fæddur í Riga. Ingrid Bergman er
heiðruð með sýningu á hennar
sænsku myndum frá 1932 til 1939
og ljósmyndasýningu. Margt fleira
athyglisvert er í kring um hátíðina.
Herald Tribune vekur líka athygli
á hinu íslenska „panorama" en í því
eru kynntar íslenskar myndir allt frá
Höddu Pöddu Guðmundar Kambans
og fram á okkar daga. Þessi þögla
mynd þykir merkilega góð. Ég hitti
mann þar sem var búinn að sjá allar
íslensku myndirnar á sýningunni
nema Ryð, þ.e. Land og synir, Óðar
feðranna, GÍsla sögu Súrsonar, Skila-
boð til Söndru, Skyttumar, í skugga
hrafnsins, dokument myndina um
Vestamannaeyjar eftir Sólvegu
Ánspach og-til viðbótar í flokki stutt-
mynda Ókunn dufl eftir Sibba Aðal-
steinsson.
Tilheyrandi íslenska hlutanum
voru teknar til sérstakrar sýningar
tvær sígildar franskar myndir um
frönsku fiskimennina Pécheur d’Is-
land eftir sögu Pierres Lotis, þögul
mynd frá 1924 og önnur frá 1933
og boðið upp á umræður á eftir við
Elínu Pálmadóttur frá íslandi og
Jean LeMeur frá Paimpol. í því sam-
bandi setti bókabúðakeðjan FNAL
upp sýningu á ljósmyndum frá þeim
tíma og Ljósmyndasafninu í Reykja-
vík og Paimpol og efnt til umræðna
í fullum fyrirlestrasal við Elínu.
Ágúst Guðmundsson sem hér er
vegna sýninga á tveimur af sínum
myndum sat líka fyrir svörum um
íslenska kvikmyndalist hjá FNAL og
eftir sýninguna á Gísla sögu um
miðnætti. Það kemur mér á óvart
hve íslandi er gert hátt undir höfði
og hve áhuginn er almennur á öllu
íslensku. Líka í blöðum þar sem
myndimar eru vel kynntar og viðtöl
við Elínu og Ágúst, sVo og Knut
Hallsson ráðuneytisstjóra í Mennta-
málaráðuneytinu sem var m.a. við
hina hátíðlegu opnunarhátíð. En
samkeppnin er mikil og gestir hafa
úr mörgu að veljá. M.a. er hér norsk
myndlistarsýning, höggmyndasýning
o.frv.
Spenningurinn verður þó mestur
þegar líður á vikuna og úrslitunum.
I dómnefnd er þekkt fólk; Dominique
Pinon leikkonan úr Delictessen,
Emqnuelle Riva þekkt úr Hirosima
mon amour, rithöfundurinn Maurice
Pons, leikstjórinn Susanne Schiff-
mann og píanóleikarinn Michel Ber-
off. Hefur valið þótt takast vel.
Danska myndin Babettes Gæstebud
fékk verðlaunin á fyrstu hátíðinni,
þá óþekkt og fékk strax byr. Loks
má geta þess að Sigríður Hagalín
hefur verið boðin á lokahátíðina sem
segir líklega að Börn náttúrunnar
eru a.m.k. í sigtinu.
-----» ♦ ♦---
Samvinnubankinn:
Avöxtunar-
krafa hús-
bréfa lækkar
Verðbréfaviðskipti Samvinnu-
bankans hafa lækkað ávöxtun-
arkröfu húsbréfa um 0,05 pró-
sentustig úr 7,75% í 7,70%, en
það jafngildir 16,3% afföllum
með öllum kostnaði.
Þorsteinn Ólafs, framkvæmda-
stjóri Verðbréfaviðskiptánna, sagði
að framboð væri ekki mikið á hús-
bréfum. Eftirspurnin væri hins veg-
ar mikil og færi vaxandi. Þess
vegna væri ávöxtunarkrafan lækk-
uð enn frekar, en hún hefur verið
á niðurleið að undanförnu.
-----» ♦ ♦---
Leiðrétting
Á forsíðukorti viðskiptablaðs í gær
yfir stærstu hluthafa Flugleiða voru
tvær prentvillur í tölum um hlut Líf-
eyrissjóðs verslunarmanna og Burða-
ráss í félaginu á árinu 1991. Af tölun-
um mátti ráða að hlutur þessara
aðila hefði minnkað lítillega milli
ára. Hið rétta er að bæði árin var
hlutur Burðaráss 34% og hlutur Líf-
eyrissjóðs verslunarmanna 6,1%.
Beðist er velvirðingar á þéásum mis-
tökum.
Kom ekki á óvart að
verkin seldust ekki
- segir Sigríður Ingvarsdóttir, full-
trúi Sotheby’s á íslandi