Morgunblaðið - 04.04.1992, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. APRÍL 1992
Norrænir leiklistardagar:
Veglegt framlag ís-
lensku leikhúsanna
Á NORRÆNUM leiklistardögum sem verða í Reykjavík 4.-9. júní
og eru haldnir í tengslum við Listahátíð í Reykjavík, koma fimm
sýningar frá Norðurlöndunum. Framlag íslensku leikhúsanna verð-
ur einnig veglegt, að sögn Hávars Sigurjónssonar blaðafulltrúa
Listahátíðar, en alls verða íslenskar leiksýningar á fimm verkum.
Þjóðleikhúsið sýnir þijú stykki,
þ.e. verkin Elín, Helga, Guðríður
á Stóra sviðinu, Kæra Jelena á
Litla sviðinu og Ég heiti ísbjörg,
ég er ljón á Smíðaverkstæðinu.
Borgarleikhúsið sýnir Þrúgur
reiðinnar og framlag Norræna
hússins verður leikgerð Sveins
Einarssonar á Bandamannasögu,
sem frumsýnd verður sérstaklega
af þessu tilefni.
Tvær bamasýningar koma frá
Nórðurlöndum; Fritjof Fomlesen
frá Noregi og Apinn frá Dan-
mörku. Tvær sýningar koma frá
Svíþjóð; Draumleikur Strindbergs
og Hamlet. Þá sýnir Borgarballett-
inn frá Helsinki á Norrænum leik-
listardögum.
Morgunblaðið/Sverrir
Ungir Hafnfirðingar yrkja ljóð um bæinn
Börn í Hvaleyrarskóla í Hafnarfirði ásamt
foreldrum og kennurum hafa undanfamar
íjórar vikur unnið þemaverkefni í skólanum
sem þau kalla „Hafnarfjörður, bærinn ökk-
ar.“ Tvö þemaverkefni eru unnin á ári í
skólanum og er markmiðið að efla tengsl á
milli foreldra barnanna og kennara með því
að opna skólann fyrir foreldrunum. Vigdís
Finnbogadóttir forseti var meðal gesta sem
heimsóttu börnin í gær til að hlusta á þau
flytja ljóð og tii að skoða sýningu sem sett
hefur verið upp í tilefni verkefnisins. Sýn-
ingin verður opin í dag á milli kl. 13 og 16.
Siðanefnd um auglýsingar:
v-
Auglýsing Myllunn-
ar er talin brjóta í
bága við siðareglur
SIÐANEFND um auglýsingar hef-
ur úrskurðað að auglýsing frá
Myllunni sem birtist í DV í síðustu
viku bijóti i bága við siðareglur
um auglýsingar þar sem hún var
Frumvarp viðskiptaráðherra til samkeppnislaga:
Heímilt verði að banna sam-
runa eða yfirtöku fyrirtækja
Samkeppnisráð getur lagt á sektir, allt að 10% af veltu, vegna brota á samkeppnisreglum
I STJÓRNARFRUMVARPI til samkeppnislaga, sem viðskiptaráðherra
hefur lagt fram á Alþingi, er lagt til að nafni Verðlagsstofnunar verði
breytt í Samkeppnisstofnun og nafni Verðlagsráðs í Samkeppnisráð.
Skv. frumvarpinu getur Samkeppnisráð gripið til aðgerða gegn samn-
ingum, skilmálum og athöfnum sem hafa skaðleg áhrif á samkeppni,
en þau eru m.a. talin geta faiist I að fyrirtæki nái, viðhaldi eða styrki
markaðsráðandi stöðu á markaði. Samkeppnisstofnun getur skyldað
fyrirtæki til að tilkynna um samruna fyrirtækja, yfirtöku á öðru fyrir-
tæki, kaup á meirihluta í öðru fyrirtæki eða yfirtöku á starfsemi
annars fyrirtækis með öðrum hætti sem gera megi ráð fyrir að hafi
veruleg áhrif á samkeppnisaðstæður. Telji Samkeppnisráð að samruni
fyrirtækja eða yfirtaka á öðru fyrirtæki dragi verulega úr samkeppni
og sé andstæð markmiði laganna getur ráðið lagt bann við því og
sama á við ef eigendur með virk yfirráð í einu fyrirtæki ná virkum
yfirráðum í öðru þannig að hamlað geti samkeppni.
Meðal nýmæla í frumvarpinu er
heimild til handa Samkeppnisráði
að leggja á sektir vegna brota á
samkeppnisreglum. I kafla frum-
varpsins um viðurlög segir m.a. að
við ákvörðun stjórnvaldssekta skuli
tekið tillit til þess skaða sem sam-
keppnishömlur hafa valdið og þess
Verslun ’92
um helg’ina
VERSLUN ’92 - ráðstefna Kaup-
mannasamtakanna fer fram á
Holiday Inn hótclinu í dag frá kl.
10 til 17. Slíkt ráðstefnuhald er
orðið fastur liður í starfsemi sam-
takanna en að þessu sinni verður
farið inn á á þrengra svið og fag-
legri málefni en áður. Samhliða
ráðstefnunni er sýning á Holiday
Inn laugardag og sunnudag.
Á ráðstefnunni verða haldnir fyrir-
lestrar um tækninýjungar og notkun
þeirra í íslensku umhverfí, markaðs-
setningu verslunar, öryggisbúnað,
rafræna greiðslumiðlun og ímynd
verslana. Á vörusýningunni verða
m.a. umbúðir, tölvubúnaður, verslun-
arkerfí og öryggisbúnaður, innrétt-
ingar, sorpílát og bifreiðar, auk
margvíslegra kynninga.
ávinnings sem þær hafi haft í för
með sér. Þó má sekt ekki nema
hærri upphæð en 10% af veltu síð-
astliðins almanaksárs hjá hveiju ein-
stöku brotlegu fyrirtæki eða samtök-
um fyrirtækja. Ákvörðun Sam-
keppnisráðs má skjóta til sérstakrar
áfrýjunarnefndar samkeppnismála.
íhlutun Samkeppnisráðs vegna
samninga, skilmála eða athafna fyr-
irtækja sem talin eru hafa skaðleg
áhrif á samkeppni getur einnig falið
í sér að ráðið grípi til ákvörðunar
um verð og viðskiptakjör einstakra
fyrirtækja eða fyrirtækjahópa.
í fyrstu grein frumvarpsins segir
að lögin hafi það að markmiði að
vinna að hagkvæmri nýtingu fram-
leiðsluþátta þjóðfélagsins og efla
virka samkeppni í viðskiptum með
því að vinna gegn óhæfilegum hindr-
unum og takmörkunum á frelsi í
atvinnurekstri og vinna gegn órétt-
mætum viðskiptaháttum. Er lögun-
um ætlað að taka til hvers konar
atvinnustarfsemi, s.s. framleiðslu,
verslunar og þjónustu, án tillits til
þess hvort hún er rekin af einstakl-
ingum, félögum, opinberum aðilum
eða öðrum.
í frumvarpinu er fjölgað bann-
ákvæðum við samkeppnishömlum
sem taldar eru skaðlegar. Lagt er
til að samningar eða aðrar samstillt-
ar aðgerðir um verð, gerð tilboða
og markaðsskiptingu verði barmað-
ar. „Bann við markaðsskiptingu er
nýmæli í íslenskri löggjöf og einnig
bann við leiðbeinandi láréttu sam-
ráði t.d. ýmissa starfsstétta um út-
gáfu sameiginlegs taxta. í frum-
varpinu er gert ráð fyrir að gildandi
reglur um lóðréttar samkeppnis-
hömlur, þ.e. að seljandi megi ekki
binda hendur endurseljanda vöru um
ákvörðun verðs, verði áfram í gildi.
Nýmæli er þó að seljandi vöru getur
ákveðið það verð sem endurseljandi
má hæst verðleggja vöruna á,“ seg-
ir í greinargerð frumvarpsins. Frá
þessum bannákvæðum eru undan-
þáguheimildir m.a. ef þær eru taldar
geta leitt til aukinnar samkeppni.
Kafli frumvarpsins sem varðar
eftirlit með óréttmætum viðskipta-
háttum er að mestu óbreyttur frá
gildandi lögum en þó er bætt inn
nýju ákvæði um auglýsingar, sem
er sett til verndar gegn óheppilegum
áhrifum auglýsinga á börn. Þá er
fellt niður ákvæði gildandi laga sem
felur í sér bann við úthlutun vinn-
inga í verðlaunasamkeppni ef
markmiðið er.örvun sölu eða þjón-
ustu og tilviljun ræður hver vinning
hlýtur.
Þá eru ákvæði í frumvarpinu um
að Samkeppnisstofnun beri að veita
aðstoð við framkvæmd samkeppnis-
reglna annarra ríkja og alþjóðastofn-
ana í samræmi við gagnkvæmar
skuldbindingar í milliríkjasamning-
um sem miða m.a. að því að upp-
fylla kröfur sem gerðar verða til
landa sem verða aðilar að Evrópsku
efnahagssvæði.
Lagt er til að viðskiptaráðherra
skipi formann Samkeppnisráðs án
tilnefningar en Alþýðusambandið og
Yinnuveitendasambandið tilnefni
hvort sinn manninn og Hæstiréttur
íslands skipi tvo menn sem séu óháð-
ir fyrirtækjum eða samtökum sem
lögin taka til.
Lögð er áhersla á að efla svokall-
að gagnsæi markaðarins með upp-
lýsingamiðlun sem sé grundvallar-
forsenda fyrir þróun virkrar sam-
keppni. Gert er ráð fyrir að sam-
keppnisyfirvöld beiti verðlagsákvæð-
um aðeins í undantekningartilvikum
ef önnur úrræði duga ekki en ríkis-
stjórn er hins vegar veitt heimild til
að setja á verðstöðvun eða aðrar
verðlagningarreglur ef neyðar-
ástand skapast, t.d. vegna náttúru-
hamfara eða styijaldarástands.
talin innihaida órökstuddar og
rangar fullyrðingar. í auglýsing-
unni var gefið í skyn að Brauð-
gerð Mjólkursamsölunnar byði
afslátt af brauðum í krafti niður-
greiðslna.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins eru tildrög málsins þau að
auglýsingastofan Hvíta húsið kærði
fyrir rúmri viku, fyrir hönd Brauð-
gerðar Mjólkursamsölunnar, auglýs-
ingu frá Myllunni. Hvíta húsið taldi
að í auglýsingunni væri gefíð í skyn
að Brauðgerð Mjólkursamsölunnar
byði 50% afslátt af fínum og grófum
stórbrauðum í krafti niðurgreiðslna
á mjólkurafurðum og að skattgreið-
endur greiddu því þann afslátt sem
Brauðgerðin byði neytendum.
Vegna tilmæla Siðanefndar um
auglýsingar voru frekari birtingar
auglýsingar Myllunnar stöðvaðar um
leið og kæran var lögð fram í síð-
ustu viku,
Úrskurður Siðanefndarinnar féll
svo í fyrradag og var auglýsingin
talin bijóta í bága við sið'areglur um
auglýsingar þar sem hún var talin
innihalda órökstuddar fullyrðingar
og beinlínis rangar. Þá segir í úr-
skurðinum að auglýsingin sé talin
skýlaust brot á ákvæðum um sann-
leiksgildi annars vegar og last hins
vegar.
Morgunblaðið Arni Sæberg.
Brotlegir ökumenn fá bækling
Lögreglan í Reykjavík hefur gefið út bækling sem lögreglumenn
munu á næstunni afhenda ökumönnum sem staðnir verða að brotum
á umferðarlögum. I bæklingnum eru prentaðar ýmsar hvatningar til
manna um nauðsyn aðgæslu í akstri. Meðal annars segir að umferðar-
lög og -reglur séu settar til að umferðin megi ganga fyrir sig án
óhappa og þegar slys verði hafí ein eða fleiri þessara reglna verið
brotin. Myndin að ofan var tekin þegar lögreglumennirnir Jóhann
Davíðsson og Júlíus Óli Einarsson, höfundur bæklingsins, voru við
hraðamælingar á Hringbraut. Þegar búið var að skrifa upp nafn og
númer brotlegra ökumanna var þeim afhentur bæklingurinn í kveðju-
skyni.
Í
i
i
I
I
>
I
>
I
i
>