Morgunblaðið - 04.04.1992, Side 48
48
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. APRIL 1992
ileöSur
á
morgun
Guðspjall dagsins: (Jóh. 8).
Hví trúið þér ekki?
ÁSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl.
11. Ferming og altarisganga kl. 14.
Árni Bergur Sigurbjörnsson. Mið-
vikudag: Föstumessa kl. 20.30.
BÚSTAÐAKIRKJA: Barnamessa kl.
11 í Bústöðum. Arna, Gunnar og
Sigurjón. Fermingarmessur kl.
10.30 og kl. 13.30. Pálmi Matthías-
son.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11. Dóm-
kórinn syngur. Organisti: Marteinn
H. Friðriksson. Séra Hjalti Guð-
mundsson. Barnastarf í safnaðar-
heimilinu á sama tíma í umsjá Báru
Elíasdóttur. Föstumessa kl. 17 við
Gregorslag. Altarisganga. Jakob Á.
Hjálmarsson. Miðvikudag kl. 12.10
hádegisbænir í kirkjunni. Léttur
málsverður á kirkjuloftinu á eftir.
Miðvikudag kl. 13.30—16.30 sam-
vera aldraðra í safnaðarheimilinu.
Tekið í spil. Kaffiborð, söngur, spjall
og helgistund.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Guðsþjón-
usta kl. 10. Magnús Björnsson. Mið-
vikudag: Föstuguðsþjónusta kl.
10.30. Stefán Karlsson, guðfræði-
nemi.
GRENSÁSKIRKJA: Barnastarfið kl.
10.30. Ath. breyttan tíma. Farið
verður í heimsókn í Seltjarnarnes-
kirkju vegna fermingarmessu í kirkj-
unni. Mætið tímanlega. Fermingar-
messur kl. 10.30 og kl. 14. Prestar
Halldór S. Gröndal og Gylfi Jónsson.
Organisti: Árni Arinbjarnarson.
Þriðjudag: Kyrrðarstund kl. 12. Org-
elleikur í 10 mín. Fyrirbænir, altaris-
ganga og léttur hádegisverður.
Þriðjudag kl. 14: Biblíulestur og
kirkjukaffi. Állir velkomnir. Sr. Hall-
dór S. Gröndal.
HÁLLGRÍMSKIRKJA: Messa og
barnasamkoma kl. 11. Karl Sigur-
björnsson. Francis Grimm prédikar.
Mánudag: Kvöldbænir með lestri
Passíusálma kl. 18. Þriðjudag: Fyrir-
bænaguðsþjónusta kl. 10.30. Beðið
fyrir sjúkum. Kvöldbæn með lestri
Passíusálma kl. 10. Miðvikudag:
Helgistund kl. 20.30. Sigurður Páls-
son prédikar. Fimmtudag: Kvöld-
bænir með lestri Passíusálma kl.
18. Föstudag: Kvöldbænir með
lestri Passíusálma kl. 18.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10.
Ragnar Fjalar Lárusson.
HÁTEIGSKIRKJA: Fermingarmess-
ur kl. 10.30 og 13.30. Prestarnir.
Barnastarfið kl. 11. Kirkjubíllinn fer
frá Suðurhlíðum um Hlíðarnar að
venju. Farið verður í heimsókn.
Mánudag: Biblíulestur kl. 21. Kvöld-
bænir og fyrirbænir eru í kirkjunni á
miðvikudögum kl. 18.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð-
brands biskups. Óskastund barn-
anna kl. 11. Söngur, sögur, fræðsla.
Umsjón: Flóki Kristinsson. Ferming
kl. 14. Prestur Guðný Hallgrímsdótt-
ir. Kór Langholtskirkju (hópur IV)
syngur. Organisti Jón Stefánsson.
Aftansöngur alla virka daga kl. 18 í
umsjá Flóka Kristinssonar.
LAUGARNESKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Organisti Ronald V.
Turner. Barnastarf á sama tíma í
umsjá Þórarins Bjarnasonar. Heitt á
könnunni eftir guðsþjónustuna.
Fermingarmessa kl. 13.30. Jón D.
Hróbjartsson. Fimmtudag: Kyrrðar-
stund kl. 12. Orgelleikur, altaris-
ganga, fyrirbænir. Léttur málsverð-
ur i safnaðarheimilinu að stundinni
lokinni. Föstudag: Kyrrðar- og íhug-
unarstund með söngvum frá Taisé
kl. 21. Tónlist leikin frá kl. 20.30.
NESKIRKJA: Barnasamkoma kl. 11.
Munið kirkjubílinn. Guðmundur Ósk-
ar Ólafsson. Fermingarmessur kl.
11 og 14. Prestarnir. Miðvikudag:
Föstuguðsþjónusta kl. 20. Frank
M. Halldórsson.
SELTJARNARNESKIRKJA: Messa
kl. 11. Organisti: Gyða Halldórsdótt-
ir. Prestur Solveig Lára Guðmunds-
dóttir. Barnastarf á sama tíma í
umsjá Eirnýjar, Báru og Erlu. Börn
úr barnastarfi Grensáskirkju koma í
heimsókn. Miðvikudag: Kyrrðar-
stund kl. 12. Söngur, altarisganga,
fyrirbænir. Léttur hádegisverður • í
safnaðarheimilinu. Miðvikudag:
Samkoma kl. 20.30 á vegum Sel-
tjarnarneskirkju og sönghópsins
„Án skilyrða" undir stjórn Þorvaldar
Halldórssonar. Söngur, prédikun,
fyrirbænir.
ARBÆJARKIRKJA: Fermingarguðs-
þjónusta með altarisgöngu sunnu-
dag kl. 14. Organleikari Sigrún
Steingrímsdóttir. Barnaguðsþjón-
usta fellur niður vegna fermingar í
kirkjunni. Næsta barnaguðsþjón-
usta verður á páskadagsmorgun kl.
11. Fyrirbænaguðsþjónusta mið-
vikudag kl. 16.30. Helgistund á föstu
fimmtudag kl. 20. Sr. Guðmundur
Þorsteinsson.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Fermingarguðsþjón-
usta kl. 13.30. (Ath. breyttan mess-
utíma). Bænaguðsþjónusta þriðju-
dag kl. 18.30. Sr. Gísli Jónasson.
DIGRANESPRESTAKALL: Barna-
samkoma í safnaðarheimilinu við
Bjarnhólastíg kl. 11. Fermingar-
guðsþjónusta í Kópavogskirkju kl.
14. Sr. Þorbergur Kristjánsson.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Ferming og
altarisganga Fellaprstakalls kl. 14.
Prestur sr. Hreinn Hjartarson. Org-
anisti: Guðný M. Magnúsdóttir. Fyr-
irbænir í Fella- og Hólakirkju mánu-
dag kl. 18. Prestarnir.
GRAFARVOGSPRESTAKALL: Bar-
naguðsþjónusta kl. 11 í Félagsmið-
stöðinni Fjörgyn. Valgerður, Katrín
og Hans Þormar aðstoða. Skólabíll-
inn fer frá Hamrahverfi kl. 10.30 og
fer venjulega skólaleið. Fermingar-
guðsþjónusta í Árbæjarkirkju kl.
10.30. Organisti: Sigurbjörg Helga-
dóttir. Kirkjukór Grafarvogs syngur.
Vigfús Þór Árnason.
HJALLAPRESTAKALL: Messusalur
Hjallasóknar, Digranesskóla. Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Guðsþjónusta
kl. 14. Kór Hjallasóknar syngur. Org-
anisti: Oddný Þorsteinsdóttir. Sókn-
arnefndarfundur að lokinni guðs-
þjónustu. Kristján Einar Þorvarðar-
son.
KÁRSNESPRESTAKALL: Barna-
starf í safnaðarheimilinu Borgum
sunnudag kl. 11. Nemendur í Tón-
skóla Eddu Borg koma í heimsókn
og leika á hljóðfæri. Fermingar-
messa í Kópavogskirkju kl. 10.30.
Ægir Fr. Sigurgeirsson.
SELJAKIRKJA: Barnaguðsþjónusta
kl. 11. Kór Seljaskóla syngur undir
stjórn Kjartans Ólafssonar. Ferm-
ingarguðsþjónusta kl. 14. Organisti
Kjartan Sigurjónsson. Seljahlíð:
Guðsþjónusta laugardag 4. apríl kl.
11 og föstuguðsþjónusta fimmtu-
dag 9. apríl kl. 20.30. Sr. Ágúst
Eyjólfsson prédikar. Sóknarprestur.
FRÍKIRKJAN, Rvík: Guðsþjónusta
kl. 11. (Ath. tímann). Einleikur á
flautu llka Petrova Benkova. Þriðju-
dag föstuguðsþjónusta kl. 20.30.
Miðvikudag morgunandakt kl. 7.30.
Orgelleikari Pavel Smid. Cecil Har-
aldsson.
KRISTSKIRKJA, Landakoti: Messa
kl. 8.30. Hámessa kl. 10.30. Messa
kl. 14. Ensk messa kl. 20. Laugar-
daga messa kl. 14 og ensk messa
kl. 20. Aðra rúmhelga daga messa
kl. 18.
KFUM og KFUK: Almenn samkoma
kl. 20.30 í Kristniboðssalnum, Háa-
leitisbraut 58. Upphafsorð og bæn:
Laufey Guðmundsdóttír. Ræðumað-
ur Skúli Svavarsson. Sunnudaga-
skóli kl. 11 á sama stað. Bænastund
á mánudag kl. 17.30 á Holtavegi.
MARÍUKIRKJA, Breiðholti: Messa
kl. 11. Laugardaga messa kl. 14.
Fimmtudaga messa kl. 19.30. Aðra
rúmhelga daga messa kl. 18.30.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía:
Sunnudagaskóli kl. 11. Sagan Jesús
frá Nasaret sögð í máli og myndum.
Almenn samkoma kl. 16.30. Ræðu-
maður Hafliði Kristinsson.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Alþjóðlegur
bænadagur hjálpræðishersins. Kl.
11 helgunar- og bænasamkoma. Kl.
14 sunnudagaskóli. Kl. 20 hjálpræð-
issamkoma. Anne og Daniel Óskars-
son stjórna og tala.
FÆR. sjómannaheimilið: Samkoma
kl. 17. Ræðumaður Eiríkur Skála.
VEGURINN, kristilegt samfélag,
Smiðjuvegi 5, Kópavogi. Fjölskyld-
usamvera kl. 11. Söngleikur fluttur
af gestum frá Akureyri. Almenn
samkoma kl. 16.30. Leikrit flutt af
hóp undir stjórn Guðrúnar Ás-
mundsdóttur, leikkonu. Guðrún er
einnig höfundur leikritsins og er það
byggt á bókunum „Hlauptu drengur,
hlauptu" og „Krossinn og hnífsblað-
ið“. Almenn samkoma kl. 20.30.
Ræðumaður Bjöm Ingi Stefánsson.
KIRKJA JESÚ Krists hinna siðari
daga heilögu (mormónar), Skóla-
vörðustíg 46. Guðsþjónusta kl. 11.
Föstu- og vitnisburðarhelgistund.
Sunnudagaskóli kl. 12.15. Samveru-
söngstund og bæn. Ritningabekkir
í umræðuformi. Allir eru hjartanlega
velkomnir.
GARÐASÓKN: Sunnudagaskóli í
Kirkjuhvoli kl. 13. Fermingar í Garða-
kirkju kl. 10.30 og 14. Æskulýðs-
fundur nk. þriðjudagskvöld í Kirkju-
hvoli kl. 20. Húsið opnar kl. 19. Stef-
án Hilmarsson kemur í heimsókn.
Sr. Bragi Friðriksson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Ferm-
ingarmessur kl. 10.30 og kl. 14.
Organisti: Ólafur Finnsson. Gunnar
Gunnarsson leikur á flautu. Prestar
sr. Gunnþór Ingason og sr. Þórhild-
ur Ólafs.
FRÍKIRKJAN, Hafnarfirði: Barna-
samkoma kl. 11. Guðsþjónusta kl.
14. Altarisganga. Organisti Krist-
jana Ásgeirsdóttir. Einar Eyjólfsson.
KAPELLA St. Jósefssystra,
Garðabæ: Þýsk messa kl. 10.
KAPELLAN St. Jósefsspítala:
Messa kl. 10.30. Rúmhelga daga
messa kl. 18.
KARMELKLAUSTUR: Messa kl.
8.30. Rúmhelga daga messa kl. 8.
KÁLFATJARNARSÓKN: Kirkjuskóli
í dag kl. 11 í Stóru-Vogaskóla. Sókn-
arprestur.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Fermingar-
guðsþjónusta kl. 10.30. og kl. 14.
Nk. þriðjudag náttsöngur á föstu kl.
22.30. Órganisti: Einar Örn Einars-
son. Helga Soffía Konráðsdóttir.
KAÞÓLSKA kapellan, Keflavík:
Messa kl. 16.
YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA: Ferm-
ingarmessa kl. 10.30. Miðvikudag-
inn 8. apríl bænastund á föstu kl.
18. Sóknarprestur.
INNRI-NJARÐVÍKURKIRKJA: Barn-
astarfið kl. 11. Sóknarprestur.
MOSFELLSPRESTAKALL: Loka-
stund barnastarfsins verður í Lága-
fellskirkju kl. 14. Jón Þorsteinsson.
HVALSNESKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 14. Starfshópur frá Ungu fólki
með hlutverk mun taka þátt í guðs-
þjónustunni. Hjörtur Magni Jó-
hannsson.
GARÐVANGUR, dvalarheimili aldr-
aðra í Garði: Helgistund kl. 15.30.
Hjörtur Magni Jóhannsson.
ÚTSKÁLAKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Starfshópur frá Ungu fólki með
hlutverk mun taka þátt í guðsþjón-
ustunni. Hjörtur Magni Jóhannsson.
STOKKSEYRARKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta kl. 11.
SELFÓSSKIRKJA: Sunnudagaskóli
kl. 11. Messa kl. 14. Safnaðarfundur
að lokinni messu. Sóknarprestur.
AKRANESKIRKJA: BarnaguðsjDjón-
usta í dag, laugardag, kl. 11. Kirkju-
skóli yngstu barnanna í safnaðar-
heimilinu kl. 13. Fermingarguðs-
þjónustur sunnudag kl. 11 og kl. 14.
Altarisganga fermingarbarna og
aðstandenda mánudag kl. 19.30.
Tónlistarstund á föstu fimmtudag
kl. 18.15. Guðrún Ellertsdóttir syng-
ur. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson.
Björn Jónsson.
GAULVERJABÆJARKIRKJA: Messa
kl. 14.
BORGARPRESTAKALL: Barna-
guðsþjónusta verður í Borgarnes-
kirkju kl. 11. Helgistund verður nk.
þriðjudag kl. 18.30 í kirkjunni. Sókn-
arprestur.
Ferðir um páska með
Ferðafélagi Islands
F’EfíÐAFÉLAG Islands efnir til fjölda lengri og styttri ferða nú um
páskanna 16.-20. apríl. Þrjár ferðir eru nieð brottför á skírdagsmorg-
un 16. apríl kl. 8:
Snæfellsnes-Snæfellsjökull, 3 dag-
ar. Gist verður að bænum Görðum í
Staðarsveit , en þar er gistiaðstaða
í svefnpokaplássi eins og best gerist.
Aðalaðdráttarafl ferðarinnar er jök-
ullinn, en á hann verður gengið við
fyrsta tækifæri, en einnig eru í boði
ýmsar skoðunar- og gönguferðir um
Snæfellsnesið. Stutt er í sundlaug á
Lýsuhóli. Heimkoma er á laugar-
dagskvöldið fyrir páska.
^ t Landmannalaugar, skíðagöngu-
ferð, 5 dagar. Ekið er að Sigöldu og
gengið þaðan á skíðum inn í Land-
mannalaugar. Jeppar flytja farangur
AGFA-dag-
ar á Islandi
I TILEFNI af nýgerðum samning-
um Heimilistækja hf. við AGFA
Gevert-fyrirtækið í Belgíu um
sölu og þjónustu á AGFA-vélum
fyrir prentiðnaðinn og AGFA-
ljósritunarvélum munu Heimilis-
tæki hf. standa fyrir kynningu á
þessum búnaði á Holiday Inn dag-
ana 6., 7. og 8. apríl.
Kynntar verða setningartölvur
fyrir prentiðnaðinn og ljósritunaivél-
ar, m.a. hin nýja fullkomna litljósrit-
^narvél. Sýningin verður öllum opin
milli kl. 14 og 18 alla dagana.
(Fréttatiikynníng)
inneftir. Frá Laugum verða dags-
ferðir á skíðum rri.a. í Hrafntinnu-
sker og inn í Jökulgil.
Landmannalaugar-Hrafntinnu-
sker-Laufafell, skíðagönguferð, 5
dagar. Þetta er ný ferð um hið marg-
rómaða Torfajökulsvæði. Gengið er
milli skála. Aðeins 10 komast með í
þessa ferð.
Á laugardagsmorgun 18. apríl kl.
8 eru tvær þriggja daga ferðir í boði.
Þórsmörk. Gist er í Skagfjörðs-
skála Ferðafélagsins og farið í styttri
og lengri gönguferðir um nágrennið.
Borgarljörður. Gist í félagsheimilinu
Brúarási sem er skammt neðan við
Húsafell. Ferðin býður upp á góða
möguleika til göngu- og skíðaferða.
Auk þessara ferða verða styttri ferð-
ir í boði um bænadaga og páska. Á
skírdag 16. apríi kl. 13 verður geng-
ið á Vífilsfell. Á föstudaginn langa
kl. 11 verður ökuferð í Selvog og
Standarkirkja skoðuð. Á laugardag-
inn fyrir páska kl. 14 verður páska-
gagna fjölskyldunnar. Farin verður
2 klst. ferð í Vífilsstaðahlíð og ná-
grenni. M.a. kíkt í helia og gengið
um skógarstíga. Annan í páskum er
kl. 13 ganga um Flekkuvík og Keilis-
nes að Staðarborg. Nánari upplýs-
ingar um ferðirnar er að fá á skrif-
stofu félagsins á Öldugötu 3. Brott-
för frá Umferðarmiðstöðinni, austan-
megin. Kynning á ferðunum verður
á myndakvöldi Ferðafélagsins nk.
miðvikudagskvöld 8. apríl í Sóknar-
salnum Skipholti 50a.
Guðrún Guðmundsdóttir og Einar Jónsson.
Einar o g Guðrún með
tónleika í Hafnarfirði
TÓNLEIKAR verða í Hafnarborg
í tónleikaröð Tónlistarskóla Hafn-
arfjarðar og Hafnarborgar næst-
komandi sunnudag 5. apríl. Á tón-
leikunum koma fram Einar Jóns-
son trompetleikari og Guðrún
Guðmundsdóttir píanóleikari sem
flytja tvo konserta eftir Giuseppi
Torelli og Alexander Arutunian
og sónötu eftir Jean Francaix.
Einar Jónsson er fæddur 1966.
Hann lauk burtfararprófí frá Tónlist-
arskólanum í Reykjavík 1987, þar
sem aðalkennari hans voru Jón
Sigurðsson og Ásgeir Steingrimsson,
og árið 1990 B.M. prófi frá Indiana
University í Bloomington. Auk þess
að vera trompetleikari í hljómsveit
íslensku Óperunnar hefur Einar leik-
ið í Þjóðleikhúsinu með Óperusmiðj-
unni og í Ríkisútvarpinu. Þetta eru
fyrstu einleikstónleikar Einars.
Guðrún Guðmundsdóttir lauk
píanókennaraprófi frá Tónlistarskól-
anum í Reykjavík árið 1979 og stund-
aði framhaldsnám í Köln árin 1984-
1986. Guðrún hefur verið virk sem
undirleikari með kórum, einleikurum
og einsöngvurum. Einar Jónsson og
Guðrún Guðmundsdóttir eru bæði
kennarar við Tónlistarskólann í
Hafnarfirði. Tónleikarnir á sunnu-
daginn hefjst kl. 17.00 og er aðgang-
ur ókeypis.
Iðnskólinn
í Hafnarfirði
með opið hús
IÐNSKÓLINN í Hafnarfirði hefur
í dag opið hús. Skólinn er á tveim-
ur stöðum í bænum. Bóknám, hár-
greiðsla og tækniteiknun eru á
Reykjavíkurvegi 76 en önnur
verkstæði eru í verkdeildarbygg-
ingu skólaiís í Flatahrauni. Húsin
verða opin frá kl. 14 til 17 og
gefst almenningi tækifæri til ,að
skoða skólann og sjá nemendur
að störfum við málmsmíðar, tré-
smíðar, raflagnir og rafeinda-
tækni, hárgreiðslu, tækniteiknun
og liönnunarstörf. Þá verða til
sýnis verk nemenda af mörgum
sviðum.
Kennarar skólans verða til viðtals
og munu veita öllum er hafa áhuga
á iðn- og tæknimenntun upplýsingar
um námið svo sem hvaða leiðir liggja
til réttinda til starfs og framhalds-
náms, hvað felst í náminu o.fl.
---------♦ ♦ ♦---
Gula línan fær
grænt númer
Hinn 21. mars kl. 10 fyrir hádegi
tók Gula línan formlega upp grænt
númer sem er 99-6262. Þar með
gefst landsbyggðarfólki kostur á að
afla sér upplýsjnga um vörur og þjón-
ustu á Gulu línunni án þess að þurfa
að greiða fyrir langlínusímtal. Miðlun
hf. stofnaði Gulu línuna árið 1987
og hefur þjónustan vaxið jafnt og
þétt ár frá ári. Gula línan gefur upp-
lýsingar um vörur og þjónustu og
er ekkert smátt of smátt og ekkert
stórt of stórt.