Morgunblaðið - 01.04.1992, Síða 28

Morgunblaðið - 01.04.1992, Síða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. APRIL 1992 Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra á Alþingi í skýrslu um utanríkismál: þetta takmarkað harmsefni. Ekki Grundvallarþættir í íslenskri ut- anríkisstefnu í verulegri óvissu Steingrímur Hermannsson segir íslendinga ekkert hafa að sækja til EB UTANRIKISRAÐHERRA flutti í gær skýrslu sína um utanríkis- mál á Alþingi. I kjölfarið spunn- ust umræður sem stóðu enn seint í gærkvöldi. Jón Baídvin Hannibalsson ut- anríkisráðherra rakti í ræðu sinni þær miklu breytingar sem orðið hefðu í alþjóðamálum frá því að viðræður EFTA-þjóðanna og EB um evrópskt efnahagssvæði hófust fyrir þremur árum og hvaða áhrif htun Sovétríkjanna hefðu á sam- skipti austurs og vesturs. Ráðherr- ann sagði vaxandi líkur á að Banda- ríkin muni fjarlægjast Evrópu og hugsanlegt væri að hlutverki þeirra í Evrópu ljúki á næstu árum. „Við verðum að hafa það að mpginmarkmiði að byggja brýr til Evrópu án þess þó að það verði til þess að veikja samstarf okkar við Bandaríkin. Við verðum að forðast í lengstu lög að lenda í þeirri stöðu að því er varðar öryggismál okkar að þurfa að velja í einhveijum skiln- ingi á milli Evrópu og Bandaríkj- anna,“ sagði hann. Fram kom í ræðu hans að í kjöl- far Maastricht-samkomulagsins væri sú þróun líkleg að Vestur-Evr- ópubandalagið yrði hugsanlega sjálfstætt varnarbandalag og að eðli Atlantshafssamstarfsins myndi breytast. Jón Baldvin sagði að hagsmuna- ‘ gæsla íslands á mörkuðum í Evrópu væru í verulegri óvissu. „Sú sýn að innan skamms verði allar EFTA- þjóðirnar, fyrir utan ísland og Lichtenstein, orðnar umsækjendur að Evrópðubandalaginu, þýðir ein- faldlega að fríverslunarsamtökin EFTA, sem hafa verið ramminn utan um viðskiptasamtstarf okkar við Evrópu, verði ekki til í óbreyttri mynd innan fárra ára. Grunvallar- þættir íslenskrar utanríkis-, örygg- is- og viðskiptastefnu, eins og við höfum rekið hana á undanförnum áratugum, eru verulegri óvissu und- irorpnir,“ sagði utanríkisráðherra. Jón Baldvin sagði að samningur- inn um evrópskt efnahagssvæði væri forgangsverkefni ríkisstjórn- arinnar en sagðist þó bera mikinn ugg í bijósti um að hann verði aldr- ei að veruleika. Utanríkisráðherra hafnaði þeirri gagnrýni stjórnar- andstöðunnar að í skýrslu sinni fælist breyting á utanríkisstefnu íslands. Sagðist hann ítreka að stefna ríkisstjórnarinnar væri óbreytt. Ráðherra sagði eðlilegt að rætt væri um spurningar eins og þær hvort EES hefði glatað tilgangi sín- um í ljósi breyttra aðstæðna. „Er evrópska efnahagssvæðið aðeins áfangastaður fyrir flest EFTA-ríkin áður en þau leita inngöngu í Evr- ópubandalagið og er það haldbært- þegar við lítum til framtíðar að Evrópskt, efnahagss'væði fái staðist sem tveggja stoða bygging, sem hvílir annars vegar á stoð útvíkkaðs Evrópubandalags, með 17 aðildar- ríkjum og 370 milljónum íbúa, og hins vegar á brúarstólpa sem sam- anstendur af íslandi og Lichtensten, með innan við 300 þúsund íbúa? Þetta eru spurningar sem eru á dagskrá og við þurfum að svara,“ sagði Jón Baldvin. „Gangi Evrópska efnahagssvæð- ið ekki upp samningslega, verðum við að láta reyna á það hvaða kost- ir aðrir standa okkur til boða,“ sagði hann. „Við þurfum núna alveg eins og aðrar þjóðir sem standa frammi fyrir svipuðum kostum, að hefja umræðu um það og ég tel það nán- ast skylduverk íslenska stjórnkerf- isins að láta fara fram ítarlega skoðun á nokkrum þáttum þessa máls sem hingað til hafa ekki feng- ið nógu vandlega skoðun,“ sagði Jón Baldvin. Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra, flytur Alþingi skýrslu sína í gær. Morgunblaðið/Þorkell Undir lok ræðu sinna sagði ráð- herra m.a.: „íslendingar geta áfram byggt öryggi landsins á aðildinni að Atlantshafsbandalaginu og styrkt það frekar með aukaaðild að Vesturevrópusambandinu. Aukaaðild að sambandinu vægi upp á móti breyttum starfsháttum Atl- antshafsbandalagsins í kjölfar auk- innar samvinnu Evrópubandalags- ríkja á sviði öryggis- og varnar- mála,“ sagði hann. Þá sagði utanríkisráðherra að það ætti að vera full samtaða allra flokka á Alþingi um nauðsyn þess að kanna hvaða kostir og gallar fælust í aðild að EB. „Enginn tekur ákvörðun að óathuguðu máli,“ sagði Jón Baldvin. Hjörleifur Guttormsson(Abl-A) kvaddi sér hljóðs til að veita and- svar við ræðu utanríkisráðherra og sagði að ráðherra hefði kveðið upp dauðadóm yfir samningnum um EES og varpað rekunum á hann. Hjörleifur sagði að ef velja ætti á milli tveggja slæmra kosta væri EES-samningurinn illskárri en aðild að Evrópubandalaginu. Hélt hann því fram að í orðum utanríkisráð- herra fælist að hann vildi hefja undirbúning að inngöngu í Evrópu- bandalagið. Kristín Einarsdóttir (SK-Rv) sagði sig ekki undra að utanríkis- ráðherra boðaði nú stefnubreyt- ingu; stefndi inn í EB. Líklega hefði það frá upphafi verið áform ráð- herrans að koma okkur inn í banda- lagið. Þrátt fyrir að það hefði verið samstaða, t.d. í Evrópustefnunefnd 1990, um að aðild væri ekki á dag- skrá. Nú væri það ljóst að a.m.k. hluti ríkisstjórnarinnar vildi setja þetta mál'á dagskrá. Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra benti á að hann hefði varið drjúgum ræðutíma til að ræða þær breyting- ar sem orðið hefðu undanfarin ár eða allar götur síðan 1989. Því hefði aldrei verið haldið fram með einhvetjum nauðhyggjurökum að EES væri ekki af sjálfu sér nóg; að það væri nauðsynlega áfanga- staður á leið í EB. Hins vegar hefði hann bent á að ef að EES yrði ekki raunveruleiki þá myndi þrýst- ingur m.a. frá forráðamönnum at- vinnulífsins aukast á að við sæktum um aðild. Það væri eðli þessa máls samkvæmt rökrétt fyrir hörðustu mótstöðumenn EB-aðildar, í hverra flokki Kristín Einarsdóttir væri, að styðja EES með ráðum og dáð. Steingrímur Hermannsson (F-Rn) fyrrum forsætisráðherra vakti á því athygli að utanríkisráð- herrann hefði varið miklu máli til að ræða hugsanlega aðild að EB. Steingrími sýndist að Jón Baldvin Hannibalsson hefði „dáleitt sjálfan sig inn í EB“. Það var auðheyrt að Steingrími hryllti við þeirri um- gjörð. „EB-flíkin passar okkur alls ekki“ og okkar aðstæður væru allt aðrar en þeirra þjóða sem nú sækt- ust eftir aðild. Ræðumaður taldi okkur hafa ekkert að sæka í EB, nema hugsanlega einhveijar styrkt- arölmusur sem hann hafði vanþókn- un á. Hins vegar væri sjálfstæði voru, fullveldi, rétti til auðlinda láðs og lagar háski búinn í þessu banda- lagi. Steingrímur sagðist vel geta sætt sig við að hafa ekki meiri metnað en svo að vilja EES sem lausn okkar viðskiptamála — svo frehii sem öllum fyrirvörum sem gerðir hefðu verið í hans ríkisstjórn væri til skila haldið. Hann rakti í nokkru mál þessa fyrirvara og mátti ráða að honum þætti vorir hagsmunir næsta ótryggir og svo- nefnar „girðingar“ hrörlegar og lítt MMÍMSI fjárheldar. Spurði talsmaður fram- sóknarmanna utanríkisráðherrann margs um EES-samningana og málefni þeim tengd. Steingrímur taldi sig ekki geta tekið afstöðu til þessara samninga fyrr en fjöldi atr- iða væri skýrari. Ræðumaður ásak- aði utanríkisráðherra fyrir að hafa spillt stórlega þeirri samstöðu og og samhug sem þó hefði verið um EES. Með því sem honum væri næst að kalla óafsakanlegu frum- hlaupi. EÉS ei meir Guðrún Helgadóttir (Ab-Rv) og Kristín Einarsdóttir komu í ræðu- stól til að veita andsvör. Kristín ítrekaði þá skoðun sína að enginn stoppaði við EES, á þeirri biðstöð þyrfti ekki lengi að bíða eftir vagn- inum til Brussel. Guðrún Helgdóttir sagði álver og EES hafa verið til- greind sem helstu ástæður þess að Alþýðuflokkurinn hefði hafnað þjóðarvilja sem fram hefði komið í síðustu kosningum; hafnað því að framlengja lífdaga fyrri ríkisstjórn- ar, en þess í stað kosið Sjálfstæðis- flokkinn til fylgilags. Nú væri álver fyrir bý og trúlega yrðu lífdagar ríkisstjórnarinnar allir áður en EES yrði að raunveruleika. Guðrúnu var virtist hún óttast þann möguleika að ef EES yrði ei, myndi það leiða oss í EB. Guðt'ún taldi suma Islend- inga hafa of háar hugmyndir um eigið mikilvægi. Guðrún vitnaði til orða sem formaður allsheijarnefnd- ar Evrópuþingsins mun hafa látið falla á fundi með EFTA-nefndum um miðjan þennan mánuð. Sá mað- ur hefði greint frá erfiðleikum bandalagsins í því að taka við nýjum þjóðum og sagt að þátttaka íslands í bandalaginu kæmi ekki til greina og bætt því við að vafasamt væri um_ Norðmenn. Olafur Ragnar Grímsson (Ab- Rv) vildi að Davíð Oddsson forsæt- isráðherra svaraði því fyrr en seinna hvort Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra talaði fyrir hönd ríkisstjórnarinnar í sinni skýrslu eður ei. Ólafur Ragnar sagði það veik rök hjá utanríkisráðherra að vitna til nokkurra setninga, úr sam- hengi, í ræðu sem Davíð Oddsson hefði haldið á Varðbergsfundi. Samkvæmt sinni heimild, Morgun- blaðinu, hefði forsætisráðherrann sagt hugsanlega EB-aðild hafa já- kvæðar hliðar sem gætu auðveldað hagsmunagæslu á meginlandinu en ráðherrann hefði einnig sagt að hins vegar mætti ekki flana að neinu sem fæli í sér meiri áhættu fyrir íslendinga. Sú óvissa lyti að yfirráðum yfir fiskistbfnum og yfir- ráðum yfir veiðum og vinnslu. Að þessum ástæðum væri aðild að EB ekk) á dagskrá þessarar ríkisstjórn- ar. Ólafur vonaði að þessi orð stæðu enn. Ólafur Ragnar Grímsson vitnaði til fleiri ummæla forsætisráðherra, máli sínu til stuðnings. Davíð Odds- son hefði margítrekað lýst því yfir að það væri ekki á dagskrá sinnar ríkisstjórnar hvorki í bráð né lengd að fjalla um aðild að EB. Nú boð- aði utanríkisráðherrann að það væi'i brýn nauðsyn að allt stjórn- sýslukerfið fjallaði um þetta mál. Ræðumaður sagði aðild að EB snúast um grundvallaratriði. Ut- anríkisráðherra yrði tíðrætt um tæknileg og peningaleg vandamál í sinni skýrslu, en EB væri ekki tæknilegt eða peningalegt fyrir- bæri. Það væri tilraun til að búa til nýtt sambandsríki. Þetta væri spurning um afsal á fullveldi, sjálf- stæði og jafnvel lýðræði því lýðræði væri mjög áfátt í bandalaginu. Ólafur Ragnar Grímsson sagði utanríkisráðherra vera kominn 70-80% að því marki að leggja til að við sæktum um aðild að EB og segði eða léti að því liggja að EES væri lausn fyrir ríki með takmark- aðan metnað. Þingfundi var frestað kl. 18.00 en skyldi framhaldið kl. 20.30. Varð Ólafur Ragnar Grímsson að gera hlé á sinni ræðu. Frumvarp sjö framsóknarmanna til lyfjalaga: Lyfjakaupanefnd leiti til- boða á alþjóðlegum markaði HÁR lyfjakostnaður hefur verið áhyggjuefni stjórnvalda mörg undan- , farin ár, segja sjö þingmenn Framsóknarflokksins. Þcir hafa lagt fram frumvarp til lyfjalaga. Þeir vilja m.a. skipa lyfjakaupanefnd til að leita tilboða á alþjóðlegum markaði til að ná sem hagstæðustum skilmáluin og verði. Flutningsmenn, Finnur Ingólfsson (F- Rv), Guðmundur Bjarnasson (F-Ne), Steingrímur Hermannsson (F-Rn), Jón Kristjánsson (F-Al), Páll Pétursson (F- Nv), Jóhannes Geir Sigurgeirsson (F-Ne) og Ingibjörg Pálmadóttir (F-Vl), segja í greinar- gerð með frumvarpinu að stefnt sé að grundvallarbreytingum á stjórnun og skipulagi lyfjamála. M.a. verði Lyfjaverðlagsnefnd, Lyfsölusjóður og Lyfjaeftirlit ríkisins lögð niður. Til þess að gera framkvæmd lyfja- mála markvissari er í frumvarpinu gert ráð fyrir að sett verði á fót embætti lyfjamálastjóra sem verði heilbrigðisráðherra til ráðuneytis og aðstoðar. Meint einokunaraðstaða lyfsala skal afnumin og komið á samkeppni í heildsölu og smásölu lyfja. Frum- varpið gerir ráð fyrir að stofnað verði hlutafélag sem hafi með höndum smásöludreifingu lyfja. Það skal að jafnaði bjóða út lyfjadreifingu og semja við þá aðila sem lægst bjóða, að teknu tilliti til þjónustunnar. Ráð- herra skal með reglugerð kveða á um öryggiskröfur, aðstöðu, starfslið og starfshætti á útsölustöðum lyfja. Fyrsti flutningsmaður, Finnur Ingólfsson, segir að ráð sé fyrir því gert að prósentuálagning á lyf verði afnumih þannig að lyfsalar geti ekki lengur hagnast um tugi * ef ekki hundruðir þúsunda króna fyrir það eití að rétta dýr lyf yfir afgreiðslu- borðið í apótekum. Einnig myndi frumvarpið, ef samþykkt yrði og að dómi flutningsmanna, bæta dreif- ingu lyfja með mögulegri fjölgun lyfsölustaða. Þeir sem þyrftu að sækja um langan veg til að fá af- greidd lyf eftir lyfseðli gætu þá, fengið lyfin afgreidd á svo til sama stað og lyfseðillinn væri gefinn út á. Frumvarpið gerir einnig ráð fyrir að skipuð verði lyfjakaupanefnd og í henni sitji fulltrúar Alþýðusam- bands íslands, ASÍ, Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, Trygg- ingastofnunar ríkisins og heilbrigðis- yfirvalda. Nefndin starfi í tengslum við lyfjamálastjóra. Finnur Ingólfs- son sagði að nefndin ætti að á að hafa með höndum að semja um verð lyfja. Nefndin skyldi leita tilboða á alþjóðlegum markaði þar sem verð og skilmálar væru hagstæðastir að öryggiskröfum uppfylltum. Finnur Ingólfsson sagði það reynslu norskra og sænskra heil- brigðisyfirvalda að með þessu fyrir- komulagi mætti lækka lyfjaverð um 7-10% Hann var þeirrar skoðunar að með samþykkt þessa frumvarps ætti að nást sambærilegur árangur hér á landi. Það þýddi, varlega áætl- að, að hægt væri að draga úr kostn- aði íslenska ríkisins vegna lyfjakaupa um 200-300 milljónir króna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.