Morgunblaðið - 31.03.1992, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. MARZ 1992
21
nýlega og reynist mjög vel.
d) Tvær nýjar jarðstöðvar eru
nú í byggingu hjá Póst- og síma-
málastofnun fyrir Alþjóðaflugþjón-
ustuna og er stefnt að því að þær
verði tilbúnar í október 1992. Ónn-
ur þeirra er af gerðinni INTELSAT
og er fyrir fjarskipti milli flug-
stjórnarmiðstöðvar í Reykjavík og
á Grænlandi. Hin er af gerðinni
EUTELSAT er fyrir fjarskipti við
ratsjárstöðina í Færeyjum. Einnig
munu þessar jarðstöðvar nýtast
sem varasambönd fyrii- jarðstöðina
Skyggni.
e) Aiþjóðaflugþjónustan mun að
öllum líkindum leigja rásir í hinum
fyrirhugaða ljósleiðárastreng milli
Norður-Ameríku og Evrópu. Því er
mjög mikilvægt að hann verði
tengdur til íslands.
Framkvæmdir hjá Veðurstofu:
Hjá Veðurstofunni er í undirbún-
ingi endurnýjun og stækkun tölvu-
kerfis til móttöku og úrvinnslu
veðurgagna. Kerfið mun veita mik-
ilvægar upplýsingar fyrir alþjóða-
flugið. Af framangreindu er ljóst
að margskonar hátæknibúnaður er
settur upp af innlendum verktökum
og stofnunum fyrir Alþjóðaflug-
þjónustuna. Með innlendu vinnu-
framlagi skapast gjaldeyristekjur
og auk þess mikilvæg reynsla og
þekking sem er grundvöllur að
ýmsum öðrum verkefnum á öllum
sviðum þjóðlífsins.
Lokaorð
íslendingar hafa orð á sér fyrir
þekkingu og dugnað á sviði alþjóða
flugmála. Eg hef vikið að no'kkrum
dæmum um athafnasemi flug-
rekstraraðila og fleiri á þessu sviði
og lýst sérstaklega alþjóðaflug-
þjónustunni. Hin ötula uppbygging
alþjóðaflugþjónustunnar sem nú á
sér stað er grundvöllur að tilvist
þessarar þjónustu hér á landi í
framtíðinni. Ekki er sjálfgefið að
íslendingar haldi þjónustunni nema
að gætt verði fjárhagslegrar hag-
kvæmni í rekstri og framkvæmdum
auk markvissrar stjórnunar við
veitingu þjónustu af hæsta gæða-
flokki að því er varðar starfslið og
tæknibúnað. Á næstu árum verða
teknar mikilvægar ákvarðanir um
flugstjórnarsvæði á hnettinum.
Með því að halda rétt á málum
getum við horft með bjartsýni fram
á veginn um framtíð alþjóðaflug-
þjónustunnar.
Höfundur er varaflugmálastjóri
og rafmagnsverkfræðingur.
%•*
Abendingar frá
LÖGREGLUNNI:
Umferðin og fólkið
Vegna þess hve umferðin er eðlilegur þáttur
lífs okkar veitum við henni minni athygli dags
daglega en ástæða þykir til. Við veitum henni
svo litla athygli að fáir virðast gera sér grein
fyri'r mögulegum afleiðingum ef út af ber. A síð-
asta ári slasaðist 321 einstaklingur í umferðinni
í Reykjavík. Enginn þessara einstaklinga ætlaði
sér að slasast eða var það ætlun annarra að valda
slysi á þeim. Eitt víxlspor í dagsins önn eða leik
markaði þó einhveijum þessara einstaklinga
óvænta lífsstefnu. Lífsstefnu sem enginn þeirra
reiknaði með, en var þó allt í einu og skyndilega
að bláköldum veruleika. Til þess að draga úr lík-
um á slysum er nauðsynlegt að vita hvað maður
er að gera hveiju sinni og hvers vegna.
Umferðin er ekkert einangrað fyrirbæri. Hún
er hluti af miklu stærra dæmi, sem snýst um
almennan skilning okkar á umhverfinu. Þetta er
spurning um virðingu fyrir okkur sjálfum sem
og virðingu fyrir öðrum. T.d. eru til einstaklingar
sem virðast leggja sig fram við að aka allt of
hratt, þrátt fyrir að þeir þekki lögin, sjái umferð-
armerkin og geti auðveldlega lesið af hraðamælin-
um. Þeir aka ölvaðir, jafnvel dauðadrukknir, þó
að þeir viti að slíkt er bannað, stórhættulegt og
ámælisvert í alla staði. Svona má lengi telja. Ef
þetta er ekki virðingarleysi fýrir sjálfum sér og
öðrum, hvað er þá virðingarleysi?
Það er allt annað er ánægjulegt að lenda í
þeirri aðstöðu að slasa fólk. Sá sem það gerir
bíður þess stundum aldrei bætur, ekki frekar en
hinn sem slasast. Þessari vitneskju hefur verið
reynt að koma inn í kollinn á fólki, en með tak-
mörkuðum árangri þó. Óaðgæsla er aðalorsök
flestra umferðarslysa. Verst er að allt of margir
virðast ekki þurfa að reka sig hastalega á til
þess að geta skilið einfalda hluti.
Umferðarmálin eru þess eðlis að auðvelt á að
vera sæmilega greindum manni að skilja þýðingu
þeirra fyrir hann sjálfan sem og aðra. Einstakling-
arnir mynda heildina, heildin skapar menning-
una. Umferðarmenningin hvetju sinni endurspegl-
ar þroskastig einstaklinganna sem mynda heild-
ina. Eftir því sem þroskastigið er hærra, því betri
, umferðarmenning.
i möguleikar
fyri r þig í kas kótryggingum
Nú bjóðast þér þrjár nýjar og mismunandi kaskótryggingar hjá VÍS. Þarfir bifreiðaeigenda fyrir kaskótryggingar
eru mismunandi og loksins getur þú valið tryggingu sem hentar þér, bæði hvað varðar þótasvið og verð.
MFERÐAR
AL-KASKO
Ný og víðtækari
kaskótrygging
Inn á bótasvið gömlu kaskó-
tryggingarinnar hefur verið bætt
eftirfarandi áhættuþáttum:
• Skemmdarverk
• Björgunarkostnaður
• Akstur crlendis
• Víðtækari akstursheimildir
• Nýjar reglur um útborgun bíla
• Bætur vegna flóða
Bónusflokkum hefur verið fjölgað
og eru þeir nú fjórir: 10%, 20%, 30%
og 40%. Góðir ökumenn falla nú minna
í bónus við tjón. Þessa nýju kaskó-
tryggingu býður VIS á óbreyttu iðgjaldi.
A S K O
Ný trygging sem
er sniðin að umferð
í þéttbýli
Umferðartrygging bætir tjón sem verða
vegna árekstra og áaksturs. Bónus er
ávallt sá saitii og í ábyrgðartryggingu
bifreiða og getur orðið allt að 70%.
Þessi trygging er mun ódýrari en
venjuleg kaskótrygging. Eigináhætta í
þessari tryggingu er fóst, nú kr. 48.800.
Dærni um iðgjald fyrir Umferðarkaskó
miðað við 70% bónus.
Lítill bíll Meðalbíll Stór bíll
8.900 11.532 12.493
K A S K O
Nýjung fyrir þá sem
aka aðallega á
þjóðvegum landsins
Vegakaskó er nýjung fyrir þá sem aka
aðallega á þjóðvegum landsins en lítið
í þéttbýli. Tryggingin bætir tjón vegna
veltu, bruna, foks, hruns og hraps.
Vegakaskó er nýr og ódýr valkostur
fyrir bifreiðaeigendur.
Iðgjald er óháð bónus. Eigináhætta í
þessari tryggingu er föst, nú kr. 48.800.
Dæmi um iðgjald fyrir Vegakaskó:
Lítill bíll Meðalbíll Stór blll
8.688 11.256 12.195
-Ȥ
Já takk, ég óska eftir nánari upplýsingum
um nýju kaskótryggingarnar
Klipptu þennan miða út og sendu Vátryggingafélagi íslands hf. Þá færð þú upplýsingabækling
um nýju kaskótryggingamar sendan um hæl.
'ér
Nafn
Kennitala
Heimilisfang
Sveitarfélag -
Sími
VATRYGGINGAFELAG ISIANDS HF
-þar sem tryggingar snúast um fólk
ÁRMÚLI3, REYKJAVÍK, PÓSTHÓLF 8400, SÍMI60 50 60