Morgunblaðið - 20.03.1992, Side 46
MORGUNBLAÐIÐ
IÞROTTIR
FOSTUDAGUR 20. MARZ 1992
Ámiog
Broddi í
2. umférð
ÁRNI Þór Hallgrímsson og
Broddi Kristjánsson eru komn-
ir í 2. umferð á opna f ranska
meistaramótinu íbadminton
sem nú stendur yfir í París.
Arni Þór sigraði Femando Silva
frá Portúgal í 1. umferð, 2:15,
15:9 og 15:12 í gær. Broddi átti
að leika gegn Robert Neumann frá
Þýskalandi í 1. umferð, en Þjóðveij-
inn mætti ekki til leiks. Þeir leika
í 2. umferð í dag.
Óli B. Zimsen sigraði þijá and-
stæðinga sína í undarásum á mið-
vikudag og komst í aðaikeppnina
en tapaði þar fyrir Fred D’Amour
frá Kanda, 9:15 og 7:15.
Jón P. Zimsen fékk fyrsta leikinn
gefinn í undanrásum og vann síðan
McAdams frá Bandaríkjunum en
tapaði fyrir Ástralíumanni og er úr
leik.
Frímann Ferdinandsson tapaði
fyrsta leik sínum gegn Bouwel frá
Belgíu, 2:15 og 3:15.
Asa Pálsdóttir sigraði þijá and-
stæðinga sína í undankeppninni og
lék gegn Monique Hoogland frá
Hollandi í 1. umferð í gær og tap-
aði, 0:11 og 6:11.
Bima Petersen vann Szynal frá
Frakklandi, 11:6 og 11:6 í fyrstu
umferð undankeppninnar en tapaði
næsta leik gegn Berg frá Dan-
mörku, 3:11 og 3:11.
Meiriháttar!
Það er alveg meiriháttar að vinna
svona leiki,“ sagði Frirðik
Rúnarsson, hinn 23 ára gamli þjálf-
ari Njarðvíkinga, eftir sigurinn.
„Þetta kemur manni á bragðið og
nú er bara að klára íslandsmótið
líka. Það er of mikið að fá á sig
47 stig í einum hálfleik og því skipt-
um við yfir í vörn sem við höfum
ekki leikið fyrr í síðari hálfleik og
það virtist koma þeim á óvart. Við
höfðum tekið ótímabær skot í fyrri
hálfleik og ákváðum að gefa okkur
meiri tíma í sókninni enda lá okkur
ekker á,“ sagði Friðrik.
„Það var vörnin sem gerði útslag-
ið. Ég réði illa við Rhodes í fyrri
hálfleik en þetta gekk allt betur
eftir að Friðrik lét okkur breyta um
vöm. Það er mjög notaleg tilfinning
að verða bikarmeistari,“ sagði
Rondey Robinson, sem valinn var
besti maður leiksins.
„Þetta datt niður hjá okkur um
miðjan síðari hálfleikinn og það var
sama hvað við reyndum og hvernig
vörn við lékum. Vörnin hjá þeim
gekk upp á sama tíma og hittnin
hjá okkur var léleg og við vorum
allt of staðir,“ sagði Ólafur Rafns-
son þjálfari Hauka.
„Það er í rauninni ekki hægt að
kenna neinu um að við töpuðum,
en vömin hjá þeim í síðari hálfleik
sló okkur út af laginu. Þeir voru
einfaldlega þrepi fyrir ofan okkur
og betri. Þeir verðskulduðu að vinna
og ég óska þeim hjartanlega til
hamingju," sagði Henning Henn-
ingsson fyrirliði Hauka.
Uppskárum eins og við sáðum
sagði Sólveig Pálsdóttir, fyrirliði Hauka, eftiröruggan sigurá ÍBK
Vanda
Sigurgeirsdóttir
skrifar
„VIÐ uppskárum eins og við
sáðum. Það var allt að vinna
hjá okkur og við lékum mjög
yfirvegað," sagði Sólveig Páls-
dóttir, fyrirliði Hauka, eftir
frækilegan sigurá ÍBK íbikar-
úrslitum kvenna í Laugardals-
höll í gærkvöldi. Haukar höfðu
frumkvæðið í leiknum frá fyrstu
mínútu og unnu verðskuldað,
70:54, eftir að staðan f hálfleik
hafði verið 35:27.
Leikurinn fór rólega af stað og
bæðilið þreífuðu fyrir sér.
Leikmenn virkuðu taugaóstyrkir
enda mikið í húfi.
Haukastúlkur náðu
fljótlega 10 stiga
forystu og kom góð-
ur leikur þein-a IBK
í opna skjöldu. Það var aðeins Anna
María Sveinsdóttir sem sýndi sínar
réttu hliðar og gerði hún fyrstu 10
stig ÍBK í leiknum. Haukar höfðu
8 stiga forskot í leikhléi, -35:27.
í seinni hálfleik byijuðu bæði lið-
in af miklum krafti og um tíma var
útlit fyrir að ÍBK ætlaði að jafna,
en allt kom fyrir ekki. Haukar
bættu við þrátt fyrri mikla pressu
og eftir því sem á leikinn leið juku
Haukastúlkur forskotið. ÍBK-stúlk-
ur áttu ekkert svar og má segja
að þær hafi mætt ofjörlum sínum
í þessum leik.
Sigur Hauka var mjög verðskuld-
aður. Hafnarfjarðarstúlkurnar léku
allar mjög vel í vörn og sókn og
var það fyrst og fremst liðsheildin
sem skóp sigurinn. Hittnin var góð
og þær börðust eins og ljón í vörn-
inni. Einnig var vítahittni þeirra
einstök, 34 vítaskot rötuðu rétta
leið en aðeins 4 nýttust ekki. Lið
ÍBK náði sér aldrei á strik í leiknum
og sýndi aldrei sitt rétta andlit. Það
var aðeins Anna María Sveinsdóttir
sem sýndi góðan leik.
Æðislegt
„Þetta var æðislegt," sagði Ing-
var S.jónsson, þjálfari Hauka, sem
var í skýjunum eftir sigur liðs síns.
„Stelpurnar sýndu algjöran toppleik
og okkur tókst það sem við ætluðum
Morgunblaðiö/Einar Falur
Haukastúlkur hampa hér bikarnum eftir sigurinn á ÍBK í bikarúrslitaleiknum í gær. Frá vinstri: Þorbjörg Guðmunds-
dóttir, Hildur Þorsteinsdóttir, Hafdís Hafberg, Guðbjörg Norðfjörð og Hanna Kjartansdóttir.
okkur. Við lékum góða vörn og átt-
um einnig góðan sóknarleik. Að
gera 70 stig gegn IBK í úrslitaleik
segir allt um það. Vítahittnin var
frábær og hún skipti miklu máli í
þessum leik. Stelpurnar eiga þetta
númer eitt tvö og þrjú og ég er
mjög ánægður.“
„Það var kominn tími til að við
myndum vinna. Við höfum verið
að tapa fyrir Keflavík undanfarin
ár en nú ætluðum við okkur sigur.
Fjölmiðlar voru búnir að ákveða
fyrirfram að við myndum tapa.svo
við höfðum allt að vinna. Ég bjóst
við jafnari leik gegn ÍBK en það
var frábært að vinna,“ sagði Haf-
dís Hafberg, sem átti stórleik og
var útnefnd maður leiksins.
„Það var mikil pressa á steipurn-
ar fyrir leikinn því allir reiknuðu
með öruggum sigri IBK,“ sagði
Sigurður Ingimundarson, þjálfari
ÍBK. „Þær þoldu ekki pressuna,
gerðu klaufaleg mistök og náðu í
raun aldrei að komast inn í leikinn.
Ekki má gleyma því að Haukar
spiluðu vel og vítanýtingin hjá þeim
var ótrúlega góð. Haukastúlkur eru
vel að sigrinum kornnar."
„Við áttum greinilega ekki að
vinna þennan leik. Ekkert gekk upp
hjá okkur og hittnin var mjög lé-
leg,“ sagði Anna María Sveinsdótt-
ir, fyrirliði ÍBK. „Mikil taugaspenna
einkenndi leik okkar, allir reiknuðu
með að við myndum vinna og press-
an var of mikil. Við erum með betra
lið en þetta var ekki okkar dagur.
Við náðum rétt að klóra í bakkann
í lokin en það var of seint. Haukarn-
ir áttu góðan leik og ég óska þeim
innilega til hamingju.“
Haukar- IBK 70:54
Laugardalshöll, bikarúrslitaleikur kvenna,
fimmtudaginn 19. mars 1992.
Gangnr leiksins: 2:0, 6:4, 12:10, 21:10,
29:21, 35:27 40:36, 49:39, 65:41, 70:54.
Stig Hauka: Hanna Kjartansdóttir 22,
Hafdís Hafberg 15, Eva Havlekova 11,
Ásta Óskarsdóttir 10, Guðbjörg Norðfjörð
9, Sólveig Pálsdóttir 3.
Stig ÍBK: Anna Maria Sveinsdóttir 24,
Olga Færseth 13, Björg Hafsteinsdóttir 8,
Guðlaug Sveinsdóttir 2, Svandís Gylfadóttir
2, Elínborg Herbertsdóttir 4, Katrín Eiríks-
dóttir 1.
Dómarar: Jón Otti Ólafsson og Kristinn
Albertsson.
Mogunblaðið/Einar Falur
Friðrik Ingi Rúnarsson þjálfari UMFN, sem er aðeins 23 ára, hefur náð frábærum árangri með Njarðvíkurliðið. Í gær
sýndi hann mikla kænsku er hann beið með að skipta um vamaraðferð þar til eftir leikhlé. Hér hampar hann bikarnum
eftirsótta í leikslok.
ÚRSLIT
Skíði
Heimsbikarinn: Crans Montana, Sviss
Risasvig kvenna:
1. Carole Merle (Frakklandi).....1:30.17
2. Merete Fjeldavli (Noregi)....1:30.97
3. Zoe Haas (Sviss)..............1:31.30
4. Eva Twardokens (Bandar.).....1:31.48
5. Sylvia Eder (Austurríki).....1:31.49
6. Traudl HaecherGavet (Þýskai.). 1:31.56
7. Katja Seizinger (Þýskai.)....1:31.59
8. Diann Roffe (Bandar.).........1:31.62
9. Stefanie Schuster(Austurríki)... 1:31.72
10. ReginaHaeusl (Þýskal.).......1:31.82
19. Petra Kronberger (Austurríki) 1:32.17
20. Julie Parisien (Bandar.) 1:32.20
Knattspyrna
UEFA-keppnin, 8-liða úrslit
Tórínó, ÍLaliu:
-Tórínó - BK 1903 (Danmörku)...1:0
■Tórínó vann samanlagt 3:0 og heldur
áfram undanúrslit keppninnar.
Frakkland
PSG-Caen.......................3:1
(Ricardo, Ginola 2) - (Dumas).
FELAGSLIF
Herrakvöld UBK
Herrakvöld knattspyrnudeildar
Breiðabliks verður haldið í Félags-
heimili Kópavogs föstudaginn 20.
mars. Húsið opnar kl. 19. og verður
Össur Skarphéðinsson aðalræðu-
maður kvöldsins.
FRJALSAR
Vídavangshlaup
Kópavogs
Víðavangshlaup Kópavogs verður
haldið á laugardaginn, 21. mars,
og hefst kl. 14 við Vallargerðisvöll.
Skráning hefst kl. 13.15 á staðnum.
Fullorðnir hlaupa 6 km, drengir og
meyjar 3 km.
Tkvöid
Fimleikar
Islandsmótið í fimleikum hefst í Laug-
ardalshöll í kvöld kl. 20. Mótinu verð-
ur síðan framhaldið á morgun og
sunnudag.
Handknattleik
2. deild karla:
Akureyri: Þór-ÍR..........kl. 20.30
Blak
1. deild karla:
KA-húsið: KA-HK..............kl. 20
KORFUKNATTLEIKUR / BIKARURSLIT
BADMINTON