Morgunblaðið - 01.04.1992, Síða 37

Morgunblaðið - 01.04.1992, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. APRIL 1992 37 Haraldur Gunnlaugs- son - Kveðjuorð Fæddur 4. desember 1898 Dáinn 1. mars 1992 Hinn 1. mars sl. lést í Kópavogi Haraldur Gunnlaugsson, síðast starfsmaður Síjdarútvegsnefndar, 93 ára að aldri. Útför hans fór fram frá Kópavogskirkju mánudaginn 10. mars. Haraldur var Húnvetningur í báðar ættir, fæddur 4. desember 1898 á Stóru-Borg í Þverárhreppi. Foreldrar hans voru Gunnlaugur Sigurðsson, sjómaður og járnsmið- ur, og kona hans Þuríður Bjarna- dóttir, bæði húnvetnsk að uppruna. Fjölskyldan fluttist 1902 til Eyja- fjarðar, fyrst að Dálksstöðum en síðar að Eyrarbakka á Svalbarðs- strönd. Kona Haraldar var Guðný Guð- laug Jónsdóttir, f. 21. júlí 1894, d. 11. janúar 1977, ættuð af Fljóts- dalshéraði. Foreldrar hennar voru Jón Eyjólfsson, f. 1867 í Fossgerði í Eiðaþinghá, síðar bóndi í Gilsár- teigshjáleigu og á Selsstöðum við Seyðisfjörð, og kona hans Guðrún Björg Jónsdóttir, f. á Skjögrastöð- um á Völlum. Guðný og Haraldur fluttust til Reykjavíkur 1958 og 1962 í Kópavog. Þegar Guðný lést fluttist Haraldur til Herdísar dóttur sinnar í Skjólbraut 4, en síðustu þijú árin dvaldist hann í Sunnuhlíð, hjúkrunarheimili aldraðra í Kópa- vogi. Börn Guðnýjar og Haraldar eru Hörður, verkamaður í Reykjavík, f. 1921, Unnur, húsmóðir í Reykja- vík, f. 1923, Þuríður, húsmóðir á Siglufirði, f. 1924, Ágústa, húsmóð- ir í Hafnarfirði, f. 1927, Gunnlaug- ur, síldarmatsmaður á Siglufirði, f. 1928, Lórilei, sjúkraliði í Reykjavík, f. 1932, og Herdís, sérkennari í' Kópavogi, f. 1938. Öll hafa þau gifst og eignast börn. Átti Haraldur stóran hóp afkomenda er hann and- aðist. Haraldur lauk námi í Gagnfræða- skólanum á Akureyri, nam síðan skipasmíði hjá Gunnari Jónssyni skipasmið þar og varð meistari í iðninni. Til Siglufjarðar fluttist hann 1936 og réðst til starfa við Slippinn, sem Ólafur Ragnars keypti það ár af áðurnefndum Gunnari Jónssyni. Aðalstarf hans eftir það varð þó á vettvangi síldar- framleiðslunnar. Hann hefur vafa- lítið verið í fyrsta hópnum sem lauk prófi í síldarmati, árið 1937, fór síðan að starfa í þeirri grein, varð verkstjóri í söltunarstöð og loks starfsmaður Síldarútvegsnefndar; verkstjóri, birgðavörður og síldar- eftirlitsmaður. Ennfremur hélt hann á hennar vegum námskeið um meðferð síldar og síldarmat víða um land og flutti fyrirlestra um sama efni í Fiskvinnsluskólanum. Hann var einkar útsjónarsamur við öll störf, meðal annars bráðslyngur að skipuieggja vinnu. Minnist undir- ritaður þess ekki að hafa unnið hjá verkstjóra sem var jafnsnjall að fylgjast með vinnu á mörgum stöð- um í einu, sjá um að öll aðstaða væri fullnýtt og hvergi of margir né of fáir starfsmenn við verk. Eins og vænta mátti um jafn greindan og starfshæfan mann komst Haraldur ekki hjá þátttöku í félagsmálum. En hann var ekki fæddur inn í neina þá félagshreyf- ingu sem mest hafa sett svip á öld- ina. Hann var eldri en þær flestar. í bernsku hans og æsku voru sjónarmið bændaþjóðfélagsins enn allsráðandi og meira en helmingur þjóðarinnar búsettur í sveitum. Þeg- ar elstu starfandi stjórnmálaflokkar landsins og Alþýðusambandið kom- ust á fót var hann að verða fullorð- inn og þegar ísland fékk fullveldi 1. desember 1918 skorti hann að- eins þijá daga í tvítugt. Helstu fé- lagshreyfingar aldarinnar komu fram á sjónarsviðið eftir að hann var kominn til þroska. Hann gat því lagt á þær og þróun þeirra kalt og raunsætt mat fullþroska manns, án þeirrar tilfinningablöndnu og fyrirfram ákvörðuðu fylgispektar sem oft mótar og setur svip á fé- lagslega afstöðu þeirra er alast upp við ákveðna félagslega hugmynda- fræði. Eðlilegasti féiagsvettvangurinn Guðmundur Gils- son - Kveðjuorð Fæddur 27. júlí 1926 Dáinn 6. janúar 1992 Kveðja frá Selfossi og Tón- listarskóla Arnessýslu „Tónlistin gefur alheiminum sál, huganum vængi, ímyndunaraflinu flug, alvörunni ynd- isþokka og blæs gleði og lífi í a!lt.“ (Platon) Árið 1955 markaði spor í tónlist- ar- og menningarsögu Sunnlend- inga, en einnig urðu þá tímamót í þróun og endurnýjun hins liturgíska kirkju- eða safnaðarsöngs á ís- landi. Það ár bundust áhugamenn samtökum, að frumkvæði sr. Sig- urðar Pálssonar, að hefja tónlist- arnám til vegs og brautargengis, meir en verið hafði. Þetta ár var Tónlistarfélag Árnessýslu stofnað. Markmið þess var að standa fyrir tónlistarkennslu og tónleikahaldi. Kirkjubygging stóð þá yfir á Sel- fossi og fyrirsjáanlegur vöxtur í safnaðarstarfi hjá sóknarbörnum undir forystu sóknprestsins. Þáver- andi organisti lagði áherslu á að leitað væri eftir ungum og vel menntuðum organista. Við fengum ábendingu um efnilegan organista, sem væri að ljúka námi í Þýska- landi. Ferð var gerð til Páls ísólfs- sonar og leitað ráða hjá honum með val á góðum manni, sem gæti veitt forstöðu væntanlegum tónlistar- skóla, jafnframt organistastarfi við hina nýju kirkju. Álit Páls var stutt og laggott: „Guðmundur Gilsson er mjög vel hæfur til þessara verk- efna, þið eigi ekki völ á öðrum betri“. Um haustið 1955 kom Guðmund- ur og var ráðinn til að veita for- stöðu hinum nýja tónlistarskóla og sem organisti í Selfosskirkju. Þess- um verkum sinnti hann óslitið til ársins 1968 er hann fluttist til Reykjavíkur og hóf störf hjá tónlist- ardeild Ríkisútvarpsins. Nemendum tónlistarskólans fjölgaði jafnt og þétt, en fyrstu árin stóð hann einn- ig fyrir kennslu og upphafi Tónlist- arskóla Rangæinga. Áhugi Guðmundar beindist fyrst og fremst að organistastarfinu og safnaðarsöngnum. Hinn vel mennt- aði organisti veitti sr. Sigurði Páls- syni tækifæri á að koma í fram- kvæmd endurnýjun liturgíska kirkjusöngsins, er síðan hefur hljómað í Selfosskirkju og náð al- mennri iðkun á íslandi. Hann gerð- ist hönnuður að væntanlegu pípu- orgeli kirkjunnar. Útlitsteikningu lagði hann fram, en hann réð einn- ig miklu um raddskipan orgelsins. Orgelsmiðirnir sem unnu í nafni Steinmeiers rökstuddu það jafnvel að orgelið mætti alveg eins nefnast Gilsson eins og Steinmeier. Hinsta ferð Guðmundar og fram- lag til tónlistarinnar á Selfossi var síðastliðið sumar við vígslu hins nýja og endurbyggða orgels í kirkj- unni. Þar lék hann óhikað á sinn listræna hátt tónverk eftir Buxte- hude. í þessu nýja orgeli sá hann drauma sína rætast. Guðmundur var tilfinninganæm- ur tónlistarmaður. Hæfni hans að túlka texta sem fylgdu tónverkum var sérstök. Almenn hæfni er að ná fram þessari túlkun, þegar söng- flokkur flytur textann og það fund- um við sem vorum undir hans stjórn. Sérstaða Guðmundar og tón- listarhæfni kom þó best fram þegar hann túlkaði textann með orgeltón- unum eingöngu. Ógleymanlegt dæmi og kunnugt var flutningur hans á orgelforleik Bach við sálm- inn „Ó, höfuð dreyra drifið“. Fyrstu tónleikar hans með kirkjukór Sel- foss eftir kirkjuvígsluna voru haldn- ir í maí 1956. Það var samstilltur sönghópur sem laut stjórn Guð- mundar. Hugarflug okkar fékk vængi og yndisþokka, hann blés gleði og lífi í söng- og safnaðar- starfið. Honum sé heiður og þökk. Bless- uð sé hans minning. Hjörtur Þórarinsson. t Móðir okkar og amma, ÞURÍÐUR EINARSDÓTTIR, Grettisgötu 66, Reykjavík, lést 14. mars sl. Útför hennar hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Sérstakar þakkir færum við læknum og hjúkrunarfólki Landakotsspítala fyrir góða umönnun. Einnig þökkum við sjúkrahúsprestinum, Kjartani Erni Sigurbjörnssyni, fyrir stuðning við okkur ( þessari sorg. Þá þökkum viö Rúnari Steindórssyni fyrir ómetanlega hjálp, sem hann veitti okkur. Eybjörg Ásta Guðnadóttir, Guðrún Ingunn Magnúsdóttir, Magnús Hafliði Guðnason, Bjarney Guðrún Björgvinsdóttir, Eyrún Guðnadóttir, Erla Þóra Björgvinsdóttir, Einar Steindór Guðnason, Gísli Óskarsson, Guðni Örvar Þór Guðnason, Ingi Guðnason. t Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og útför móður okkar, tengdamóður og ömmu, UNNAR LILJU JÓHANNESDÓTTUR. Sérstakar þakkir til systranna á St. Fransiskussjúkrahúsinu í Stykk- ishólmi fyrir góða umönnun síðustu árin. Einnig viljum við þakka sérstaklega sr. Þóri Stephensen fyrir sýndan hlýhug. I ngveldur Sigurðardóttir, Þór Hróbjartsson, Skúli Sigurðsson, Ólafur Sigurðsson og barnabörn. fyrir snauðan mann sem stofnaði heimili og settist á mölinni upp úr fyrra stríðinu var verkalýðshreyf- ingin. í sjávarplássunum ríkti þá víðast alræði örfárra kaupmanna og útvegsmanna. Þessir valdamenn höfðu mikið vald en litla ábyrgð gagnvart vinnulýðnum sem streymdi á mölina úr fullsetnum sveitunum. Einhverntíma á þessu skeiði mun Haraldur hafa gengið til liðs við Alþýðuflokkinn og starf- aði síðan allmikið á hans vegum fram á sjötta áratug aldarinnar, var m.a. bæjarfulltrúi fyrir hann á Sigl- ufirði 1950—1954. Þá sat hann í stjórn Kaupfélags Siglfirðinga um árabil. Haraldur var einn af stofnendum Landssambands síldverkunar- manna og sat í stjórn þess meiri- hlutann af starfstíma þess, þar af formaður í fjögur ár. Þá var hann framkvæmdastjóri Samvinnufélags sjómanna, sem stofnað var á Akur- eyri um eða skömmu fyrir 1930, en stofnun þess var ein af þeim til- raunum sem verkalýðshreyfingin gerði á því áraskeiði til að leysa atvinnu- og afkomuvanda fólksins í sjávarbyggðunum, sem ráðastéttin og stjórnvöld hennar töldu ekki koma sér við. En kreppan var að- gangshörð og kom þessu félagi fljótlega á kné, eins og mörgum öðrum fyrirtækjum sem stofnuð voru í sama tilgangi. Ég kynntist Haraldi töluvert síð- ustu árin sem hann bjó á Siglu- firði. Þau kynni voru öll góð. Eftir að hann fluttist til Reykjavíkur urðu samfundir fáir, en alltaf kom ég af þeim nokkru fróðari en áður, ekki síst um menn og málefni liðins tíma, bæði á Siglufirði og á Akur- eyri á kreppuárunum. Nú hefur þessi aldni heiðursmað- ur lokið langri lífsgöngu. Hvíli hann í friði. Benedikt Sigurðsson. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinsemd við andlát ástkærr- ar móður okkar, tengdamóður, ömmu og systur, ÖNNU SVANHILDAR DANÍELSDÓTTUR. Synir, bræður og fjölskyldur. t Þökkum af hjarta öllum þeim, er auðsýndu okkur samúð og vinar- hug við andlát og útför elskulegs eiginmanns, föður, stjúpföður, tengdaföður, afa og langafa, ÁSGEIRS EINARSSONAR. Sérstakar þakkirtil lækna og starfsfólks á deild B-5, Borgarspítala. Guð blessi ykkur öll. Halldóra S. S. Jónsdóttir ogfjölskyldur. t Innilegar þakkir eru færðar öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför SIGRÍÐAR ÞORLÁKSDÓTTUR, Hofi, Ólafsfirði. Guðs blessun fylgi ykkur öllum. SigurðurT. Magnússon, Gunnar M. Sigurðsson, Sigríður Ósk Sigurðardóttir. + Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og út- för móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SIGRÍÐAR JÓNASÍNU ANDRÉSDÓTTUR frá Lokinhömrum, Arnarfirði. Börn, tengdabörn og barnabörn. ; j l í j .1 ! + Þökkum af alhug auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, SIGURJÓNS JÓNSSONAR, Ártúni 7, Selfossi. Gerður Guðjónsdóttir, Jónína Sigurjónsdóttir, Óli Þ. Óskarsson, Jón Garðar Sigurjónsson, Ólöf Tryggvadóttir, Ævar Smári Sigurjónsson, Kristin Bjarnadóttir, Sigurður Ellert Sigurjónsson, Steindóra K. Þorleifsdóttir og barnabörn. + Þökkum af alhug auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SVEINBJARGAR HALLDÓRSDÓTTUR frá Sauðholti, Hólmgarði 18. Guð blessi ykkur öll. Reynir Þórðarson, Halldór Þórðarson, Þórir Þórðarson, Kristjóna Þórðardóttir, Magnús Þórðarson, Bára Sigurðardóttir, Jóhanna Eðvaldsdóttir, Ingibjörg Einarsdóttir, Björn G. Jónsson, Elínborg Ingólfsdóttir barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.