Morgunblaðið - 01.04.1992, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. APRIL 1992
21
ílalski leikstjórinn Gabríele Salvatore með Ósk-
arsverðlaunin fyrir bestu erlendu myndina.
Innanlandsflug og ferjur:
Afengisleyfi fyrir
neðan allar hellur
- segir áfengisvarnaráðunautur
„Eflaust skiptir það miklu að Medi-
terraneo er komin í almenna dreif-
ingu nú þegar, hefur verið sýnd
hérlendis í kvikmyndahúsum og
trúlegt að Miramax, sem er stað-
settur í New York, hafi unnið mjög
grimmt að smölun meðal aka-
demíufélaga þar. En ég tel að fyr-
ir okkur íslendinga
sé það nægur sigur
að hafa náð svona
langt. Fyrír mánuði
vissi ekki nokkur
maður í kvik-
myndagerð hér að
kvikmyndir _ væru
gerðar á íslandi.
Tilnefning Barna
náttúrunnar veldur
því að ekki er að-
eins kominn upp
áhugi hér á landi
og þjóð, heldur
verður ekki hjá því
komist eftirleiðis
að taka okkur al-
varlega sem kvik-
myndaþjóð. Hér
hefur verið brotinn
ís með eftirminni-
legum hætti. Þegar
einn íslenskur kvik-
myndagerðarmað-
ur tekur eitt skref
af þessu tagi áfram
er það hálft skref
fyrir alla hina, —
jafnvel heilt.“
Siguijón lagði sér-
staka áherslu á
nauðsyn þess að
íslenskir ráðamenn
áttuðu sig á þýð-
ingu þeirrar land-
kynningar sem
áunnist hefði. Ef
þeim fjármunum sem varið er til
landkynningar erlendis væri bætt
■ við þá smámuni sem ríkið ver til
kvikmyndagerðar myndi það skila
sér margfalt til baka, — kannski
ekki strax , heldur á fimm til tíu
árum. Islenskir kvikmyndagerðar-
menn hafa með eigin frumkvæði
fært erlent fjármagn inn í landið.
Það sama verður ekki sagt um lax-
eldi eða loðdýrarækt. Siguijón
kvaðst telja brýna nauðsyn á að
þessum árangri væri nú fylgt eftir
með sameiginlegu dreifingarátaki
fyrir íslenskar kvikmyndir erlendis
sem til að byija með ætti að bein-
ast að sjónvarpssölu fremur en
kvikmyndahúsi. „íslenskir kvik-
myndaframleiðendur eigá að koma
sér upp sameiginlegri dreifingarað-
stöðu erlendis: söluaðferðir nor-
rænu kvikmyndastofnananna eru
vægast sagt fornfálegar: Markaðs-
setning er orðin svo sérhæfð at-
vinnugrein í kvikmyndaheiminum
að við getum ekki látið hana lönd
og leið.“
Hilmar Oddsson kvikmyndaleik-
stjóri sem staddur er hér í Los
Angeles við gerð heimildarmyndar
um gildi íslenskrar kvikmynda-
gerðar sagði í samtali við Morgun-
blaðið:
„Það kom mjög á óvart að þessi
ítalska mynd skyldi verða fyrir
valinu. En ég vona að þetta sé hin
ágætasta mynd. Maður áttar sig
ekki alveg á tilfinningunum vegna
þess að sigurvégarinn var sá sem
við vissum ekki að við værum að
keppa við. En í rauninni var Frið-
rik Þór búinn að sigra fyrirfram:
Að lenda í hópi fimm bestu mynda
í heimi að mati þessarar akademíu
er geysilegur sigur fyrir okkur.
Friðrik Þór Friðriksson verður
nú í vikulokin viðstaddur sýningar
á Börnum náttúrunnar á hátíð
ungra leikstjóra í Lincoln Center í
New York sem þykir mikill heiður
og skiptir míklu að myndin fær
sjálfkrafa umsögn í New York
Times.
ÓLAFUR Haukur Árnason, áfeng-
isvarnaráðunautur, segir að
ákvæði í frumvarpi til breytinga
á áfengislögum, um að dómsmála-
ráðlierra sé heimilt að veita leyfi
til áfengisveitinga um borð í far-
þegaskipum og flugvélum í innan-
landsflugi, sé fyrir neðan allar
hellur og gangi þvert á þá stefnu,
sem mótuð sé í tillögum að frum-
varpi til áfengisvarnalaga. Fram-
kvæmdastjóri farþega- og bíla-
ferjunnar Akraborgar segir að
ekki sé ljóst nú hvort óskað yrði
leyfis til áfengisveitinga um borð
í skipinu, verði frumvarpið að lög-
um. Talsmaður Flugleiða segir að
félagið telji mjög jákvætt að hafa
þennan möguleika að nýta, þegar
fram í sæki.
„Það er fyrir neðan allar hellur ef
á að leyfa áfengisveitingar um borð
í flugvélum í innanlandsflugi og í
farþegafeijum," sgði Ólafur Haukur.
„Það er vert að benda á, að reyking-
ar hafa verið bannaðar í innanlands-
flugi, enda flugferðir í mesta lagi ein
klukkustund. Það er því stefnt í þver-
öfuga átt með því að heimila áfengis-
veitingar. Fræðsla og forvarnir í
skólum hafa lítið að segja ef sjálfur
dómsmálaráðherra sýnir slíkt for-
dæmi. Það skýtur líka skökku við,
ef á enn að auka aðgengi fólks að
áfengi hér á landi. í Bandaríkjunum,
svo dæmi sé nefnt, hefur lögaldur
til áfengiskaupa verið hækkaður í
21 ár og þar sjá menn þess strax
merki í færri slysum ungmenna. Þar
eru áfengisumbúðir einnig merktar
á sama hátt og tóbaksvörur bera hér
upplýsingar um skaðsemi. í auglýs-
ingum á síðasta ári lagði Áfengis-
varnaráð áherslu á slæm áhrif áfeng-
isneyslu fullorðinna á börn, en sá
áróður okkar virðist hafa fallið í
grýttan jarðveg hjá sumum ráða-
mönnum,“ sagði Ólafur.
Helgi Ibsen, framkvæmdastjóri
Skallagríms hf., sem rekur Akra-
borg, sagði að fyrirtækið hefði sótt
um vínveitingaleyfi þegar feijan kom
til landsins árið 1982, en þá verið
synjað. „Ég get ekki svarað því nú
hvort stjórn fyrirtækisins óskar eftir
slíku leyfi að nýju, verði frumvarpið
að lögum.“
Einar Sigurðsson, blaðafulltrúi
Flugleiða, sagði að félagið teldi þessa
breytingu jákvæða. „Félagið hefur
ekki sett sér nein áform um ákveðn-
ar dagsetningar ef frumvarpið verður
samþykkt og leyfi fæst. Hins vegar
er unnið að því núna, í tengslum við
endurnýjun á innanlandsflotanum,
sem gefur færi á fjölbreyttari veit-
ingum í mat og drykk um borð, að
auka þjónustuna í vélunum."
------♦ ♦ ♦------
Klausturhólar:
Verk eftir Jón
Stefánsson seld-
ist á rúmlega
850 þúsund kr.
Á UPPBOÐI Klausturhóla síðast-
liðinn sunnudag seldist olímál-
verkið Jarlhettur eftir Jón Stef-
ánsson á 850 þúsund krónur auk
10% listamannagjalds. Auk þess
seldust m.a. verk eftir Karl Kvar-
an og Eyjólf Eyfells. Verk eftir
Ásgrím Jónsson, Kristínu Jóns-
dóttur, Kjarval og Lovísu Matt-
híasdóttur seldust ekki.
Jarlhettur eftir Jón Stefánsson er
98,5x73 sm að stærð. Þá seldist olí-
málverkið Hrím, 84,5x99 sm, eftir
Karl Kvaran á 145 þúsund krónur
auk 10% listamannagjalds og Eirík-
sjökull 98,5x63,5 sm eftir Eyjólf
Eyfells seldist á 80 þúsund krónur
auk 10% listamannagjalds. Reykja-
víkurhöfn, olímálverk eftir Lovísu
Matthíasdóttur, seldist ekki, en 400
þúsund krónur voru boðnar í verkið
og tók eigandi því tilboði ekki.
ísiensk tillaga á umhverfisráðstefnunni í Brasilíu:
Bann við losun þrá-
virkra lífrænna efna
MIKLAR líkur eru taldar á að tillaga íslensku sendiuefndarinnar á
undirbúningsfundi fyrir umhverfisráðstefnu í Brasilíu um bann við
losun þrávirkra lífrænna efna í umhverfið verði borin fram á ráðstefn-
unni. Magnús Jóhanncsson, aðstoðarmaður umhverfisráðherra, segir
að tillagan feli í sér eina mikilvægustu ákvörðun sem tekin hafi verið
i sambandi við mengunarvarnir hafsins. Ekki síst vegna þess að um-
töluð efni séu af þekktum efnum sennilega langmesta ógnunin við líf-
ríki hafsins. Tillagan verður borin undir aðalnefnd undirbúningsfundar-
ins í vikunni.
„Við lögðum fram allmargar til-
lögur um mengunarvarnir hafsins og
sumar þeirra náðu fram að ganga
og aðrar ekki,“ sagði Magnús í sam-
tali við Morgunblaðið. „Ein þeirra,
sem náði fram og við vorum mjög
ánægðir með, fjallar um að hætt
verði losun þrávirkra lífrænna efna
sem hafa tilhneigingu til að safnast
fyrir hafinu. Tillagan fól í sér að
þessari losun yrði hætt árið 2000 en
það náðist ekki samstaða um ákveð-
ið ártal og ástæðan fyrir því var
kannski fyrst og fremst sú að fulltrú-
ar þeirra ríkja sem þarna voru sögð-
ust ekki hafa þær upplýsingar að
þeir gætu fallist á ákveðna tímasetn-
ingu. Hins vegar var fallist á að
gerð yrði könnun í hveiju ríki þar
sem notkun þessara efna yrði skoðuð
með það fyrir augum að ákveða sið-
ar einhveija dagsetningu."
Magnús sagði að umtöluð efni
væru mjög hættuleg lífríki hafsins.
„Þau eyðast ekki, safnast fyrir í líf-
verum og eru eitruð. Bæði leiða þau
til dauða lífvera og hjá spendýrum
hefur komið í ljós að þau hafí áhrif
á fijósemi," sagði hann og fram kom
að lífræn klórsambönd væru um 90%
þessara efna. „Þau koma mjög víða.
Af þessum toga eru t.d. DTT, PCB-
efni og díoxín.“
Rannsóknir hafa að sögn Magnús-
ar sýnt aukið magn umtalaðra efna
á nórðurslóðum þótt enn sé lítið af
þeim að finna hér við land. „Þau
hafa tilhneigingu til að safnast fyrir
á kaldari svæðum og mikið af þeim
flyst með andrúmsloftinu og virðist
setjast að á pólarsvæðunum. Þess
vegna höfum við kannski enn meiri
áhyggjur af þessu og höfum lagt
áherslu á að samstaða náist um
málið á alþjóðavettvangi því efnin
berast hingað frá öðrum þjóðum,"
sagði Magnús, en notkun og fram-
leiðslu þessara efna hér á landi sagði
hann vera í afar litlum mæli.
Af hálfu Islendinga voru einnig
lagðar fram tillögur um geislavirkan
úrgang. Ein þeirra er að sögn Magn-
úsar tillaga um að settar verði reglut'
um notkun og beitingu kjarnorku í
sambandi við hernaðarumsvif. Ekki
var fallist á tillöguna en um hana
urðu töluverðar umræður. „Ég er
nokkuð sannfærður um að sú um-
ræða á eftir að aukast í framtíðinni
og fyrr en seinna munu menn faliast
á þau sjónarmið að hernaðarumsvif
verði að taka tillit til umhverfissjón-
armiða og taka mið af þeim.“
Sinfóníuhljómsveit íslands:
Tónverk eftir Gunnar Þórðarson
TÓNLEIKAR í gulri tónleikaröð Sinfóníuhljómsveitar íslands í Háskóla-
bíó verða nk. fiinmtudag 2. apríl og hefjast þeir kl. 20.00. Á þessum
tónleikum frumflytur hljómsveitin verk eftir Gunnar Þórðarson, og
er þetta jafnframt fyrsta verk hans sem er samið sérstaklega fyrir
sinfóníuliljómsveit. Þá leikur Þorsteinn Gauti Sigurðsson einleik á píanó.
Á efnisskránni vei'ða þijú verk:
Nocturne eftir Gunnar Þórðarson,
Píanókonsert nr. 2 eftir Sergei Rakh-
manínov og Sinfónía nr. 1 eftir
Gustav Mahler.
Einleikari verður eins og áður seg-
ir Þorsteinn Gauti Sigurðsson og
hljómsveitarstjóri Petri Sakari.
Kaupmen
athugið
DRAUMUR
Beint úr draumasmiðjunni
— Ljúfur og lakkriskenndur
Nú er DRAUMURINN
á sérstöku tilboðsverði
Gerið góð kaup