Morgunblaðið - 25.04.1992, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 25.04.1992, Blaðsíða 52
MICROSOFT. einarj. WINDOWS. SKÚLASONHF UORGVNBLADID, AÐALSTRÆTl 6, 101 REYKJAVÍK SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 1655 / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTl 85 LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1992 VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR. Sandrok á öllu Suð- 'urlandinu OFSAROK hefur verið á landinu, einkum sunnan- og austanverðu, síðustu tvo sólarhringa og urðu nokkur spjöll af völdum veðurofs- ans á Suðurlandi. Ófært var vegna sandroks frá Eyjafjöllum allt aust- ur að Djúpavogi og sömuleiðis um Óseyrarbrú. Þak sviptist af fjósi á bænum Garði í Mýrdalshreppi og bílar á leið yfir Skógasand og Sólheimasand skemmdust í sand- foki. Undir Hafnarfjalli fauk bíll í fyrrakvöld og annar fauk í gær. Engin slys urðu. Allt flug innan- f lands lá niðri í gær. 1*^ Víða var ofsaveður við suður- ströndina með tilheyrandi sandroki. Að sögn vegaeftirlitsmanna var meira eða minna ófært frá Skóga- sandi austur að Djúpavogi. Vitlaust veður var á söndunum sunnanlands og í Öræfasveit. Beðið var átekta með fyrirhugaðan mokstur á Odds- skarði og á heiðunum í kringum ísa- fjörð, en þar var víðast ófært vegna snjóa. Ágæt færð var yfirleitt á Norð- ur- og Norðausturlandi. Skemmdir urðu á nokkrum bæjum Mýrdalshreppi. Þak fauk af súr- heysgryfju og mjólkurhúsi á bænum Görðum. Gróðurhús á bænum fauk einnig. Skjólgrindverk fuku í Vík í Mýrdal en að öðru leyti varð ekki mikið tjón þar. Mikið sandrok var við Óseyrar- brúna og urðu töluverðar skemmdir á nokkrum bílum sem fóru um brúna. Ökumönnum á leið til Reykjavíkur var ráðlagt að taka á sig hálftíma krók fram hjá Skálholti og Gríms- nesi. ------------- Neskaupstaður vill Islandsflug: Akvörðun ráðherra eftir helgi BÆJARSTJÓRN Neskaupstaðar samþykkti einróma í gærkvöldi að mæla með að íslandsflug fái sérleyfið á flugleiðinni til og frá Reykjavík. Bæjarstjórnin fór fram á að gefa umsögn sína um T&á tvo aðila sem sótt hafa um íeyfið, Odin Air og íslandsflug. Halldór Blöndal samgönguráð- herra segir að hann muni taka ákvörðun um hvorum aðilanum verði veitt leyfið eftir helgina en Flugráð hefur mælt með Odin Air. Aðspurður um hvort samþykkt bæjarstjómar muni hafa áhrif á ákvörðun hans segir Halldór að alltaf sé gagnlegt að vita vilja heimamanna í málum sem þessum. » Gunnar Þorvaldsson framkvæmd- astjóri íslandsflugs segir að hann sé ánægður með niðurstöðu bæjar- stjómar og að íslandsflug sé tilbúið að taka við sérleyfmu falli ákvörðun ráðherra á þann veg. Sem kunnugt er af fréttum dró Islandsflug umsókn sína til baka í kjölfar umsagnar Flug- ráðs í málinu. „Bæjarstjórn sendi endurskoðanda til að fara yfir stöðu '"'fyrirtækjanna beggja og þetta er ” niðurstaða úr þeirri könnun,“ sagði Gunnar. Morgunblaðið/RAX Hjónin Jonna og Vigfús sitja í rústunum og horfa á ærnar og lömbin á túninu. Milljóna tjón í fárviðri á Beijanesi undir Eyjafjöllum: Þak af í heilu lagi og skall inn- an við metra frá stofuglugga MILLJÓNA TJÓN varð á bænum Berjanesi undir Eyjafjöllum í ofsa- veðri að kvöldi sumardagsins fyrsta. Þak fauk þar af fjósi og skall þekjan til jarðar innan við metra frá þeim stað í íbúðarhúsinu þar sem húsfreyjan var með tvö ung börn. Hvorki menn né skepnur sakaði. Þá hrundi gafl úr hlöðnum steini á fjósinu, auk þess sem skemmdir urðu á þaki fjárhúss. „Ég var að horfa á Laxness-þáttinn í sjónvarpinu þegar ég heyrði sprengingu og það dimmdi inni stofunni þegar þakið kom af fjósinu í heilu lagi fram hjá glugganum, og sprakk ofan í túnið,“ sagði Jonna Elísdóttir húsfreyja á Beija- nesi en hún var ein heima á bænum með tvö börn, 3 og 4 ára. Bóndinn í Beijanesi, Vigfús Andrésson, var norður í Eyjafirði en barðist suður í versta veðri þeg- ar hann frétti af tjóninu og var kominn heim síðdegis í gær. Hann segir Eyfellinga ekki muna eftir jafnvondu veðri á þessum árstíma. „Ég hringdi strax í Drangshlíð og bóndinn þar kom ásamt öðrum bónda og syni sínum í bíl, sem þeir voru búnir að þyngja niður með áburðarpokum. Þeir komust við illan leik til mín en við kom- umst ekki út úr húsi aftur fyrr en eftir miðnætti," sagði Jonna. Hún sagði að börnin hefðu eðlilega ver- ið mjög hrædd, ekki síst þar sem þau hefðu óttast um kýmar sex í fjósinu. Þeim var komið í hlöðu. Vigfús Andrésson sagði ljóst að um milljóna tjón væri að ræða. Önnur þekjan öll og þriðjungur af hinni hefðu fokið af rúmlega 300 fermetra fjósinu og gaflinn að framan hrunið. Það sem eftir stæði af húsinu léki á reiðiskjálfi og gæti gefið sig hvenær sem er ef önnur gusa kæmi. Þakið á fjárhúsi bæjarins gekk til og slútir fram yfír hallandi gaflinn. I fjósinu voru 28 básar og lausaganga í 14 bása stæðu. Hlé á samningaviðræðum eft- ir deilur um miðlunartillögu RIKISSÁTTASEMJARI lagði ekki fram miðlunartillögu í kjaradeilu Alþýðusambands Islands við vinnuveitendur og Bandalags starfsmanna ríkis og bæja og ríkisins og Kennarasambands íslands við stjórnvöld eins og hugmyndir höfðu verið uppi um í gær, þar sem ekki var sam- staða um hvort miðlunartillaga ætti að ná til þeirra félaga sem hafa staðið utan samflots launþegarhreyfingarinnar. Hlé var gert á samn- ingafundinum um miðnætti í nótt, en hann hafði þá staðið frá þvi að morgni fimmtudagsins og var þá ljóst að ef sáttasemjari leggur fram miðlunartillögu nær hún eingöngu til þeirra félaga sem hlut eiga að samflotinu. Fundur hefst að nýju klukkan 14 í dag. Guðlaugur Þorvaldsson, ríkissátt- asemjari, sagði að vinnuveitendur hefðu seinnipartinn í gær vísað öllum viðræðum um kjarasamninga við aðildarfélög Alþýðusambands ís- lands til hans og hefðu talið að miðl- unartillaga ætti að ná til allra aðild- arfélaga ASÍ. Um það hefði verið grundvallarágreiningur milli aðila og hann hefði ekki getað hugsað sér að leggja fram slíka tillögu nema eftir viðræður við þau félög sem ættu í hlut en það hefði tafið viðræð- ur verulega. Hann hefði því tekið ákvörðun eftir viðræður við alla aðila að leggja ekki fram slíka tillögu nema hún næði eingöngu til þeirra félaga sem í hlut ættu. Það væri möguleiki en einnig væri ekki útilok- að að reynt yrði að ljúka málinu með samningum. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins voru það einkum félög opin- berra starfsmanna sem voru fýsandi þess að ríkissáttasemjari legði fram miðlunartillögu. Sum félög í ASÍ eiga ekki aðild að samflotinu svo sem Málm- og skipasmiðasamband ís- lands og Flugfreyjufélag íslands. Sama gildir um félög innan vébanda Bandalags starfsmanna ríkis og bæja. Félög fóstra, sjúkraliða, lög- reglumanna og tollvarða eiga ekki aðild að viðræðunum, auk nokkurra bæjarstarfsmannafélaga. Samkvæmt lögum um sáttastörf í vinnudeilum er ríkissáttasemjara heimilt að leggja fram miðlunartil- lögu til lausnar vinnudeilu eftir að hafa ráðgast við aðila. Sáttasemjari ákveður í samráði við samninga- nefndir hvenær og hvernig atkvæða- greiðsla fer fram. Hún skal vera skrifleg og leynileg og var hugmynd- in sú að atkvæðagreiðsla færi fram í hveiju félagi fyrir sig á sama tíma eftir ákvörðun sáttasemjara. Miðlun- artillagan hefði tekið á atriðum sem ekki hafði tekist sátt um. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins vildu launþegar fá 1,7% kauphækkun frá gerð samninga, en höfðu fengið til- boð um 1,5% hækkun. Ekki var rætt um frekari flatar launahækkanir á samningstímanum. BSRB lagði áherslu á samningstíma til 1. febrúar og ASÍ til 15. febrúar en tilboð hafði komið fram um samningstíma til 1. mars. Þá var einnig gert ráð fyrir láglaunabótum tvívegis á laun undir 80 þúsund, desemberuppbót hækkaði úr 10 í 12 þúsund krónur og orlofs- uppbót hækkaði úr 7.500 krónum í 8 þúsund. Aðilar hittu ríkisstjóm- ina tvívegis í gær og var rætt um atvinnu-, vaxta- og velferðarmál.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.