Morgunblaðið - 31.03.1992, Page 50
50
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. MARZ 1992
félk í
fréttum
Eldri félagar gæða sér á afmælistertunni.
Morgunblaðið/Þráinn Bjarnason
Blásið á 80 afmælis-
kerti í Staðarsveit
Ungmennafélag Staðarsveitar
bauð öllum hreppsbúum til
hátíðarfundar í félagsheimilinu á
Lýsuhóli fyrir nokkru í tilefni 80
ára afmælis félagsins. Um 50
manns sóttu fundinn, bæði ungir
og aldnir.
Margt bar á góma á fundinum.
Rifjuð voru upp ýmis atriði úr störf-
um félagsins á liðnum árum. Því
miður eru takmarkaðar heimildir
til um sögu félagsins frá fyrri tíð
vegna þess að bækur þess brunnu
árið 1961 þegar eldingu sló niður
í íbúðarhúsið í Neðri-Hól í Staðar-
sveit.
Ákveðið var á fundinum að
stefna að því að halda veglega upp
á þessi tímamót í sögu félagsins
með samkmu laugardaginn 20. júní
nk. og bjóða öllum burtfluttum fé-
lögum til þeirrar hátíðar. Jafnframt
fari fram vígsla nýs íþróttavallar
sem Ungmennafélag Staðarsveitar
hefur látið gera við félagsheimilið
á Lýsuhóli.
Að fundinum loknum var öllum
viðstöddum boðið til kaffidrykkju.
Á borðum var meðal annnars fagur-
lega skreytt afmælisterta með 80
kertum og nákvæm eftirlíking af
fánamerki Ungmennafélagsins,
listilega unnin af nokkrum félags-
konum. Yngstu fundargestirnir
fengu að sjálfsögðu það hlutverk
að blása á kertin.
Stjórnendur félagsins beina þeim
tilmælum til gamalla Staðarsvei-
tunga og annarra að fá að vita um
ef þeir eiga í fórum sínum heimild-
ir um sögu og starfsemi félagsins
eða gamlar myndir frá fyrri tíð.
Formaður Ungmennafélags Staðar-
sveitar er Margrét Björk Björns-
dóttir, Böðvarsholti. ,
- Þ.B.
FÆÐINGAR
Mágkonur fæddu barn sömu nóttina
Tvær mágkonur, Kristín Björk
Johannsdóttir og Sigríður
Margrét Gunnarsdóttir, fæddu
nýlega hvor sína dótturina sömu
nóttina á fæðingadeild Sjúkrahúss
Suðurlands.
Litlu telpurnar, sem eru frum-
burður mæðranna, fæddust 18.
mars með þriggja tíma millibili,
klukkan 1.17 og 4.28. Sigríður
Margrét fæddi á undan en hennar
maður er Helgi Jóhannsson bróðir
Kristínar Bjarkar en hennar mað-
ur er Guðmundur Björgvin Gylfa-
son.
Telpurnar eru mjög svipaðar að
stærð, dóttir Sigríðar Margrétar
var 13 merkur og 51 sm en dóttir
Kristínar Bjarkar 12 merkur og
50 sm. Báðar fjölskyldurnar eru
búsettar á Selfossi.
Ljósmæður á sjúkrahúsinu
segja þetta einstæða tilviljun og
vita ekki til að slíkt hafí gerst
áður. Á síðastliðnu ári fæddust
140 börn á fæðingadeild sjúkra-
hússins, 81 drengur og 59 stúlk-
ur. Það sem af er þessu ári hafa
fæðst 24 börn sem er það sama
og í fyrra. Konur sem eiga börn
á sjúkrahúsinu eru af öllu Suður-
landi.
Sig. Jóns.
Cterkurog
k j hagkvæmur
auglýsingamiöill!
LUXEMBORG
íslendingar í Lúxemborg blóta þorra
Samkvæmt venju blótuðu íslend-
ingar í Lúxemborg þorra. Eru
þorrablót orðin fastur liður á dag-
skrá Félags íslendinga i Lúxem-
borg, en stjórn félagsins annast
undirbúning og skipulagningu
mannamóta af þessu tagi.
Til að sjá um matinn komu mat-
reiðslumennirnir Sigurður Sumar-
liðason og Gísli Kærnested frá ís-
landi og var matur mikill og góður.
Um skemmtiatriði kvöldsins sá
Leikklúbburinn Spuni. í tilefni þess
að Félag íslendinga í Lúxemborg
heldur upp á 20 ára afmæli sitt á
árinu setti leikklúbburinn saman
nokkurs konar annál íslendinga-
byggðar í Lúxemborg. Hlaut verkið
nafnið í gegnum tíðina. Var víða
komið við og rifjað upp ýmislegt
spaugilegt sem upp hefur komið.
Til að leikstýra þessari uþpsetningu
fékk Leiklúbburinn Spuni Hörð
Torfason til liðs við sig.
Að afloknum skemmtiatriðum
lék hljómsveitin Sambandið fyrir
dansi fram á nótt við góðar undir-
tektir Islendinganýlendunnar í Lúx-
emborg.
Morgunoiaoio/öigurour jonsson
íristín Björk Jóhannsdóttir og Sigríður Margrét Gunnarsdóttir með
læturnar í faiurinu.
COSPER
Komdu, þú getur ekki staðið þarna í allt kvöld.
Frá leikverkinu í gegnum tíðina
sem Leikklúbburinn Spuni í Lúxemborg setti upp.
VAKORTALISTI
Dags. 31
5414
5414
5414
5414
5414
5421
5422
5412
5221
3.1992. NR. 76
8300 0362 1116
8300 2890 3101
8300 2717 4118
8300 2772 8103
8301 0407 4207
72**
4129 7979 7650
8309 0321 7355
0010 9115 1423
| Ofangreind kort eru vákort,
sem takaberúrumferð.
VERÐLAUN kr. 5000.-
fyrir þann, sem nær korti
og sendir sundurklippt til
Eurocards.
KREDITKORTHF.
Ármúla 28,
108 Reykjavík, sími 685499
VISA
269
31.3 1992
VAKORT
Eftirlýst kort nr.:
4507 4300
4543 3700
4543 3700
4543 3700
4543 3700
4548 9000
4548 9000
4548 9000
4548 9000
0014
0003
0005
0007
0008
0033
0035
0033
0039
1613
6486
1246
3075
4965
0474
0423
1225
8729
Afgreiöslufólk vinsamlegast takiö ojangreind
kort úr umferö og sendiö VISA íslandi
sundurklíppt.
VERBLAUN kr. 5000,-
fyrir aö klófesta kort og visa á vágest.
I - UMIUIJ.U.I
Höfðabakka 9 • 112 Reykjavlk
Sími 91-6/1700