Morgunblaðið - 04.04.1992, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 04.04.1992, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. APRIL 1992 ! Handboltalandsliðið kemur í heimsókn kl. 14.00 Coka Cola býður gestum upp á Coke og meðlæti. í Nýa Kökuhúsið býður strákunum upp á Hnallþóru. j Veitt verða verðlaun fyrir rétt svar í getrauóaleik i Adidas, Kringlusports, Stöðvar 2 og Bylgjunnar sem fram fór á dögunum. Verðlaunin veita Adidas og Kringlusport. Verslanir Borgarkringlunnar veita ríflegan afslátt af vörum. rangurs íslenska Handknattleiksliðsins.gerum við okkur dagamun og höldum veislu. Það verður margt um að vera í Borgarkringlunni í dag. AFMÆLISBÚÐIN BLÁI FUGLINN BLAZER BLÓM OG LISTMUNIR BORÐ FYRIR TVO CINDERELLA DEMANTAHÚSIÐ FIL A FIL ENDUR OG HENDUR FIÐRILDIÐ FÖRÐUNARMEISTARINN GLERAUGNASMIÐJAN HÁRPRÝÐI/FATAPRÝÐI KÚNIGÚND HERBIER DE PROVENCE KRINGLUSPORT KRINGLUKRÁIN LEONARD MAMMAN MEKKA NÝA KÖKUHÚSIÐ PLEXIGLAS RODIER SIGFÚS EYMUNDSSON STEPP STEINAR MÚSIK SVEINN BAKARI TÖFRAR TÖLVULAND TÓMSTUNDAHÚSIÐ WITTARD OF LONDON adidas A-VEISLA Furðulegar en ekki óvæntar! eftir Úlfar Þórðarson I ljölmiðlum hefur verið sagt frá yfirlýsingum Steingríms Her- mannssonar fyi-rv. forsætisráð- herra með meiru, bæði á Alþingi og annars staðar opinberlega, þar sem hann leggur að jöfnu stjórn- málastefnu núverandi ríkisstjórn- ar Þýskalands og Adolfs Hitlers, sem lagði Evrópu nánast í rúst, frá Volgubökkum til Atlantshafs, þar sem 30 milljónir manna lét- ust, en enginn veit hve margir örkumluðust. Það er vitað, að þegar Weiz- aker forseti Þýskalands bauð for- seta íslands í opinbera heimsókn fyrir tveimur árum síðan, vakti framkoma þáverandi forsætisráð- herra, mikla undrun og vonbrigði hjá þýskum frammámönnum. Fyrrverandi forsætisráðherra, Steingrímur Hermannsson, virðist Úlfar Þórðarson telja sér til framdráttar að reyna að spilla þeirri miklu góðvild, sem ávallt frá stríðslokum og raunar áður, hefur ríkt í Þýskalandi, bæði hjá leikum og lærðum í garð íslendinga og það á þeim tíma, þegar okkur er þýðingarmest að njóta góðvildar og skilnings á stöðu íslensku þjóðarinnar í þeirri nýsköpun sem á sér stað í Evrópu. Það er óhætt að fullyrða, að þetta er ekki leiðin til þess að vinna íslendingum fylgis og álits á erlendum vettvangi, því það mega menn vita, að það eru fleiri en Þjóðverjar í Evrópu og það eru fleiri en Þjóðverjar senr furða sig á þessari framkomu við þá þjóð, sem stendur mest í því í Evrópu að rétta hjálparhönd til þeirra sem eru í nauðum staddir í álfunni. Það er ekki langt síðan Þjóð- vetjar sjálfir voru í þeim sporum og þeir skilja betur en aðrir hvað gera þarf og hvað hægt et' að gera á örlagastundum. Höfundur er læknir. Málverka- uppboð á Frá Þingvöllum, verk eftir Ásgrím Jónsson. Hótel Sögu MÁLVERKAUPPBOÐ Gallerís Borgar, haldið í samvinnu við Listmunauppboð Sigurðar Bene- diktssonar hf., verður haldið á Hótel Sögu sunnudagskvöldið 5. apríl kl. 20.30. Boðin verða upp um 80 verk, flest eftir þekktustu listamenn landsins, t.d. Jóhannes S. Kjarval, Ásgrím Jónsson, Júlíönu Sveinsdóttur, Svav- ar Guðnason, Nínu Tryggvadóttur, Þorvald Skúlason, Kristínu Jónsdótt- ur, Gunnlaug Blöndal, Jón Stefáns- son, Sverri Haraldsson, Karen Agn- ete, Finn Jónsson, Jón Engilberts, Karl Kvaran, Valtý Pétursson, Eyj- ólf Eyfells, Hring Jóhannesson, Jón Reykdal, Gunnar Örn og Svein Þór- arinsson. Uppboðsverkin vet'ða sýnd í Gall- eríi Borg við Austurvöll föstudaginn 3., laugardaginn 4. og uppboðsdag- inn, 5. apríl, frá kl. 14 til 18. Hægt verður að bjóða símleiðis í verkin í símum 985-28173 og 985- 28174. SPA AKIÐ Á GOODfYEAR GOODfÝEAR 60 ÁR Á ÍSLANDI 0 HEKLA LAUGAVEGI 174 S 695560 & 674363

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.