Morgunblaðið - 04.04.1992, Qupperneq 50
50
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 4. APRÍL 1992
ÚRSLIT
Skíðalandsmótið
Hlíðarfjall við Akureyri:
-Stórsvig karla
1. Kristinn Bjömsson, Ólafsfirði....1:32,04
45,08 46,96
2. ÖrnólfurValdimarsson, ÍR.....1:32,67
44,94 47,73
3. -Haukur Arnói-sson, Ármanni..1:33,50
45,76 47,74
4. Gísli Reynisson, Ármanni.....1:35,17
46.47 48,70
5. Arnór Gunnarsson, ísafirði...1:35,22
46.68 48,54
6. Ásþór Sigurðsson, Ármanni....1:36,01
47,03 48,98
7. Vilhelm Þorsteinsson, Akureyri.l;36,33
46,93 49,40
8. Eggert Óskarsson, Ólafsfirði.1:37,34
47,42 49,92
i Gunnlaugur Magnússon, Ak..........1:37,80
48.69 49,11
10. Egill Ingi Jónsson, ÍR.......1:38,81
48,717 50,10
11. Ingi Geir Ómarsson, Árm. .1:41,12
49,27 51,85
12. Pálmar Pétursson, Ármanni....1:41,21
49,84 51,37
13. Kristján Kristjánsson, KR....1:42,49
50,02 52147
Stórsvig kvenna
1. Ásta S. Halldórsdóttir, Ísafírði ..1:35,61
52,02 43,59
2. Eva Jónasdóttir, Akureyri....1:38,35
53,38 44,97
3. Hildur Ösp Þorsteinsd., Ak...1:44,81
57.47 47,34
4. Hjördís Þórhallsdóttir, Akureyri 1:46,38
58,06 48,32
5. Fanney Pálsdóttir, ísafirði..1:47,16
59,46 47,70
v,*6. Margrét Ingibergsdóttir, Fr..1:48,65
59,90 48,75
7. Jónína Björnsdóttir, Ólafsfirði...l:50,08
1:00,65 49,43
8. Þórey Árnadóttir, Akureyri...1:50,43
1:00,65 49,78
9. Guðný Hansen, Ármanni........1:51,19
1:02,12 49,07
10. Lilja S. Guðmundsdóttir, KR..1:53,77
1:02,64 51.13
DAGSKRAIN
Laugardagur
nfrkureyri:
Svig kvenna, fyrri ferð..........10.00
Svig karla, fyrri verð..:.....:....10.30
Svig kvenna, seinni ferð........13.00
Svig karla, seinni ferð..........13.30
Ólafsfjörður:
30 kmganga karla (frjáls aðf.)...11.00
15 kmganga 17-19 ára pilta (f)..11.00
7,5 kmganga kvenna (f)...........11.00
SunnudagUT
Akureyri:
Samhliðasvig karia................9.00
Samhliðasvigkvenna................9.00
Ólafsfjörður:
3x10 km boðganga karla...........11.00
3x5 km boðganga kvenna...........11.00
SKIÐAMOTISLANDS
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Þrír fyrstu í stórsviginu á Akureyri í gær. íslandsmeistarinn, Kristinn Björnsson frá Ólafsfirði, er í miðið. Til vinstri
er Örnólfur Valdimarsson, ÍR, sem varð í öðru sæti og Haukur Arnórsson, Ármanni, sem varð þriðji.
Fjörutíu
eriendir
keppendurá
fis-mótunum
Fjörutíu erlendir keppendur
hafa skráð sig til keppni á
alþóðlegu stigamótin, fis-_mótin,
sem Skíðasamband íslands
stendur fyrir og hefjást um
næstu helgi.
. Svíar fjölmenna á mótin, sem
verða _sex og fara fram á Akur-
eyri, ísafirði og Reykjavík. 15
sænskir karlar hafa skráð sig
og sex konur, en þar er Pernilla
Wiberg, ólympíumeistari í stór-
svigi, fremst í flokki. Norðmenn
senda fímm keppendur og síðan
hafa borist skráningar frá Bret-
landi og Austurríki. Forráða-
menn SKÍ eru mjög ánægðir
með þátttökuna og segja að
þessi mót komi til með að verða
árlegur viðburður.
Knstinn varði titilinn
Sigraði í stórsvigi eftir að Örnólfur Valdimarsson fékk besta tímann í fyrri ferð
KRISTINN Björnsson frá Ólafs-
firði varð íslandsmeistari í
stórsvigi á Skíðamóti íslands í
Hlfðarfjalli við Akureyri í gær.
Hann varði þar með titilinn frá
þvíá ísafirði ffyrra. Reykvíking-
ar röðuðu sér í næstu þrjú
sæti; Örnólfur Valdimarsson
varð annar, Haukur Arnórsson
þriðji og Gísli Reynisson fjórði.
■ ■
Ornólfur náði besta tímanum í
fyrri umferð, var 0,14 sek. á
undan Kristni. En kom það honum
á óvart? „Já,
ValurB. kannski, en mér
Jónatansson gekk vel og náði að
skrifar halda sæmilegum
frá Akureyri hraða. Ég hef fundið
það á æfingum að undaförnu að
það hefur gengið ágætlega. Fyrri
umferðin var góð hjá mér,“ sagði
Örnólfur, sem hingað til hefur verið
sterkari svigmaður.
Kristinn sýndi síðan yfirburði
sína í síðari umferð og var þá tæpri
sekúndu á undan Örnólfi. „Ég
komst ekki aiveg í gang í fyrri
umferð, missti mig aðeins niður á
flata kaflanum í brautinni. Mér
fannst betra að keyra síðari ferðina
með svolitla pressu. Ég gaf allt sem
ég átti og það var gaman að verja
titilinn," sagði Kristinn.
Kristinn, sem er 19 ára, sagði
brautirnar góðar en allt of stuttar.
Hann sagðist vera vanur að keyra
mun lengri brautir, enda blés hann
varla úr nös er hann kom niður.
^Þetta hefur verið langur vetur.
Ég hef æ'ft meira og minna síðan
í ágúst í fyrra og keppt í 41 móti
það sem af er. Ætli mótin verði
ekki 50 eftir veturinn.
Ég er næstum búinn að fá leið
á skíðunum. En það alltaf gott að
koma heima — allt önnur stemmn-
ing. Ég er bjartsýnn á góðan árang-
ur í sviginu og ætla mér einnig sig-
ur þar,“ sagði Kristinn, sem hefur
verið í skíðamenntaskóla í Geilo í
Noregi í vetur.
„Ég er ánægður með annað sæt-
ið,“ sagði Örnólfur. „Ég gerði smá
mistök í síðari umferð, missti mig
niður í einni beygjunni. Það var
gaman að ná besta tímanum í fyrri
umferð því Kristinn var talinn lang
sigurstranglegastur.“
Reykvíkingar komu mjög sterkir
út í gær, áttu ijóra af sex fyrstu.
Haukur Arnórsson náði þriðja sæti
og félagi hans, Gísli Reynisson,
varð fjórði, 0,05 sek. á undan Arn-
óri Gunnarssyni frá ísafirði. Akur-
eyringar voru ekki ánægðir með
sinn hlut. Vilhelm Þorsteinsson náði
besta árangi þeirra, 7. sæti.
Alls voru 24 keppendur skráðir
til leiks og luku 19 keppni. Veður
var heldur óhagstætt, suðvestan
hvassviðri og skafrenningur.
■ \ ..(■ ItOTTA /
FIRMAKEPPNI
Gróttu í innanhússknattspyrnu verður haldin helgina 11.
og 12. apríl í nýja íþróttahúsinu á Seltjarnarnesi.
Nánari upplýsingar veita Kjartan Steinsson, sími 38589,
Bernhard Petersen, sími 621936, Kristján Pálsson, símar
698304 og 611195, og Sigurður Þorsteinsson, símar
691600 og 674221.
Knattspyrnudeild Gróttu.
UT ANDEILD ARKEPPHI
KSÍ1992
Rétt til þátttöku í keppni KSÍ utan deildar hafa þau fé-
lög/fyrirtæki, sem ekki eiga lið í 1., 2. eða 3. deild karla
og kjósa að taka ekki þátt í 4. deild karla.
Tilkynna skal þátttöku á skrifstofu KSÍ fyrir 10. apríl nk.
til Magnúsar Guðmundssonar, starfsmanns mótanefndar,
sem veitir allar nánari upplýsingar, sími 814444.
Þátttökugjald er kr. 25.000,- sem greiðist við skráningu.
r MÓTANEFND KSÍ
— ----T-,—rn—rr———r—rrrm?---;------------------n—t——
UORHEIM
Morgunblaðið/Valur
Ásta Halldórsdóttir, íslandsmeistari í stórsvigi frá ísafirði, í miðjuni. Til vinstri er Eva Jónsdóttir, Akureyri, sem
fékk silfurverðlaun og Hildur Ösp Þorsteinsdóttir, Akureyri, sem hlaut bronsið.
Tíundj meistara-
titill Ástu í höfn
„ÞAÐ gekk mjög vel hjá mér
og það má segja að þetta hafi
verið ótrúlega létt,“ sagði Ásta
Halldórsdóttirfrá ísafirði sem
sigraði með yfirburðum í stór-
svigi kvenna. Þetta var jafn-
framt tíundi íslandsmeistara-
titill hennar. Akureyrarstúlk-
urnar Eva Jónasdóttir og Hildur
Ösp Þorsteinsdóttur höfnuðu í
öðru og þriðja sæti.
Asta hafði langbesta tímann í
báðum umferðum og sýndi
mikið öryggi. Helstu keppinautar
hennar, Guðrún H. Kristjánsdóttir,
Harpa Hauksdóttir og María Magn-
úsdóttir, féllu allar úr keppni.
„Það var sorglegt að þessar þrjár
hafi farið útúr. En ég er að sjálf-
sögðu ánægð með sigurinn og gott
að byrja á að vinna og það eykur
sjálfstraustið fyrir svigið og sam-
hliðasvigið. Þetta er fyrsta mótið
sem ég keppi á hér heima í vetur
og því gott að sjá hvar ég stend
gagnvart hinum.“
María Magnúsdóttir og Harpa
Hauksdóttir fór útúr brautinni í
fjórða hliði í fyrri umferð, en þar
var grjót. í síðari umferð var braut-
in stytt til að koma í veg fyrir að
keppendur færu á grjót. Guðrún
H. Kristjánsdóttir var með næst
besta tímann eftir fyrri umferð, en
fór útúr í síðari. „Ég stóð of lengi
í neðra skíðið í einni beygjunni og
varð of sein í næstu og því fór sem
fór,“ sagði Guðrún.
Eva Jónasdóttir náði öðru sæti
og var tæpum þremur sekúndum á
eftir Ástu. Hildur Þorsteinsdóttir,
sem er aðeins 15 ára og var að
keppa í fyrsta sinn á Skíðamóti
íslands, varð þriðja.
Tuttugu stúlkur tóku þátt í stór-
sviginu og komust 12 klakklaust í
gegnum báðar umferðir.