Morgunblaðið - 04.04.1992, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. APRÍL 1992
Stjómlaus bíll rann
út í sjó á Hofsósi
Samstarfsmenn eiganda bílsins
söfnuðu peningum fyrir nýjum bíl
Hofsósi.
SA atburður gerðist hér á Hofsósi nú fyrir skömmu á bílastæði Fisk-
iðjunnar á Hofsósi að bifreið eins starfsmanns Fiskiðjunnar fór sijórn-
laus af stað, en bílastæðið hallar dálítið, og er skemmst frá því að
segja að ferð bílsins endaði út í sjó og mun vera um 5 metra dýpi
þarna við klappirnar sem hann fór fram af.
Var þetta Skóda bíll nokkuð
gamall og ekki kaskótryggður og
því tilfinnanlegt tjón fyrir eigand-
ann, Ásdísi Sveinbjörnsdóttur, sem
býr í nágrenni Hofsóss og keyrir á
vinnustað um 3 km leið.
Ásdís sagði fréttaritara að hún
vissi ekki hvað hefði gerst en hún
taldi sig hafa gengið frá bílnum
eins og hún var vön. Hún var ný
stiginn út úr bílnum er hann lagði
af stað en ferðin var strax svo mik-
il á honum að engin tök voru á því
að stöðva hann og mátti því Ásdís
horfa á eftir sínum gamla góða
Skóda sigla hraðbyri niður sjávar-
klappir og út í sjó.
En svo gerist það góða í fram-
haldi af þessari sögu að starfsfélag-
ar Ásdísar í Fiskiðjunni söfnuðu á
þriðja hundruð þúsund króna dag-
inn eftir að óhappið gerðist og
sendu mann til Ákureyrar sem
keypti þar svo til nýjan Skoda og
var Ásdísi færður bíllinn með við-
höfn daginn eftir.
Ásdís sagðist engan veginn geta
þakkað starfsfélögum sínum þessa
höfðinglegu gjöf en til að sýna ein-
hvem þakklætisvott kom hún næsta
dag með fjöldann allan af tertum
með kaffínu handa starfsfólkinu.
- Einar.
Rúrí opnar sýningn
á Kjarvalsstöðum
LISTAMAÐURINN Rúrí mun
opna 16. einkasýningu sína í
Austursai Kjarvalsstaða laugar-
daginn 4. apríl ki. 16, og er nafn
sýningarinnar Afstæði. Sýningin
verður opin daglega kl. 10-18
og verður húsið opið alla hátíðar-
dagana. Sýningunni lýkur annan
í páskum 20. apríl. Flest verk-
anna á sýningunni eru unnin í
blý og timbur og hafa ekki verið
sýnd opinberlega áður. Ennfrem-
ur sýnir Rúrí þrjár grafík-möpp-
ur.
Morgunblaðið/Magnús Magnússon
Guðmar Pétursson og Sylvía Sigurbjörnsdóttir fara með aðalhlutverkin í „Hestum og huldufólki“,
íslenska hluta „Ævintýra á norðurslóðum".
Ævintýri á norðurslóðum:
Ný barnamynd frumsýnd
„ÆVINTÝRI á norðuslóðum“ heitir ný kvikmynd fyrir börn á
öllum aldri sem frumsýnd verður í Háskólabíói í dag, laugar-
dag. Efni myndarinnar er þijár nútíma barnasögur frá þremur
löndum, Hannis, saga frá Færeyjum, Móðir hafsins, gerist á
Grænlandi, og Hestar og huidufólk sem gerist á íslandi. Kostnað-
ur við gerð myndarinnar er á bilinu 50 til 60 miHjónir króna.
Að sögn Sigurðar Grímssonar, Kvikmyndasjóði íslands í fyrra til
kvikmyndagerðarmanns hjá
Þumli, er myndin tekin upp á
Grænlandi, í Færeyjum og á Ís-
landi. Sögurnar eru aðskildar og
hefur Jens Brönden skrifað hand-
rit grænlensku sögunnar, Katrín
Ottarsdóttir þeirrar færeysku og
Guðný Halldórsdóttir skrifaði ís-
lenska handritið. „Þetta er sam-
vinnuverkefni, þar sem hvert land
leggur til handrit, leikstjóra og
leikara en að öðru leyti er fram-
leiðslan á vegum Þumals og
Magmafilm og Umba,“ sagði Sig-
urður. „Við fengum ; styrk úr
að gera myndina og síðan frekari
styrk frá Norræna kvikmynda-
sjóðnum til að hrinda þessu í
framkvæmd. Og að auki höfum
við notið stuðnings frá Grænlandi
og Færeyjum."
Það eru börn sem- fara með
aðalhlutverkin í myndunum
ásamt atvinnuleikurum. í ís-
lensku myndinni eru það Guðmar
Pétursson og Sylvía Sigurbjörns-
dóttir ásamt Bessa Bjamasyni,
Ladda, Arnari Jónssyni og Eddu
Heiðrúnu Backman, sem fara
með helstu hlutverk.
„Ævintýri á norðurslóðum" er
ætluð til sýningar í sjónvarpi fyrst
og fremst og hefur þegar verið
gengið gengið frá sýningu hennar
í Danmörku, Finnlandi, Þýska-
landi, Austurríki og Sviss. Auk
þess verður myndin kynnt á kaup-
stefnum kvikmynda- og sjón-
varpsefnis, meðal annars í Cann-
es en hún nýtur einnig stuðnings
Eureka, sem tekur að sér að
kynna myndina.
Frumsýning myndarinnar í
Færeyjum verður 11. apríl. Óvíst
er hvernig og hvenær myndin
verður frumsýnd á Grænlandi en
þar er ekkert kvikmyndahús, að
sögn Sigurðar. Hins vegar koma
Grænlendingar til íslands og
verða viðstaddir frumsýninguna
hér.
Lauk doktorsprófi
í plöntuerfðafræði
Rúri er nýkomin frá Montreal í
Kanada en þar voru sýnd eftir hana
tvö kvikmyndaverk í tengslum við
alþjóðlega ráðstefnu um listir og
menningu. Þá er nýlokið sýningu í
norrænu menningarmiðstöðinni í
Helsinki á verkum hennar og
tveggja annarra norrænna lista-
manna sem hún hefur starfað mik-
ið með undanfarin 10 ár, Hannu
Siren og William Louis Sörensen.
Að sýningunni Afstæði lokinni mun
Rúri taka þátt í alþjóðlegri sýningu
á útilistaverkum á listasetrinu Wan-
as í Svíþjóð ásamt 10 öðrum lista-
mönnum frá Evrópu og Bandaríkj-
unum. í vor áætlar Rúrí einnig að
um Norðurlönd og heldur
tvenna tónleika í Norræna hús-
inu sunnudagskvöldið 5. apríl
kl. 20.30 og mánudagskvöldið
6. apríl kl. 20.30. Kórinn syngur
einnig á Akranesi þriðjudaginn
7. apríl kl. 20.30.
Frá íslandi heldur kórinn til
Færeyja og þaðan til Danmerkur.
Kammerkór Gautaborgar var
stofnaður fyrir tæplega 30 árum
af Gunnar Eriksson og hefur hann
stjórnað kórnum sfðan. Margir
félagar hafa sungið með kómum
frá upphafi og er hann álitinn
meðal bestu kóra Svía. Gunnar
Eriksson hefur unnið sér sess sem
einn helsti kjórstjóri Svíþjóðar og
þótt víðar væri leitað fyrir kór-
stjórn og raddsetningar. Kórinn
hefur farið víða og haldið tónieika
og hvarvetna vakið athygli fyrir
skemmtilegan söng, túlkun og
nýstárlega uppröðun.
Á efnisskrá tónleikanna í Nor-
Rúri
sýna í Slunkaríki á ísafirði og í
haust er henni boðið ásamt nokkr-
um öðrum alþjóðlegum listamönn-
um að gera verk fyrir útlistaverka-
sýningu í Montreal í tilefni 350 ára
afmælis borgarinnar.
Kammerkór Gautaborgar.
ræna húsinu eru verk eftir norræn
tónskáid auk annarra frá öðrum
löndum, en annars vilja kórfélag-
ar„„spila eftir eyranu“ eða syngja
NÝVERIÐ lauk Kesara
Anamthawat-Jónsson doktors-
prófi í plöntuerfðafræði frá
Cambridge-háskóla í Bretlandi.
Ritgerðin nefnist „Molecular
cytogenetics and nuclear organiz-
ation in the Triticeae“ og fjallar
um sameinda- og frumuerfðafræði
þá tónlist sem þeim finnst við
hæfi hveiju sinni, það fer eftir
áheyrendum og stemmningunni í
salnum.
plantna og uppbyggingu frumu-
kjama. Kesara hefur þróað aðferð
til að nota DNA og litninga við
að sundurgreina náskyldar teg-
undir og komast að raun um litn-
ingaflutning við kynbætur. Aðferð
þessi nefnist „Method of indentify-
ing DNA sequences in chromoso-
mes of plants“ og er nú til með-
ferðar hjá evrópskum og banda-
rískum einkaleyfisskrifstofum.
Kesara var fædd í Thailandi og
foreldrar hennar eru Boonsong
Anamthawat tæknifræðingur og
Chaleo Anamthawat. Eiginmaður
er Friðrik Ragnar Jónsson flug-
maður og starfar hjá Flugleiðum.
Kesara lauk BS-prófi í grasafræði
við Chulalonkorn-háskóla í Bang-
kok og MS-prófí við Kansas-
háskóla í Bandaríkjunum. Hún
starfaði sem aðstoðarprófessor í
grasafræði við Cambridge-háskóla
til 1982 er hún fluttist til íslands.
Kesara hefur unnið við Rann-
sóknastofnun landbúnaðarins við
margvísleg verkefni sem lúta að
Dr. Kesara Anamthawat-Jóns-
son.
frumulífeðlisfræði. Meðal þeirra
má nefna verkefni sem Vísinda-
sjóður styrkti um erfðaflæði fjall-
drapa og birkis og rannsóknir á
litningabrengli í sauðfé. Hún vinn-
ur nú að því að þróa áfram hagnýt-
ingu á líftækniaðferðum við marg-
víslegar rannsóknir á nytjaplönt-
um í landbúnaði, landgræðslu og
skógrækt.
Ljóðadagskrá í Perlunni
FÉLAGSSKAPURINN Reykvísk menning stendur fyrir ljóðasam-
komu milli pálmatrjánna í Vetrargarði Perlunnar nk. mánudags-
kvöld, 6. apríl kl. 20.30.
Átta skáld munu flytja þijú af
ljóðum sínum sérstaklega valin:
Eitt ástarljóð, eitt trúarljóð og eitt
harmljóð. Á dagskránni eru áður
útgefin Ijóð auk þess sem nokkur
ljóð verða frumflutt.
Skáldin eru: Guðbergur Bergs-
son, Ingibjörg Haraldsdóttir, Nína
Björk Arnadóttir, Sigfús Daðason,
Sigurður Pálsson, Steinunn Sig-
urðardóttir, Vigdís Grímsdóttir og
Þórarinn Eldjám, en Ragnar Hall-
dórsson mun flytja þijú af ljóðum
Matthíasar Johannessens auk þess
að vera kynnir. í dagskrárlok mun
Sigfús Halldórsson leika þijú ný
sönglög úr eigin smiðju. Friðbjöm
G. Jónsson og Elín Sigurvinsdóttir
syngja. Samkoman er öllum opin.
Kammerkór Gautaborgar
syngur 1 Norræna húsinu
KAMMERKÓR Gautaborgar
kemur til Islands á ferð sinni