Morgunblaðið - 04.04.1992, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. APRÍL 1992
33
Hlíf Siguijónsdóttir og Símon
H. Ivarsson.
Kaffikonsert
í Selfosskirkju
FIÐLULEIKARINN Hlíf Sigur-
jónsdóttir og gítarleikarinn
Símon H. ívarsson halda sunnu-
daginn 5. apríl kl. 17 tónleika á
Selfossi. Tónleikarnir eru
haldnir í Selfosskirkju og eru
skipulagðir í samvinnu við tón-
listarráð Selfosskirkju.
Samleikur á fiðlu og gítar er
sjaldheyrð hljóðfærasamsetning.
Bæði hljóðfærin eru meðal elstu
hljóðfæra tónlistarsögunnar og
hafa verið nátengd hvort öðru í
gegnum tímans rás. Á efnis-
skránni er fjölbreytt tónlist frá
ólíkum tímabilum tónlistarsögunn-
ar en þar gefur m.a. að heyra
verk eftir Hándel, Beethoven,
Paganini, Sarasate, Gunnar Reyni
Sveinsson og Albeniz.
Kirkjukórinn mun annast kaffi-
veitingar og fjöldasöngur við-
staddra verður í lok tónleikanna í
tilefni af Ári söngsins. Einnig
munu nemendur úr Tónlistarskóla
Árnessýslu koma fram á tónleik-
unum.
-----» ■♦■■4--
Reiknilíkön
um umferð
REIKNILÍKÖN af umferð
verða til umræðu á fundi Að-
gerðarannsóknafélags íslands.
Fundurinn er tvíþættur. Annars
vegar verður fjallað um reikni-
líkan fyrir höfuðborgarsvæðið
og hins vegar reiknilíkan fyrir
landið allt. Tilgangur fundarins
er m.a. að skiptast á upplýsing-
um og skapa heildarmynd.
Á dagskrá fundarins mun Bald-
vin Baldvinsson hjá Borgarverk-
fræðingi kynna reiknilíkan höfuð-
borgarsvæðisins og Þorsteinn Þor-
steinsson kynnir líkan landsins
alls. Fundurinn er haldinn í Tækni-
garði, Dunhaga 5, 6. apríl og hefst
klukkan 17,15.
LOFTA
GÆÐAPLÖTUR FRÁSWISS p|_ÖTIIR
OG LÍM
Nýkomin sending
r EINKAUMBOÐ
co Þ.ÞORGRIMSSON
pavarac
Ármúla 29 - Reykjavík - sími 38640
Upplagseftirlit Verslunarráðs Islands:
Um 9 þús. áskrifendur að tímaritinu Uppeldi
Upplagseftirlit Verslunarráðs íslands hefur kannað upplagstölur
fimm tímarita og eins fréttablaðs mánuðina nóvember 1991 til febr-
úar 1992. Tímaritin fimm eru Heilbrigðismál, Heimsmynd, Uppeldi
en upplag þess var stærst 9.950 blöð að meðaltali, Æskan og 3T og
loks fréttablaðið Víkurfréttir Keflavík.
Upplag tveggja tölublaða Heil-
birgðismála á tímabilinu nóvember
1991 til loka febrúar 1992 var að
meðaltali 7.265, þar af voru 6.350
eintök til áskrifenda. Til saman-
burðar var meðaltalsupplag þriggja
tölubláða frá júlí 1991 til febrúar
1992, 7.360 og þar af 6.450 til
áskrifendá. Meðaltalsupplag
þriggja tölublaða tímaritsins
Heimsmyndar á tímabilinu nóvem-
ber 1991 til febrúar 1992, var 8.362
blöð þar af 1.417 í áskrift og 6.949
í lausassölu. Á tímabilinu júlí 1991
til febrúar 1992 var meðaltalsupp-
lag sex tölublaða 8.474 þar af 1.470
til áskrifenda og 7.004 í lausasölu.
Upplag tveggja tölublaða tíma-
ritsins Uppeldi á tímabilinum nóv-
ember 1991 til febrúar 1992, var
að meðaltali 9.950, þar af voru
9.375 í áskrift, 275 í lausasölu og
300 ókeypis. Upplag þriggja tölu-
blaða á tímabilinu júlí 1991 til febr-
úar 1992 var að meðaltali 9.941,
þar af til áskrifenda 9.376 og 232
í lausasölu en 333 ókeypis. Meðal-
talsupplag þriggja tölublaða Æsk-
unnar var 8.602 á tímabilinu nóv-
ember 1991 til febrúar 1992, þar
af voru 6.287 til áskrifenda, 255 í
lausasölu og 2.114 ókeypis. Upplag
sex tölublaða á tímabilinu júlí 1991
til febrúar 1992, var að meðaltali
8.008, þar af 6.206 til áskrifenda,
249 í lausasölu og 1.478 ókeypis.
Meðaltalsupplag tveggja tölublaða
3T var 6.500 blöð á tímabilinu nóv-
ember 1991 til febrúar 1992, þar
af 6.100 í lausasölu og 350 ókeyp-
is. Upplag þriggja tölublaða á tíma- -
bilinu júlí 1991 til febrúar 1992,
var 6.500 þar af 6.100 í lausasölu
og 400 ókeypis.
Meðaltalsupplag 16 tölublaða
fréttablaðsins Víkurfréttir í Kéfla-
vík var 6.095 á tímabilinu nóvem-
ber 1991 til febrúar 1992, þar af
590 til áskrifenda og 5.305 ókeyp-
is. Meðaltalsupplag þrjátíu tölu-
blaða á tímabilinu júlí 1991 til febr-
úar 1992 var 5.996, þar af 590
áskrifenda og 5.305 ókeypis.
HUSEIGENDUR
ALLRA TÍMA
hafa leitað logandi Ijósi að réttu innréttingunum og öðru þvi sem prýða skal hólf
og gólf híbýla þeirra. Nú er leitin á enda því BYKO hefur opnað HÓLF & GÓLF
á neðri haeð verslunarinnar i Breiddinni.
í HÓLF & GÓLF er heimilissýning allt árið með innréttuðum hólfum og klæddum
gólfum. Þar er bókstaflega ailt fýrir heimilið: Gólfefni, hillur og skápar,
hreinlætistæki, innréttingar, Ijós, klæðningar og fleira og fleira.
Þú sparar tlma, fé og fýrirhöfn með því að fara á einn stað og finna alit
sem þú þarft á að halda fyrir heimilið - I hólf og gólf.