Morgunblaðið - 20.03.1992, Page 32

Morgunblaðið - 20.03.1992, Page 32
32 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MARZ 1992 Krístín Þóraríns- dóttír - Minning Fædd 4. apríl 1927 Dáin 13. mars 1992 Stína mágkona min er dáin. Ég vissi að hveiju stefndi, en samt sækir að mér sársauki og tómarúm. Upp í huga mér koma myndir af fólki sem var mér svo kært, en er nú farið á sama hátt. Foreldrar, bróðir, systir og núna Stína. Þetta skarð er stórt í ekki stærri fjölskyldu en okkar og sárs- aukafullt. En svona er lífíð, það gefur og það tekur. Við skulum öll hugsa um það og lifa eftir því. Upp í huga mér kemur mynd þar sem við erum öll að dansa í kringum jólatré, afí, amma, böm, tengdaböm og bamaböm. Allir héldust í hendur og sungu „Heims úm ból“ með hátíðasvip. Síðan færðist galsi í leikinn og allir tóku þátt í bamadönsum. Þessi mynd er mér svo dýrmæt. Kynni okkar Stínu hófust þegar hún kom til Reykjavíkur rúmlega tvítug og bjó hjá foreldmm sínum á Guðrúnargötu 1. Við vomm sam- an í herbergi og urðum að láta okkur lynda saman. Það gekk mjög vel, og átti Stína sinn stóra þátt í því. Hún var lagleg, vel gefín og umfram allt vel gerð. Hún hafði sérstakt lag á því að jafna allan ágreining, vildi að fólk sýndi blíðu og sorg á sama hátt og því fyndist sjálfsagt að sýna reiði. Hún var glaðvær með góða kímnigáfu og hlátur sem smitaði frá sér, jafnlynd en gat verið föst á sínum skoðun- um. Gjafmild og sem meira var, hún kunni að þiggja af einlægni. Engan hef ég þekkt sem eins gam- an var að gefa gjöf, sama hvað var, það var eins og maður hefði fært henni dýrgrip. Stína og elsti bróðir minn, Jón J. Jakobsson, húsasmíðameistari, felldu hugi saman og hófu sam- búð. Fyrst leigðu þau íbúð í Skipa- sundi, en ekki leið á löngu þar til þau byggðu sér fallega íbúð í Dala- landi, og þaðan lá leiðin í stórt og glæsilegt raðhús við Fljótasel. Þeg- ar heilsan fór að gefa sig, fluttu þau í Krummahóla þar sem íbúðin var á einni hæð og auðveldara fyr- ir Stínu að athafna sig. En það var sama hvar þau bjuggu, alltaf var hlýlegt og fallegt hjá þeim. Matarboðin höfðingleg. Síðustu árin sem foreldrar mínir lifðu, fóru þau ásamt Stínu og Dadda til Kanaríeyja um vetrar- mánuðina. Hafði mamma oft orð á því hve góð og umhyggjusöm þau hefðu verið, og í síðustu ferð- inni, þegar mamma var orðin veik, hjúkraði Stína henni eins og besta dóttir. En þau litu alltaf á hana sem slíka. Stína og Daddi eignuðust 2 syni, Þórarinn og Jakob, myndardrengij sem voru stolt móður þeirra. I haust sem leið sat ég hjá henni og barst þá talið að börnum okk- ar. Þá sagði Stína með stolti í svip: Það er ég viss um að betri drengi getur enginn hugsað sér, það hefír best komið í ljós í veikindum mín- um hvem mann þeir hafa að geyma. Stína fæddist að Djúpalæk við Bakkafjörð. Þar vSTdýrðlegt veður og góður andi, sagði hún mér. Á heimilinu var mikið lagt upp úr heiðarleika, samheldni og að tala fallega og góða íslensku. Stína er fyrsta systkinið sem fellur frá, en eftir lifa: Svanhildur, Þórdís, Ari og Þorsteinn. Á milli þeirra ríkti sterk samheldni og tryggð, sem sýndi sig best eftir að Stína veikt- ist að það féll enginn dagur úr hjá fjölskyldunum hennar báðum að heimsækja hana. Ég sendi ykkur öllum samúðar- kveðjur og megi minning um góða eiginkonu, móður og systur lifa með ykkur. Ég kveð Stínu með trega sem góðan trúnaðarvin og mágkonu. Blessuð sé minning hennar. Helga Þóra. Mig langar í örfáum orðum að minnast hennar Stínu, konu föður- bróður míns. Mér þótti alltaf vænt um hana og þó að ég muni ekki eftir því þá höfðu hún og Daddi mig í nokkra mánuði þegar ég var lítil. Þó man ég að ég fékk að flauta og stýra (í plati) bflnum hans Dadda. Stína talaði oft um þessa tíma við mig og sagði að hún hefði verið miður sín yfír því þegar ég fór frá þeim, en skömmu síðar eignaðist hún sinn fyrsta son, Þór- arinn, og síðar Jakob. Guð styrki ykkur því ég veit vel hversu góð móðir hún var ykkur, og hversu mikið þið dáðuð hana. Stína var afskaplega hlý kona og trygglynd og umfram allt mjög heiðarleg og í alla staði mjög vönd- uð og vel af Guði gerð. Mér fannst alltaf skemmtilegt að koma í heim- sókn og sátum við í eldhúskróknum og töluðum um lífið og tilveruna. Stína var ekki. sú manngerð sem tranaði sér fram og hreykti sér en hjá henni leyndist þessi líka kímni- gáfa og oft fékk hún mig til þess að veltast um af hlátri. I síðasta skipti sem við hittumst á spítalan- um fórum við í smá ferðalag með rúmið hennar um spítalann og gekk mér svona og svona með rúmið. Þá gat hún hlegið og sýndi hún mér þá hvflík hetja hún var eftir öll þau erfíðu veikindi sem á haná voru lögð í gegnum lífið; að þrátt fyrir það gat hún gert að gamni sínu og hlegið. Ég bið góðan Guð að styrkja Dadda í hans miklu sorg. Daddi stóð við hlið konu sinnar eins og klettur í gegnum lífíð, og er sómi að því hversu vel hann hlúði að henni alla tíð og veit ég, Daddi minn, að þú hefur gert allt sem í þínu valdi stóð til að létta henni lífið. Stína þarf ekki að kveljast leng- ur. Hún er komin í örugga höfn. Ég veit að í dag erum við sem eftir lifum og syrgjum snauðari en himinninn er ríkari. María Haralds. Tíminn er undarlegt fyrirbæri. Það eru í sjálfu sér ekki liðin mörg ár síðan ung stúlka frá Djúpalæk í Skeggjastaðahreppi lagði upp í langa ferð, alla leið til Reykjavíkur til þess að freista gæfunnar í höfuðborginni. Nú er þessi sama stúlka lögð upp í aðra ferð og lengri, yfír móðuna miklu. Tíminn milli þessara tveggja ferða er heil mannsævi, ævi Kristínar Þórarinsdóttur. Ævi Kristínar var vel varið og hún skil- aði merkilegra ævistarfi en margir þeir sem auðugri eru af vegtyllum og veraldlegu ríkidæmi. Hún bjó fjölskyldu sinni fagurt heimili og ól upp tvo syni sem ætíð munu verða móður sinni til sóma og bera fagurt vitni því handbragði sem góður og réttsýnn uppalandi skilar af sér. Kristín varði lífi sínu til að hjálpa öðrum og því virtist það vera vel við hæfi að síðasta bókin sem hún las um ævina skyldi vera Veldi kærleikans eftir japanska rithöfundinn Ayako Miura. Sú bók ijallar einmitt um manneskju sem átti til að bera nægan kærleika til að fóma sér fyrir aðra og nægt hugrekki til að sigrast á ótta sín- um. Það var einmitt.það sem hún Stína gerði með svo ótrúlegum hætti síðustu æviárin, hún sigrað- ist á ótta sínum við dauðann, og þegar hann barði að dyrum, hleypti hún honum inn og mætti Skapara sínum æðrulaus og með gleði í hjarta. Minningamar sem tengjast Stínu era allar skemmtilegar, meira að segja síðustu árin meðan hún var hvað veikust. Það era ekki mörg ár síðan jólaundirbún- ingur hvers árs hófst með því að Stína kom heim til mömmu að baka, og var þá oft glatt á hjalla í eldhúsinu heima og hlátur þeirra bergmálaði um íbúðina þegar þær höfðu gleymt að blanda einhveiju mikilvægu í deigið því þær höfðu haft um svo margt að masa annað en kökuuppskriftir og kard- imommudropa. Þau voru sjö systkinin frá Djúpalæk og fimm sem komust á legg. Þau vora alveg sérstaklega samrýnd, og þá náttúralega eink- um systumar þijár sem era ein- hveijir bestu vinir sem ég hef vitað um meðal systkina. Þeirra sorg er mikil við fráfall góðrar vinkonu og systur og ég veit að söknuður þeirra er meiri en hægt er að ímynda sér. Eiginmenn þeirra, fað- ir minn og frændi, sem heimsóttu Stínu á hveijum degi síðan hún veiktist veit ég að sakna hennar einnig mjög því þeir horfa á eftir góðum vini þar sem Stína er geng- in. Mjög kært var milli Stínu og Ara bróður hennar enda á líkum aldri. Þeir laérleikar jukust eftir því sem áranum fjölgaði. Mikil er sorg hans. Mest er þó sorg sona hennar og eiginmanns og er það von mín að góður Guð megi styrkja þá á þessari sorgarstundu. Tæpri viku áður en Stína andað- ist, fóram við hjónaleysin að heim- sækja hana á Landspítalann. Mikið fannst okkur hún hress og voram sannfærð um það að hún myndi lifa það að sjá litla erfingjann okk- ar sem von er á í júní. Sú ósk okkar rættist ekki því nokkrum dögum eftir hina skemmtilegu heimsókn til Stínu var hún öll. Þó svo að litla krílið fái ekki að sjá hana Stínu frænku sína, vitum við og trúum að hún fylgist með okkur frá sínum nýja samastað og fær að sjá barnið sem hún hlakkaði svo til að sjá. Við biðjum góðan Guð að blessa Stínu frænku við upphaf hinnar miklu langferðar hennar og jafn- framt að hann veiti öllum þeim sem þekktu hana og þótti vænt um hana styrk til að sigrast á sorginni og gleðjast í minningunni um góða konu og góðan vin. Markús og Sigga. Elskuleg systir okkar, Kristín Þórarinsdóttir, andaðist á Landspítalanum 13.. dag þessa mánaðar eftir erfið veikindi. Kristín var fædd á Djúpalæk í Skeggjastaðahreppi og var næst- elst sjö systkina, bama hjónanna Jóhönnu Jónasdóttur og Þórarins Einarssonar. Um tvítugsaldur fluttist hún til Reykjavíkur þar sem hún kynntist eftirlifandi ^igin- manni sínum, Jóni J. Jakobssyni. Saman eignuðust þau þijú böm, en tvö þeirra lifa móður sína. Hversu vel sem við erum undir- búin kemur dauðinn alltaf á óvart. Nú er hún elsku systir okkar horf- in héðan, laus úr sínum líkams- fjötrum og er það huggun harmi gegn að hún hefur loksins fundið hvíldina. Hún var yndisleg systir og við söknum hennar sárt, en mestur er þó missir eiginmanns hennar og sonanna tveggja sem sjá nú á eftir yndislegri eiginkonu og móður. Hún Stína var blíð og góð kona en þó svo ótrúlega hörð af sér. í hinum miklu veikindum hennar fannst okkur stórkostlegt hversu kát hún var og hvað við gátum spjallað og hlegið eins og ekkert væri að. Við trúum því að ástvinir látnir taki vel á móti henni og það er okkar huggun. Fari elsku Stína í friði. Friður Guðs blessi hana. Nú iegg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vðm í nótt. Æ, virzt mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, seo ég sofi rótt. (Foersom - S. Egilsson. Svana og Dísa. Við ritum þessi fáu orð til þess að kveðja móður okkar, Kristínu Þórarinsdóttur, sem nú er fallin frá eftir baráttu við langvinn veikindi. Þessi barátta var af hennar hálfu háð af þvílíkri hugdirfsku að oft kom það fyrir að við bræðumir ræddum okkar á milli hve mikill lífsvilji væri þar að baki. Móðir okkar kenndi okkur það að góð heilsa og virðing fyrir lífínu væri hið verðmætasta af öllu. Það er vissulega mikil huggun að því að vita að þegar dró að leikslokum var hún orðin sátt við það sem koma vildi. Við vitum að nú líður henni vel í faðmi þeirra ættingja og vina sem þegar era komnir yfír móðuna miklu. • Að lokum viljum við þakka öllum þeim sem lögðu móður okkar lið í baráttu sinni. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Reykjalundar og deildar 11E á Landspítalanum. Þórarinn Jóhann Jónsson, Jakob Jörundur Jónsson. Rauði 0% miðinn á KÓPAL málningu er trygging fyrir því að i málningunni séu engin líffæn leysiefni. Málningin er nær lyktarlaus og gæði hennar og verð eru fyllilega sambærileg við aðra málningu. Sýndu lit og málaðu með umhverfisvænni málningu þvi að umhverfisvernd / er mál málaranna. málninghlf -það segir sig sjdlft -

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.