Morgunblaðið - 04.04.1992, Page 40
40
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. APRIL 1992
Karólína og Lind-
on létu eins og þau
þekktust ekki er
þau gengu út úr
gistihúsinu, hún á
undan, hann
nokkrum metrum
á eftir, var um sig.
BREYTING
Karólína finnur hamingju
með nýjan mann sér við hlið
ferð og einnig fimmti aðilinn, nýi
maðurinn í lífi hennar, franski leik-
arinn J/ineent Lindon. Hann kom
fyrst til skjalanna nokkrum mán-
uðum eftir lát Cashiragis, en hljótt
hefur farið um samband þeirra
Lindons og Karólínu. Raunar vitað
að þau hafi sárasjaldan sést. En
í Ölpunum á dögunum voru þau
saman með börnin þrjú og var
eftir því tekið að Karólína brosti
í tíma og ótíma.
Svona eins og til þess að undir-
strika að Karólína er komin á
beinu brautina á ný, þá sást til
hennar á götum Parísar fyrir
skömmu. Hún snæddi hádegisverð
með þekktum þarlendum innan-
húsarkítekt og fór síðan að versl-
aði mikið í verslun Giorgios Ar-
mani. Klæðnaður hennar minnti á
gamla góða daga svo sem sjá má.
V^terkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
Nú kætast allir þeir sem fylgj-
ast með heimilishögum, gleði
og sorgum fræga fólksins beggja
vegna Atlantsála, því engin spurn-
ing er lengur um það að Karólína
prinsessa af Mónakó er nú loksins
farin að sýna þess merki að tíminn
iækni öll sár eins og sagt er.
Það er komið vel á annað ár
síðan að ástkær eiginmaður henn-
ar Stefano Cashiragi, lést af slys-
förum og sorg Karólínu var mikil.
Mánuðum saman lokaði hún sig
af ásamt börnum sínum þremur í
litlu sveitaþorpi og sást sjaldan
nema þegar hún þurfti að bregða
sér í matvörubúðir og þá fór lítið
fyrir glæsileikanum sem einkennt
hefur hana. En nú er öldin önnur.
Fyrir nokki-um vikum fór hún að
sjást í opinberum móttökum með
Reinier fursta og Stefaníu systur
sinni og þótti það allt í áttina þótt
hún væri þreytuleg og fáskiptin.
Nýverið sást til hennar í Ölpunum
á skíðum. Bömin þijú voru þar á
Karólína liefur nú afklæðst dreif-
býlisfötunum og dregið á sig
nýjustu tískuna á ný.
Morgunblaðið/Kjartan
Bergleif og Guðrún í veitingasalnum á Hótel Öskju
ESKIFJORÐUR
Ferskir vindar blása
um Hótel Öskju
Hjónin Bergleif Joensen og Guð-
rún Einarsdóttir tóku nýlega
að sér rekstur Hótels Öskju á Eski-
firði. Askja, sem er eina hótelið í
bænum, er með nokkur eins og
tveggja manna herbergi en einnig
er þar rekinn veitingastaður og
vínbar.
Þau Bergleif og Guðrún sögðu í
samtali við Morgunblaðið að hótel-
rekstrinum fylgdi mikil vinna en
legðist eigi að síður vel í þau. „Við
höfum verið að endumýja hótelher-
bergin og reynt að gera hótelið
vistlegra en áður. Hér gista fáir
yfir veturinn en það er alltaf eitt-
hvað að gera í veitingasölunni.
Eskfirðingar virðast kunna að meta
það að hafa stað í bænum sem
selur góðan mat og hefur vínveit-
ingaleyfí. Auk þess má segja að
þetta sé eins konar samkomustaður
bæjarbúa. Margir kunna vel við það
að heimsækja okkur á föstudags-
og laugardagskvöldum og lyfta sér
upp eftir amstur vikunnar,“ sagði
Bergleif.
Þau hjónin eru bæði aðflutt.
Guðrún er reykvísk en Bergleif
færeyskur. Þau segjast kunna vel
við sig á Eskifirði og að bæjarúar
hafi tekið þeim vel. Bergleif hefur
verið á loðnuv'ertíð frá Eskifirði
nokkur undanfarin ár þannig að
segja má að hann hafi góð tengsl
við bæjarlífið. Hann segir að gott
sé að geta gripið til sjómennskunn-
ar þegar lítið er að gera á hótelinu
en von sé á fleiri gestum og meira
annríki með hækkandi sól. Guðrún
segir að hótelið liggi vel við skíða-
löndum og því geti orðið gest-
kvæmt hjá þeim um páskana.
„Oddsskarð er talið eitthvert besta
skíðasvæði á landinu en þangað er
aðeins sjö til átta mínútna akstur
frá bænum. Það hefur verið tölu-
vert um að skíðafólk hafi hringt
og kannað möguleika á að komast
hingað á skíði yfir páskana enda
skiljanlegt miðað við ástand skíða-
landa annars staðar á landinu að
undanförnu."
COSPER
HLJÓMSVEIT
INGIMARS EYDAL
leikur
fyrir
dansi
Húsið opnað kl. 23.00. Ath. Snyrtilegur kUeðnaður
GOMLU BRYNIN
spila í kvöld
Hilmar Sverrisson á sunnudagskvöldid
PÖBBIMM VIÐ GKEXSÁSVEGINN • SÍNll 33311
Rúnur Þór skemmtir gestum
Rauóa Ejónsins í kvöld.
Snyrtilegur klæðnaður.