Morgunblaðið - 01.04.1992, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 01.04.1992, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. APRÍL 1992 Gísli Friðbjarnar- son — Minning Fæddur 19. júní 1914 Dáinn 23. mars 1992 Kveðja frá SÍBS Það hefur löngnrn verið lán Ís- lendinga að í hópi þeirra hafa á hveijum tíma fundist menn með fijóa hugsun og áræði til fram- kvæmda, menn sem láta ekki að- stöðuleysi og erfiðleika á sig fá held- ur hefjast handa eins og hugur þeirra býður þeim. Einn slíkur frum- kvöðull og framtaksmaður var Gísli Friðbjamarson sem nú er látinn. Á starfsferli sínum lagði Gísli gjörva hönd á margar framkvæmd- ir og átti þátt í ýmsum fyrirtækjum. Ekki verður sú umsvifasaga rakin hér, enda býr sá er þessar línur ritar ekki yfir nægri vitneskju þar að lútandi nema að því leyti sem við kemur Sambandi íslenskra berkla- og bijóstholssjúklinga og fyrirtækjum þess. Samskipti Gísla og fyrirtækja SÍBS fyrr á árum voru meiri en svo að talist geti til tilviljana. Ekki þarf að fara í graf- ~ götur með að þar réði miklu sú stað- reynd að Gísli tók heils hugar und- ir upphafleg markmið SIBS sem enn eru í fullu gildi og felast í eink- unnarorðum sambandsins: „Styðj- um sjúka til sjálfsbjargar." Á árunum fyrir og eftir síðari heimsstyijöld fór plast að ryðja sér til rúms í heiminum við framleiðslu ýmiss vamings. Þetta gerviefni til framleiðslu, plastið, gert úr risasam- eindum sem innihalda kolefni auk annarra frumefna og efnasam- banda, hélt einnig innreið sína hér á landi á þessum árum. Jón Þórðar- son, síðar framleiðslustjóri á Reykjalundi um fjögurra áratuga skeið, stofnaði fyrirtækið Plastik hf. árið 1947. Gísli gekk síðar inn í það fyrirtæki og hafði með sér í fartesk- inu annað fyrirtæki, Plastvörur hf. Starfsemin á Reykjalundi hófst árið 1945 og á næstu ámm var komið þar á fót ýmsum framleiðslu- greinum. Þegar komið var fram á áfið 1952 töldu menn nauðsynlegt að færa út kvíamar og fjölga starfs- greinum vistmanna. Eftir rækilega könnun á framleiðslunýjungum sem hentuðu vistmönnum á Reykjalundi var ákveðið að koma þar upp plast- iðju. Skipuðust mál svo að í byijun ■ árs 1953 vom gerðir samningar við þá Gísla og Jón um kaup á áður- nefndum fyrirtækjum. Þetta var upphafið að plastframleiðslu Reykjalundar. Ekki áskotnaðist Reykjalundi einungis tæki og vélar í þessum kaupum, heldur einnig hugvit og kunnátta því að bæði Jón og Gísli fylgdu með í kaupunum ef svo má að orði komast. Jón varð framleiðslustjóri eins og áður segir Fædd 11. september 1918 Dáin 29. febrúar 1992 Nú sámar það, vinur, hve veik eru hljóð og vanmáttug orðin á tungu, en flestum er ofætlun, íslenska þjóð, að eiga að kveða þeim skilnaðarljóð sem lengi og svo Ijómandi sungu. Þó vita það færri hve vont er að sjá " af vini svo tryggum og góðum. Ef satt væri talað um tryggðina þá, þeir teldu það vísast, sem hlustuðu á, að þar væri logið í Ijóðum. (Þorsteinn Erlingsson.) Mig langar að minnast elskulegrar ömmu minnar, Elínborgar Þórðardótt- ur, frá Gufuskálum, dóttur hjónanna '*Ásthildar Sæmundsdóttur frá Gufu- skálum og Þórðar J. Sveinssonar frá Skáleyjum, sem kvaddi þennan heim að kvöldi hlaupársdags. en Gísli var um nokkurra ára skeið sölustóri alls varnings sem fram- leiddur var á Reykjalundi. Gísli hófst síðar handa ásamt öðrum við rekstur plastmóta- og stansaverk- stæðis. Sagan endurtók sig: Árið 1958 var það verkstæði Reykja- lundi falt til kaups og naut Reykja- lundur þannig á nýjan leik for- göngustarfs Gísla. Um svipað leyti hafði Gísli byggt iðnaðarhúsnæði við Ármúlann í Reykjavík og búið það vélum til sambræðslu plastefna, framleiðslu regnfata, sjófatnaðar og annars varnings úr plasti. Á þeim tíma var forráðamönnum SÍBS orðið ljóst að sú atvinnulega endurhæfing og fyr- irgreiðsla sem veitt var Reykjalundi nægði ekki skjólstæðingum SÍBS eftir útskrift og öðrum öryrkjum. Það var því ákveðið að koma upp vinnustað fyrir öryrkja í Reykjavík. Enn skipuðust mál svo að SÍBS keypti húsnæðið í Ármúla af Gísla og fylgdu eins og áður með í kaup- unum vélar og búnaður og auk þess hugvit Gísla og þekking hans og kunnátta á þessum framleiðslu- sviðum. Þetta var upphafið að starf- semi Múlalundar, Vinnustofu SÍBS Gísli var ráðinn framkvæmdastjóri fyrirtækisins og gegndi því starfi til ársloka 1960. Strax var ákveðið að stækka verulega húsnæðið í Ármúlanum og hófust framkvæmd- ir undir stjóm Gísla í desembermán- uði 1959. Á næsta ári var lokið við stækkunarframkvæmdirnar og við það jókst starfsemin til muna. Starfandi öryrkjum þar fjölgaði á milli ára úr 20 í 50. Starfsemi Múlalundar var í Ármúla 34 allt til ársins 1982 að hún fluttist í ný- byggt hús við Hátún 10. í húsinu við Ármúla er nú rekin Dagvist fyrir aldraða og öryrkja á vegum SÍBS, Samtaka aldraðra og Reykja- víkurdeildar Rauða kross Islands. Þegar Múlalundur hóf starfsemi sína undir stjórn Gísla var fengist þar við ýmsar nýjungar á sviði plastframleiðslu. Þrátt fyrir byij- unarörðugleika tókst brátt að ná góðum tökum á framleiðslunni. Varningur þaðan varð fljótt fjöl- breyttur og stóðst vel samkeppni á markaðnum og gerir enn. Gísli var meðlimur í SÍBS-deild- inni í Reykjavík og var þar óspar á liðveislu. Með þeim hætti hélt hann áfram að styðja viðfangsefni SÍBS með sömu einkunnarorð í huga og áður, að styðja sjúka til sjálfsbjargar. Þetta stutta yfirlit um hlutdeild Gísla fyrr á árum í uppbyggingu fyrirtækja SÍBS sýnir að hún var umtalsverð, öryrkjum og öðrum fötluðum landsmönnum til blessun- ar og hagsbóta. Við leiðarlok eru Hún var fædd „undir jökli“, á Gufuskálum á Snæfellsnesi og dvaldi þar langdvölum undir handleiðslu ömmu sinnar og nöfnu Þorbjarnar- dóttur. Til Gufuskála lágu rætur hennar og voru böndin sterk sem tengdu ömmu þessari sveit, sem hún unni svo heitt. Amma var glæsileg kona og ein- kenndu hana öðru fremur þraut- seigja, örlæti, miidi og hlýja. Hún var listræn kona, og sérlega hand- lagin, var þá sama hvort hún fékkst við fínlegan útsaum, málaði íbúðina eða flísalagði baðherbergið. 011 báru verk hennar vitni glæsilegu hand- bragði og listrænu auga. Amma giftist afa mínum, Sigurði Friðrikssyni frá Eyrarbakka, og eignaðist eina dóttur, Mjöll. Heimili afa og ömmu var ævintýraheimur okkar systkinanna, en amma var sérstök barnagæla og hafði einstakt Gísla færðar þakkir fyrir framlag hans á þessum vettvangi. SÍBS flytur eiginkonu Gísla, Guðrúnu Vilhjálmsdóttur, dætrum þeirra, tengdasonum og öðrum vandamönnum innilegar samúðar- kveðjur. Haukur Þórðarson. Björgunarbúnaður sjómanna og tæki til veiða og fiskvinnslu hafa verið ofarlega í huga margra íslend- inga, og nokkrir hafa lagt sitt af mörkum við slíka hönnun og fram- leiðslu. Einn þeirra var Gísli H. Friðbjarnarson. íslendingar hafa stundað sjósókn frá upphafi byggðar og mátt búa við sjóslys og mannskaða, sem sjó- sókn fylgir. 7. apríl 1906 fórst skút- an Ingvar við Viðey og höfuðborg- arbúar gátu í sjónaukum horft á 20 manna áhöfn klifra upp í möstr- in og síðan falla í sjóinn einn af öðrum. Þann sama dag fórust 2 önnur skip á Faxaflóa og með þeim 48 menn. Auk þess tók þar tvo stýrimenn út af skipum. Þennan eina dag fórust þar því 70 sjómenn. Átakanlegir atburðir. Engin úrræði. Faðir minn var á skútu á Halan- um í Halaveðrinu mikla 7. til 8. febrúar 1925, þegar tveir togarar fórust þar með alls 67 manns. Hann talaði stundum um Halaveðrið, Ing- varsslysið og úrræðaleysið, tig ekki að ástæðulausu. Enn voru engin björgunartæki til, sem duga við slíkar aðstæður. Tveir björgunar- bátar úr tré í hveijum togara komu að engu gagni. Það vekur furðu, að enn skuli jafnvei úr bæjardyrunum mega horfa á menn í sjávarháska eða farast, án þess að hjálp verði við komið. Mannslífin eru það dýrmæt- asta sem við eigum, en samt getum við ekki tryggt öryggi og björgun. Ægir konungur hefur yfirhöndina, þegar hann vill, og slær til fyrir- varalaust. Þetta er sjóslysasagan. Samhliða henni á sér stað þróun björgunartækni um borð í skipum, gúmbjörgunarbátar, Sigmundar- lag á að umgangast börn. Þau voru ekki ófá kvöldin og næturnar sem við fengum að dvelja hjá ömmu og teiguðum af gnægtarbrunni fróð- leiks og ánægju. Hún tók þátt í öll- um okkar draumur og þrám. Ekki var hún síðri vinur og félagi eftir að við uxum úr grasi og komumst til vits og ára. Barnabörnin voru nú tekin við af okkur systkinum og gáfu lífi hennar fyllingu, fylgdist hún með vexti þeirra og þroska af alúð og áhuga. Hún er nú horfin sjónum mínum og haldin til fundar við horfna ástvini og æðri máttarvöld. Þó að kallið væri hvorki óvænt né skyndilegt er söknuðurinn sár og ég kveð hana elsku ömmu mína með trega. Ég er rík að hafa átt ömmu að og notið handleiðslu hennar. Ég finn fyrir nálægð hennar og mun ætíð geyma ljúfar minningar af sam- vistum okkar um ókomin ár. Hafi hún þökk fyrir allt. Þó nú hafi skuggamir skeiðið þitt stytt, þá skína þó Ijóðin í heiði. Þau breiða’ yfir næturnar norðurljós sitt á nafnið þitt kæra og á ættlandið þitt og verða þér ljómi yfír leiði. (Þorst. Erlingsson, Þyrnar.) Ellý. gálgi, Markúsarnet, Björgvinsbelti, flotbúningar og flotvinnugallar. Allt eru þetta spor í rétta átt. Eitt björg- unar- og öryggistækið var hannað og fullgert, en komst þó aldrei í framleiðslu. Það ar björgunarstakk- ur Gísla. Gísli var frá Vestmannaeyjum og er athyglisvert, hve Vestmanna- eyingar hafa staðið framarlega í björgunar-, veiði- og fiskvinnslu- tækni. Framlag þeirra er svo langt umfram aðra, að það krefst skýr- ingar. Þar var stofnað fyrsta björg- unarfélagið á landinu 1918, 10 árum á undan Slysavarnafélaginu, og Vestmannaeyingar voru fyrstir að tileinka sér gúmbjörgunarbáta. Þaðan er gálginn og þaðan er belt- ið og allmargar fiskvinnsluvélar. Árið 1960 hannaði og prófaði Gísli fyrsta „flotvinnugallann" hér á landi. Þá voru sjómenn við vinnu sína klæddir sjóstakk og klofháum vaðstígvélum og með sjóhatt á höfði. Sá búningur hefur nú nýlega kvatt að fullu og vikið fyrir flotgall- anum. Ber að fagna því öryggi. Gísli lét gera könnun á björgun- arbeltum, -vestum og -búningum, og kom þá í ljós, að til var fjöldinn allur af uppblásanlegum beltum og búningum, en enginn þeirra var nothæfur við vinnu. „Maður fyrir borð“ gerir ekki boð á undan sér. Þá er heldur ekki tími né aðstæður til eins eða neins og alls ekki til að skipta um föt og fara í björgun- arbúning. Þessu vildi Gísli breyta. Hann var maður hraðans, og allt varð að gera í einum grænum hvelli. Maður hraðans gat skilið, hvað gera þurfti. Það varð að gera sjó- stakkinn að flotgalla. Gísli hannaði uppblásanlegan hring innan á sjó- stakkinn utan um bijóstið og tengdi hann við lítinn loftkút með neyðar- spotta í handarkrikanum. Þegar kippt var í spottann, fylltist hring- urinn af lofti úr kútnum og lokaði um leið bilinu milli manns og stakks. Þar með lokaðist fyrir að- streymi hins kalda sjávar, og stakk- urinn var í einni svipan orðinn að eins konar tjaldi utan um bijóst- kassa mannsins. Lofthringurinn hélt manninum lóðréttum á floti. Maðurinn var orðinn að eins konar bauju með endurskinsmerki. Til- gangurinn var að veija manninn fyrir kulda, sem var algengasta dán- arorsökin, og halda honum á floti. Hugmyndin var góð og búnaðurinn virkur, en þá vantaði sem oftar það afl, sem knýr áfram allar fram- kvæmdir. Það afl átti enginn á lausu. Grundvallarhugmynd Gísla var að byggja öryggið inn í vinnuföt sjómannsins. Sú hugmynd vann sig- ur núna, 30 árum síðar, þótt ekki væri þar notaður loftkútur og flot- hringur, heldur ný flotefni. Gísli var því á réttri leið á sínum tíma. Mörg- um hefði björgunarstakkurinn get- að bjargað, þegar Ægir sló til þeirra fyrirvaralaust. Skip farast enn á Halanum og heima við bæjardyr, en það farast færri skip og bjargast fleiri menn. Þetta er árangur af björgunartækni og slysavarnastarfi. Það eru góðu fréttirnar. Á þessum tíma var Gísli eigandi Stálvinnslunnar hf. ásamt Haraldi Haraldssyni rennismið frá Vest- mannaeyjum, sem nú er látinn. Árin 1961-1962 var mikil síld kring um landið, sú mesta frá 1944, landburð- ur við Faxaflóa, síldinni mokað upp, hún ísuð og send óflokkuð í heilum skipsföiTnum til Þýskalands. Ársafli frá október 1961 var 3,5 millj. mál og tunnur. Allar þrær voru fullar, gijótnámið milli Sjómannaskólans og Tónabíós fullt af síld og síldinni ekið út í hraun til geymslu. Ingólfur Theódórsson netagerð- armeistari í Vestmannaeyjum hafði þá hannað og framleitt sérstaka síldarnót, svokallaða „botnnót", þar sem neðsti hluti netsins var fyrir neðan blýteininn og lagðist lárétt undir torfuna og lokaði botni nótar- innar, áður en netið nálgaðist torf- una. Á þessum tíma hafði íslending- um fyrir tilstilli Kelvinstýrisins og Haraldar Ágústssonar skipstjóra fyrstum tekist að beita kraftblökk- inni við síldveiðar, nótin dregin beint upp í veiðiskipið, og nótabátar fengu hvíld. Þetta var byltingin í síldveiðum, enda metafli og mikils- vert að nýta hann vel. Elínborg Þórðar- * dóttir — Minning Síldin var seld óflokkuð úr landi, því að enginn flokkun var til, en Þjóðveijar buðu þrefalt verð fyrir stærðarflokkaða síld. Jón Ármann Héðinsson útgerðarmaður mun hafa lýst fyrir Gísla mikilyægi þess að flokka síldina. Gísli sá, að þessu varð að breyta í hvelli, því hér var um gífurlegar íjárhæðir að ræða fyrir þjóðarbúið. Gísli leitaði til Eggerts G. Þorsteinssonar sjávarút- vegsráðherra, sem veitti Gísla fjárstuðning til að láta hanna og framleiða flokkunarvél. Með slíkan listasmið sem Harald innanborðs voru hæg heimatökin hjá Gísla. En verkefnið var stórt og þurfti að leysa skjótt. Þeir Haraldur leituðu til Ásgeirs Long vélstjóra, sem hafði hannað og smíðað vélar fyrir útgerð og fískvinnslu. Ásgeir átti þá nýtt verkstæði, og þar lokuðu vélsmiðimir tveir sig af í eina viku og hönnuðu vélina og smíðuðu jafnóðum. Stál- vinnslan tók síðan að sér smíðina, framleiddi og seldi, og síðan möluðu vélarnar gull fyrir þjóðarbúið. Alls hafa verið framleiddar um 400 flokkunarvélar fyrir allar stærðir af fiski og seldar út um allan heim. Síðar hóf BAADER framleiðslu á vélum á sama grunni. Mað tilkomu flokkunarvélarinnar var farið að flokka alla síld til sölt- unar og útflutnings með tilheyrandi verðmætaaukningu. Aldrei hef ég séð á blaði þakklæti til allra þeirra, sem hér stóðu að verki, fyrir að leysa þennan vanda síldveiðanna, -söltunarinnar og -útflutningsins. Síldarflokkunarvélin byggist á tveim láréttum, næstum samhliða reimum eiða færiböndum, sem fær- ast í sömu átt og í lóðréttu sniði mynda sín á milli 30 gráða horn mjókkandi niðui'. Milli reimanna er bil eða rauf, sem víkkar í færslu- stefnuna. Reimarnar færa síldarnar eftir raufinni þannig að minnstu síldarnar falla fyrst niður um rauf- ina, en þær stærstu síðast. Þannig flokkast síldin. Einkaleyfi fékkst ekki, því skil- greining uppfínningarinnar mistókst og stóðst ekki gagnvart eplaflokkun- artæki, sem fól í sér víkkandi, fasta rauf á hallandi sléttum fleti. Slíkt tæki getur aðeins flokkað hluti, sem velta á hallandi fleti, en það gerir fískur ekki. Tækið getur því ekki flokkað sfld. Þess vegna hefði vélin átt að fá viðurkenningu með einka- leyfi til framleiðslu sem íslensk upp- fínning. Slíkt einkaleyfí er verðmæt söluvara, ef rétt er á haldið. Ef vel er að verki staðið, eins og gert var við hönnun vélarinnar, eru vandamálin skammlíf sem slík. Menn lifa við þau og vita jafnvel ekki af þeim, þar til einhver upp- götvar þau sem vandamál og tekið er á þeim og þau leyst. Síðan gleym- ast þau aftur. Uppgötvun og skil- greining vandamáls er fyrsta skref- ið til þess, sem vi_ð í daglegu tali köllum framfarir. Urtölur eru besta ráðið til að vega að þeim og við- halda stöðnun. Þeim ráðum er óspart beitt. Urtölumúrinn umlykur hugvit- ið. Kjörorð framfaranna gæti verið: „Gegnum úrtölumúrinn". Þá leið hefði Gísli þurft að komast oftar. 1968-69 átti Gísli frumkvæðið ad því, að Haraldur hannaði og smíðaði hausunarvél fyrir þorsk til söltunar, þar sem hnakkafiskurinn var rifinn frá hausnum og nýtingin óx um 2-3%. Unnu þeir að þessu máli í Danmörku, og voru þar smíð- aðar 3 vélar og sendar heim og út aftur vegna fjárskorts. Þá hugðist Gísli láta hanna og smíða beitingar- vél, en sú áætlun strandaði sem fyrr á skorti á afli framkvæmd- anna. Eftir þetta hætti Gísli rekstri og snéri sér að öðrum verkefnum. Almennt séð tilheyrir það víst svokallaðri fijálsri samkeppni að bera sjálfur tjón af þróunartilraun- um og taprekstri og leysa annarra vandamál ókeypis. Eggert er ekki alltaf til staðar sem ráðherra til að koma góðu til leiðar. Samtímis því er talið sjálfsagt að þjóðnýta hugvit- ið, þegar árangur næst. Hugvit ein- staklingsins verður eign almennings, en þessir endar ná oft ekki saman. Með þessum dæmum um hugvit og framtakssemi vil ég minnast Gísla H. Friðbjarnarsonar. Hann var einn af þeim, sem þarna stóðu vel að verki. ^ Jón Brynjólfsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.