Morgunblaðið - 25.04.1992, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 25.04.1992, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRIL 1992 33 Sýndartillaga Framsóknar eftir Guðrúnu Zoega Rétt fyrir páskana birtist í Morg- unblaðinu grein eftir Sigrúnu Magnúsdóttur borgarfulltrúa. I greininni segir hún frá tillögu sem hún hefur flutt í stjórn veitustofn- ana en meirihlutinn vísaði frá. Borgarfulltrúanum mislíkaði þessi málsmeðferð eins og við var að búast, enda hefur henni vafalaust gengið gott til og hún viljað sýna góðan vilja með flutningi tillögunn- ar. Sýndartillaga Því miður var þetta aðeins sýnd- artillaga og skipti engu máli hvem- ig hún hefði verið afgreidd; hvort hún hefði verið samþykkt, felld eða henni vísað frá. Áhrif tillögunnar hefðu í öllum tilfellum orðið þau sömu: Nefnilega alls engin. Lesend- um til glöggvunar leyfi ég mér að birta hér bæði hina upphaflegu til- lögu, svo og frávísunartillögu sjálf- stæðismanna. Tillaga framsóknarfulltrúans hljóðaði þannig: „Stjóm veitustofn- ana samþykkir að auka að mun rannsókna- og þróunarstarf Vatns- veitu Rvk., Hitaveitu Rvk., og Raf- magnsveitu Rvk., og nýta betur þá miklu sérfræðiþekkingu sem til „Áhrif tillög’unnar hefðu í öllum tilfellum orðið þau sömu: Nefni- lega alls engin.“ staðar er í fyrirtækjunum. Niður- stöður rannsókna og sérfræðiþekk- ing verði látin í té fyrirtækjum í borginni, eða sem stofnuð kunna að verða þar, er fást við skylda starfsemi. Hugvit og þekking ásamt auðlindum okkar í köldu og heitu vatni og rafmagni er fjársjóður sem nota ber til alhliða atvinnuuppbygg- ingar í Reykjavík." Eftirfarandi frávísunartillaga var samþykkt: „Á vegum fyrirtækjanna þriggja, sem undir þessa stjórn heyra, hefur lengi verið unnið um- fangsmikið rannsóknar- og þróun- arstarf. Sérfræðiþekking fyrirtækj- anna og niðurstöður rannsókna- hafa alltaf verið látnar í té þeim sem þess óska og verður því að sjálfsögðu haldið áfram. Má í þessu sambandi benda á aðild HR að Virki-Orkint, markaðskynningu RR, og vatnssölu til útflutnings á vegum VR. Tillagan er því óþörf og er vísað frá.“ Ég læt lesendum eftir að dæma um ágæti tillögu borgarfulltrúans Guðrún Zoega og hugsanlegan áhrifamátt hennar. Hún getur þess réttilega að til- lagan hafi fyrst verið lögð fram í haust. Ef hugur hefði fylgt máli hefði verið eðlilegt að fylgja henni eftir með því að gera tillögu um málið við gerð fjárhagsáætlunar. Engin tillaga kom fram frá fram- sóknarfulltrúanum um aukið fé til rannsókna á vegum fyrirtækjanna, hvorki í stjórn veitustofnana né í borgarstjóm. Þess ber að geta að aldrei hefur staðið á stjóminni að veita fé til rannsókna, sem að gagni mega koma, hvort sem er fyrir fyr- irtækin beint eða tengda starfsemi. V erkfræðifyrirtæki? Svo að gætt sé sannmælis er rétt að geta þess að Sigrún hefur stutt dyggilega tillögu frá Rekstrar- stofunni hf. sem hefur verið lögð fram í stjórn veitustofnana um að „efla ímynd Hitaveitunnar sem verkfræðifyrirtækis". Þessu markmiði hyggjast þau ná með því að þrefalda, hvorki meira né minna, tæknilið Hitaveitunnar, þannig að þar verði um 40 verk- og tækni- fræðingar. Það er ekkert launung- armál að þessi tillaga hefur ekki stuðning meirihluta veitustjómar. Tímaskekkja Tillaga um svo stórfellda íjölgun opinberra starfsmanna er tíma- skekkja nú, þegar stefnt er að einkavæðingu á sem flestum svið- um, þar á meðal tilfærslu verkefna frá hinu opinbera til einkaaðila. Með því að fara að þessum tillögum væri verið að stíga stórt skref aft- urábak í einkavæðingarmálum. Hitaveitan hefur verið brautryðj- andi á því sviði, einkum varðandi verklegar framkvæmdir og undir-^__ búning þeirra. Þar má meðal ann- ars nefna umfangsmiklar rann- sóknir og þróunarstarf við virkjun jarðhitans á Nesjavöllum. — Borg- arfulltrúi Framsóknarflokksins, sá sami og nú situr í stjóm veitustofn- ana, treysti sér ekíd til að styðja þá framkvæmd á sínum tíma. — Þar var leitað til hæfustu manna bæði innanlands og utan, innan Hitaveitunnar og utan, en verkinu var stjórnað af starfsmönnum Hita- veitunnar. Þetta fyrirkomulag hefur reynst vel, bæði við þetta verkefni og önnur, og hefur leitt til mikillartf"’ miðlunar þekkingar til og frá Hita- veitunni. Lokaorð Á grein borgarfulltrúans má skilja að hann telji tillögu sína leysa öll vandamál, ekki bara vanda veitufyrirtækjanna þriggja, heldur einnig heilbrigðismál, öldrunarmál, umhverfismál og ekki síst atvinnu- mál. Skortur á atvinnu í borginni er vissulega áhyggjuefni. Þar breyta yfírborðskenndar sýndartil- lögur Framsóknar hins vegar engu um. Höfundur er borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og situr í stjórn veitustofnana. Doktors- próf í ónæmis- fræði VALA FRIÐRIKSDÓTTIR lauk doktorsprófi í ónæmisfræði við Dýralæknaháskólann í Ósló 5. desember sl. Titill doktorsrit- gerðarinnar er: „Borrelia burg- dorferi infection in sheep, sero- logical and epidemiological studies." í ritgerðinni er lýst rannsóknum á útbreiðslu smits með bakteríunni Borrelia burgdorferi í norsku sauðfé og einnig er lýst einkennum sjúkdóms sem bakterían er talin hafa valdið í lömbum. Baktería þessi veldur svokölluðum „lyme- sjúkdómi" í fólki og einnig er tals- vert um sjúkdóm af hennar völdum í hundum og hestum. Smit er talið berast svo til eingöngu með biti smitaðra áttfætlumaura og í Nor- egi af tegundinni ixodes ricinus. Á svæðum þar sem mikið er af þess- um áttfætlumaurum geta þeir valdið talsverðum búsifjum vegna ýmissa sjúkdóma sem þeir bera með sér. Vala er fædd og uppalin í Dr. Vala Fríðriksdóttir Reykjavík. Hún lauk stúdentsprófí frá Menntaskólanum við Tjörnina 1974, B.Sc.-námi í líffræði við Háskóla íslands 1978 og M.Sc.- prófí í ónæmisfræði frá Brunell- háskólann á Englandi 1981. Síðan 1984 hefur hún verið búsett í Ósló og unnið að rannsóknum við Dýralæknaháskólann og Veteri- nærinstituttet, þar sem hún starf- ar nú. Seinna á þessu ári mun hún hefja störf við Tilraunastöð Há- skólans í meinafræði að Keldum. Foreldrar Völu eru hjónin Berg- ljót Ingólfsdóttir og Friðrik Krist- jánsson. Eiginmaður hennar er Sigurður Magnússon líffræðingur sem er að ljúka doktorsnámi í frumulíffræði við Háskólann í Ósló, og eiga þau þrjá syni. Sýningar í Gerðubergi SÝNINGU Ástu Erlingsdóttur í veitingabúð Gerðubergs, Kaffi Gerði, lýkur þríðjudaginn 28. apríl. Ásta vinnur öll sín verk með jurta- litum sem hún hefur sjálf þróað úr lífríki náttúrunnar. Sýningin er opin á sama tíma og Kaffí Gerður, mán.-fim. kl. 10.3021, fös. kl. 10.30-16 og lau. kl. 13-16. Sýning Árna Sigurðssonar í menningarmiðstöðinni Gerðubergi stendur til 19. maí. Árni er búsett- ur í Svíþjóð og er þetta fyrsta sýning hans á íslandi. Hann er sonur Sigurðar Guðmundssonar myndlistarmanns og Ineke Guð- mundsson og hefur hann búið er- lendis frá því hann var fímm ára gamall. Menntun sína hlaut Árni hjá AKT Enscede í Hollandi og í Konsthögskolan í Stokkhólmi. Sýningin er í Gerðubergi er þriðja einkasýning Áma og á henni sýn- ir hann teikningar og litógrafíur. Sýningin er opin mán.-fím. kl. 10-22 og fös.-lau. kl. 13-16. Sýningunni lýkur 19. maí. Einnig eru verk í eigu Reykjavík- urborgar til sýnis í Gerðubergi. Margrét Gunnarsdóttir, íslandsmeistari barþjóna 1991, tekur á móti verðlaunum frá Herði Sigurjónssyni, formanni Barþjónaklúbbs ís- lands. Barþjónar keppa á Hótel Sögu íslandsmeistaramót barþjóna verður haldið á Hótel Sögu sunnu- daginn 26. apríl. Húsið opnar klukkan 18 og þá munu umboðsmenn* verða með kynningu á sínum vörum. Að því loknu verður framreidd- ur kvöldverður og þá verður flutt skemmtidagskráin „Á söguslóð- um“ með Gysbræðrum. Að þessu sinni taka tuttugu og fulltrúi íslands á heimsmeistara- átta barþjónar þátt í íslandsmótinu keppni barþjóna sem haldin verður og keppt verður í blöndun sætra á næsta ári í Vín í Austurríki. kokteila. íslandsmeistarinn verður ■ MÁLFUNDAFÉLAG alþjóða- sinna heldur umræðufund í dag, laugardaginn 25. apríl, undir yfír- skriftinni „Gegn stríðsundirbúningi á hendur Líbýu — gegn stuðningi íslands við samþykkt öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna". Fundurinn verður haldinn í aðsetri félagsins á Klapparstíg 26, 2. hæð og hefst klukkan 13. Frummælendur verða Moussa Thioune og Sigurlaug Gunnlaugsdóttir. (Fréttatilkynning) A FÉLAGSÚF - m » •.?•.:■. m > s A ■ □ GIMLI 599227047 - Lf. □ MÍMIR 599204277 S 1 FRL. Færeyska sjómannaheimilið Færeysk guðþjónusta í Laugar- neskirkju kl. 14.00. Ásbjörn Jacobsen predikar og Jóhann Olsen talar. Hvítasunnukirkjan Ffladelfía Bænasamkoma í kvöld kl. 20.30. Allir hjartanlega velkomnir. Dagskrá vikunnar framundan Sunnudagur: Sunnudagaskóli kl. 11.00. Almenn samkoma kl. 16.30. Ræöumaður: Hafliði Kristinsson. Þriðjudagur: Samvera fyrir eldr.i safnaðarmeðlimi kl. 15.00. Miðvikudagur: Biblíulestur kl. 20.30. Föstudagur 1. maf: Samkoma kl. 20.00. „Jafnvel englarnir þorðu ekki þangað“. Sagan um Nicky Cruz. Laugardagur: Bænasamkoma kl. 20.30. Sunnudagur 3. maf: Brauös- brotning kl. 11.00. Almenn sam- koma kl. 20.00. Ath. breyttan tfma vegna kvennamóts. IÍÚTIVIST Hallveigarstíg 1, sfmi 14606 Dagsferðir sunnudag- inn 26. aprfl Kl. 10.30: Deildarháls - Selvogur. Kl. 13.00: Herdísarvík - Selvogur. Brottför í báöar ferðirnar frá BSÍ, bensínsölu. Verð kr. 1200/1100. Frítt fyrir börn 15 ára og yngri í fylgd meÖ fullorðnum. Sjáumstl Útivist. FERÐAFÉLAG ÍSiANDS OLDUGÖTU3 & 11798 19S33 Sunnudagur 26. aprfl Upphaf raðgöngunnar 1992 Kjalarnes-Hvalfjörður- Borgarnes I ár verður farið umhverfis Hval- fjörðinn og upp i Borgarnes. Sú nýjung er tekin upp að fólk getur valið um tvo kosti: A. Fjatlahring Hvalfjarðar. B. Strönd og láglendi Hvalfjarðar. Gengið er í 10 áföngum. Viður- kenning verður veitt fyrir góða þátttöku og farmiöi gildir sem happdrættismiði. Ferðagetraun í öllum ferðunum. Spurning ferðagetraunar 1. feröar: Nefn- ið eyju við Kjalarnes. Sunnudagsferðir 26. apríl kl. 13. 1. áfangi raðgöngunnar A: Esja-vesturbrúnir/R-1a. Gengið frá Esjubergi á Kerhóla- kamb (851 m.y.s.) þann frábæra útsýnisstað og siðan haldið nið- ur um vesturbrúnimar að Ártúni. B: Kjalarnestangar-Saur- bær/R-1b. Auöveld ganga frá Brautarholti út með ströndinni að kirkjustaönum Saurbæ. Mæt- ið vel búin, ekki sist í góðum skófatnaði til fjallgöngunnar. Munið nesti. Brottför f ferðirnar frá Umferðarmiðstöðinni, aust- anmegin (stansað við hið nýja félagsheimili Fi, Mörkinni 6). Verð 1.000,- kr. fritt f. böm 15 ára og yngri með foreldrum sfnum. Strandgangan er góð fjölskylduganga. Sjá grein í Mbi. 22. aprfl bls. 16. Verið með f raðgöngunni frá byrjun. Það borgar sig. Hin nýja og glæsi- lega Árbók 1992 verður kynnt í ferðinni. Gerist félagar. Ferðafélag íslands.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.