Morgunblaðið - 04.04.1992, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. APRIL 1992
11
Kanna kostn-
að við fram-
færslu barns
FÉLAG einstæðra foreldra er
þegar búið að senda frá sér
spurningalista til 400 félags-
manna. Tilgangurinn með þess-
ari könnun er að varpa ljósi á
hvað það kostar að framfæra
barni á aldrinum 0-18 ára, segir
í frétt frá FEF.
Meðlagsgreiðsla er 7.425 kr. á
mánuði með einu barni, og ef tekið
er mið af því þarf aðeins 14.850
kr. til framfærslu hvers barns, leggi
báðir foreldrar jafnt að mörkum.
Félagið gerði könnun af þessu
tagi árið 1986 og kom þá í ljós að
mikið vantaði upp á að meðlag
væri helmingur af framfærslu-
kostnaði barns.
-----♦ ♦ ♦----
Leiðrétting
í frétt Morgunblaðsins fimmtu-
daginn 2. apríl um vetrarfagnað
FÍ va'r rangt farið með nafn veit-
ingahússins, en það heitir Básinn á
bænum Efstalandi en ekki Efsta-
leiti eins og kom fram. Morgunblað-
ið biðst velvirðingar á þessum mis-
tökum.
SINFÓNÍUTÓNLEIKAR
__________Tónlist______________
Jón Ásgeirsson
Tónleikar Sinfóníuhljómsveitar
Islands, sem haldnir voru sl.
fimmtudag í Háskólabíói, voru að
efni til athyglisverð þrennd, það
fyrsta í henni var frumflutningur
hljómsveitarinnar á Næturljóði eftir
Gunnar Þórðarson, það annað ein-
leikur Þorsteins Gauta í píanókon-
sert nr. 2 éftir Rakhmanínov og
fullgert var svo um þessa þrennd
með frábærum flutningi sveitarinn-
ar, undir stjórn Petri Sakari, á
fyrstu sinfóníunni eftir Mahler.
Gunnar Þórðarson hefur aðallega
fengist við gerð skemmtitónlistar
og þar náð góðum árangri. Nú hef-
ur hann fundið að tónlist hefur fleiri
víddir og margvísleg önnur blæ-
brigði upp á að bjóða en þau sem
bundin eru í fasta hrynskipan
skemmtitónlistar og sarnið þýtt og
fallegt verk. Szymon Kuran útfærði
það fyrir strengjasveit á einkar fal-
legan máta og af miklum næmleik
fyrir samskipan strengjasveitarinn-
ar, sem lék verkið mjög vel og af
töluverðri tilfinningu.
Píanókonsert nr. 2 eftir Rakh-
manínov er sérstætt verk, fullt aí
angurværð og sársauka, sem á
rætur að rekja til erfiðrar skapgerð-
ar höfundar og ósætti hans vic
móttökur þær, er fyrri verk hans
höfðu fengið. Stefin eru söngrær
og hárómantísk og hefur þess
lagstíll hans og samspil hljómsveit-
ar og píanós verið stældur af minni-
háttar tónskáldum og sérlega kvik-
myndatónskáldum í alls konar
„Varsjár-konserta“útfærslum. Þor-
steinn Gauti Sigurðsson lék kon-
sertinn af öryggi og sterkri tilfinn-
ingu fyrir því ljóðræna hjá Rakh-
manínov. Þetta kom sérstaklega
fram í öðrum þætti, sem í heild var
mjög fallega leikinn af Þorsteini
Gauta. Nokkuð hallaði á styrkleika-
jafnvægið í fyrsta kaflanum, því
þar yfirgnæfði hljómsveitin oftlega
píanóið. Svo virðist sem hljóm-
sveitarstjórinn heyri um of vel í
píanóinu, standi of nærri því, til að
geta dæmt um styrkleikajafnvægið
á milli þess og hljómsveitarinnar. í
öðrum kaflanum var gott jafnvægi
á milli píanósins og hljómsveitarinn-
ar en í lokakaflanum var hljómsveit-
in aftur á móti of sterk, svo að hin-
ir glæsilegu hamrandi hljómklasar,
sem Þorsteinn Gauti lék af öryggi,
runnu oft um of saman við þykkan
hljómvef hljómsveitarinnar.
Síðasta verkið á tónleikunum var
„Títan“-sinfónían eftir Mahler,
stórbrotið verk, sem spannar allt
sviðið frá barnastefjum til glæsi-
legra tilþrifa kunnáttumannsins.
Notkun Mahlers á fallandi ferund
minnir í upphafi verksins á þá
níundu eftir Beethoven og fyrir utan
tvö alþýðulög sem Mahler notar
má heyra ýmsar stíl-tilvitnanir í
Wagner og undir lokm í fuglaleikinn
í sjöttu Beethovens. í lokakaflanum
sérstaklega má heyra blæbrigði og
tónhugmyndir sem sagnfræðingar
hafa kallað spádóm um tilkomu
„nútímatónlistar". Strengirnir voru
stundum ekki vel hljómandi á há-
tónasviðinu, sérstaklega í upphaf-
inu, en að öðru leyti var margt
glæsilega gert í þessu erfiða verki
og auðheyrt að Petri Sakari var
þarna í essinu sínu. Hornleikararn-
ir, með Ib Lansky-Otto í fyrstu
rödd, áttu þarna fallega leiknar
strófur, svo og Sigurður I. Snorra-
son, Hafsteinn Guðmundsson og
Kristján Þ. Stephensen. í vetur hef-
ur hljómsveitin sannað, að hún er
vel fær til átaka við Richard Strauss
og Gustav Mahler og að áheyrendur
kunna að meta þessa snillinga, svo
að nú mætti SI sem best fjölga
verkum eftir þessa meistara á
næstu árum.
Sinfóníuhljómsveit íslands.
TILBOÐSVERÐ 0G TILB0ÐSKJ0R
Á 30 NOTUÐUM BÍLUM
Það er hreint útilokað að láta slíkt úr hendi sleppa
Nokkur dæmi um það sem við erum að bjóða
Við bjóðum greiðslukjör til þriggja ára og jafnvel engin útborgun
CHEVROLET BLAZER S-10 ÁRG. 1985
ekinn 118 þ.km, beinskiptur, verð 850 þús. stgr.
TOYOTA COROLLA 1600 GTI ÁRG. 1986
ekinn 86 þ.km, 5 gíra, álfelgur verð 490 þús. stgr.
MMC LANCER 1500 GLX ÁRG. 1986
ekinn 99 þ.km, 5 gira, vökvastýri verð 410 þús. stgr.
CHEVROLET MONZA 1800 SLE ÁRG. 1988
ekinn 52 þ.km, 5 gíra, vökvastýri verð 420 þús. stgr.
MAZDA 626 1600 LX ÁRG. 1987
ekinn 70 þ.km, 5 gíra, aukadekk verð 480 þús. stgr.
MMC LANCER 1500 GLX ÁRG. 1988
ekinn 72 þ.km, 5 gíra, vökvastýri verð 620 þús. stgr.
ÖRUGG BÍLASALA
Á
GÓÐUM STAÐ
OPIÐ:
LAIGARDAG
10-1700
Bilahúsið
__ _ _ -
í L, |_
SÆVARHÖFÐA 2 674848 i húsi Ingvars Helgasonar