Morgunblaðið - 04.04.1992, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. APRÍL 1992
Þing-kosningar á Italíu:
Því sem næst all-
ir flokkamir tengj-
ast mútumálum
Titanic-slysið:
Mannorð
hreinsað
Lundúnum. Reuter.
STANLEY Lord, skipstjóri SS
Californian, sem var næst farþeg-
askipinu Titanic er það sökk fyrir
80 árum, var á fimmtudag hreins-
aður að hluta af áburði um að
hann bæri ábyrgð á dauða þeirra
1.500 manna sem drukknuðu í
slysinu.
Lord lést árið 1962 og hélt því
ávallt fram að hann væri borinn
röngum sökum. Bresk yfirvöld víttu
hann árið 1912 fyrir að bregðast
ekki við neyðarkalli frá Titanic en
hann var þó aldrei sóttur til saka.
Opinber nefnd, sem hefur rannsakað
málið undanfarna mánuði, komst að
þeirri niðurstöðu að Lord hefði „ekki
brugðist rétt við neyðarkalli Titanic".
Nefndin bætti hins vegar við að skip-
stjórinn hefði hvort sem er lítið getað
gert til að bjarga fólkinu, þar sem
skip hans hefði verið of langt frá
farþegaskipinu.
Peking. Reuter.
TILLAGA Li Pengs, forsætisráðherra Kína, um risastóra stíflu og
raforkuver á Yangtze-fljóti mætti andstöðu á kínverska þinginu í
gær. Þykir það benda til þess að hörð valdabarátta eigi sér stað
innan kínverska kommúnistaflokksins milli umbótasinna og harðlínu-
marxista, sem forsætisráðherrann tengist nánum böndum.
Raforkuverið verður eitt það greiðslan er því talin mikið áfall
stærsta í heimi verði það reist og
mesta framkvæmd sem Kínveijar
hafa ráðist í frá því þeir reistu Kína-
múrinn árið 200 fyrir Krist. Aætlað
er að verkefnið kosti tíu milljai'ða
dala, 590 milljarða ÍSK. Ráðagerð-
irnar hafa sætt harðri gagnrýni
umhverfisverndarsinna, sem segja
að framkvæmdirnar geti haft
hörmulegar afleiðingar fyrir lífríkið.
Flytja þarf rúma milljón manna af
stíflusvæðinu áður en framkvæmdir
heljast.
Orkuverið hefur verið eitt af
helstu gæluverkum Li Pengs og
embættismenn hans höfðu lagt fast
að þingmönnum að samþykkja til-
löguna. Við atkvæðagreiðsluna kom
þó ljóslega fram mikill ótti á meðal
Kínverja við afleiðingar fram-
kvæmdanna. Tillagan fékkst sam-
þykkt með 1.767 atkvæðum gegn
177, en 664 sátu hjá. Þingið er
vant að samþykkja stjórnarfrum-
vörp nánast samhljóða og atkvæða-
Reuter
Friðargæslusveitir til S-Afríku?
Nelson Mandela, leiðtogi Afríska þjóðarráðsins (ANC), heilsar hér
stuðningsmönnum sínum er hann var á ferðalagi Jóhannesarborg í
gær. Hann hvatti til þess að alþjóðlegar friðargæslusveitir yrðu sendar
til Suður-Afríku til að koma í veg fyrir frekari bardaga í byggðum
blökkumanna.
fyrir forsætisráðherrann.
Þegar forseti þingsins hóf at-
kvæðagreiðsluna þótti einn þing-
mannanna sýna mikið hugrekki
með því að strunsa að ræðupúltinu
og mótmæla tillögunni í hástert.
Hann krafðist þess að hún yrði
dregin til baka svo hægt yrði að
kanna áhrif framkvæmdanna frek-
ar.
Þingmaðurinn, Huang Shun-
shing, er tæplega sjötugur landbún-
aðarsérfræðingur og flúði frá Tæv-
an til Kína árið 1985. Hann kvaðst
síðar hafa ákveðið að trufla at-
kvæðagreiðsluna vegna þess að for-
seti þingsins hefði neitað að setja
hann á mælendaskrá. Hann var
ánægður með hversu margir sátu
hjá og greiddu atkvæði gegn tillög-
unni. „Það er mitt mat að ekki verði
ráðist í framkvaimdirnar, hvorki nú
né í framtíðinni. Lítið bara á hversu
margir voru á móti þeim eftir að
hafa kannað málið,“ sagði hann.
Áður hafði þingið auðmýkt for-
sætisráðherrann með því að sam-
þykkja meira en 150 breytingar á
ársskýrslu hans að kröfu þeirra sem
aðhyllast efnahagslegar umbætui'.
Meðal annars var bætt í skýrsluna
áskorun um baráttu gegn „vinstri-
stefnu“, en það orð hafa umbóta-
sinnarnir notað yfir harðlínumarx-
isma. Þetta þykir til marks um að
Li Peng sé mjög valtur í sessi.
Brundtland hlynnt að-
ild að Evrópubandalagi
Vænst formlegrar yfirlýsingar um málið í dag
Ósló. Frá Jan Gunnar Furuly, fréttaritara Morgunblaðsins. Reuter.
BÚIST er við, að Gro Harlem Brundtland, forsætisráðherra Noregs,
tilkynni í dag það sem allir vita, þ.e. að hún sé hlynnt inngöngu Noregs
í Evrópubandalagið. Mun þetta koma fram í ræðu, sem hún flytur
hjá flokksfélagi jafnaðarmanna í UHensvang í Vestur-Noregi, og hafa
andstæðingar EB-aðildar stefnt sínu fólki þangað til mótmæla.
„Hún mun segja já“, er haft eftir
nánum samstarfsmanni Brundtlands
og í leiðara Dagbladet nú í vikunni
sagði, að yfirlýsing forsætisráðherr- AlhíHlÍB •
ans þýddi, að háegt væri að heíja *
raunverulegar umræður um EB-
málin. Um þau eru skoðanir mjög
skiptar í Noregi eins og sjá má af
könnun, sem Verdens Gang birti í
gær. Þar voru 33% hlynnt aðild, 34%
á móti og 33% óákveðin. 78% töldu
þó, að Noregur færi í Evrópuband-
alagið einhvern tíma á næstu tíu
árum. 92% kjósenda Hægriflokksins
telja að Evrópubandalagsaðild bíði
Norðmanna og 84% stuðningsmanna
Verkamannaflokksins eru sama
sinnis. Á óvart kemur að 79%
stuðningsmanna. Sósíalíska vinstri-
flokksins telja að innan fárra ára
verði Noregur eitt aðfldarríkja EB.
Andstæðingar aðildar segja, að
hún komi í veg fyrir miklar niður-
greiðslur í landbúnaði og jafngildi
fullveldisafsali en þeir, sem eru henni
hlynntir, segja, að hún auki nauðsyn-
lega samkeppni í efnahagslífinu og
komi í veg fyrir einangrun Norð-
manna. Stjórnarflokkurinn, Verka-
mannaflokkurinn, gerir upp hug sinn
til EB-aðildar á landsfundi í nóvem-
ber og ef hún verður samþykkt þar
og á Stórþinginu er líklegt, að sótt
verði um fyrir áramót. Niðurstöðu
samningaviðræðnanna við EB verð-
ur hins vegar að bera undir þjóðarat-
kvæði og gæti það líklega orðið
1994.
Svíar og Finnar hafa sótt um
aðild að Evrópubandalaginu og
Brundtland og fleiri hafa lagt
áherslu á, að staða Norðmanna einna
utan EB yrði með öllu óviðunandi.
Ramiz Alia lætur
af forsetaembætti
Tirana. Reuter.
RAMIZ Alia, forseti Albaníu og síðasti fulltrúi stalínismans í land-
inu, sagði af sér embætti í gær en fyrir tveimur vikum vann Lýðræð-
isflokkurinn mikinn kosningasigur og batt þar með enda á stjórn
kommúnista. Verður nýr forseti kjörinn á þingi.
Stuðningsmenn Lýðræðisflokks-
ins fögnuðu afsögn Alía og sögðu,
að hann hefði gert það eina rétta.
Maður á borð við Alia, sem hefði
verið valdamikill um langt skeið á
dögum stalínistans Envers Hoxha,
væri einfaldlega ekki boðlegur riú
á tímum. Eru flokksbræður Alia í
Sósíalistaflokknum, áður kommún-
istaflokknum, á sama máli og segja,
að hann og aðrir fyrrum valdamenn
séu til óþurftar.
Alia brást seint við þeirri and-
kommúnísku öldu, sem fór um alla
Austur-Evrópu fyrir nokkrum
árum, en ákvað þó í desember 1990
að leyfa frjálsar kosningar í land-
inu. Eitt síðasta embættisverk hans
var að sæma ítalska hershöfðingj-
ann Antonio Guintana orðu en hann
hefur stjórnað hjálparstarfi ítaia í
Albaníu. Hafa þeir dreift meira en
hálfri milljón tonna af matvælum
til hungraðs fólks en segja má, að
albanskt efnahagslíf sé í rúst.
Sali Berisha, leiðtogi Lýðræðis-
flokksins, á þess að sjálísögðu kost
að verða forseti en ekki er víst, að
hann taki það embætti fram yfir
forsætisráðherraembættið.
Róm. Reuter.
Spillingarmál hafa sett mark sitt á kosningabaráttuna vegna þing-
kosninganna á Italíu á sunnudag og mánudag. Sljórnmálamenn í
nánast öllum flokkum lan.dsins eru viðriðnir þessi mál og kjósendur
eru almennt vondaufir um að spillingunni linni þótt nýir þingmenn
verði kjörnir í kosningunum.
Forystumenn hægri- jafnt sem
vinstriflokka í nokkrum borgum
Ítalíu hafa verið handteknir, sakað-
ir um að hafa þegið mútur af fyrir-
tækjum vegna samninga um opin-
berar framkvæmdir. Fyrirtækin
verða fyrst að múta stjórnmála-
mönnum til að hreppa samningana.
Þegar verkinu er lokið verða þau
síðan að greiða meiri mútur til að
spilltir embættismenn fáist til að
greiða reikningana í tíma.
Mesta hneykslismálið varðar sós-
íalistann Mario Chiesa, sem rak
helsta munaðarleysingjahælið og
stórt elliheimili í Milano. Hann hef-
ur verið handtekinn fyrir að þiggja
sjö milljónir líra, 325.000 ISK, í
mútur. Sósíalistar ráku Chiesa úr
flokknum en óttast að málið kosti
þá mörg atkvæði. Lögreglan er
einnig að rannsaka hvaðan Chiesa
fékk 14 milljarða líra, tæpar 700
milljónir ÍSK, sem lagðir voru inn
á nokkra reikninga hans.
Félagar í samstarfsflokki sósíal-
ista í ríkisstjórninni, kristilegir dem-
ókratar, eru einnig viðriðnir
spillingarmál og það sama er að
segja um stjómarandstæðinga í
kommúnistaflokknum fyrrverandi,
Lýðræðisflokki vinstrimanna, sem
hefur stært sig af að hafa hreinan
skjöid í þessum efnum.
Kína:
Reúter
Jiang Zemin, formaður kínverska kommúnistaflokksins (t.h.) og Yang Shangkun, forseti Kína (fyrir
miðju), ganga á fund kínverska þingsins í gær. Fyrir aftan þá er Li Peng forsætisráðherra, sem veifar
til þingmanna. Forsætisráðherrann er sagður valtur í sessi vegna valdabaráttu harðlínumarxista og
umbótasinna.
Merki um harða vaidabar-
áttu á meðal kommúnista