Morgunblaðið - 04.04.1992, Page 51
51
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 4. APRÍL 1992
KORFUKNATTLEIKUR / URSLITAKEPPNIN
Nökkvi Már Jónsson átti hreint afbragðs leik með Keflvíkingum í gær. Hér hefur hanan
Valsari. Nökkvi tók 20 fráköst í leiknum og munaði um minna fyrir ÍBK.
Morgunblaðið/Einar Falur
betur en Símon Ólafsson
URSLIT
Körfuknattleikur
Úrslitakeppni 1. deildar karla:
Breiðablik - ÍA...............76:67
■Breiðablik heldur áfrazm keppni og
mætir IR í keppni um sigur í deildinni.
Fyrsti leikur liðanna verður á morgun.
Handknattleikur
1. deild kvenna:
FH-Grótta.....................20:13
■FH heldur áfram og mætir Stjömunni í
undanúrslitum íslandsmótsins.
Knattspyrna
Reykjavíkurmótið:
Fram-Fylkir....................... 1:1
Pétur Amþórsson - Finnur Kolbeinsson
ÞÝSKALAND
NUmberg - Bomssia Dortmund.......2:1
Sergio-Fabian Zarate (12.), Christian Wiick
(28.) - Stephane Chapuisat (34.)
Dynamo Dresden - Karlsruhe..........2:0
Bochum - Duisburg...................2:1
Efstu lið:
Bor. Dortmund..31 15 11 5 53:40 41
Eintr. Frankfurt....30 15 10 5 62:33 40
VfB Stuttgart..30 16 8 6 48:25 40
■stórleikur dagsins í dag i Þýskalandi er
viðureign Frankfurt og VfB Stuttgart á
heimavelli fyrmefnda liðsins. Sigri annað
hvort liðið fer það í toppsæti deildarinnar.
FRAKKLAND
Nancy - Marseille................1:3
Ryszard Tarasiewicz (10.) - Abedi Pele
(23.), Jean-Philippe Durand (43.), Jocelyn
Angloma (48.)
UM HELGINA
Blak
Úrslitakeppni kvenna:
Víkin, Víkingur - ÍS...............14
Digranes, HK - UBK...............15.30
Badminton
Deildakeppni BSÍ hófst í gærkvöldi og held-
ur áfram í dag og á morgun. Keppt er í 1.,
2. og 3. deild. Síðasta umferð hefst á morg-
un kl. 15.00 í Laugardalshöil.
Borðtennis
Reykjavíkurmótið í borðtennis verður haldið
í TBR-húsinu á morgun, sunnudag. Keppni
hefst kl. 10.
Körfuknattleikur
Sunnudagur:
Hlíðarendi, Valur - IBK............20
■Þetta verður annar leikur liðanna í
úrslitakeppni um íslandsmeistaratitilinn
í meistaraflokki karla.
■ÍR og Breiðablik mætast í fyrsta úr-
slitaleik um sigur í 1. deild karla kl. 17
I íþróttahúsi Se(jaskóla.
Frjálsíþróttir
Breiðholtshlaup ÍR fyrir börn og unglinga
hefst kl. 11 í dag við íþróttahús Seljaskóla.
Keppnin er opin öllum 15 ára og yngri.
23/17 Víti 7/3
20/7 3ja stiga 26/7
51 Fráköst 46
30 (varnar) 26
21 (sóknar) 20
12 . Boita náð 12
13 Bolta tapað 18
23 Stoðsendingar 12'
Meistara-
taktar ÍBK
KEFLVÍKINGAR sýndu sann-
kallaða meistaratakta þegar
þeir sigruðu Valsmenn 106:84
í fyrsta leik liðanna í úrslita-
keppninni um íslandsmeistara-
titilinn í Keflavík í gærkvöldi.
Valsmenn, sem svo óvænt slógu
Njarðvíkinga út í undanúrslit-
um, réðu þó ferðinni í byrjun og
náðu mest 15 stiga
Bjöm forystu en í hálfleik
Blöndal ■ var staðan 48:39,
sJ:ri!ar!,rá Hlíðarendaliðinu í
vil. Það var svo í
síðari hálfleik sem Keflvíkingar
sýndu fyrst hvað í þeim bjó. Þeir
fóru hreinlega á kostum og á fyrstu
7 mínútunum gerðu þeir út um leik-
inn með því að skora 30 stig gegn
aðeins 4 stigum Valsmanna.
„Við gerðum okkur grein fyrir
því í hálfleik að við urðum að bæta
varnarleikinn ef við ætluðum okkur
að stöðva Valsarana. Þetta gekk
allt eftir og ég get ekki annað en
verið ánægður með hvernig til
tókst. En það eru fleiri leikir eftir
og ég hef trú á að Valsmenn verði
erfíðir heim að sækja í næsta leik,“
sagði Jón Kr. Gíslason þjálfari og
leikmaður Keflvíkinga.
Eins og áður sagði voru það
Valsmenn sem réðu gangi mála í
fyrri hálfleik og það gekk nánast
allt upp hjá liðinu ef frá eru talin
3ja stiga skotin hjá Booker en hann
reyndi 6 skot í hálfleiknum sem öll
geiguðu. í síðari hálfleik hrundi
leikur Valsmanna strax á fyrstu
mínútunum og þá gekk nánast allt
eftir sem Keflvíkingar reyndu á
meðan hvorki gekk né rak hjá Vals-
liðinu. „Ég veit ekki hvað fór úr-
skeiðis hjá okkur en við hættum
að ieika „okkar bolta“ og fórum að
leika eins og Keflvíkingar vildu að
við lékurn," sagði Tómas Holton
þjálfari og leikmaður Vals. „Við
lékum eðlilega í fyrri hálfleik og
áttum þá allskostar við þá, en gáf-
um höggstað á okkur í þeim síðari
- þá fóru menn að taka ótímabær
skot sem geiguðu og Keflvíkingar
voru fljótir að refsa okkur við hverja
yfirsjón."
Nökkvi frábær
Nökkvi Már Jónsson var hreint
frábær í liði Keflvíkinga og réðu
Valsmenn ekkert við hann. Það
sama má segja um Jonathan Bow
sem einnig átti afbragðsleik. Guð-
jón Skúlason, Jón Kr. Gíslason,
Kristinn Friðriksson og Albert Ósk-
HANDKNATTLEIKUR
Landsliðið á hrakhólum
Starfskilyrði og æfingaaðstaða
okkar í undirbúningnum fyr-
ir B-keppnina voru gersamlega
út í hött - við höfðum enga að-
stöðu," sagði Þorbergur Aðal-
steinsson, landsliðsþjálfari í hand-
knattleik, þegar hann var spurður
um aðstöðu þá sem landsliðinu
hefur verið boðið upp á. „Ég hef
reynt að nýta mér ýmsa mögu-
leika, en tilfellið er að viss fyrstu
deildar félög eru ekki tilbúin að
láta okkur fá einn einasta tíma
til æfinga og hafa algjörlega
hundsað okkur. En á móti kemur
að nokkrir fyrstu deildar þjálfarar
hafa verið okkur velviljaðir. Ég
hef fengið inni hjá framhaldsskól-
unum og í því sambandi vil ég
taka fram að Logi Ólafsson, vinur
. minn og knattspyrnuþjálfari hjá
Víkingi, hjálpaði okkur sérstak-
lega vel á lokasprettinum með því
að útvega tíma í Hamrahlíða-
skóla.“
- Ertu að segja að landsliðið eigi
hvergi vísan samastað? Og ef svo
er, er það ekki í verkahring HSÍ
að sjá til þess að landsliðið sé
ekki hornreka?
„Það er rétt. Landsliðið á enga
fasta tíma og hvergi er gert ráð
fyrir því í sölum en auðvitað er
þetta mál HSÍ. Þetta er stórt
vandamál, en tilfellið er að
íþróttahús er ekki fyrir hendi,
aðstaðan er 'ekki til staðar og við
erum upp á félögin komnir. Æski-
legast væri í þriggja vikna
lokakaflanum fyrir mót að við
hefðum Laugardalshöllina. Vær-
um þar með allt okkar hafurtask,
sem er upp á fleiri hundruð kíló,
en ekki að vera að rogast með
þetta daglega eins og verið hefur
og jafnvel tvisvar á dag. í þessum
málum ríkir algjört molbúakerfi
og meðan það varir kemur það
niður á okkur. Kerfið er þannig
að sveitarfélög hlúa að félögum
sínum, en HSI á ekki aðgang að
neinu sveitarfélagi.
Við þurfum aðstöðu fjóra tíma
á dag síðustu þijár vikurnar fyrir
stórmót eða um 84 tíma. Sem
dæmi gátum við ekki fengið einn
hádegistíma á föstudögum í Höll-
inni, vegna þess að Körfuknatt-
leikssambandið er þá með tíma
fyrir stjórnannenn og fleiri
trimmara. Allir heimta árangur,
en fáir innan sem utan hreyfing-
arinnar, eru tilbúnir að koma til
móts við brýnustu þarfir okkar.
Þetta stingur í stúf við kröfurn-
ar,“ sagði Þorbergur.
Nánar verður fjallað um mál-
efni landsliðsins, í viðtali við Þor-
berg í blaðinu á morgun.
arsson léku einnig vel. Magnús
Matthíasson og Tómas Hojton voru
bestu menn Vals og eins má nefna
þá Símon Ólafsson, Svala Björg^
vinsson og Ragnar Jónsson se^i
voru góðir í fyrri hálfleik. Keflvík-
ingar lögðu allt kapp á að stöðva
Franc Booker og tókst það því hann
skoraði aðeins 13 stig og þar af var
ein 3ja stiga karfa sem kom ekki
fyrr en undir leikslok.
IBK - Valur 106:84
íþróttahúsið í Keflavík, fyrsti úrslita-
leikur í íslandsmótinu, föstudaginn 3.
apríl 1992.
Gangur leiksins: 0:4, 2:4, 9:13, 9:22,
16:26, 19:34, 25:39: 33:39,39:48,
48:52, 67:52, 84:71, 92:78, 101:82,
106:84.
Stig ÍBK: Nökkvi Már Jónsson 28,
Jonathan Bow 21, Guðjón Skúlason
19, Kristinn Friðriksson 15, Jón Kr.
Gíslason 9, Albert Óskarsson 7, Hjört-
ur Harðarson 7.
Stig Vals: Magnús Matthíasson 21,
Ragnar Jónsson 16, Franc Booker 13,
Tómas Holton 12, Símon Ólafsson 12,
Svali Björgvinsson 8, Ari Gunnarsson
2.
Áhorfendur: Um 1.300.
Dómarar: Jón Otti Ólafsson og Helgi
Bragason.
toóm
FOLK
■ ÞAD var stíll yfir kynningunni
á liði Keflvíkinga í gær. Fyrst
voru Valsmenn kynntir og fengu
þokkalegar móttökur áhorfenda, en
enginn þó meiri en Guðni Haf-
steinsson, enda heimamaður. Svo
kom röðin að heimamönnum.
■ LJÓSIN voru slökkt og byrgt
fyrir glugga. Um leið og kynningin
hófst var sterkum ljóskastara beint
að þeim sem kynntur var. NBA
stíll yfir Keflvíkingum.
■ ÞEIR sem vilja fá sæti á leikju^.
í Keflavík verða að mæta tíman-*"
lega því í gær var bekkurinn þétt-
setinn þegar 45 mínútur voru í leik.
■ ÁHORFENDUR léku við hvern
sinn fingur í síðari hálfleik enda
léku heimamenn þá vel. Þeir mynd-
uðu bylgjur á pöllunum og hvöttu
sína menn til að leika vörn, sem
þeir og gerðu.
■ VALSMENN höfðu yfirhönd-
ina í fyrri hálfleik og leiddu með 9
stigum í leikhléi, 39:48. Eftir 3
mínútur og 29 sekúndur höfðu
Keflvíkingar komist yfir, 53:52 og
þegar 5 mínútur og 40 serkúndur
voru liðnar af síðari hálfleik höfðu
Seir náð 12 stiga forskoti, 64:52.
I NÖKKVI Már Jónsson og-
Franc Booker rákust harkalega
saman þegar 7 mínútur voru til
leiksloka. Booker varð að fara af
leikvelli blóðugur, en kom inná aft-
ur eftir mínútu með plástur á höfð-
inu.
■ SIGURÐUR Ingimundarson
fýrirliði ÍBK hitaði upp fyrir leikinn
en fann til í bakinu og ákvað að
vera ekki á skýrslu. Böðvar Krist-
jánsson tók sæti hans á vara-
mannabekknum.
■ VALSMENN voru með nýja
auglýsingu á búningum sínum,
bæði æfinga- og keppnisbúningitrn>
Auglýsingin er frá nýjasta tölvufyr-
irækinu hér á landi, Nýherja sem
hóf starfsemi á fimmtudaginn, en
auglýsingarnar voru komnar á bún-
inga Vals daginn eftir, eða á föstu-
daginn.
■ KEFLVÍKINGAR ætla að vera
með ókeypis rútuferðir að Hlíðju^.
enda á morgun. „Fjórtán rúraF
leggja af __stað klukkan 18,“ sagði
Ragnar Örn Pétursson sem var
kynnir á leiknum.