Morgunblaðið - 01.04.1992, Page 4

Morgunblaðið - 01.04.1992, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. APRÍL 1992 Borgarráð: Breyttur Austurvöllur og 173 bílastæði neðanjarðar TILLAGA borgarskipulags um breytingar á Austurvelli og aðlægum götum hefur verið lögð fram í borgarráði Reykjavíkur. Þar er gert ráð fyrir að stækka Austurvöll og að stytta Jóns Sigurðssonar for- seta, verði færð til móts við inngang Alþingishússins, gönguleiðum verði fjölgað inn á völlinn og myndum af landvættum landsins verði komið fyrir í stéttina í hornum vallarins. Þá var lögð fram tillaga frá Stefáni Hermannssyni aðstoðarborgarverkfræðingi, um bíla- stæðahús eða kjailara fyrir 173 bíla undir Austurvelli og er kostnað- ur lauslega áætlaður 477 milljónir króna. Afgreiðslu tillagnanna var frestað. í greinargerð með tillögu að breytingum á Austurvelli segir að möguleikar á nýtingu vallarins, Vallarstrætis og Thorvaldsens- strætis aukist og tengi svæðið og miðbæinn. Gert er ráð fyrir hellu- lögðum göngugötum með mögu- leika á gleryfirbyggingum við Vall- arstræti frá Pósthússtræti að Ing- ólfstorgi. Fram kemur að Austurvöllur stækkar og að miðja vallarins verð- ur færð til móts við mitt Alþingis- hús og tengd með breiðum stíg að dyrum þess. Lagður verði hring- laga gangstígur er tengir alla göngustíga vallarins saman. í hom Austurvallar verða myndir af land- vættum landsins lagðar í stéttina. Gert er ráð fyrir að akrein Kirk- justrætis framan við Alþingishúsið og Dómkirkju verði aðgreind með kantsteini. Við Pósthússtræti og Thorvaldsensstræti verða gróður- sett tré og tijágróður verður um- hverfis styttu Jóns Sigurðssonar. Skipulagsnefnd samþykkti til- löguna samhljóða en hún gerir ráð fyrir tæplega 400 fermetra stækk- un Austurvallar og að Thorvald- sensstræti og Vallarstræti verði göngusvæði. Fram kemur að skipu- lagsnefnd taki ekki afstöðu til hug- myndar um staðsetningu og út- færslu landvætta og er málinu vís- að til umhverfísráðs. Guðrún Jónsdóttir fulltrúi Nýs vettvangs í skipulagsstjórn lagði fram bókun þar sem hún lýsir sig samþykka tillögunni að frátöldu glerhúsunum. Þau skerði Austur- völl og auki fjarlægð milli húsa og vallar, falli illa að umhverfinu og séu dýr. Þá finnst henni ósmekk- legt að ganga á landvættunum. í tillögu aðstoðarborgarverk- fræðings að bílastæðum undir Austurvelli sem unnin er að tilhlut- an borgarstjóra vegna fyrirhugaðra Tillaga Borgarskipulags að breyttum Austurvelli. endurnýjunar gatna og gangstíga kemur fram, að koma má fyrir 173 bílastæðum á einni hæð undir vell- inum. Er þá miðað við að útlínur bílageymslunnar verði 9 metrum frá húsum sunnan Austurvallar en 7 metrum frá öðrum nærliggjandi húsum. Kostnaður er lauslega áætlaður 477 milljónir króna eða 2,76 milljónir fyrir hvert stæði. Ef samþykkt yrði að hækka Austur- völl um 0,5 metra yfir húsinu mætti lækka þennan kostnað í rúmlega 400 milljónir. Þá segir að tæknilega sé mögulegt að byggja tvær hæðir undir Austurvelli og er kostnaður sagður álíka á hvert stæði, en byggingartími myndi lengjast og rask aukast. Verktími fyrir eina hæð er lauslega áætlaður 9 til 12 mánuðir. VEÐUR VEÐURHORFUR I DAG, 1. APRIL YFIRLIT: Á Grænlandssundi er dálítið lægðardrag, sem hreyfist norð- austur, en yfir landinu er kyrrstæður hæðarhryggur. SPÁ: Hæg breytileg eða suðvestlæg átt. Smá él norðvestanlands en annars þurrt. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á FIMMTUDAG OG FÖSTUDAG: Hæg vestlæg átt og fremur svalt, smáél á stöku stað um vestanvert landið en annars þurrt. Svarsími Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600. o Heiðskírt / / / f f f f f Rigning Léttskýjað * / * * / f * f Slydda Hálfskýjað * * * sjc * * * * Snjókoma Skýjað Alskýjað Skúrír Slydduél Sunnan, 4 vindstig. Vindórin sýnir vindstefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig.^ 10° Hitastig y súid = Þoka 5tig> VEÐUR VIÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma Akureyri Reykjavík hiti 1 4 veður skýjað skýjað Bergen 4 skýjað Helsinki 1 úrkoma Kaupmannahöfn 5 skýjað Narssarssuaq 3 skýjaO Nuuk h-8 léttskýjað Ósló 3 úrkoma Stokkhólmur 3 skýjað Þórshöfn 4 skýjað Algarve 14 háifskýjað Amsterdam 10 alskýjað Barcelona 12 hálfskýjað Berlín 12 hálfskýjað Chicago vantar Feneyjar 10 rigning Frankfurt 13 skýjað Glasgow 4 rigning Hamborg 11 skýjað London 8 skúr Los Angeles 12 skýjað Lúxemborg 6 skýjað Madríd 7 alskýjað Malaga 16 hálfskýjað Mallorca 13 skýjað Montreal 1 alskýjað New York vantar Orlando vantar París 8 skýjað Madeira 18 skýjað Róm 16 þokumóða Vín 16 skýjað Washlngton vantar Winnipeg +3 alskýjað IDAGkl. 12.00 HeimikJ: Veöur$tofa í$land$ (Byggt á veðurspá kl. 16.15 » gær) Kent Kirk sjávarútvegsráðherra Dana: EB aðild þýðir ekki óheftan aðgang að íslenskum miðum KENT Kirk sjávarútvegsráðherra Dana segir að aðild íslands að EB feli ekki í sér að önnur ríki bandalagsins fengju sjálfkrafa óheftan aðgang að íslenskum fiskimiðum. Ráðherrann telur að misskilnings um þetta hafi gætt meðal íslcnskra stjórnmálamanna í umræðum um fiskveiðistefnu EB. Kent Kirk lét þessi orð falla í við- tali í sjónvarpsfréttum á múnudags- kvöldið. Hann sagði að það væri ekki á rökum reist að sjávarútvegs- stefna EB þýði að togarar bandalags- þjóðanna fengju sjálfkrafa verulegar veiðiheimildir við Island. „Ég skil vel að íslendingar líti þannig á málið en sú skoðun byggir ekki á stefnu EB í raun,“ sagði Kirk. „Eitt grundvall- aratriði fiskveiðistefnu EB er svo- nefndur innbyrðis stöðugleiki. Þegar Portúgalir og Spánveijar gengu í EB fengu þeir ekki sjálfkrafa veiði- heimildir í Norðursjó. Þeir fengu ákveðna kvóta við Jótland og Eerma- sund en þeim leyfðist ekki að spilla þar innbyrðis stöðugleika." Aðspurður. um hvort ísland gæti gerst aðili að Evrópubandalaginu án þess að eiga aðild að fiskveiðistefnu þess, líkt og Bretland stendur utan við hina félagslegu vídd EB taldi Kirk svo ekki vera. „Ég tel ekki að EB muni þróast þannig að aðildar- löndin geti valið um það hveiju þau vilja taka þátt í og hveiju ekki,“ sagði hann. Reykjavíkurhöfn 75 ára: Tillaga um stofn- un sjóminjasafns TILLAGA um stofnun og rekstur sjóminjasafns í tilefni 75 ára afmæl- is Reykjavíkurhafnar, hefur verið lögð fram í borgarráði. Var Mark- úsi Erni Antonssyni borgarsljóra falið að kanna möguleika á stofnun safnsins. Að sögn Vilhjálms Þ. Vilhjálms- sonar fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í hafnarstjórn, en hann lagði tillöguna fram þar, er hugsanlegt, að sam- vinna verði um stofnun og rekstur safnsins milli Reykjavíkurhafnar, borgarssjóðs og annarra áhugaaðila, fyrirtækja og einkaaðila. „Það er kominn tími til að höfuðborgin sem mikið hefur byggt á sjósókn og góðri hafnaraðstöðu, komi sér upp sjóminj- asafni eins og mörg minni sveitarfé- lög hafa þegar gert með eftirtektar- verðum hætti,“ sagði hann. „Það eru að fara forgörðum ýmsir menningarsögulegir munir tengdir sjósókn. Við viljum gjarnan að áhugasamir aðilar standi að þessu með okkur en ég legg áherslu á að safnið þarf helst að vera á hafnar- svæðinu eða í næsta nágrenni og tengjast miðborginni. Fyrst og fremst er verið að tala um safn muna sem tengjast útgerð, sjósókn og fiskvinnslu en einnig að koma upp vísi að sjávardýrasafni lifandi fiska.“ Sagði hann að hugsanlega mætti nýta hús sem eru til staðar á hafnar- svæði gömlu hafnarinnar og nefndi Faxaskála að hluta, jarðhæð Toll- hússins eða vöruskemmu Skipa- útgerðar ríkisins. -----» ♦ ♦----- Borgarráð: 15 milljónir kr. til níu safnaða STJÓRN Kirkjubyggingasjóðs Reylyayíkur hefur skipt 15 miHj- óna króna framlagi Reykjavíkur- borgar á milli níu safnaða í borg- inni og koma 6 milljónir í hlut Grafarvogssóknar. Framlag til Áskirkju er 700 þús., til Bústaðakirkju 700 þús., til Breið- holtskirkju 1,5 millj., til Dómkirkju 1,5 millj., til Fríkirkju 1 millj., tii Langhollskirkju 700 þús., til Laugar- neskirkju 1,1 millj. og til Seljakirkju 1,8 millj.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.