Morgunblaðið - 31.05.1992, Side 12
12
MORGUNBlAÐIÐ SUNNUDÁGÚR 31. MAÍ 1992
Þ OG Ð AF ENSKUM UFFRUNA
ÍSLENSKA stafrófið samanstendur af latnesku
stafrófi auk tuttugu tákna, sem íslendingar eiga
sameiginleg með ýmsum þjóðum. Engin þjóð á
þó nákvæmlega sama stafróf. Af táknunum tutt-
ugu eru 12 broddstafir, Á,á, É,é, Í,í, Ó,ó, Ú,ú
og Ý,ý. Stafirnir Æ,æ og Ö,8 eru
í stafrófum hinna Norðurland-
anna en Ð,ð aðeins í færeysku.
Þ,þ eru íslendingar einir um, eft-
ir því sem best er vitað. En lítum
aðeins nánar á hvaða stafir tveir
þeir sfðastnefndu eru. Ari Páll
Kristinsson málfræðingur hjá ís-
lenskri málstöð tók saman þessar
upplýsingar um þ og ð.
í íslensku máli að fomu og
nýju notum við þ- og ð-hljóð. Þessi
hljóð tvö eru náskyld að allri gerð,
munurinn felst aðallega í því að
þegar sagt er ð titra raddböndin en
ekki þegar sagt er þ. Hljóð þessi eru
líka notuð í fornri og nýrri ensku, í
spænsku og fleiri málum.
Þ- og ð-hljóðin voru ekki til í latínu, og því
voru engin sérstök tákn fyrir þau f latneska gmnn-
letrinu sem lá til gmndvaliar ritmáii Norður-Evrópu-
manna á miðöldum. íslendingar og Englendingar
stóðu því frammi fyrir því að fylla þurfti í eyður í
latneska stafrófinu þegar rita skyldi á móðurmáli
þjóðanna. Prófessor Hreinn Benediktsson gerir grein
fyrir þ- og ð-táknum og sögu þeirra í riti sínu
Early Icelandic Script. Þar kemur m.a. fram að
enskt ritmál 11. aidar hafl verið heista fyrirmynd
íslendinga í því hvemig fara mætti að þegar latn-
eska stafrófið nægði ekki hljóðkerfi þjóðtungnanna.
Stafurinn þ var notaður í rúnaletri og bar þar
nafnið þurs. Hann kemur svo fram í fornenskum
textum, frá 8. öld og áfram, til að
mynda í Bjólfskviðu, sem er varð-
veitt í 10. aldar handriti. Stafurinn
heitir í fornenska stafrófmu þorn.
Þegar íslendingar taka að rita á
móðurmáli sínu, um 1100, grípa
þeir til stafsins þ og kalla hann þorn,
samkvæmt heimildum frá öðrum
fjórðungi 12. aldar. Það bendir til
þess að þ hafi verið tekið hér upp
að enskri fyrirmynd en hafi ekki
borist úr rúnaletri beint í íslenska
stafrófið. Lögun stafsins í íslenskum
textum bendir og til ensks uppruna,
Flest íslensku handritin hafa þ sem
að lögun líkist mest ensku þ-i frá
því á fyrri hluta eða um miðja 11.
öld.
Ð er notað í fornenskum textum,
t.d. Bjólfskviðu sem fyrr var nefnd.
Það er hins vegar ekki notað í allra elstu textum
á íslensku, heldur var þ-táknið notað bæði fyrir hið
raddaða og óraddaða hljóðbrigði í þeim; ð-ið kemst
þó bráðlega í notkun hér, þ.e. í textum frá því
snemma á 13. öld. Á 14. öld hverfur það smám
saman úr notkun og var ekki tekið upp aftur fyrr
en á 18. öld. í stað þess var notað d-tákn á þessu
milliskeiði.
gera okkur erfitt fyrir um lestur
rita sem nú þegar hafa verið gefin
út. Næsta skref gæti svo allt eins
orðið tillaga um að leggja málið
niður.“
Þorvarður Kári segir að þegar
hættir okkar íslendinga rekist á
alþjóðareglur þyki okkur erfitt að
gefa eftir en það kosti aukna vinnu
og fjármagn. „Við verðum því
spyija sjálf okkur hvort venjur
okkar séu peninganna virði, spurn-
inga um sjálfsvitund okkar sem
þjóðar, spuminga um verndun ís-
lensks máls og svo framvegis. Stór
hluti menningar okkar er íslensk
tunga og við viljum ekki að hún
breytist. Hingað til hefur það þótt
sjálfsagt að tekið sé tillit til ís-
lenskra aðstæðna hvað varðar t.d.
tölvur en nú er komið í ljós að
þessi mál leysast ekki af sjálfu
sér. Því er nauðsynlegt að vinna
að því að veija hagsmuni íslands
og það lýtur ekki eingöngu að pen-
ingahliðinni, heldur
varðar það einnig
áhuga og vilja til
að leggja á sig
aukna vinnu.“
Hvað er til ráða?
Af þessum
ástæðum var UT-
staðlaráði komið á
fót sem er faghópur
Staðlaráðs Islands,
en UT stendur fyrir
upplýsingatækni.
Nú er unnið að
breytingum á
starfsháttum þessa
faghóps í þá átt að
virkja sem flesta
aðila sem staðlamál
á sviði upplýsingatækni varða, út-
vega fé og taka aukinn þátt í al-
þjóðlegu samstarfi.
Friðrik Sigurðsson, sem sæti á
í UT-staðlaráði, segir skipta höfuð-
máli að fá hagsmunaaðila inn í
UT-staðlaráð. „Þetta kemur öllum
við, en þeir sem eiga mestra hags-
muna að gæta eru m.a. Póstur og
sími, aðilar sem vinna að fjölmiðl-
un, hagsmunasamtök tölvufyrir-
tækja, allir þeir sem starfa að tölv-
umálum og svo menntamálaráðun-
eytið, sem hefur ekki sýnt staðla-
málum nægilegan skilning hingað
til. Hér er ekki um síðra menning-
armál að ræða en það sem við
köllum í daglegu tali menningu,
nefnilega verndun málsins, við
verðum jú að geta skrifað íslensk-
una rétt. Auðvitað verðum við öll
að halda vöku okkar, alls staðar
þar sem við skynjum að verið sé
að vinna að stöðlum fyrir ný tæki,
verðum við að koma sjónarmiðum
okkar að.“
Eins og áður hefur verið bent
á, hafa Tyrkir beitt utanríkisráðu-
neyti sínu fyrir sig í svokölluðu
„Tyrkjaráni“. Staðlaráð íslands
hefur gert slíkt hið sama. Leitað
var til utanríkisráðuneytisins um
aðstoð og hefur það beint því til
sendiherra íslands í ríkjum EB og
EFTA að þeir leggi ríka áherslu
gagnvart samstarfsþjóðum okkar
að íslenskir stafír
séu í því samræmda
hugbúnaðarkerfi
sem er í undibún-
ingi.
Þá er til umræðu
hjá Staðlaráði ís-
lands að sækja um
fulla aðild að ISO,
Alþjóðasambandi
staðlastofnana. ís-
land er áheyrnar-
fulltrúi en ekki full-
gildur aðili að sam-
bandinu.„Það er
eindreginn vilji
Staðlaráðs að sótt
verði um aðild en
það er eins og flest
annað spurning um
peninga. Aðild að ISO kostar um
1,2 milljónir króna á ári og Staðla-
ráð hefur yfír mjög takmörkuðum
fjármunum að ráða. Því veltum við
því fyrir okkur hvernig við getum
tryggt þessa greiðslu til ISO í
framtíðinni," segir Þorvaður Kári.
Barist á mörgum vígstöðvum
í þeirri umræðu sem verið hefur
um alheimstöfluna er rétt að ítreka
að íslendingar þurfa að halda uppi
vörnum fyrir íslensku stafína á
fleiri en einni vígstöð. Mat Þor-
varðar Kára er að auðveldast sé
að halda íslensku stöfunum inn í
sjálfum tölvunum. Hins vegar sé
hætt við því að í þráðlausum fjar-
skiptum og ýmsum rafeindatækj-
um verði hlutur íslands fyrir borð
borinn. „Ég get nefnt nokkur dæmi
þar sem máli skiptir að íslenskir
stafir séu inn í stafatöflum og er
textavarpið líklega skýrasta dæm-
ið um hvað gerist þegar ekki tekst
að gæta hagsmuna okkar. Annað
dæmi er textaboðkerfí sem gerir
notendum kleift að senda texta á
t.d. símboða. Nú þegar hafa verið
samþykkt drög að stafatöflum fyr-
ir kerfið, sem gera ekki ráð fyrir
íslenskum stöfum. Þar sem íslend-
ingar og fleiri þjóðir hafa mót-
mælt þessum drögum, eru líkur á
því að kerfið verði tekið til endur-
skoðunar. Þá skiptir miklu að taka
þátt í endurskoðunarstarfinu.
Hönnunar- og teiknikerfi eru
ekki öll með íslenskum stöfum og
því er ekki hægt að skrifa á ís-
lensku inn á teikningarnar. í leikja-
tölvum er ekki eitt orð á íslensku
og auðvitað ætti að þýða allt við-
mót tölvanna yfir á íslensku en það
er mjög dýrt. Segja Svíar það kosta
um 1 milljón SEK að þýða eitt
forrit.
í framtíðinni munu koma á
markað alls kyns rafeindatæki með
tölvuviðmóti og þar verðum við að
beijast fyrir hagsmunum okkar.
Eg nefni útvarpstæki, sem líklegt
er að verði með einhvers konar
textaskjá, gagnaflutning með
hljóðvarpi, upplýsingar á geisla-
diskum, sem hægt er að skoða á
litlum tækjum, svokölluðum data-
discman, en þar eru upplýsingarn-
ar samþjappaðar í eitt tæki og litlu
hægt að breyta. Nokkur neyðarleg
dæmi blasa við okkur í miðbænum.
Skiltið við innkeyrsluna í Austur-
stræti sýnir ekki íslenskt ð heldur
útlendan staf sem er strikað d og
þegar ökumenn leggja svo bílum
sínum í bílastæðahúsin, þakkar
sjálfsalinn fyrir sig með orðunum
„pakka per“.
Ef ekki er að gáð, eru þakkir
sjálfsalans aðeins vísbending um
það sem koma skal. Þær hefðu þó
allt eins getað verið ættaðar úr
prentsmiðju vikublaðsins Norður-
slóðar, sem segir svo frá í Guðs-
gjafaþulu Halldórs Laxness; „sér-
staklega höfðu þeir orðið illa úti
með stafinn þorn, einn þann nauð-
synlegasta staf sem íslendíngar
eignuðust þegar þeir bjuggu til
stafróf sitt úr fomensku á elleftu
öld. Ef skrifuð var grein þar sem
mikið kom fyrir af þornum, þá
mátti reiða sig á að þornin dugðu
'ekki nema í fyrstu línurnar og af-
gánginn varð að bæta upp með
péum. Þetta gaf stundum einkenni-
legan texta sem ekki voru víst all-
ir snoknir fyrir að lesa.“
FEGRIÐ GARDINN OG BÆTIÐ
MEÐSANDI OG GRJOTI
SANDUR
SIGURSTEINAR VÖLUSTEINAR
HNULLUNGAR
Þú færb sand og allskonar grjót hjá okkur.
Vib mokum þessum efnum á bíla eöa
í kerrur og afgreiöum líka í smærri
einingum, traustum plastpokum
sem þú setur í skottiö á bílum þínum.
Leigum út kerrur og hjólbörur.
BJÖRGUN HF.
SÆVARHÖFÐA 33
SÍMI: 68 18 33
Afgreiðslan við Elliöaár er opin:
mánud. -fimmtud. 7:30 -18:30
föstud. 7:30-18:00
laugardaga 7:30 -1 7:00
Opib í hádeginu nema á laugardögum.
SNARA
FÁNASTENGUR
# Úr glasfiber
# Með öllum búnaði
# Lengdir 6-7-8-10 metrar
SNARI
SÍMI 72502
Ódýrtr
J|L HARÐVIÐARVAL dákar
HARÐVIÐARVAL HF.
KRÓKHÁLSI 4 R. SÍMI 671010