Morgunblaðið - 04.04.1992, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. APRÍL 1992
31
Glerárkirkju í vetur. Síðasta fjöl-
skylduguðsþjónustan fyrir ferm-
ingar verður sunnudaginn 5. apríl
nk. kl. 14. Ungt fólk aðstoðar í
athöfninni. Álfheiður Guðmunds-
dóttir leikur á þverflautu. Allir eru
hjartanlega velkomnir og öll fjöl-
skyldan er sérstaklega hvött til
þátttöku.
(Fréttatilkynning frá Glerárkirkju.)
Glerárkirkja:
Síðasta fjölskylduguðs-
þjónustan fyrir fermingar
„Nú fara fermingar að nálgast
í Glerárkirkju, en fermt verður
á pálmasunnudag (12. apríl) og
skírdag (16. apríl). Undirbún-
ingur heimilanna stendur því
sem hæst og margt sem foreldr-
ar vilja huga að í þeim efnum.
Hinn andlegi undirbúningur fyr-
ir sjálfa ferminguna má þá ekki
gleymast. Mikilvægt er að fjöl-
skyldan ræði saman um trúna,
vonina og kærleikann. Sá grunnur
sem lagður er á þessum árum í
lífi ungmennanna er það veganesti
sem þau taka með sér út í lífið. í
þjóðfélagi hraða og tímaleysis
gleymist stundum að ræða það sem
mestu máli skiptir þegar upp er
staðið: Þætti er varða líf okkar,
hamingju og örlög.
Kirkjan vill taka þátt í þessum
undirbúningi og því er raunar heit-
ið við skírn hvers bams að það fái
uppfræðslu og styrkingu í öllu hinu
góða, fagra og fullkomna. Einn
liður í því er að rækja guðsþjón-
ustur safnaðarins. I samræmi við
það hefur verið boðið upp á mánað-
arlegar íjölskylduguðsþjónustur í
Menntskælingar fagna sigri
Morþcunblaðið/Rúnar Þór
Lið Menntaskólans á Akureyri bar sigur úr býtum i spurningakeppni framhaldsskólanna, Gettu betur, á
Akureyri í gærkvöldi. Hér fagna menntskælingarnir sigri ásamt þeim þremur er hjálpuðu mest til við undir-
búning liðsins. í efri röð eru Sverrir Páll Erlendsson, kennari, Tryggvi Gíslason, skólameistari, og Bragi
Guðmundsson, kennari. Sigurliðið í neðri röð skipa Pálmi Óskarsson, Finnur Friðriksson og Magnús Teitsson.
Röskar 3 milljónir í snjó
mokstur frá áramótum
A fjárhagsáætlun var gert ráð fyrir 11,8 milljónum í snjómokstur í ár
„ÞAÐ ER EKKI hægt að segja
annað en við höfum sloppið vel,“
sagði Guðmundur Guðlaugsson
yfirverkfræðingur hjá Akur-
eyrarbæ um snjómokstur á göt-
um bæjarins í vetur.
Á fyrstu þremur mánuðum árs-
ins hefur snjómokstur á Akureyri
Skautasvellið á Akureyri lokað á sunnudag:
Um 12.000 komu á svellið í vetur
NÚ UM helgina eru síðustu for-
vöð að renna sér á skautum á
skautasvellinu á Akureyri á
þessum vetri, þar sem því verð-
ur lokað eftir helgi. Skauta-
svæðið verður opið í dag, laug-
ardag, og á morgun fyrir al-
inenning frá kl. 13 til 16 og 20
til 22.
Baldvin Grétarsson, varafor-
maður Skautafélags Akureyrar,
sagði að veturinn hefði verið
óvenju líflegur. Á milli 11 og 12
þúsund manns komu á svellið á
tímabilinu frá því opnað var í lok
október og þar til nú, en þó var
svellið lokað hluta úr janúar þar
sem veður var óvenju gott.
Mikil gróska hefur verið í starf-
semi félagsins í vetur og eru virk-
ir félagar um eitt hundrað talsins.
Skautafélag Akureyrar varð ís-
landsmeistari í íshokkí og þá
komu tvö gullverðlaun í hlut fé-
lagsmanna í listhlaupakeppni sem
haldin var í Reykjavík. Yngri deild
félagsins fór einnig ferð suður
yfir heiðar og stóð sig vel í keppni
við suhnanliðin.
Fyrir næstu skautavertíð verð-
ur unnið að lagfæringum á svell-
inu, m.a. stokkurinn þar sem
leiðslur liggja frá frystivélinni og
að svellinu einangraður, endatap-
ast þar nokkur kuldi á leiðinni að
Mogunblaðið/Rúnar Þór
Skautavertíðinni fer senn að ljúka og síðasta tækifæri á þessum
vetri til að bregða sér á skauta verður nú um helgina, en svell-
inu verður lokað á sunnudagskvöld.
svellinu. Ekki er afráðið með end-
urbætur á búningsaðstöðu, en
hugur skautafélagsmanna stend-
ur mjög til þess að gera bragar-
bót á þeirri aðstöðu.
Þá gæla menn mjög við þær
hugmyndir að byggja yfir svellið
og hafa viðræður um það staðið
yfir við forráðamenn bæjarfélags-
ins. Eru menn að velta fyrir sér
stálgrindarhúsi eða einhveiju
ámóta, sem ekki þarf að kosta
of miklu til, þar sem fyrst og
fremst er verið að hugsa um að
halda snjó og vindi frá svellinu.
Gera má ráð fyrir að eftir tvö ár
verði af alvöru farið að huga að
yfirbyggingunni og þá liggi fyrir
teikningar, en áætlað er að á ár-
unum 1995 til 1996 verði hægt
að hefjast handa við yfirbygging-
kostað um 3,1 milljón króna. Á
sömu mánuðum á síðasta ári voru
4,3 milljónir króna notaðar í snjóm-
okstur. Þessar upphæðir eru um-
talsvert lægri en þær sem greiða
þurfti á hinum snjóþungu vetrum,
1989 og 1990, en fyrra árið nam
kostnaður við snjómokstur 17,2
milljónum og 23,5 milljónum króna
síðara árið.
Á fjárhagsáætlun þessa árs var
snjómokstur áætlaður tæpar 11,8
milljónir króna og sagði Guðmund-
ur að yfirleitt væri það svo að einn
þriðji hluti upphæðarinnar væri
notaður á haustmánuðum, en tveir
þriðju hlutar eftir áramótin og
fram á vorið.
Guðmundur sagði að vissulega
væri ánægjulegt þegar ekki þyrfti
að veija stórum upphæðum í snjó-
mokstur eins og raunin er nú, en
á móti kæmi aukið slit á malbiki.
„Við fáum þetta til baka í auknu
sliti á malbikinu, enda við því að
búast þegar tíðarfarið er með þeim
hætti sem verið hefur það sem af
er ári,“ sagði Guðmundur. Hann
sagði að aðalumferðargöturnam
væru töluvert illa famar, sem eink-
um stafaði af hlýindum, malbikið
yrði linara í kjölfarið og hjólför
mynduðust.
-------» ♦ »------
Tónleikar í
Dynheimum
Rokkhljómsveitin Rosebud
heldur tónleika í Dynheimum
annað kvöld, laugardagskvöldið
4. apríl, og hefjast þeir kl. 21.
Plata er væntanleg frá hljóm-
sveitinni. Metal-hljómsveitin Exit
ætlar að að hita upp fyrir Rosebud.
Þá mun hljómsveitin Skurður
skemmta gestum á öllum aldri.
(Úr fréttatilkynningu)
Félagasamtdk - einstaklingar
Við Lauga í Reykjadal,
S-Þing., er til sölu einbýlis-
húsmeð bílskúr, um 140
fm. Sundlaug 10-3,8 fm.
1.600 fm lóð.
Stutt í ýmsa þjónustu.
Uppiýsíngar geiur
Eignakjör,
Hafnarstræti 108,
Akureyri,
sími 96-26441.
Hótel Stefanía:
Reynt verður að ganga
frá sölu í næstu viku
GERT er ráð fyrir að um miðja
næstu viku verði teknar ákvarð-
anir um sölu á Hótel Stefaníu.
Ymsir aðilar hafa verið að skoða
hótelið að undanförnu, en það
hefur verið lokað frá því um
miðjan mars.
Ferðamálasjóður og Byggða-
stofnun keyptu hótelið á uppboði á
síðasta ári, en það var rekið áfram
fram í miðjan mars. Þijú tilboð
bárust er hótelið var auglýst til
sölu, en þau þóttu ekki nægilega
aðgengileg, að mati eigendanna.
Ymsir aðilar hafa verið að skoða
hótelið síðustu daga og er að sögn
Valtýs Sigurbjarnarsonar hjá
Byggðastofnun vaxandi pressa á
menn að selja hótelið, enda skipti
það miklu máli fyrir væntanlega
kaupendur að fá það sem fyrst í
rekstur aftur vegna bókana fyrir
sumarið. „Klukkan tifar og ekki
langt í sumarið, það er því brýnt
fyrir hugsanlega kaupendur að geta
hafið reksturinn sem fyrst,“ sagði
Valtýr.