Morgunblaðið - 04.04.1992, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 04.04.1992, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. APRÍL 1992 VEÐUR SKÍÐASVÆÐI FLEST skíðasvæði landsins verða opin um helgina. Ágætt skíðafæri er sunnan-, austan- og vestanlands en snjólítið á Norðurlandi og sum skíðasvæði lokuð af þeim sökum. Suðuriand: í dag og á morgun verða skíðalöndin í Bláfjöllum, Skálafelli, Hamragili og Sleggju- beinsskarði opin frá kl. 10-18 ef veður leyfir. Gott færi og nægur snjór er á öllum þessum stöðum. í Bláfjöllum (sími 801111) verða tíu lyftur opnar, í Skálafelli (sími 666099) þrjár lyftur, í Sleggjubeinsskarði . (sími 98-34666) þrjár og tvær í Hamragili (sími 98-34699). Vestfirðir: Á skíðasvæðinu í Seljalandsdal við ísafjörð (sími 94-3793) verður opið um helgina frá kl. 10-17. Nægur snjór er, gott færi og verða þrjár lyftur í gangi um helgina. Norðurland:Skíðasvæði Akur- eyringa í Hlíðarfjalli- (sími 96-22930) verður opið frá kl. 10-17 um helgina. Ekki er mikill snjór í fjallinu en efsti hluti þess er þó mjög góður og neðri hluti þess viðunandi. Ágætt færi er í fjallinu og verður Skíðamót ís- lands haldið þar um helgina. Stefnt er að því að hafa tvær lyftur á skíðasvæði Siglfirðinga við Skarðdal og Hól opnar frá klukkan 10-17 í dag og á morg- un. Lítill snjór er en sæmilegt færi eigi að síður auk þess sem gönguleiðir verða troðnar. Skíðasvæðin við Húsavík, Ól- afsfjörð og Dalvík verða lokuð um helgina vegna snjóleysis. Austurland: Skíðasvæðið í Oddsskarði verður opið um helg- ina frá kl. 10-17. Nægur snjór er og mjög gott færi. Þrjár lyftur verða opnar og gönguleiðir troðnar. Skíðasvæði Seyðfirðinga í Stafdal verður opið í dag og á morgun frá kl. 9-17. Skíðamót Austurlands verður haldið á svæðinu gm helgina en þar er nægur snjór og gott færi. Skíðafólki er bent á að hringja í skíðasvæðin áður en lagt er af stað til að kanna veð- ur og færð. Þá fást upplýsingar um veður í símsvara Veðurstofu íslands, 91-17000. ÍDAGkl. 12.00 Heimild: Veðurstofa íslands (Byggt ó veðurspá kl. 16.15 í gær) I/EÐURHORFUR í DAG, 4. APRlL YFIRLIT: Á Grænlandssundi er 1.000 mb smálægð á austurleið, en um 1.000 km suður af Hvarfi er 990 mb lægð sem mun hreyfast norðaust- ur og síðar austur. SPÁ: Fremur hæg norðaustanátt. Eljagangur á Vestfjörðum og vestantil á Norðurlandi en rigning eða slydda á Noröaustur- og Austurlandi. Sunn- an- og suövestanlands verður að öllum líkindum þurrt og skýjað meö köflum. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á SUNNUDAG: Fremur hæg austlæg átt. Slydda á Vestfjörð- um og við norðurströndina, en annars rigning, einkum þó á Suður- og Suðausturlandi. Hiti 1-5 stig. HORFUR Á MÁNUDAG: Norðaustanétt, sums staðar nokkuð hvöss. Slydda eða snjókoma um landið norðanvert og hiti um frostmark, en að mestu þurrt og tveggja til fimm stiga hiti syðra. Svarsími Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600. Heiðskírt r r r r r r r r Rigning Léttskýjað Hálfskýjað * / * * * * * / * * r * r * * * Slydda Snjókoma Skýjað Alskýjað V V V Skúrir Slydduél Él Sunnan, 4 vindstig. Vindörin sýnir vindstefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heilfjöðurer2vindstig, 10° Hitastig V Súld = Þoka FÆRÐA VEGUM: (Kt. 17.30 ígær> Góð færð er á vegum í nágrenni Reykjavíkur og um Suðurnes. Fært er um Hellisheiði, Þrengsli og Mosfellsheiði. Fært er með suðurströndinni austur á Austfirði. Vegir á Austfjörðum og á Fljótsdalshéraði eru yfir- leitt vel færir. Hálka er á Oddskaröi. Greiðfært er fyrir Hvalfjörð, um Snæfellsnes í Dali og þaðan til Reykhóla. Brattabrekka er fær. Fært er frá Brjánslæk um Kieifaheiði til Patreksfjarðar og þaðan til Bíldudals. Greiðfært er um Holtavörðuheiði til Hólmavíkur og þaðan um Steíngríms- fjarðarheiði til ísafjarðar og Bolungarvíkur. Fært er um Botns- og Breiða- dalsheiðar. Greiðfært er til Siglufjarðar, Ólafsfjarðar og Akureyrar, þá er einnig fært um Lágheiði. Fært er frá Akureyri um Þingeyjarsýslur í Mývatnssveit og einnig með ströndinni til Vopnafjarðar. Fært er um Mývatns- og Möðrudalsöræfi og einnig um Vopnafjarðarheíði. Vegagerðin. VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hftl veður Akureyri 7 alskýjað Reykjavík 6 súid Bergen 5 léttskýjað Helsinki 4 rigning Kaupmannahöfn 10 skýjað Narssarssuaq 0 skýjað Nuuk -r6 snjókoma Ósló 1 snjókoma Stokkhólmur 11 léttskýjað Þórshöfn 5 léttskýjað Algarve 18 léttskýjað Amsterdam 8 skýjað Barcelona 16 skýjað Berltn 7 alskýjað Chicago vantar Feneyjar 13 þokumóða Frankfurt 10 skýjað Glasgow 7 skýjað Hamborg 7 þokumóða London 8 skýjað Los Angeles 16 mistur Lúxemborg ð skýjað Madríd 11 skúr Malaga 14 skýjað Mallorca 18 skýjað Montreal +1 snjókoma New Vork 2 léttskýjað Orlando vantar París 7 alskýjað Madeira 17 léttskýjað Róm 17 þokumóða Vín 15 skýjað Washlngton vantar Winnipeg +1 léttskýjað Frumvarp um breytingu ríkisbankanna í hlutafélog: Oheimilt að selja einum aðila meira en 1/2% hlutafjár Starfsmenn eigi áfram kost á starfi en ekki rétt til launa á uppsagnarfresti I FRUMVARPI viðskiptaráðherra um stofnun hlutafélaga um rekst- ur Landsbanka og Búnaðarbanka, sem gert er ráð fyrir að taki gildi um næstu áramót, segir að við stofnun hlutafélaganna verði allt hlutafé í eigu ríkissjóðs en ráðherra geti ákveðið skiptingu þess í lduti með það í huga að einstaklingar og lögaðilar geti keypt hluti í félögunum. Sala á hlutabréfum ríkissjóðs skal vera háð samþykki Alþingis. Við sölu hlutabréfa skal þess gætt að sem mest dreifing fáist á hlutafjáreign og er ríkissjóði óheimilt að selja einstökum aðila meira en svo að hann eigi að hámarki '/2% hlutafjár í hvoru félagi. Ákvæði er um að öllum fastráðnum starfsmönnum bankanna verði gefinn kostur á starfi hjá hlutafélagsbönkunum en við það falli niður réttur þeirra til launa það sem eftir er af uppsagnar- fresti þeirra. Mælt er fyrir um að hlutabréf félaganna skuli skráð á Verðbréfa- þingi íslands og í athugasemdum frumvarpsins segir að þetta ákvæði komi ekki í veg fyrir að einstakir aðilar geti síðar eignast aukinn hluta í félögunum með viðskiptum á Verðbréfaþingi eða með öðrum hætti, en meðan ríkissjóður hafi bréf til sölu skuli þess ávallt gætt að ekki séu seld bréf til einstaks aðila meira en svo að hann eigi að hámarki '/2% í hvoru félagi. Málið ekki útkljáð á ríkissljórnarfundi Óvissa ríkir enn um hvort við- skiptaráðherra leggur frumvarpið fram sem stjórnarfrumvarp vegna andstöðu Jóhönnu Sigurðardóttur félagsmálaráðherra og þriggja ann- arra Alþýðuflokksþingmanna. Mál- ið var til umræðu á ríkisstjórn- arfundi í gærmorgun en engin nið- urstaða fékkst. Þingflokkur sjálf- stæðismanna hefur afgreitt frum- varpið fyrir sitt leyti en andstaða er innan þingflokksins við að frum- varpið verði lagt fram. Matthías Bjarnason sagðist í samtali við Morgunblaðið vera andvígur því að frumvarpið verði lagt fram, áður en lög sem barma einokun og hring- amyndun hafa verið sett. „Eg er á móti þessu, því það ligg- ur ekkert á. Við þurfum ekki þenn- an æðibunugang," sagði Matthías. „Ég hef verið hlynntur einkavæð- ingu, en menn eiga að fara varlega í þessum efnum. Það samræmist ekki stefnu Sjálfstæðisflokksins að hlaða á örfáa aðila í landinu öllu fjármagni. Það er einmitt það sem hefur gerst í mörgum almennings- hlutafélögum, og því vil ég fara að öllu með gát,“ sagði Matthías. Jón Sigurðsson, viðskiptaráð- herra, sagði í samtali við Morgun- blaðið að frumvarpið fjallaði á þessu stigi eingöngu um að breyta ríkis- bönkunum í hlutafélög. Hann sagð- ist hins vegar ekki útiloka að annar bankanna verði einkavæddur á næstu árum, „en ég tel ólíklegt að Landsbankinn kæmi til greina sem sölufyrirtæki á fyrirsjáanlegum tíma, við skulum segja á starfstíma þessarar ríkisstjórnar," sagði Jón. Þingmenn sem eru andvígir frumvarpinu hafa m.a. lagt áherslu á að það verði látið bíða þess að frumvarp um samkeppnislög, sem dreift var á Alþingi í gær, verði að lögum. Skv. upplýsingum Morgun- blaðsins er við því búist að sérstök löggjöf um framkvæmd einkavæð- ingar verði sett, jafnhliða þessum frumvörpum og er í þeirri löggjöf ætlunin að hafa enn strangari ákvæði um dreifða hlutafjáreign, t.d. að því er varðar fjármála- stofnanir. Slík löggjöf yrði almenn og næði þar með einnig til íslands- banka og hlutafjáreign í honum, samkvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins. Skv. frumvarpinu um ríkisbank- ana verður ríkisábyrgð ekki á skuld- bindingum hlutafélagabankanna en ríkisábyrgð helst á innstæðum sem bundnar eru við gildistöku laganna og jafnframt helst einföld ábyrgð ríkissjóðs um viðskiptabanka á öll- um skuldbindingum sem bankarnir hafa stofnað til fyrir 1. janúar 1993. Skv. frumvarpinu skal heild- arfjárhæð hlutafjár í bönkunum ákveðin af ráðherra skv. tillögum sérstakrar matsnefndar. Gert er ráð fyrir að öllum fast- ráðnum starfsmönnum bankanna verði gefinn kostur á starfi hjá við- komandi hlutafélagi. Jafnframt segir í frumvarpinu að taki starfs- maður sem áður gegndi störfum hjá ríkisbönkunum við starfi hjá hlutafélagabönkunum falli niður réttur hans til launa það sem eftir er af uppsagnarfresti, ef hinu nýja starfi fylgja jafnhá eða hærri laun en hann áður hafði, en ella gréiðist launamismunurinn til loka upp- sagnarfrestsins. Jafnræði banka á fjármagnsmarkaði Umboð núverandi bankaráða fellur niður þegar hlutafélögin taka við rekstri bankanna, skv. frum- varpinu og ennfremur er gert ráð fyrir breytingum á verkaskiptingu bankaráðs og bankastjórnar, m.a. um að bankastjórar hafi frumkvæði að ráðningu undirmanna sinna, en þurfi þó að leita staðfestingar bank- aráðs og að ákvörðunarvald um vexti og þjónustugjöld verði flutt til bankastjórnar. Hlutafélagabankarnir taka við öllum skattalegum skyldum og rétt- indum ríkisbankanna og sama gild- ir um lífeyrisskuldbindingar vegna starfsmanna bankanna. í athugasemdum við frumvarpið segir m.a. að með rekstri bankanna í hlutafélagaformi sé skapað jafn- ræði banka á fjármagnsmarkaði og að nýir möguleikar opnist fyrir bankana til þess að afla sér aukins eiginfjár með útboði hlutafjáraukn- ingar, ábyrgð ríkissjóðs á banka- rekstri minnki og möguleikar opnist fyrir ríkissjóð til að selja hlut sinn í bönkunum að einhveiju eða öllu leyti. ------♦ ♦ ♦------ Reykjavík: > Astand gatna er ekki gott GÖTUR í Reykjavík eru í frekar slæmu ástandi eftir snjóléttan vetur, að sögn Sigurðar Skarp- héðinssonar gatnamálastjóra. Ástand gatnanna er álíka eða verra en það hefur verið undan- farin ár þar sem yfirborð þeirra hefur lengst af í vetur verið bæði autt og rakt. Nýlega var tekið tilboði Halldórs og Gunnars í malbiksviðgerðir á vegum gatnamálastjóra. Viðgerðii' á götum borgarinnar hefjast vænt- anlega í næstu viku, að sögn Sig- urðar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.