Morgunblaðið - 31.05.1992, Qupperneq 1
96 SIÐUR B/C
122. tbl. 80. árg.
SUNNUDAGUR 3l. MAÍ 1992
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Rússar fallast á harðar refsi-
aðgerðir gegn Serbíustióm
• •
Oryggisráð Sameinuðu þjóðanna:
Sameinuðu þjóðunum. Reuter.
ORYGGISRAÐ Sameinuðu þjóðanna ætlaði að greiða atkvæði um refsiaðgerðir gegn
Serbíu og Svartfjallalandi í gær og virtist ekkert í vegi fyrir samþykktinni. Rúss-
ar, sem hafa verið tregir til að beita Serba hörðu, hafa nú vent sínu kvæði í kross
og talsmaður Borísar Jeltsíns, forseta Rússlands, sagði í gær, að hann hefði fallist
á aðgerðirnar. Væri það í samræmi við þá stefnu Rússa að vinna að friði og stuðla
að því, að alþjóðalög væru virt. Nokkuð dró úr bardögum í Sarajevo, höfuðborg
Bosníu-Herzegovínu, í gær.
Refsiaðgerðirnar gegn Serbum og Svart-
fellingum felast í algjöru viðskipta- og olíu-
banni en matvæla- og lyfjainnflutningur
verður áfram leyfður. Flug til og frá ríkjun-
um verður bannað, eignir þeirra erlendis
frystar og hvers konar íþrótta-, vísinda- og
menningarsamskiptum hætt. Þá verður
fækkað verulega í sendiráðum Serbíu, áður
Júgóslavíu, erlendis. Til að vera samþykkt
þarf ályktunin að fá atkvæði níu ríkja af 15
í öryggisráðinu og þá að því tilskildu að
enginn fastafulltrúanna, Bandaríkjanna,
Rússlands, Kína, Frakklands eða Bretlands,
beiti neitunarvaldi. Ríkin sem ekki eiga
fastafulltrúa eru Austurríki, Belgía, Ekvad-
or, Grænhöfðaeyjar, Indland, Japan, Mar-
okkó, Ungveijaland, Venezúela og
Zimbabwe. Talið var líklegt, að fulltrúar
Kína og Zimbabwe s_ætu hjá.
Eins og gagnvart írak á sínum tíma tek-
ur ályktunin til 7. kafla stofnskrár Samein-
uðu þjóðanna en hún heimilar valdbeitingu.
Um hana hefur þó ekki verið rætt en mörg
íslömsk ríki, sem vilja koma múslímum í
Bosníu til hjálpar, eru þó farin að þrýsta á
um beinar bernaðaraðgerðir. Vilja þau, að
byrjað verði á því að stugga serbnesku her-
skipunum á Adríahafi burt.
James Baker, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, og frammámenn í Bretlandi hafa
gefið í skyn að hervaldi kunni að verða
beitt en fulltrúar í öryggisráðinu sögðu í
gær að um það yrði ekki rætt fyrr en ljóst
væri hvaða áhrif refsiaðgerðirnar hefðu.
Nokkuð dró úr bardögum í Sarajevo í gær
en á föstudag voru átökin þau hörðiistu frá
því stríðið í landinu hófst. Serbar héldu hins
vegar áfram eldflauga- og stórskotáliðsárás-
um á borgir og bæi í Króatíu og Bosníu,
meðal annars á hina fornu borg Dubrovnik
á Adríahafsströndinni.
. Aukinn hernaður Serba síðustu daga
þrátt fyrir yfirvofandi refsiaðgerðir er talinn
sýna að sósíalistastjórnin í Belgrad ætli
ekkert að gefa eftir, hvað sem það kann
að kosta fyrir almenning og efnahagslífíð í
landinu.
Morgunblaðið/RAX
Kátir krakkar á Tálknafirði
„Ekkí sjúkur,
bara sænskur“
ÞAÐ hefur lengi verið metingur
milli Norðmanna og Svía og í hitun-
um í vor blossaði upp ísstríð á milli
þeirra sem ekki sér fyrir endann á.
Stríðið náði hámarki þegar birtar
voru heilsíðuauglýsingar í norskum
blöðum þar sem heimskur Svíi reyn-
ir að pranga íspinna með smjörlíkis-
klípu í norsk börn. Vísað er til þess
að sænskir ísframleiðendur nota að-
allega grænmetisfeiti við ísgerðina
en norskir rjóma. Börnin í auglýsing-
unni halda sig auðvitað við norska
ísinn og eitt þeirra hvíslar: „Hann
er ekki sjúkur, bara sænskur.“
Perot og spill-
ingin í flotanum
ÞÓTT Ross Perot, milljarðamæring-
urinn frá Texas og líklegur forseta-
frambjóðandi, sé mikill föðurlands-
vinur er ekki hægt að bjóða honum
hvað sem er. Andstæðingar hans í
stjórnmálunum hafa fundið skjöl sem
sýna að hann reyndi að komast hjá
tveggja ára herþjónustu þegar hann
var ungur og efnilegur eftir að hafa
komist að því að hermenn í banda-
ríska flotanum nota blótsyrði,
drekka áfengi og eru ekki alltaf skír-
lífir. I bréfi einu til þingmanns í
Texas eru tíundaðir þeir „erfiðleik-
ar“ sem blöstu við þessum saklausa
manni ef hann þyrfti að gegna her-
þjónustu. „Eg hef komist að því að
sjóherinn er fremur guðlaus stofn-
un,“ skrifaði hann. „Eg gleðst ekki
yfir þeirri tilhugsun að verða áfram
íiðsforingi flotans í erlendum höfn-
um, þurfa að hlusta á drukkna menn
segja siðlausar sögur, útbýta penís-
illíni og verða vitni að lauslæti
kvæntra manna.“
Sítrónusafi hindr-
ar krabbamein
SÍTRÓNUSAFI bætir ekki aðeins
bragð matvæla heldur getur hann
útrýmt krabbameinsvaldandi efnum
í þeim, að því er japanskt dagblað
skýrði frá í gær. Blaðið hefur eftir
japönskum vísindamönnum að C-vít-
amín úr ferskum sítrónum hafi drep-
ið krabbameinsvaldandi efni sem
hefðu myndast á glóðarsteiktum
fiski. Vísindamennirnir höfðu þróað
sérstakan búnað til að mæla ná-
kvæmlega magn „sindurefna“, sem
eru mjög hvarfgjðrn og talin valda
krabbameini og öðrum sjúkdómum.
ísiendingar vöknuðu upp við
vondan draum er Tyrkir
lögðu til að að þrír íslenskir
stafir yrðu felldir út úr
grunntöflum alþjóðlegra
stafataflna.
TYRKJA
RÁNIO
16
Sendi-
herra
draums
Arabískir þankar í tilefni
listviðburðar
20
INNI í „
LITADYRÐINNI
Tó
onmnn
íevnni