Morgunblaðið - 31.05.1992, Qupperneq 2
2 FRETTIR/INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. MAÍ 1992
EFNI
*
Niðurstaða lokaritgerðar við Háskóla Islands;
Höfum þegið mun
meiri þrómiaraðstoð
en við höfum veitt
ÍSLENDINGAR hafa þegið margfalt meiri þróunaraðstoð en þeir
hafa veitt frá árinu 1944 fram til þessa dags. Framlag íslands til
þróunaraðstoðar er hlutfallslega langtum minna en annarra vest-
rænna ríkja, og miðast oft frekar við þarfir íslendinga en þiggj-
enda. Þetta eru heistu niðurstöður nýútkominnar lokaritgerðar í
stjóramálafræði við Háskóla íslands sem fjallar um þróunar- og
neyðaraðstoð íslenska ríkisins og fijálsra félagasamtaka á íslandi.
í ritgerðinni varpar höfundurinn,
Aðalsteinn Leifsson, fram nokkrum
tilgátum um þróunaraðstoð ísiend-
inga og kemst að þeirri niðurstöðu
að þær séu allar réttar. Sú fyrsta
er að lítið samhengi sé á milli þeirr-
ar stefnumótunar sem Alþingi og
ríkisstjórnir hafi samþykkt og að-
gerða íslenska ríkisins á sviði þró-
unaraðstoðar. Þá séu framlög al-
mennings til fijálsra félagasamtaka
sem sinna þróunar- og neyðarað-
stoð langt fyrir neðan það hlutfall
af þjóðarframleiðslu sem Samein-
uðu þjóðimar hafa hvatt til að stefnt
sé að. Einnig eru færð rök að því
að sú aðstoð sem ríkið og frjáls
félagasamtök hafa veitt hafi oft og
tíðum miðast við þarfir gefenda en
ekki þarfír þiggjenda. Þá kemst
höfundur einnig að þeirri niðurstöðu
að sé miðað við þá skilgreiningu á
þróunaraðstoð sem ríkið noti þegar
það telur fram veitta aðstoð hafi
Islendingar þegið allt að sjöfalt
meiri þróunaraðstoð en þeir hafa
veitt síðan lýðveldið var stofnað.
í ritgerðinni segir Aðalsteinn
Leifsson að íslenska ríkið hafí í
framtölum yfír veitta þróunarað-
stoð talið með framlög til ríkja sem
ekki teljist til þróunarríkja, þar á
meðal til Póllands, Portúgals og
Líbýu. Þá séu framlög til hlutafjár-
aukningar í Alþjóðabankanum,
ákveðin framlög til Iðnþróunarsjóðs
EFTA og framiög til Þróunar-
aðstoðar SÞ talin til þróunaraðstoð-
ar.
Aðalsteinn telur að ef skilgrein-
ingar ríkisins á þróunaraðstoð séu
samþykktar hljóti framlög úr sömu
og samskonar sjóðum og Islending-
ar greiða til og kalla veitta þróunar-
aðstoð að teljast til þróunaraðstoðar
sem ísland hefur fengið. Sam-
kvæmt því telur Aðalsteinn að eftir
1944 hafí ísland þegið þróunarað-
stoð sem felist í Marshall-aðstoð-
inni, hagstæðum lánum úr Alþjóða-
bankanum og Lánasjóði V-Norður-
landa og framlögum úr Iðnþróunar-
sjóði EFTA og Þróunarstofnun SÞ.
Sú upphæð sem íslendingar hafi
þegið með þessum hætti sé a.m.k.
sjö sinnum hærri en íslendingar
hafí veitt til alþjóðlegrar þróunarað-
stoðar á sama tíma.
Aðalsteinn færir einnig rök að
því í ritgerð sinni að þeir peningar
sem íslenska ríkið hafi veitt til tví-
hliða þróunarverkefna hafi að
mestu leyti farið í að greiða íslend-
ingum laun og til kaupa á íslepskum
vörum og þjónustu þótt það hafí í
mörgum tilfellum verið óhagstæð-
ara fyrir þiggjandann. Einnig sé
meirihluti hjálpargagna og mat-
væla, sem frjáls félagasamtök
senda til nauðstaddra svæða, feng-
inn eða keyptur á íslandi, burtséð
frá hagkvæmni eða hámarksnýt-
ingu fjármagns.
Aðalsteinn segir í ritgerð sinni
að ástæðan fyrir sinnuleysi íslend-
inga varðandi neyðar- og þróunar-
aðstoð megi efalaust rekja til þess
að fáfræði og fordómar um þróun-
arlöndin og vandamál þeirra séu
landlæg hér á landi. Nær ekkert
sé fjallað um þessi lönd í skólum
og fræðsla fijálsra félagasamtaka
um þessi málefni ákaflega lítil og
sú mynd sem gjarnan sé dregin upp
af þróunarlöndunum í auglýsingum
í kringum safnanir sé frekar til
þess fallin að ala á ranghugmynd-
um en að upplýsa fólk.
Morgunblaðið/Bjami
Bandaríkjamaðurinn Dick Conklin, sem er á ferð umhverfis jörð-
ina, við einhreyfíls flugvél sina á Reykjavíkurflugvelli.
Eftirlaunaþegi flýg-
ur umhverfis j örðina
BANDARÍKJAMAÐURINN Dick Conklin, sem er á ferð um-
hverfis jörðina á einshreyfils flugvél sinni, hefur viðdvöl á
Reykjavíkurflugvelli nú um helgina. Conklin kom hingað frá
Kanada en gerir ráð fyrir að koma aftur til heimaborgar sinn-
ar, Baton Rouge í Louisiana í Bandaríkjunum, snemma í ágúst.
Dick Conklin er fyrrum bygg-
ingaverktaki í Baton Rouge en
er nú kominn á eftirlaun. Hann
segist hafa flogið sér til gamans
í 18 ár, að mestu innan Bandaríkj-
anna, en hann hafí aldrei fyrr
lagt í jafn langa ferð.
Hann segist frá unga aldri hafa
látið sig dreyma um að fara um-
hverfís jörðina.^JJpphaflega hafí
hann ætlað að smíða bát til farar-
innar en úr þvi hafí þó aldrei orð-
ið. Hann hafí víða farið um ævina
en draumurinn sé nú loks að verða
að veruleika að nokkru leyti með
þessari ferð.
Conklin lagði af stað frá Baton
Rouge á mánudag og kom hingað
með viðkomu í Kanada. Héðan
flýgur hann á mánudag og er ferð-
inni heitið til Bretlandseyja. Þaðan
hyggst hann fara til Evrópu og
koma þar við í nokkrum borgum.
Síðan mun hann fara til Egypta-
lands, um Indland til Malaysíu og
loks yfír Kyrrahafíð til Hawaii-
eyja. Þar ætlar hann að dveljast
í nokkra daga áður en hann legg-
ur í lengsta áfanga leiðarinnar,
sem er frá Honolulu til San Frans-
isco. Ef allar áætlanir standast
mun hann svo koma aftur til Ba-
ton Rouge 5. eða 6. ágúst eftir
65 daga ferð.
Pharmaco hættir í fiskeldi:
Óvissa með framtíð
Liiidalax og Islandslax
ÓHAGSTÆÐ verðlags- og geng-
isþróun eru aðalástæður þess að
Pharmaco dregur sig nú út úr
rekstri fiskeldisstöðva Lindalax
og íslandslax, að sögn Sindra
Sindrasonar, framkvæmdastjóra
fyrirtækisins. Seiðum sem ekki
er unnt að sejja verður fargað,
en einhveiju af matfíski verður
slátrað í lok sumars og næsta
ár. Að sögn forráðamanna Iðn-
þróunarsjóðs og Fiskveiðasjóðs,
sem eiga meirihluta í Lindalaxi
og íslandslaxi, er ekki Ijóst hvort
af frekari rekstri stöðvanna
verður.
Laxveiði á stöng hefst á morgun:
Sérfræðingar spá
góðu veiðisumri
Laxveiði á stöng hefst í þremur ám á morgun, en þá verða
færi bleytt í Norðurá og Þverá í Borgarfírði og Laxá á Ásum.
Dagana 4. tíl 7. júní bætist svo Kjarrá við, en hún er efri
hluti Þverár og er opnunartími hennar breytilegur frá ári til
árs og fer eftir árferði hvenær fært verður. Veiði hefst síðan
í flestum ám landsins á tímabilinu 10. til 20. júni.
Sérfræðingar hafa spáð indunum og vætunni að undan-
miklum laxagöngum því
sterkir árgangar seiða hafí
horfið úr ánum til sjávar tvö
síðustu vor og ástand sjávar
hafi verið ákjósanlegt fyrir
seiðin. Leikmenn hafa verið á
höttunum eftir físki við marg-
ar ámar að undanförnu og séð
laxinum bregða fyrir víða.
Borgarfjarðarárnar tvær sem
opna á morgun og gefa vana-
lega tóninn hafa hins vegar
verið mjög vatnsmiklar í hlý-
förnu og því lítið sést til lax-
ins. Miðað við almenn skilyrði
og strauma má þó nokkum
veginn slá því föstu að sá silfr-
aði sé kominn.
Byijunin er ekki síst mikilvæg
þetta sumarið fyrir leigusala sem
flestir sitja uppi með meira af
óseldum veiðileyfum en áður.
Gera þeir sér vonir um að hreyf-
ing komi á markaðinn ef laxinn
gefur sig vel fyrstu dagana.
„Við sáum einfaldlega fram á
taprekstur," sagði Sindri Sindra-
son. „Með þessari verðlagsþróun
verður enginn grundvöllur fyrir
rekstrinum og aldrei neitt upp úr
honum að hafa, þótt við séum með
reksturinn á nrjög lágri leigu."
Hann sagðist heldur ekki sjá fram
á að leiðrétting gengis, sem ýmsir
hefðu búist við, yrði að veruleika.
Sindri kvað tap Pharmaco vegna
fískeldisins ekki liggja fyrir. Hann
sagði jafnframt að ísland hefði
ekki upp á neitt sérstakt að bjóða
í fiskeldi, flutningskostnaður væri
hár, niðurgreiðslur í Evrópu óþæg-
ur ljár í þúfu og aukin umsvif lág-
kostnaðarframleiðslu í Chile vax-
andi vandamál.
Lindalax er i eigu Iðnþróunar-
sjóðs og Den Norske Bank. Þor-
varður Alfonsson, framkvæmda-
stjóri Iðnþróunarsjóðs, sem á 51%
í Lindalaxi sagði í samtali við Morg-
unblaðið að enn væri ekki búið að
ákveða hvað gert verði. Þó hafí
aðilar sýnt áhuga á að taka stöðina
til leigu fyrir bleikjueldi. Hann
sagði að mestur áhugi væri á að
selja stöðina, og sér hefði skilist
að Den Norske Bank væri á sama
máli.
Fiskveiðasjóður á 65% í íslands-
laxi, en Framkvæmdasjóður 35%.
Svavar Ármannsson,' aðstoðarfor-
stjóri Fiskveiðasjóðs, kvað ekkert
vera ljóst um framvindu mála eftir
að Pharmaco hættir rekstri
stöðvarinnar. Enginn hafí haft
samband við sjóðinn um kaup eða
leigu, en fyrir liggi að tap sjóðsins,
ef leggja þarf fiskeldisstöð Islands-
lax niður, verði nokkuð á þriðja
hundrað milljónir króna.
Þjóðleikhúsið:
Jelena set-
ur sýn-
ingarmet
KÆRA Jelena eftir Ljudmilu
Razumovskaju verður sýnd í
117. sinn í kvöld. Ekkert ann-
að verk hefur verið sýnt jafn
oft á sama leikári í Þjóðleik-
hús-
inu.
Verkið verður sýnt á Akur-
eyri 19., 20., og 21. júní og
verður hluti af framlagi íslend-
inga á Norrænum leiklistardög-
um í Reykjavík sem hefjast á
fimmtudag. Tvö önnur verk
eftir konur verða sýnd á leik-
listardögunum á vegum Þjóð-
leikhússins, Ég heiti ísbjörg,
ég er ljón og Elín, Helga, Guð-
ríður.
Kæra Jelena er skrifað fyrir
nokkrum árum en var lengi
bannað. í Sovétríkjunum.
Tyrkjaránið
►íslendingar vöknuðu upp við
vondan draum er Tyrkir lögðu til
að þrír íslenskir stafir yrðu feiidir
út úr grunntöflum alþjóðlegra sta-
fataflna. Ljóst er að framundan
er mikið verk, ef halda á íslenskum
stöfum inni í öllum tölvu- og raf-
eindastöðlum framtíðarinnar./lO
Inni í litadýrðinni
►Arabískir þankar í tilefni listvið-
burðar./14
Sendiherra draums
►Pétur Bjömsson forstjóri Verk-
smiðjunnar Vífilfells hefur svalað
þorsta þjóðarinnar í hálfa öld með
drykk sem blandaður var í upp-
hafi til að létta landnemum lífíð á
ferðinni út á sléttur Bandaríkj-
anna./16
Enn á uppleið
►iron Maiden, ein fremsta þunga-
rokksveit heims, leikur í Laugar-
dalshöll næstkomandi fimmtu-
dag./ 18
B
HEIMILI/
FASTEIGNIR
► 1-28
Smíðað til gaman
►í Smiðjunni í dag fjallar Bjarni
Ólafsson um smíðarnar sem
dægradvöl ./2
Tónninn íeynni
►Atvinna er næg í Hrísey, þar
sem menn eldast vel og þora að
veraþeirsjálfir./l
Huggy á heimaslóðum
►Ljósmyndarinn og fyrirsætan
Huggy er íslensk í húð og hár þó
hún hafi búið erlendis nánast alla
ævi. Hún kom í stutta heimsókn*
á dögunum til að mynda íslenskar
stúlkur./8
Bráðgáfuð bráð
►íslendingar á villisvínaveiðum í
Kákasus./14
Af spjöldum glæpa-
sögunnar
► Böðullinn frá Buchenwald, Ilse
Koch, var í uppvexti sínum ekkert
frábrugðin örðum bömum nema
að hún þótti snemma harðdugleg
og í greindara lagi./16
► FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir 1/2/4/6/bak Kvikmyndir 13c
I.eiðari 20 Fólk í fréttum 18c
Helgispjall 20 Myndasögur 20c
Keykjavíkurbréf 20 Brids 20c
Minningar Stjömuspá 20c
2224 10C11C Skák 20c
Iþrðttir 34 Bíó/dans 21c
Útvarp/sjónvarp 36 Bréf til blaðsins 24c
Gárur 39 Velvakandi 24c
Mannlífsstr. 6c Samsafnið 26c
Dægurtónlist 12c
INNLENDAR FRÉTTIR:
2-6-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR:
1-4