Morgunblaðið - 04.04.1992, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. APRÍL 1992
29
Klaus Schmieder bruggmeistari og Ágúst Öskar Sigurðsson mat-
vælafræðingur við gæðaeftirlit.
Egils-páskabjór kom-
inn I verslanir ATVR
EGILS-páskabjór er nú kominn í verslanir ÁTVR. Þetta er í
annað sinn sem sérstakur Egils-páskabjór er settur á markað-
inn en löng hefð er fyrir páskabjór í nágrannalöndunum.
Flestir Islendingar sem eitthvað hafa dvalið í Danmörku
þekkja t.d. Tuborg-páskabruggið sem Danir hafa tekið opnum
örmum fyrir hverja páska um
Egils-páskabjórinn er „milli-
dökkur" og hefur 5,1% alkóhól-
innihald miðið við rúmmál.
Hann er bruggaður samkvæmt
Reinheitsgebot lögunum þýsku
eins og allur annar bjór frá Öl-
gerðinni. Það þýðir að engin
aukaefni eru notuð við bruggun-
ina, einungis vatn, malt, humlar
og ölger.
Höfundur uppskriftar páska-
bjórsins er hinn þýski brugg-
meistari Ölgerðarinnar, Klaus
Schmieder, sem er frá brugg-
áraraðir.
meisturum kominn í tvo ættliði.
Hann hefur starfað við ölgerð
víða um heim og segir að ís-
lenska vatnið sé það besta sem
hann hefur notað til bruggunar
hingað til.
Egils-páskabjórinn er eins og
áður segir fáanlegur í verslun-
um ÁTVR og kostar kippan 800
krónur. Jafnframt má reikna
með að flestir helstu veitinga-
staðir landsins komi til með að
hafa hann á boðstólum.
(Fréttatilkynning)
Sérfræðingur Sotheby’s
heldur vínkynningu
SOTHEBY’S-uppboðsfyrirtækið
gengst fyrir kynninguu á víni og
vínsmökkun föstudaginn 1. maí
og laugardaginn 2. maí. Serena
Sutcliffe, sérfræðingur víndeild-
ar Sotheby’s, mun flytja fyrir-
lestur um vín og að honum lokn-
um verður vínsmökkun þar sem
kynnt verða frá Bordeaux-hér-
aði. Aðallega verða smökkuð vín
frá níunda áratugnum sem talinn
er vera besti áratugur þessarar
aldar í Bordeaux. Einstaka eldri
vín verða einnig sinökkuð.
Serena Sutcliffe hefur verið sér-
fræðingur víndeildar Sotheby’s síð-
an árið 1991 og er meðal virtustu
sérfræðinga á sínu sviði í heiminum.
Hún hefur m.a. gert sjónvarpsþætti
um vín fyrir breska og franska sjón-
varpið og flutt fyrirlestra víða um
heim. Serena Sutcliffe hefur einnig
ritað ijölmargar bækur um vín og
má þar nefna: Great Vineyards and
Winemakers, The Wine Drinker’s
Handbook, The Pocket Guide to the
Wines of Burgundy og A Celebrat-
ion of Champagne.
The Pocket Guide to the Wines
of Burgundy var valin vínbók ársins
1986 af tímaritinu Decanter og A
Celebration of Champagne vínbók
ársins 1988 af sama tímariti.
Árið 1988 var Serena Sutcliffe
heiðruð af frönsku ríkisstjórninni
Selfoss;
Fimm bjöllukórar á landsmóti
Selfossi.
hver annars, fóru meðal annars í
sundlaugina í Hveragerði. Mótinu
lauk svo með tónleikum í Selfoss-
kirkju á sunnudag þar sem kórarn-
ir spiluðu hver fyrir sig og síðan
allir saman. í lokin var svo öllum
boðið til kaffisamsætis.
- Sig. Jóns.
LANDSMÓT bjöllukóra fór fram
á Selfossi 27.-29. mars. í mótinu
tóku þátt kórar frá Hellissandi,
Garðinum, Bústaðakirkju og
tveir kórar frá Selfossi.
Kórfélagarnir æfðu bjöllutónlist
yfir helgina og nutu félagsskapar
Serena Sutcliffe
með orðunni Chevalier dans l’Ordre
des Arts et des Lettres fyrir fram-
lag sitt til kynningar á frönskum
vínum og fyrir rannsóknir á franskri
vínsögu.
Allar nánari upplýsingar veitir
Sigríður Ingvarsdóttir fulltrúi Soth-
eby’s á íslandi. Skráningarfrestur
á kynninguna rennur út þriðjudag-
inn 14. apríl.
Borgarstjórn skorar á heilbrigðisráðherra;
Fæðingarþjónusta verði áfram
á Fæðingarheimili Reykjavíkur
BORGARSTJÓRN samþykkti á fundi sínum í'fyrradag tillögu þar
sem ítrekuð er fyrri samþykkt hennar uni að með yfirtöku ríkisspít-
ala á Fæðingarheiinili Reykjavíkur verði þjónustusérstaða þess
tryggð þannig að heimilið verði áfram sá valkostur sem það hefur
verið. Þá skoraði borgarstjórn á heilbrigðisráðherra að tryggja til
frambúðar að á Fæðingarheimilinu verði áfram veitt fæðingarþjón-
usta samkvæmt þeirri hugmyndafræði sem þar hefur verið byggt
á frá stofnun og að fjármagni verði veitt til þess. Tillagan var
samþykkt samhljóða. TiIIögu Elínar G. Ólafsdóttur um að borgin
yfirtæki aftur rekstur Fæðingarheimilisins var vísað frá.
Málefni Fæðingarheimilisins
voru rædd utan dagskrár á fundi
borgarstjórnar. Kristín Á. Ólafs-
dóttir sagði að óskað hefði verið
eftir utandagskrárumræðunni þar
sem síðustu daga hefðu borist
fregnir af hugmyndum forráða-
manna ríkisspítalanna um gjör-
breytt hlutverk Fæðingarheimilis-
ins með því að allar fæðingar yrðu
fluttar þaðan yfir á Fæðingardeild
Landspítalans.
„Það var alls ekki það sem borg-
aryfirvöld höfðu í huga þegar þau
lýstu sig tilbúin að ganga t>'l við-
ræðna við ríkisvaldið um yfirtöku á
rekstrinum," sagði Kristín.
Hún lagði fram tillögu að ályktun
á fundinum þar sem skorað var á
heilbrigðisráðherra að tryggja að
fæðingaþjónusta yrði áfram veitt á
Fæðingarheimilinu.
Elín G. Óiafsdóttir lagði fram
tillögu um að borgarstjórn sam-
þykkti að tryggja áframhaldandi
rekstur ‘Fæðingarheimilisins í
óbreyttri mynd með því að leysa
það til sín á ný og yfirtaka allan
rekstur þess á eigin vegum.
Hún sagði að borgarfulltrúar
hefðu verið hafðir að fíflum í þess-
ari umræðu. „Ég get ekki skilið orð
Árna Gunnarssonar, útsendara heil-
brigðisráðherrans, á annan hátt en
þann að nú sé enn á ný allt í kalda-
koli varðandi rekstur Fæðingar-
heimilisins. Það er ekkert að marka
það samkomulag sem ég allavega
hélt að væri í höfn,“ sagði Elín.
Árni Sigfússon sagðist kjósa að
gera ekki of mikið út' málinu. Ekki
væri búið að hnýta alla hnúta en
vonast væri til að það gerðist fljót-
lega.
Árni sagði að heilbrigðisráðherra
hefði marglýst því yfir að Fæðing-
arheimili Reykjavíkurborgar yrði
rekið áfram þannig að fullyrðingar
um að Fæðingarheimilið væri að
koðna niður væru ekki á dagskrá.
„Það er ekki verið að leggja Fæð-
ingarheimili Reykjavíkurborgar
niður og orð skulu standa um það,“
sagði Arni.
Hann sagði að það sem lægi
óljóst eftir væri hvort flytja ætti
fæðingar yfir á Fæðingardeild
Landspítalans. „Nú stendur deilan
um það hvort fæðingarþjónusta eigi
að færast af Fæðingarheimilinu
yfir á Landspítalann eða ekki.
Sautján milljónir sem lagðar eru til
reksturins nægja hins vegar ein-
faldlega ekki og það er það sem
stjórnarformaður ríkisspítala hefur
ítrekað. Hann hefur sömu áhyggjur
og við um að það fjármagn sem
ætlað sé til Fæðingarheimilisins
dugi ekki,“ sagði Árni.
Hann sagði að þetta mál þyrfti
að ræða við heilbrigðisráðuneytið.
„Við töldum okkur hafa fengið
lausn á því máli en það kann að
vera að enn þurfi að herða róðurinn
til að tryggja það.“
Árni lagði fram málamiðlunartil-
lögu fyrir hönd borgarfulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins þar sem borgar-
stjórn ítrekaði fyrri samþykkt sína
og skoraði á heilbrigðisráðherra að
tryggja til frambúðar að á Fæðing-
arheimilinu verði áfram veitt fæð-
ingarþjónusta samkvæmt þeirri
hugmyndafræði sem þar hefur ver-
ið byggt á og að fjármagni verði
veitt til þess.
FEWAINGARGJAFIR
í ÖRVALI
TILDÆMIS:
HANDSMÍÐ AÐIR14 K
HRINGIR MEÐ PERLU 6.900
HRINGIR MEÐ STEINI 7.900
Jön Slpmunílfflon
Shortgripaverzian
LAUGAVEG 5-101 REYKJAVÍK
SÍM! 13383
EM 1480
KERAMIKHELLA
/CZZZZZZZZN
V i 1 1 f; i
1 :i 1 V ;4 / //- 'X \f Vi 1 \ V. j
r i
V \ -
V
EKV 1480
Fullt verð fyrir ofn,
hellu og viftu
kr. 74. 163
Staðgreiðsluverð
fyrir sama
kr. 59.330
Fullt verð fyrir ofn,
keramikhellu
og viftu
kr. 101.830
Staðgreiðsluverð
fyrir sama
kr. 81.466
RAFtiW
&SAMBANDSINS
MIKLAGARÐI S.692090
VINKLAR A TRE
HVERGI LÆGRI VERÐ
ÞÝZKIR GÆÐAVINKLAR
OG KAMBSAUMUR
ÁVALLT FYRIRLIGGJANDI
KK EINKAUMBOÐ
B8 Þ.ÞORGRÍmSSON & C0
Ármúla 29 - Reykjavík - sími 38640